Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 66
66 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Upprunalegur tilgangurAirwaves var að gefa ís-lenskum hljómsveitumfæri á því að kynna erlend-
um blaðamönnum og útsendurum
plötufyrirtækja hvað þær hafa fram
að færa. Þótt þessi tilgangur sé allt-
af undirliggjandi hefur hátíðin
smám saman orðið meira en bara
kynningarteiti, því hún er orðin
sannkölluð tónlistarhátíð þar sem
kostur gefst á að sjá allt það helsta
sem er á seyði í íslenskri tónlist og
sitthvað gott erlent í bland.
Til hátíðarinnar var semsé stofnað
til að íslenskar hljómsveitir og tón-
listarmenn kynntu sig, en þrátt fyrir
það hafa þær flestar verið lengi að
átta sig á þeim tækifærum sem hún
gefur og nýta þau, sem sjá má meðal
annars á því að það er ekki fyrr en á
síðustu hátíð og nú á þessari sem
sveitir taka almennilega við sér að
gera og dreifa kynningarupptökum
til blaðamanna.
Mjög er misjafnt hvernig staðið er
að slíku og ekki endilega spurning
um að leggja milljónir í það, bara
velja góða músík með sæmilegum
hljómi og láta fullnægjandi upplýs-
ingar fylgja með. Það er til að
mynda góð regla að vera ekki að
spandera of miklu, velja bara tvö til
þrjú helstu lögin. Stundum vill mað-
ur þó meira, sérstaklega ef tónlistin
er góð, en þá leita menn líka eftir
meiri músík og til þess er leikurinn
gerður. Ekki má gleyma því að þeir
blaðamenn sem sækja hátíðina heim,
erlendir og innlendir, eru velflestir
tónlistaráhugamenn og fátt finnst
þeim skemmtilegra en að rekast á
eitthvað sem þeir ekki hafa heyrt.
Það er svo bónus ef það er gott.
Í þessari samantekt renni ég yfir
þau demó sem rak á fjörur mínar á
Aiwaves 2005, met þau eftir tónlist-
inni, hversu umbúðir eru vel heppn-
aðar og svo hversu gagnlegir við-
komandi diskar eru til kynningar
fyrir viðkomandi hljómsveitir.
Shadow Parade á eitt besta
demóið, umslagið flott og músíkin
fín. Mjög forvitnilegt efni og fag-
mannlega unnið.
Fjögur lög með litlum upplýs-
ingum en gagnlegum.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Airslaves – Addicted to Oxygen
heitir demó frá Diktu með þremur
lögum. Diskurinn er mjög einföld
framleiðsla í glæru plastumslagi,
ekki mjög aðlaðandi, en upplýsingar
á honum svosem í lagi. Tónlistin er
vel framreidd og eitt laganna býsna
gott.
Músík: Umbúðir:
Notagildi: Reykjavík! sendir frá sér
skemmtilegt demó, umslagið hrátt
og líflegt, heimalímdur pappi. Mús-
íkin er hressilegt rokk, en hljómur
óneitanlega flatur, líklega heima-
gerður eins og umslagið. Upplýs-
ingar á plötunni ágætar.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Ókindardemóið er eitt það besta
sem boðið var uppá á Airwaves að
þessu sinni. Umbúðir einfaldar, en
einkar gagnlegar með ágripi af sögu
sveitarinnar. Þrjú lög eru á disk-
inum, mjög skemmtilegt efni og veit
vonandi á gott með næstu Ókind-
arskífu.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Eftir því sem ég fæ best séð heitir
Snafu nú Future Future og skyn-
samlegt í sjálfu sér þar sem tónlistin
er talsvert frábrugðin því sem
Snafu-menn gerðu áður. Það vantar
þó nokkuð uppá finnst mér að hún sé
eftirminnileg, en þriðja lagið er
reyndar gott. Umslagið einfalt og
lágmarksupplýsingar.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Hljómsveitin Days of our Lives
er rausnarleg á músíkina því á kynn-
ingardiski hennar eru fimm lög, ná-
lægt tuttugu mínútum af músík.
Diskurinn gefur ágæta mynd af því
hvernig sveitin er, lögin býsna fjöl-
breytt og sum allgóð. Fyrir minn
smekk eru þeir félagar bestir þegar
þeir gefa aðeins í, en rólegu lögin
eru líka í lagi. Þriðja, fjórða og
fimmta lag best, kannski hefði verið
nóg að hafa þau. Umbúðir mjög góð-
ar og fullt af upplýsingum, en
skemmtilegt ef þeir hefðu keypt sér
lita diska til að brenna á.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Nilfisk-félagar stóðu sig vel í
kynningarmálum, hengdu upp plak-
öt og dreifðu diski. Umslagið er
reyndar heldur hrátt, bara pappírs-
umslag af billegustu gerð, en inni í
því bæklingur með fínum upplýs-
ingum um sveitina. Kannski á hrátt
umslag bara vel við, en þess má geta
að umslagið er handskreytt með
blómum. Lögin tvö eru löng og fín,
sérstaklega fyrra lagið, og gætu orð-
ið mjög góð með betri hljóðvinnslu
eða í betra hljóðveri. Textarnir
slæmir þó.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Þótt allir, eða nánast allir, sem
dreifðu demóum á Airwaves 2005
séu að gera hlutina sjálfir, stundum
fyrir lítið fé, er ekkert meira hand-
verk held ég en þriggja laga diskur
Donnu Mezz, ekki bara ljósritað
heldur líka handskrifað – safn-
gripur! Músíkin er hreinasta af-
bragð, þriðja lagið snilld, en hljómur
hrottalegur.
Músík: Umbúðir: Notagildi: Croisztans er hljómsveit með ís-
lenskar rætur að hluta, starfaði í það
minnsta eitt sinn hér á landi og ein-
hverjir liðsmenn voru og eru Íslend-
ingar. Tónlistin er einskonar þjóð-
legt rokk, þunglamalegt á köflum,
og sungið á torkennilegu tungumáli.
Umbúðinar eru slappar þykir mér,
diskapoki úr Bónus og illa ljósrit-
aður miði með, en á honum eru þó
fínar upplýsingar.
Músík: Umbúðir:
Notagildi: Nortón-demóið er naumhyggju-
legt, „slimline“-geisladiskahulstur
með ágætum upplýsingum. Lögin
skemmtileg þótt hljómur sé daufleg-
ur. Textarnir eru einkar skemmti-
legir – „hér verður partí / því verður
margt í“ (Rokkum meira en Mínus).
Músík: Umbúðir: Notagildi: Þriggja laga diskur með Númer
núll hefur verið til sölu í 12 tónum í
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Kynningar-
teitið mikla
Á Airwaves færist í vöxt að hljómsveitir og lista-
menn dreifi kynningardiskum með tónlist sinni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sýnd kl. 6
“Fótfrá gamanmynd”
Variety
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Africa
United
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Fór beint
á toppinn
í USA
450
kr.
Sýnd kl. 2 og 4
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
kl. 10
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8
Africa
United
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
S.V. Mbl.
Ný Íslensk
heimildarmynd
sem hefur farið
sigurför um
heiminn
Þeir eru hér til að spila fótbolta,
ekki til að gera mistök
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
DREW
BARRYMORE
JIMMY
FALLON
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.45
Frá leikstjórum There´s Something About
Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy
kl. 2, 5, 8 og 10.45
Sá beSti í brAnSAnUm
er mættUr AFtUr!
Sími 564 0000
Miðasala opnar kl. 15.30
S.V. / MbL
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
ó.H.T. Rás 2
ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 1.50 og 3.50
(besti leik-
stjóri, besta
heimildarmynd,
besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
(besti leikstjóri, besta
heimildarmynd, besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 4