Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Það lygilega gerðist þennan steikjandi heita sumardag á Akureyri að þegar skemmtunin hófst, þá voru Fjörkálfarnir fleiri en gestirnir. Menn urðu að borga með sér. […] Margt var brallað og á mörgum stöðum var sæmileg aðsókn, því þetta spurðist sæmi- lega út. En á öðrum stöðum varð aðsóknin vægast sagt hræðileg. Pétur mundi þó alltaf sérstaklega eftir góðri aðsókn á Sauðárkróki, þar sem 800 kvikindi mættu á staðinn. En aðrir menn hafa sagt að börnin hefðu mætt á staðinn þótt Fjörkálfarnir hefðu hvergi verið nærri, því í plássinu var knattspyrnumót drengja og það vildi svo skemmtilega til að þeir höfðu aðstöðu í húsinu sem geymdi skemmtun Fjörkálfanna […]. Þessa sömu helgi þarna á Sauðárkróki kom Hemmi á koppinn kappleik milli fararstjóra á knattspyrnumótinu og Fjörkálfanna. Þetta þótti hin skemmtilegasta ráðstöfun og svo fóru menn að hita upp, þá koma þar að nokkrir strákar og spyrja Ómar að því hvort Hemmi ætli virkilega að fara að leika fót- bolta. Ómar svarar og segir að Hermann hafi nú á sínum tíma verið einn af fremstu knatt- spyrnuhetjum landsins; verið í landsliðinu og hvaðeina. Þessu trúðu strákarnir ekki. Hermann varð alveg niðurbrotinn þegar strákarnir trúðu ekki einu einasta orði. Þann- ig að hann sneri sér að Ómari og sagði: – Hvað er í gangi, vita þeir ekkert hver ég var? Í framhaldi af þessu tók það Ómar miklar útskýringar að láta mannskapinn skilja að drengirnir sem þarna voru, fæddust ekki fyrren fimmtán eða tuttugu árum eftir að karlarnir í Fjörkálfunum voru uppá sitt besta. Þetta var sú staðreynd sem menn urðu að lifa við; tími þess fyrirbæris sem þeir stóðu fyrir, var löngu liðinn. Samt höfðu menn alveg einstaklega gaman af þessu framtaki. Hér á eftir verður gripið niður í bókina á víð og dreif og byrjað á því tímabili sem kennt er við Pelican: Það var um verslunarmannahelgi þegar önnur bönd auglýstu gigg um landið allt, að þá ákváðu þeir í Pelican að fara á bílnum með Stebba austur á land og taka sjensinn á því hvort ekki mætti komast óvænt í grimm sjúkheit. Í sjoppum á leiðinni austur var Pétur í þvídjobbi að hringja og reyna að reddasamkomuhúsi. Svo gerðist það að hannnáði að redda kofa sem sagt var að tæki 400 kvikindi á dansgólfið. Þetta var hinn ágæti skáli Végarður í Fljótsdal. Pétur hélt áfram að stoppa í sjoppum, hann þurfti að hringja í Gufuna til að segja fréttir af Pelican. Hann ýjaði að því í tilkynn- ingum að hljómsveitin væri á flugi og væri væntanleg á Austurland. Frekar voru menn nú fúlir yfir því að vera að fara að spila í einhverjum Végarði sem ekki var til á landakorti og ekki víst að lýð- urinn hefði almennt grænan grun um tilvist staðarins. Með reglulegu millibili fengu Austfirðingar nýjar fregnir. Pelican yfir Vatnajökli og í næstu tilkynningu var hljómsveitin lent á Austurlandi. Fólk fékk að vita að helgi versl- unarmanna yrði eytt í Végarði þetta árið. Pétur hló og gargaði hvað eftir annað: Vé- garður! Végarður! Végarður! Svo mæta menn á svæðið, það er tjaldað í námunda við staðinn sem reyndar minnti meira á vinnuskúr en samkomuhús. Það merkilega gerist; bandið fékk sæmi- lega aðsókn á föstudegi. Þó voru strákarnir í grúppunni ekki með nein sérstaklega æfð húrrahróp yfir árangri. Þetta kvöld var engin löggæsla á svæðinu, en það kom ekki að sök, því ólæti urðu engin teljandi. Svo kemur laugardagskvöldið og menn eru tilbúnir í mikil húllumhæ. Ámundi var með í för og sat útí bíl og seldi miða. Allt virtist ætla um koll að keyra, því hátt í þúsund kvikindi voru mætt á svæðið og miðasala gekk vel. Pétur leit yfir mannskapinn og sagði: – Þetta eru 1.500 kvikindi – tíuþúsundkall í kostnað og restin í lommen. Aðstæður voru annars þannig þetta kvöld að löggæsla var engin við aðaldyr þar sem rifið var af miðum, og við bakdyr, þar sem hægt var að fara út til að sækja ferskan grasilm sveitarinnar, var heldur engin lög- gæsla, einkum vegna þess að lögregla í hér- aðinu var fáliðuð og hafði hnöppum að hneppa í Atlavík eða á einhverri annarri útihátíð. Lögregla hafði þau ein afskipti af Végarðs- fólki þetta kvöld, að lögreglubíl var ekið um þjóðveginn í nágrenni staðarins. Svo gerist það þegar meira en helmingur viðstaddra hefur nælt sér í miða, að strengur slitnar í gítar Björgvins, þannig að Pelican tekur pásu. Og þá brustu gáttir allar með þeim afleiðingum að allt liðið óð inní húsið og það eina sem hægt var að gera, var að láta slag standa og leika fyrir dansi. Mönnum sárnaði að vísu hversu margir sluppu inn án þess að borga, en strákarnir settust samt sáttir að sumbli þegar dans- leiknum lauk. Sunnudagurinn gerði mönnum auðvitað þá skráveifu að mæta á svæðið, hlýr og notaleg- ur, og þegar ballinu átti að starta kom í ljós að lögregla hafði séð sér fært að tengjast staðnum tryggðarböndum. Og það fór einsog fyrri daginn – gargandi snilld – liðið mætti í dúndrandi stuði; fullt uppí axlir – nokkrir meira að segja dottnir svo skelfilega íða að þeir sáu hvorki til sólar né mána. Það vantaði þó nokkuð uppá að sami fjöldi skilaði sér á sunnudagsballið og komið hafði á laugardagsskemmtunina, en engu að síður var mikill glaumur, og reyndar varð fólk svo brjálað að engu var líkara en þakið ætlaði af húsinu að rifna. Ballið sjálft var óskaplega skemmtilegt og einlæg áfengisþörf skein úr hverju andliti. Pelican stóð sína plikt og Pétri tókst að koma öllum á gólfið, í hvílíku dúndrandi gargi. Lið- ið dansaði um leið af tryllingi, allt logaði í slagsmálum og ástarleikir bárust um víðan völl. Að loknu dansiballi var kofinn rústir einar, eða einsog fokhelt hús; flaggstöng sem verið hafði fyrir utan hafði verið rekin í gegnum Þeir koma til Dalvíkur, aug- lýsa herlegheitin og gista á hóteli einsog fínir menn. Svo kemur laugardagurinn og þeir hefja leik og Pétur talar um það við mannskapinn að það verði líklega stappfullt á skemmtun Fjörkálfanna. Þeir mæta í íþróttahúsið og þá kemur í ljós að til hliðar við þann ágæta stað er íþrótta- mót fyrir börn, sem gerði það að verkum að börnin sáust ekki nema eitt og eitt á skemmtun Fjörkálfanna. Pétur sá þetta nú aldeilis ekki sem neitt nema væga óheppni og lofaði mönnum hús- fylli á Akureyri, en þar átti hópurinn að skemmta á sunnudeginum. Kálfarnir mæta á staðinn, kíkja í Sjallann, auglýsa og Pétur talar um að allt verði vit- laust. Þetta var skothelt, spurning um að telja inn frekar en hræðast afkomuna. Kapparnir voru ekki búnir að dvelja lengi í höfuðstað Norðurlands þegar þeir höfðu fengið vitneskju um það að á Akureyri væru þennan dag öll hugsanleg íþróttamót fyrir börn. Allir urðu svartsýnir nema Pétur. Ekki minnkaði bjartsýni Gamla þegar hann komst að því að Bylgjan var með út- sendingu frá Ráðhústorginu. Hann sá auðvit- að fyrir sér gull og græna skóga þegar Fjör- kálfunum stóð skyndilega til boða að auglýsa dagskrána og taka lagið í beinni. Þetta var hvílíkt plögg að það gat ekki farið framhjá einum einasta lifandi manni. Í huganum var Pétur farinn að gera þá kröfu að menn seldu ekki alltof marga miða. Bókarkafli Í bókinni Pétur poppari greinir Kristján Hreinsson frá lífshlaupi söngvarans Péturs Wigelund Kristjánssonar sem lést haustið 2004. Pétur var um margt einstakur karakter og stóð lengi í stefni fremstu hljómsveita landsins á borð við Pops, Náttúru, Svanfríði, Pelican, Paradís og Start. En hann var ekki einungis frábær tónlistarmaður, heldur einnig mikill húmoristi sem sjaldnast fór troðnar slóðir. Pétur poppari Pétur í Paradís. Pétur og Bjartmar Guðlaugsson bregða á leik en þeir voru í hljómsveitinni Dúndrinu sem starfrækt var 1986—87. Bókaútgáfan Hólar gefur út bókina Pétur poppari. Bókin er 280 bls. að lengd og prýdd fjölmörgum myndum. Hún er prentuð í Odda. Á dögum Náttúru, en þar var Pétur í framlínunni. kofann, rúður voru flestar brotnar, klósetti með kassa, setu og öllu tilheyrandi hafði ver- ið komið fyrir í námunda við Ámunda, sem stóð á tjaldstæðinu og gapti með glámarana framan við nefið. Bandið fagnaði ágætri innkomu og voru strákarnir staðráðnir í að gera eitthvað svip- að að ári. Gleymska húsvarðarins Að sinna rótarastörfum var aldrei ein af sterkustu hliðum Péturs; á meðan menn stilltu upp, kannaði hann aðstæður – tékkaði staðinn – og ræddi við staðarhaldara um miðasölu og eitt og annað sem bandið kynni e.t.v. að þarfnast meðan á balli stóð. Eftir ball fór Pétur í upparann og gat eytt í það löngum tíma, einkum og sér í lagi ef flaska fór á borð og menn þurftu að þrátta um prísa. Aldrei mátti heyra það á Pétri að hann reyndi að sleppa við rótið, en sagan segir að hann hefði frekar viljað næmast í bókhaldi en bera þungar græjur. Þó var nú ein áberandi undantekn- ing á þessu öllu, en það var ein- hverju sinni þegar hann hafði sest við borð með umsjónar- manni samkomuhúss og fengið greitt fyrir gigg- ið að hann kom hlaup- andi til strákanna í bandinu og byrjaði sjálfur að róta eins- og óður maður. Hann leit glottandi á drengina, um leið og hann gaf til kynna að menn þyrftu að hafa hrað- ann á og sagði: – Strákar, út með græjurnar, hann gleymdi skemmt- anaskattinum. Fjörkálfar á röngum tíma Það var svo eftir miklar vangaveltur, að árið 1994, á „Ári fjölskyld- unnar“ að loksins var komið að því að langþráður draumur Péturs fengi að fara á flug. Þeir hittust og ræddu málin Pétur og Hemmi Gunn, sem hafði um nokk- urra ára skeið verið með sjónvarpsþátt á RÚV og hafði meðal annars haft þann háttinn á í þáttum sínum að ræða við börn um daginn og veginn, auk þess sem ungir listamenn höfðu troðið upp í þáttum Hemma. Þá félaga langaði að setja upp dagskrá í anda liðinna ára – voru með hugann við Sum- argleðina og blómatíma bandanna. Þá langaði að ferðast um landið með skemmtidagskrá fyrir börn og höfðu í hyggju að vera með ým- iskonar leiki, söng og sprell. Mínípopps áttu enn eftir að fá sitt íslenska andlit, en til þess að það andlit mætti verða að veruleika, riggaði Pétur upp skýru plani, hringdi í Ómar Ragnarsson, sem þekktur var fyrir skemmtilegheit og hafði komið frá sér ótrúlegum fjölda barnalaga. Allir til kallaðir stukku með í leikinn – einsog alltaf þegar Pétur átti í hlut – og í framhaldi af þessu brölti var svo formlega stofnaður sá hópur sem kallaðist Fjörkálf- arnir og var skipaður: Pétri, Villa Guðjóns, Hauki Heiðari Ingólfssyni, Ómari Ragnars- syni og Hemma Gunn. […] Svona eftir á að hyggja er einsog hér hafi verið á ferðinni réttur hópur á vitlausum tíma, eða vitlaus hópur á réttum tíma. Flokkurinn ferðaðist um landið á húsbíl sem Pétur átti og var allajafna kallaður Dodsinn, þ.e.a.s. allir nema Ómar, sem var í því að spyrða ferðalagið við fréttaöflun fyrir Stöð 2, og ferðaðist því einn og þurfti oft að elta hina uppi. Alltaf var mikil gleði í bílnum hjá Pétri, sögur sagðar og hlegið dátt. Eina helgina voru þeir félagar á Norður- landi, á laugardeginum var hópurinn á Dal- vík. Menn höfðu lagt áherslu á það þegar staðirnir voru bókaðir, að ekkert annað stór- vægilegt væri að gerast í viðkomandi plássi á meðan Fjörkálfarnir fóru um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.