Morgunblaðið - 30.10.2005, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 27
FRÉTTIR
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík, sími 595 1000 • Akureyri, sími 461 1099
Hafnarfjörður, sími 510 9500 • www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
18
9
0
3
Frá 39.990 kr.
Flugsæti með sköttum. Netverð.
Frá 66.390 kr.
Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í
herbergi á gististað „án nafns“, í Zell
am Zee/Schüttdorf, 4., 11. eða 18. feb.,
vikuferð með morgunmat.
Beint flug
til Salzburg
28. jan. - Uppselt
4. feb.
11. feb.
18. feb.
FLACHAU - Dalirnir þrír
og Zell am See
Heimsferðum er það sönn ánægja að bjóða eitt glæsilegasta skíðasvæði
Austurríkis, Flachau, í hjarta Ski-amadé svæðisins í Salsburg-hérðaði. Þaðan
liggja leiðir inn á eitt stærsta skíðasvæði Austurríkis, sem er snjóöruggt með
góðum brekkum af öllu tagi og net af afbragðslyftum tryggir skíðamönnum
það besta sem völ er á. Með einum skíðapassa er hægt að ferðast á milli 5
svæða með 25 þorpum, 865 km. af brekkum og 276 lyftum af öllu tagi.
Brettafólk er velkomið á öllu svæðinu og þar er 1,5 km löng flóðlýst brekka,
brettaskemmtigarður og þjónusta við brettafólk. Heimsferðir bjóða einnig
skíðaferðir til eins vinsælasta skíðabæjar
í austurrísku ölpunum, Zell am See. Í
boði eru gistiheimili og góð þriggja og
fjögurra stjörnu hótel í hjarta Zell, rétt
við skíðalyfturnar, veitingastaði, versl-
anir og kvöldlífið. Í Zell er afbragðs
aðstaða fyrir alla skíðamenn. 56 lyftur
eru á svæðinu og hægt er að velja um
allar tegundir af brekkum, allt eftir getu
hvers og eins og snjóbretti og göngu-
skíði eru þar ekki undanskilin.
Vinsælustu skíðasvæði Alpanna
Ný, íslensk trúarbragðasaga
Hin mörgu andlit
trúarbragðanna
eftir Þórhall Heimisson
„Útgáfa bókar Þórhalls er mikilvægt framlag til að auka gagnkvæman
skilning milli trúarbragða á Íslandi, eyða fordómum og tryggja að vel sé
tekið á móti þeim, sem hér setjast að og eiga sér önnur trúarbrögð en
meirihlutinn. Ekkert er líklegra til að eyða fordómum og hatri en
þekking og fræðsla. Framtak Þórhalls Heimissonar er því þakkarvert.“
Forystugrein Mbl. 18. okt.
Kristni • Íslam • Gyðingdómur • Búddismi
Hindúismi • Nýtrúarhreyfingar • Trúfélög á
Íslandi • Spíritismi • Leynihreyfingar og
margt margt fleira
Aðgengileg og
ómissandi bók
um fjölbreytileika
mannlífsins
www.salkaforlag.is
Ármúla 20
sími 552 1122
GRUNNSKÓLANEMENDUR
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska o.fl.
Einnig flestar námsgreinar í framhaldsskóla.
sími 557 9233,
www.namsadstod.isNemendaþjónustan sf.
SVANHILDUR Konráðsdóttir,
sviðsstjóri Menningar- og ferða-
málasviðs Reykjavíkurborgar, var
valin markaðsmaður ársins 2005.
Þetta er í fyrsta sinn sem konu
eru veitt þessi verðlaun af
ÍMARK, félagi íslensks markaðs-
fólks. Síminn var valinn markaðs-
fyrirtæki ársins 2005. Var þetta í
fimmtánda sinn sem ÍMARK stóð
fyrir valinu. Verðlaunin eru veitt
þeim einstaklingi og því fyrirtæki
sem metið er að hafi skarað fram
úr á liðnu ári á sviði markaðs-
mála. Í ræðu Ingólfs Guðmunds-
sonar, formanns fulltrúaráðs
ÍMARK, sagði að styrkleikar Svan-
hildar væru fyrst og fremst brenn-
andi áhugi á menningarmálum og
rík markaðshugsun. Ferill hennar
bæri því vitni að hún byggi jafn-
framt yfir mikilli staðfestu og
dugnaði við að fylgja verkefnum
alla leið þó oft yrði í vegi ógreið-
fært umhverfi pólitíkusa og emb-
ættismanna.
Auk Símans voru Stöð 2 og CCP
tilnefnd til verðlaunanna fyrir
markaðsfyrirtæki ársins. Í ræðu
Elísabetar Sveinsdóttur stjórn-
armanns í ÍMARK, við afhend-
inguna kom fram að markviss
stefna í markaðsmálum og góður
rekstrarlegur árangur Símans
héldist í hendur. Það hefði ekki
verið lognmolla í kringum Símann
og fyrirtækið þurft að glíma við
mörg erfið mál en um leið haldið
forskoti á markaði.
Svanhildur markaðsmaður
ársins hjá ÍMARK
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Svanhildi Konráðsdóttur viðurkenninguna.
Síminn var valinn markaðsfyrirtæki ársins 2005
Prófkjör
Samfylking-
arinnar í
Hafnarfirði
FRAMBOÐ bárust frá 21 einstak-
lingi í prófkjör Samfylkingarinnnar í
Hafnarfirði sem fer fram laugardag-
inn 5. nóvember nk. á Strandgötu 21
frá kl. 10–18. Merkja skal við nöfn 8
frambjóðenda, hvorki fleiri né færri.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
fer fram á sama stað dagana 2., 3. og
4. nóvember 2005 frá kl. 13–19. Póst-
kosning er leyfileg.
Framboð bárust frá 21 einstaklingi
og fara nöfn þeirra hér á eftir í staf-
rófsröð. Talan í sviganum aftan við
hvert nafn segir til um óskir fram-
bjóðandans í hvaða sæti hann óskar
eftir að vera kosinn.
Þátttakendur í prófkjörinu eru
þessir: Árni Hjörleifsson rafvirki
(1.–6.), Ásta María Björnsdóttir leik-
skólastjóri (1.–8.), Ellý Erlingsdóttir
bæjarfulltrúi (2.), Eyjólfur Sæmunds-
son verkfræðingur (1.–8), Gísli Ós-
valdur Valdimarsson verkfræðingur
(5.–7.), Guðfinna Guðmundsdóttir
matreiðslumeistari (5.), Guðmundur
Rúnar Árnason bæjarfulltrúi/upplýs-
ingafulltrúi ASÍ (3.), Gunnar Svavars-
son bæjarfulltrúi/framkvæmdastjóri
(6.), Hallur Guðmundsson prentsmið-
ur (1.–8.), Helena Mjöll Jóhannsdóttir
útstillingahönnuður (5.–8.), Hulda
Karen Ólafsdóttir sjúkraliði (4.–5.),
Ingimar Ingimarsson verkamaður/
varabæjarfulltrúi (1.–8.), Jón Kr.
Óskarsson lífeyrisþegi/varaþingmað-
ur (3.–5.), Lúðvík Geirsson bæjar-
stjóri (1.), Margrét Guðmundsdóttir
innanhússarkitekt/myndlistarmaður
(1.–8.), Margrét Gauja Magnúsdóttir
form. UJH/ritari Samfylkingarinnar/
kennari/verkefnastjóri í Gamla bóka-
safninu (4.), Reynir Ingibjartsson
kortaútgefandi (1.–8.), Sigurgeir
Ólafsson deildarstjóri (7.–8), Tómas
Meyer sölu- og markaðsfulltrúi
(7.–8.), Trausti Baldursson líffræðing-
ur/fagsviðsstjóri umhverfisstofu
(4.–6.), Þorlákur Oddsson form. BÍLS
(3.–5.).