Morgunblaðið - 30.10.2005, Qupperneq 21
skreytingar úr blómum og kaktus-
spónum að kirkjunni. Þetta er all-
löng ganga og byrðin þung í sólinni.
Skreytingarnar sem eru allt að
fimmtán metra háar eru reistar
framan við sóknarkirkjuna við aðal-
torgið, sem fórn þeirra sem þær
unnu og báru. Dansararnir komu svo
á milli í fjölbreyttum gervum og
fannst mér þessi mikla og fjölskrúð-
uga ganga aldrei ætla að taka enda.
Dansararnir sýndu listir sýnar á
torginu. Þar voru einnig sprengdar
brúður sem snúið var á hárri stöng
og þegar þær sprungu með viðeig-
andi hvelli hlupu krakkarnir til að
leita að sælgæti, ávöxtum, dóti eða
öðru sem átti að vera í hverri brúðu.
Og þarna voru einnig Los Volodores,
fljúgandi dansarar frá Papantla, með
sitt atriði í fyrsta skipti af mörgum á
Mikjálsmessuhátíðinni. Þetta er forn
trúarathöfn, frá tíma Aztekanna, til-
einkuð guðum sólarinnar, vindsins,
jarðarinnar og vatnsins. Fimm menn
í viðeigandi búningum klífa upp háa
stöng og eftir að helgisiðir hafa verið
viðhafðir láta þeir sig falla fram af
toppnum og svífa í köðlum sem
rakna smám saman upp af slánni al-
veg þangað til þeir lenda fimlega á
jörðinni. Ekkert öryggisnet er undir.
Þetta er þekktur flokkur sem sýnir
víða, meðal annars alltaf í San Mig-
uel á Mikjálsmessu.
Um kvöldið var skotið upp flug-
eldum, hvað annað?, og haldið áfram
á sunnudeginum. Þar var stærsta at-
riðið dansganga mikil um götur bæj-
arins sem lauk á aðaltorginu. Þetta
voru sömu dansararnir og voru í
blómagöngunni. Gangan hófst við
Allende-stofnunina og þar fylgdist
ég með undirbúningi þeirra. Stignir
eru ýmsir gamlir og flestir einfaldir
þjóðdansar, frá því fyrir nýlendutím-
ann undir trumbuslætti – en einnig
túlkuð saga Mexíkó frá upphafi til
vorra daga auk þess sem ýmis trúar-
tákn koma fyrir. Notuð eru fjöl-
breytt og skrautleg gervi, meðal
annars fjaðraskraut indíána, grímur
og risabrúður. Sem dæmi má nefna
að sýnd er barátta milli frumbyggj-
anna og Spánverja, trúboðið og sjálf-
stæðisbarátta Mexíkóa. Og ekki má
gleyma baráttu heilags Mikjáls við
fjandann.
Kristin og heiðin tákn
Í dönsunum og skrúðgöngunum
almennt koma fram heiðnir siðir
jafnt og kristnir enda er það svo að
þótt Mexíkóar séu katólskir og mað-
ur finni það sterkt í kirkjunum að
þar hvílir full alvara að baki virðist
stutt í heiðinn átrúnað. Það helgast
sjálfsagt af því að Spánverjum lá
mikið á að kristna íbúana eftir að
Cortes sigraði Aztekana og lagði
landið undir Spánarkonung og til
þess að ná árangri leyfðu þeir vissa
skurðgoðadýrkun og oft var trú á
skurðgoð einfaldlega færð yfir á dýr-
linga katólskra og haldið áfram að
biðja um regn eða góða maísupp-
skeru. Þessu má sjálfsagt líkja við
kristnitökuna á Íslandi þegar að
samkomulagi varð að við fengjum að
halda í vissar heiðnar trúarathafnir.
Kemur þetta meðal annars fram á
áberandi hátt í dansinum enda for-
tíðarhyggja í öndvegi þegar verið er
að túlka sögu landsins, jafnvel þótt
um sannkristna hátíð sé að ræða.
Á sunnudag var ég alveg búinn að
fá nóg af skrúðgöngum, flugeldasýn-
ingum og hátíðahöldum almennt. En
íbúar San Miguel fóru fljótlega að
tala um næstu stórhátíð, Allrasálna-
messu, sem er vegleg hátíð í byrjun
nóvember. Svo tekur ein við af ann-
arri.
Hárið fléttað og skreytt með fjöðrum.
Kristniboðarnir og prestarnir áttu
sína fulltrúa í dansinum.
Þessi dansari gæti verið að koma beint út úr frumskógum suðurhluta Mexíkó.
helgi@mbl.is
Fulltrúi frumbyggjanna dansar af innlifun í einni af skrúðgöngum helgarinnar.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 21
ÞRIÐJU helgina í september er
Pamplonada þar sem nautum er
sleppt á götur miðbæjarins í San Mig-
uel de Allende og dregur sú athöfn
nafn sitt að sjálfsögðu af samskonar
hátíð á Spáni. Nautahlaupið dregur að
sér tuttugu þúsund gesti á ári hverju,
aðallega ungt fólk frá Mexíkóborg sem
sleppir ærlega fram af sér beislinu.
Fjöldi fólks er inni á götunum og
býður nautunum birginn. Eftir helgina
kom fram í einu staðarblaðanna að
menn voru ánægðir með að enginn
skyldi hafa látið lífið í ár. Tveir slös-
uðust þó alvarlega. Þennan laugardag
slösuðust alls 47 einstaklingar, liðlega
helmingur af völdum nautanna en aðr-
ir vegna drykkju og annars.
Brjálað fólk og naut á hlaupum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nautin voru ringluð þegar þau stoppuðu í hlaupum sínum um göturnar. Þá voru nógir sjálfboðaliðar til að æsa þau upp.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
GRUNNNÁM Í BÓKHALDI
Helstu námsgreinar:
Villt þú læra bókhald og tölvubókhald?
108 kennslustunda hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja læra
bókhald frá grunni til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum.
Námið hentar einnig einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur og
þeim sem eru að hefja rekstur og vilja geta fært bókhaldið sitt sjálfir.
Virðisaukaskattur
- reglur, skil og öll meðferð vsk.
Tölvubókhald í Navision
- rauhæf verkefni með fylgiskjölum
Verslunarreikningur
- það helsta sem notað er við skrifstofustörf
Undirstaða bókhalds
- mikið um verklegar æfingar
Morgunnámskeið:
Frá 07. nóv. til 16. des.
Kennt mán.-, mið.- og fös
frá 8:30 til 12:30.