Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Tími: Föstudaginn 4. nóvember 2005 kl. 10:30 – 17:00.
Staðsetning: Í Verinu, húsnæði Háskólans á Hólum á Sauðárkróki.
Málþingsstjóri: Vilhjálmur Egilsson
Sýning á framtíðarsögum í opnu rými – vegvísar til 2020.
Sýningin opnar klukkan 9:30.
Fundarsetning: Formaður SSNV Ársæll Guðmundsson. 10:30 – 10:40
Opnun ráðstefnunnar: Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Ráðherra tilnefnir starfshóp til að undirbúa
vaxtarsamning fyrir Norðurland vestra. 10:40 – 11:15
Vaxtarsamningar og klasasamstarf:
Elvar Knútur Valsson, verkefnisstjóri hjá Impru. 11:15 – 11:35
Hvernig atvinna verður stunduð á Norðurlandi vestra eftir 15 ár?:
Ásgeir Jónsson, lektor við Háskóla Íslands og hagfr. við KB banka: 11:35 – 11:55
Umræður og fyrirspurnir 11:55 – 12:15
Matarhlé 12:15 – 13:00
Uppbygging lítilla fyrirtækja:
Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs. 13:00 – 13:20
Afl menntunar í menningu og atvinnulífi:
Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla. 13:20 – 13:40
Hverju svaraði kötturinn Lísu í Undralandi?:
Kristín Björnsdóttir, markaðsstjóri hjá FOCAL. 13:40 – 14:00
Umræður og fyrirspurnir 14:00 – 14:30
Kaffihlé 14:30 – 14:45
Umræðuhópar: Umfjöllunarefni tengd atvinnuþróun. 14:45 – 16:00
Léttar veitingar 16:00 – 17:00
Niðurstöður hópa kynntar í hvíta herberginu 16:15
Málþingi slitið 17:00
D A G S K R Á
2 0 2 0
U M Þ I N G I Ð
Hvert stefnum við? Á málþinginu Norðurland vestra 2020 er ætlunin að vekja fólk til um-
hugsunar um hvernig atvinnulífið á Norðurlandi vestra kemur til með að þróast á næstu 15
árum. Fyrirlesarar munu fjalla um leiðir sem líklegar eru til árangurs. Stefnumótun fer síðan
fram í umræðuhópum. Samhliða málþinginu er sýning sem varpar ljósi á þróun atvinnulífsins
síðustu 15 ár. Þar getur einnig að líta framtíðarsýn atvinnurekenda á Norðurlandi vestra er
byggir á nýrri könnun sem gerð var í tengslum við málþingið.
Þann 4. nóvember 2005 standa Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og
Svæðisráð Svæðisvinnumiðlunar fyrir málþingi um atvinnumál.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir hefur framsögu á
málþinginu. Hún mun einnig tilnefna starfshóp til að undirbúa vaxtarsamning fyrir
Norðurland vestra.
Skráning í síma 455 6040 eða á ssnv@ssnv.is til 3. nóv. Allir velkomnir.
N O R Ð U R L A N D V E S T R A
Ímiðborg Wiesbaden má víðasjá myndir af Þóru Ein-arsdóttur söngkonu í hlutverkiÖnnu Frank. Hún „sló í gegn“í þessu hlutverki á síðasta
starfsári óperuhússins í Wiesbaden
en hætta varð sýningum á hinni vin-
sælu óperu þar sem
aðalsöngkonan gerð-
ist æ þykkari undir
belti. Þegar ég náði
tali af Þóru í sept-
ember var liðið langt
á meðgöngutímann,
Anna Frank að baki í
bili en nýtt barn í
vændum um miðjan
desember.
En hvenær kom
Þóra til starfa í
Wiesbaden?
„Ég og Björn maðurinn minn kom-
um hingað árið 2000 en okkur finnst
við alltaf vera með annan fótinn á Ís-
landi, líka þessi ár. En fram að því að
við komum hingað höfðum við verið
lausráðin hingað og þangað í ein sjö
ár, meðal annars í Englandi þar sem
við lærðum bæði,“ segir Þóra.
„Stuttu eftir að við komum til
Þýskalands varð ég ófrísk og slíkt
flækir málin dálítið eins og gefur að
skilja. Þá kom sér vel að hafa tekið
fastráðningu sem mér bauðst í
Wiesbaden, það er erfitt að vera mik-
ið á flakki með lítið barn,“ segir Þóra.
En hvernig gengur að samræma
feril i óperusöng og fjölskyldulíf og
barnauppeldi?
„Það er oft erfitt og þarfnast skipu-
lagningar frá báðum foreldrum og
góðrar samvinnu við vinnuveitendur,
en ef þetta gengur er það fínt. Fjöl-
skyldan er þó auðvitað alltaf í fyrsta
sæti.“
Þóra hefur sungið fjölda hlutverka
við óperuna í Wiesbaden en hvert
skyldi vera óskahlutverið hennar?
„Það er Súsanna í Brúðkaupi Fig-
aros eftir Mozart, það hef ég oft
sungið og gæti vel hugsað mér að
syngja það eingöngu,“ svarar Þóra að
bragði.
Næst víkur talinu að hinu „prakt-
íska“, hvernig eru launin hér, spyr ég.
„Það er auðvitað mjög mismunandi
eftir reynslu fólks. Það er oft mjög
mikið álag á fólki sem er nýkomið úr
skóla, það syngur mikið og hefur ekki
mjög góð laun – á hinn bóginn höfum
Óskahlut-
verkið er
Súsanna
Íslenskir söngvarar hafa gert garðinn frægan erlendis. Þau
Þóra Einarsdóttir og Björn I. Jónsson hafa sungið víða í
Þýskalandi og Þóra er fastráðin við óperuhúsið í Wiesbad-
en. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við bæði Þóru og Björn
um sönginn og lífið í Þýskalandi bæði í einkalífi og starfi.
Þóra
Einarsdóttir
Þóra og Björn með soninn Einar.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg