Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 59
DAGBÓK
Fréttir
í tölvupósti
HM í Portúgal.
Norður
♠K107532
♥ÁG
♦G87
♣G4
Vestur Austur
♠6 ♠984
♥K876 ♥953
♦D9 ♦106543
♣ÁD8753 ♣62
Suður
♠ÁDG
♥D1042
♦ÁK2
♣K109
Eftir sagnir sem enginn getur lært
af, varð Ítalinn Giorgio Duboin sagn-
hafi í sex spöðum í suður. Þetta var í
viðureign Ítala og Hollendinga í þriðju
umferð HM.
Hvernig á að spila sex spaða með
trompi út?
Duboin ákvað með sjálfum sér að
hjartakóngurinn yrði að liggja og síðan
þyrfti hann að hitta í laufið. Hann tók
fyrst tvo slagi á tromp og svínaði svo
hjartagosa. Hann tók þriðja trompið
og hjartaás, fór heim á tígulás og spil-
aði hjartadrottningu.
Jan Jansma í vestur lagði kónginn á
drottninguna og Duboin trompaði.
Spilaði því næst tígli á kónginn með þá
áætlun í huga að henda tígulgosa niður
í hjartatíu. En þá birtist tíguldrottn-
ingin óvænt, svo hægt var að kasta
laufi í fríhjartað.
Tólf slagir og lukkuleg sveifla til
Ítala.
E.s. Áhorfendur í sýningarsalnum
veltu fyrir sér hvað Duboin hefði gert
ef vestur hefði EKKI lagt á hjarta-
kónginn. Hefði hann hent laufi úr
borði, eða kannski tígli?
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Gott Kastljós
ÉG GET ekki orða bundist yfir því
hversu vel mér finnst hafa til tekist
með nýja fréttaskýringarþáttinn í
ríkissjónvarpinu, Kastljós. Umsjón-
armennirnir eru hver öðrum betri
og þau sem komu frá Stöð 2 virðast
eins og á heimavelli á þessum nýja
starfsvettvangi. Ég get ekki ímynd-
að mér annað en að sá ágæti sjón-
varpsmaður Logi Bergmann Eiðs-
son nagi sig í handarbökin yfir því
að hafa horfið á braut, því á sama
tíma og RÚV er að blómstra, finnst
mér hálfgerð deyfð yfir öllu á Stöð
2.
Það er greinilegt að Páll Magn-
ússon er að gera góða hluti í stól út-
varpsstjóra. Mér finnst líka ákaf-
lega vel til fundið að hann skuli lesa
fréttirnar. Það er eitthvað „heim-
ilislegt“ við að sjá Pál á skjánum.
Og vel á minnst: Innslag hans í
Spaugstofunni, þar sem hann þurfti
að ganga í öll verk á stöðinni, var
frábært.
Fólk er fljótt að senda inn at-
hugasemdir þegar eitthvað fer úr-
skeiðis og því finnst mér allt í lagi
að minnast á það sem vel er gert,
svona til tilbreytingar. Kærar þakk-
ir til Páls, Spaugstofumanna og
Kastljóssfólksins.
Ánægður sjónvarpsáhorfandi.
Gulu húsin
HVAR eru gulu húsin í bænum?
Hvað ætlum við að mála húsin
margar kynslóðir í gulu? Hver segir
frá þeim? Hver hefur ábyrgðina?
Veist þú um heimili þar sem ofbeldi
á sér stað í dag? Hvað ætlar þú að
gera í því?
Hvaða leiðir hafa barnaverndar-
nefndir til að stoppa að húsin séu
máluð gul? Stuðningurinn heim,
hefur hann einhverja leið til að
skoða hvort húsin eru gul eða ekki?
Hefur alþingi hugleitt að setja
ákvæðið sem Austurríkismenn hafa
sett um að fjarlægja ofbeldismann
af heimili í 10 daga? Í hvaða farvegi
er lagabreyting til að fjarlægja
fyrningu úr kynferðisglæpum?
Hvernig er hægt að fjarlægja við-
urkenninguna á kynferðisglæpum
úr refsilagaframkvæmdinni, hinni
raunverulegu virkni rammans?
Erum við of upptekin af klám-
væðingu, barnaklámi á netinu og
unglingakynlífi til að gera okkur
grein fyrir heimilissifjaspellum?
Mega þau gleymast?
Hvaða sálfræðilegar varnar-
aðgerðir fara í gang sem valda því
að mæður halda með perrunum,
hvort sem þeir taka dæturnar, syst-
urnar, frænkurnar, stjúp- eða fóst-
urdæturnar eða hvaða litlu kven-
menn sem hægt er að ná í innan
veggja heimilisins? Af hverju
skiptast fjölskyldur í tvær fylk-
ingar, aðra sem vill viðurkenna
gjörning perrans og einangra hann
frá aðgengi að litlum kven-
skyldmennum eða hina sem vill
þegja um gjörninginn og finnst
fórnarlambið hryðjuverkamaður á
sviði mannorðs?
Ofbeldi í gulu húsunum á Íslandi
er í gangi í dag. Hverjir ætla að
koma með ráð til að stoppa það.
Hvað ætlar foreldrasamstaðan að
gera? Hvað ætlar kirkjan að gera?
Hvað ætla skólar að gera? Hvað
ætlar Félagsþjónustan að gera?
Hvað ætla fjölmiðlar að gera?
Fleygja á síðurnar öllum málum
sem ljótust eru, fullnægja svartri
þörf almennings fyrir ljótt, uns allir
fá nóg og fara að taka þetta sem
sjálfsagðan part af ljótleika mann-
legs eðlis?
Úff, en sá léttir að þetta er búið,
nú get ég haft áhyggjur af bíla-
menningunni, vísareikningnum og
hvaða neysluvörur séu eitraðar. Allt
utanaðkomandi ógnir. Farið svo
heim í öryggið. En ég er 7 ára, búin
í skólanum, pabbi heima, mamma á
kvöldvakt. Er ég þá örugg?
Birna.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. d4 b6 4. g3
Ba6 5. Rbd2 Bb4 6. Dc2 Bb7 7. Bg2
Be4 8. Dd1 O-O 9. O-O Bxd2 10.
Dxd2 d6 11. b3 Rbd7 12. Bb2 De7
13. Dc3 c5 14. Hfd1 a5 15. Hd2 Hfc8
16. Hc1 a4 17. De3 axb3 18. axb3 h6
19. Bh3 d5 20. Re5 cxd4 21. Bxd4
Rxe5 22. Bxe5 b5 23. f3 Bg6 24. c5
Hc6 25. b4 Hca6 26. Bc3 Kh7 27.
De5 Df8 28. Df4 Rg8 29. e4 Re7 30.
Bf1 De8 31. He1 Dc6 32. Be5 Db7
33. Hed1 Ha4 34. Bc3 Ha3 35. De3
f6 36. Hd3 H8a7 37. Be1 Hxd3 38.
Dxd3 dxe4 39. Dxb5 Da8 40. Dc4
Rd5 41. Bf2 e3 42. Be1 Ha2 43. Bd3
Bxd3 44. Dxd3+ f5 45. b5
Staðan kom upp í A-flokki minn-
ingarmóts Tigrans Petrosjans sem
lauk fyrir skömmu í Nagorno Karab-
akh í Armeníu. Viktor Bologan
(2682) hafði svart gegn Vassily Iv-
ansjúk (2748). 45... Rc3! 46. Dxe3
46. Bxc3 hefði ekki gengið upp
vegna þess að eftir 46...Dxf3 47. Hd2
Hxd2 48. Bxd2 Df2+ 49. Kh1 exd2
hefur svartur gjörunnið tafl. 46...
Rxd1 47. Dxe6 Ha1 48. Dxf5+ Kh8
49. De5 Rb2 og hvítur gafst upp.
Lokastaða mótsins varð þessi: 1.
Levo Aronjan (2724) 6 vinninga af 9
mögulegum. 2.–3. Ashot Anastasjan
(2596) og Hikaru Nakamura (2662)
5½ v. 4. Ivan Sokolov (2696) 5 v.
5.–8. Vassily Ivansjúk (2748), Karen
Asrian (2645), Viktor Bologan (2682)
og Bartlomiej Macieja (2592) 4 v. 9.–
10. Alexey Dreev (2694) og Bu
Xiangzhi (2637) 3½ v. Bu tapaði
þrem skákum gegn Nakamura,
Sokolov og Bologan þar sem hann
hætti í mótinu sökum þess að veik-
indi komu upp í fjölskyldu hans.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
YOGA •YOGA • YOGA
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, símar 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Líkamsæfingar, önurnaræfingar, slökun og hugleiðsla
Nýtt í Yogastöðinnni Heilsubót - KRAFTYOGA
Sértímar fyrir barnshafandi konur
og fyrir byrjendur.
Dummy texti,Dummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
● Stór heildverslun með fatnað.
● Þekkt heildsala með byggingavörur.
● Fjárfestir óskast að þekktu fyrirtæki sem ætlar í útrás.
● Stór veitingahúsakeðja í Noregi. Ársvelta 15 milljarðar kr.
● Lítið framleiðslufyrirtæki með langa og góða rekstrarsögu.
● Danskt framleiðslufyrirtæki með þekktan fatnað fyrir konur.
● Lítil heildverslun með fjölbreyttar vörur og góðan sölumann óskar eftir sameiningu við
stærra fyrirtæki. Góð framlegð.
● Mjög arðbær verslun og veitingarekstur úti á landi. Hagstætt verð.
● Skipaviðgerðastöð í Svíþjóð. Góður hagnaður.
● Sérverslun með íþróttavörur.
● Arðbært vinnuvélaverkstæði með föst verkefni.
● Stórt þjónustufyrirtæki í byggingaiðnaði.
● Þekkt sérverslun/heildverslun með vörur fyrir heimili og fyrirtæki. Gott tækifæri fyrir
samhent hjón.
● Þekkt heildverslun með gólfefni.
● Rótgróið íbúðahótel á góðum stað í miðbænum. 8 vel búnar íbúðir.
● Meðalstórt framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 150 millj. kr.
● Rótgróðið fyrirtæki í hreinsun og útflutningi æðadúns. Góð afkoma. Hentar til flutnings
út á land.
● Stórt tréiðnaðarfyrirtæki.
● Matvælavinnsla með þekkt vörumerki. Hentar til flutnings og/eða sameingingar.
● Vel þekkt iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu. Ársvelta 70 millj. kr. Góð afkoma.
● Lítil sérverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 40 millj. kr.
● Þekkt heildverslun/sérverslun með húsgögn og gjafavörur. Ársvelta 70 millj. kr.
Góður hagnaður.
● Heildverslun með sérhæfðar tæknivörur. Ársvelta 110 millj. kr.
● Deildir úr heildverslunum með ýmsar vörur. Hentugar sem viðbót fyrir heildverslanir.
● Meðalstórt verktakafyrirtæki í jarðvinnu. Góð verkefnastaða.
● Rótgróin sérverslun með mikla vaxtarmöguleika. Ársvelta 37 millj. kr.
● Heildverslun með búnað og vélar til notkunar í iðnaði. Ársvelta 130 millj. kr.
● Rótgróið þjónustufyrirtæki í byggingaiðnaði. Ársvelta 250 millj. kr.
TEPPI Á
STIGAHÚS
- gott verð -
komum og gerum verðtilboð
Hef flutt læknisstofu mína úr miðbæ
Reykjavíkur í miðbæ Mosfellsbæjar
Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í netfangið
laralla@mmedia.is
Lára Halla Maack
geðlæknir
Má Ég Klippa Þig? ehf.
Hef opnað nýja stofu,
Má Ég Klippa Þig?ehf
Bankastræti 14.
í verzluninni
Nakti Apinn
Gamlir og Nýjir viðskiptavinir
hjartanlega velkomnir.
Tímapantanir í
síma 534 3535
sjáumst,
Kolbrún Kristjánsdóttir