Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 65 Ferill Árna Egilssonar bassa-leikara verður að teljast ísenn ævintýralegur og óvenjulegur. Hann vildi upp- haflega gerast flugmaður en nær- sýni batt enda á þá drauma og í staðinn var stefnan tekin á bass- ann. Það hljóðfæri átti síðan eftir að stika Árna leið sem lá um víð- an völl og endaði í draumaverk- smiðjunni Hollywood. Þar hefur hann í áratugi verið með vinsæl- ustu stúdíó-bassaleikurum og komið að óteljandi kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og hljómplötum, svo ekki sé minnst á 19 ósk- arsverðlaunahátíðir – nokkuð sem enginn annar bassaleikari hefur afrekað.    Í seinni tíð hefur Árni snúið sérí auknum mæli að tónsmíðum og nýjasti afrakstur þeirra til- rauna er diskurinn Kaleidoscope sem er um marga hluti sérstakur. „Nokkra hluti má telja sem eru óvenjulegir, og kannski merki- legir í sumra augum,“ útskýrir Árni en strax má greina á tali hans (sem örlítið er orðið bjagað af nær hálfrar aldar dvöl utan landsteinanna) að viðmælandinn er hæverskur og mildur maður. „Það má fyrst nefna að þessi blanda tónlistar hefur aldrei verið gerð áður, mér vitandi. Þetta er bræðingur 21. aldar kórtónlistar og djass. Diskurinn sjálfur er líka alveg sérstakur og sá fyrsti á Ís- landi þar sem önnur hlið disksins er DVD og hin CD. Þessi tækni er ný, komin frá Sony, og er mér sagt að aðeins 10 verkefni hafi verið unnin með þessari tækni hingað til.“    Þetta óvenjulega snið á disk-inum opnar nýjar leiðir í framsetningu tónsmíðarinnar, en aðra hliðina má spila í venjulegum geislaspilara en á hinni má finna alveg sömu upptöku, nema hún er í myndrænu DVD-sjónarspili sem tekið var upp með Dolby 5.1 víð- óma hljómi. Upptakan fór fram í Langholtskirkju í nóvember en verkið flytur Kór Langholtskirkju við undirleik Mezzoforte auk ým- issa einleikara. „Mezzoforte er heimsfræg hljómsveit, nema á Ís- landi,“ grínast Árni, „og kórinn er einn af toppkórum heimsins, svo jafnvel þó tónlistin mín væri ekki neitt afrek myndi útkoman örugg- lega seint verða slæm með þessum úrvalslistamönnum.“ Útgefandi verksins er Jazzvakn- ing og er diskurinn afmælisdiskur þess félagsskapar sem fagnar á þessu ári þrjátíu ára afmæli. Verkið sjálft var samið til heiðurs Jóni Stefánssyni kórstjóra sem í ár á fjörutíu ára starfsafmæli.    Þeir Jón og Árni eiga þegar aðbaki samstarf sem borið hef- ur ágætan ávöxt, meðal annars disk sem kom út fyrir nokkrum árum með verki Árna fyrir orgel og kór. „Síðan fórum við að tala um að semja eitt verk enn, og mér þótti upplagt að gera eitthvað óvenjulegt í tilefni af tímamót- unum hjá honum Jóni. Hann vildi fá eitthvað með djassáhrifum og ég vildi gera eitthvað óhefð- bundið, fá smá framúrstefnu – og fara í þá átt með Mezzoforte. Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi þeirrar hljómsveitar og það er eins og draumur rætist, að fá að vinna með þessu fólki, alveg stór- kostlegt,“ segir Árni.    Eins og fyrr sagði hefur tón-listin leitt Árna víða um heim, en leið hans hefur einnig legið um ólíkar tónlistarstefnur og margs konar hljómsveitir, sem hljóta að hafa sett mark sitt á tón- smíðar hans og stíl. Það er í raun mjög viðeigandi að nýjasta verkið hafi fengið heitið Kaleidoscope, þegar litið er á fjölbreytnina í ferli Árna:. „Ég hef spilað bæði með sinfóníuhljómsveitum, sem einleikari, í djassböndum og rokk- grúppum. Þá blandast þessar stefnur allar einhvern veginn saman í hausnum á manni.“ Þessi ferð Árna um tónlistina hófst 1958 og voru samferðamenn hans menn á borð við John Barbirolli, André Previn og síðar Jerry Goldsmith og John Williams. Það eru engar ýkjur að segja að á Íslandi sé leit- un að bassaleikara með víðfeðm- ari og margbreytilegri feril.    Tónsmíðar sínar byrjar Árnialltaf á sama hátt; á byrj- uninni. „Sumir fara upp á fjöll og stara upp í himininn til að fá inn- blástur. Ég bara sest niður og byrja. Það er það erfiðasta við þetta; að byrja. Þetta er eins og með sögurnar, að það er yfirleitt best að byrja á „einu sinni var“ og svo fer þetta í ýmsar áttir af sjálfsdáðum.“ Á Kaleidoscope þurfti Árni hins vegar að fást við óvenjulegar áskoranir: „Þetta var alveg sér- staklega erfitt vegna þess að ég hafði í raun enga fyrirmynd. Svo var líka spurning hvort ég ætti að hafa verkið langt eða stutt, og hver gerði hvað í hve langan tíma. Ég vinn með músíkform sem eru á vissan hátt gagnstæð: Það er enginn spuni í klassíkinni en djassinn er eiginlega byggður á spuna. Ég varð að hugsa mig lengi og vel um, hvernig ég ætlaði að blanda þessu tvennu saman.“    Og að vanda er Árni með mörgjárn í eldinum. „Ég ætla að vona að ég sé ekki að setjast í helgan stein. Það hefur aldrei ver- ið meira að gera hjá mér,“ segir hann. Árni hefur samt ákveðið að draga úr störfum sínum í upp- tökuverunum í Hollywood en helstu verkefni hans þessi miss- erin eru hér á landi. „Ég er meira hér heima en ég hef verið áður. Ýmis verkefni eru að koma upp hér og eitt þeirra er voðalega skemmtilegt, tengt jólaleikriti fyr- ir Þjóðleikhúsið. Um er að ræða barnaleikrit skrifað af Þorvaldi Þorsteinssyni, leikstýrt af Þórhalli Sigurðssyni. Tónlistina geri ég við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Þetta verður voða spennandi, held ég, og ljóð Jóhannesar eru náttúrlega þjóðargersemi sem kannski hefur hálfpartinn gleymst. Svo var ég að skila af mér stykki fyrir tvo konsertpíanista, annar er rúss- neskur og hinn þýskur. Þetta er virtúósastykki fyrir tvö píanó og stendur til að taka það upp í Þýskalandi á næsta ári.“ Tónlistin gegnum kviksjá ’Það er enginn spuni íklassíkinni en djassinn er eiginlega byggður á spuna. Ég varð að hugsa mig lengi og vel um, hvernig ég ætlaði að blanda þessu tvennu saman.‘ AF LISTUM Ásgeir Ingvarsson Morgunblaðið/Eggert Árni Egilsson, bassaleikari og tón- skáld, á fjölbreyttan feril að baki. asgeiri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.