Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 33 Komdu í vöfflur og kaffi kl. 15 í dag Stuðningsfólk Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarfulltrúa býður þér og þínum í sunnu- dagskaffi á kosningaskrifstofunni í gamla Landssímahúsinu við Austurvöll. Kíktu í kaffi og ræddu málin við frambjóðandann. Allir velkomnir. www.hannabirna.is Kosningaskrifstofa stuðningsfólks Hönnu Birnu er í gamla Landssímahúsinu við Austurvöll. Sími 561 0900 - hannabirna@hannabirna.is Hanna Birna - 2. sætið! ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 3 00 39 1 0/ 20 05 www.urvalutsyn.is Stuttar ferðir í nóvember og desember. 16. nóv, 29. nóv og 7. des. 44.900 kr.* Verð óháð fjölda, þó lágmark 2 í íbúð *Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar. Verð m.v. að bókað sé á netinu. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann. Skelltu þér í sólina á frábæru verði! Brottfarir í boði Verð: 16. nóv. – 14 nætur 49.900 kr.* 16. nóv. – 21 nætur 59.900 kr.* 29. nóv. – 8 nætur 44.900 kr.* 29. nóv. – 18 nætur 59.900 kr.* 7. des. – 10 nætur 44.900 kr.* 7. des. – 14 nætur 49.900 kr.* Fáðu ferðatilhögun, nánari upp- lýsingar um gististaðina og reiknaðu út ferðakostnaðinn á netinu! Verð frá: Montemar Las Camelias Staður: L A U G A R D A G U R 5 D A G A R V E R Ð U R S P Á F Y R I R G R A N C A N A R I A 24ºC 23ºC Heiðskírt S U N N U D A G U R 23ºC 22ºC Heiðskírt M Á N U D A G U R 23ºC 22ºC Heiðskírt Þ R I Ð J U D A G U R 23ºC 22ºC Heiðskírt M I Ð V I K U D A G U R 23ºC 22ºC Heiðskírt Sýningar hefjast á föstudag! Aðeins sýnt í nóvember! Brim Íslandi standa mjög vel í dag, miðað við aðra Brasilíubúa. Íslendingarnir stóðu sig mjög vel, stofnuðu fyr- irtæki og trúfélög, áttu í viðskiptum og efnuðust margir vel.“ Luciano segir að heimildir um Brasilíufarana séu fáar. Fyrir utan bók Þorsteins sé það heimildamynd sem gerð var fyrir 25 árum og grein sem birtist í Árbók Þingeyinga árið 2000. Hann kveðst því vona að loka- ritgerðin fylli upp í ákveðið skarð í þeim efnum. Allir landnemarnir í Brasilíu voru Þingeyingar, en maðurinn sem lést í Hamborg var Skagfirðingur. Luc- iano segir að þrátt fyrir að aðeins 39 manns hafi komist á leiðarenda, hafi gríðarlegur áhugi verið hér heima fyrir frekari ferðum til Brasilíu. „Frá því um 1860 var áhuginn á Brasilíuferðum mjög mikill og á ár- unum 1863-65, þegar stofnað var Útflutningafélag í Suður-Þingeyjar- sýslu. Meira en 500 manna hópur var búinn að skrá sig til Brasilíu- ferðar. Skip átti að koma og sækja fólkið til Akureyrar og sigla með það alla leið. Sumarið 1865 yfirgaf þetta fólk jarðir sínar, seldi búfé, reif sig upp og safnaðist ferðbúið saman við Akureyrarhöfn. Einar nokkur á Nesi sá um þetta, en það varð aldrei úr því að skipið kæmi. Það voru mikil vonbrigði, og Einar var sakaður um að hafa einungis ætlað að hafa fé af fólkinu, sem hafði greitt fyrir að fá að ganga í Útflutningafélagið. Það er ekki vitað hvort hann hafði raunverulega í hyggju að svíkja fólk, en reiðin í hans garð var mikil. Margt þessa fólks fór á endanum til Kanada og Bandaríkjanna, en þeir 37 sem voru staðráðnir í því að fara til Brasilíu voru skyldmenni fjórmenninganna sem fóru í fyrstu ferðina þangað suður eftir 1863.“ Íslendingum fannst Brasilía sem fyrirheitna landið; þar var stans- laust sólskin, smjör draup af hverju strái, ávextir uxu á trjám, og nátt- úruleg harðindi næsta fátíð. Íslend- ingarnir settust að í námunda við Þjóðverja. Þeir nutu þess margir að kunna dönsku og áttu því auðvelt með að tengjast germönskum frændum sínum að siðum og menn- ingu. Margir Íslendinganna lærðu þýsku áður en þeir lærðu portú- gölsku. Íslensk ættarnöfn og söltuð síld Luciano Dutra segir ómögulegt að segja til um fjölda afkomenda ís- lenska þjóðarbrotsins í Brasilíu í dag, en að ætla megi að það séu á milli 1.500 og 2.000 manns. Hann segir þá marga enn bera sterk ís- lensk einkenni í útliti, og margir þeirra bera nöfn sem bera upprun- anum í Þingeyjarsýslum vitni – eins og Söndahl, Bardal og Reykdal. „Þau tala þó ekki lengur íslensku, en það eimir enn eftir af til dæmis matarsiðum – þau borða sérstaklega saltsíld. Fólkið er meðvitað um upp- runa sinn, þótt það viti lítið sem ekkert um Ísland í dag. Hugmyndir margs þess um Ísland eru um landið sem forfeður þeirra yfirgáfu, land torfbæja, fátæktar og harðinda. Fá- ir gera sér grein fyrir stöðu Íslands í dag.“ Luciano vinnur samhliða náminu hér að dagskrárgerð fyrir brasilíska sjónvarpið. Hann hefur gert þætti um Ísland og á sunnudaginn verður þáttur um kvennafrídaginn sýndur í Brasilíu fyrir 25 milljónir manns. lesa og skrifa BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Reykjavíkur Annað kvöldið af þremur í Butl- er-sveitakeppni félagsins var spil- að þriðjudaginn 25. október. Keppnin virðist vera að harðna á toppnum, þó að aðeins þurfi að skora 18 eða fleiri punkta til að vinna fullnaðarsigur í 7 spila leikj- um. Eftirtaldar sveitir náðu hæsta skorinu á öðru spilakvöldinu: Hermann Friðriksson 27 Esja 26 Ferðaskrifstofa Vesturlands 23 Grant Thornton 23 Staða efstu sveita er nú þannig: Ferðaskrifstofa Vesturlands 49 Vinabær 46 Esja 43 Hermann Friðriksson 38 Grant Thornton 37 Ragnar Magnússon og Páll Valdimarsson eru efstir í Butler- útreikningi para með +2,88 impa skoraða í 28 spilum. Sævar Þor- björnsson og Magnús Magnússon, sem spilað hafa 56 spil, eru í öðru sæti með +2,42 impa í plús í spili að meðaltali. Síðasta kvöldið í þessari skemmtilegu keppni verð- ur spilað þriðjudaginn 1. nóvem- ber. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni var spiluð í Ásgarði, Stangarhyl, fimmtud. 27.10. Spilað var á 11 borðum og var meðalskorin 216 stig. Árangur N-S Hjálmar Gíslason – Hilmar Valdimarss. 252 Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 251 Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímsson 237 Árangur A-V Þröstur Sveinsson – Bjarni Ásmunds 246 Guðbjörn Axelsson – Gunnar Jónsson 241 Alda Hansen – Jón Lárusson 240 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.