Morgunblaðið - 02.11.2005, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÓVISSA Í ÞÝSKALANDI
Talsmenn atvinnulífsins í Þýska-
landi hvöttu í gær frammámenn í
stóru flokkunum, jafnaðarmenn og
kristilega demókrata, til að ganga
sem fyrst frá stjórnarmyndun en
hún hefur til þessa einkennst af
miklum vandaræðagangi. Í fyrradag
virtist Franz Münterfering, formað-
ur jafnaðarmanna, ætla að afþakka
ráðherrastól vegna þess, að hann
varð undir í innanflokksátökum en í
gær virtist honum hafa snúist hug-
ur. Þá gerðist það í gær, að Edmund
Stoiber, leiðtogi bræðraflokks kristi-
legra demókrata í Bæjaralandi,
ákvað að hafna embætti efnahags-
ráðherra. Á meðan bíða mikilvægar
ráðstafanir í efnahagsmálunum og
sum blöð spurðu í gær hvort þýskir
stjórnmálamenn væru gengnir af
göflunum.
FL Group eykur hlutafé
Hlutafé FL verður aukið um 44
milljarða að markaðsvirði, en þar er
meðtalið hlutafé sem afhent verður í
skiptum fyrir hluti í Sterling Air-
lines. Þetta var samþykkt á hlut-
hafafundi félagsins í gær. Þá var
samþykkt að fækka stjórnar-
mönnum um tvo.
Bjargaði sér á sundi
Níu ára drengur í Keflavík framdi
það þrekvirki að bjarga sér á sundi
þegar hann féll í smábátahöfnina í
Keflavík á sunnudag eftir ólukku-
lega sleðaferð. Var hann að renna
sér á stýrissleða í brekku ofan við
höfnina en tókst ekki að stöðva sig
og stökk yfir varnargarð við höfnina
og stakkst á kaf í sjóinn.
Íslendingar hamingjusamir
Íslendingar eru fjórða hamingju-
samasta þjóð heims á eftir Dönum,
Möltubúum og Svisslendingum. Hin
Norðurlöndin koma stutt á eftir, en
íbúar Tanzaníu eru verst staddir.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Viðhorf 30
Viðskipti 14 Bréf 35
Erlent 16/17 Minningar 36/40
Minn staður 18 Dans 41
Höfuðborgin 19 Myndasögur 44
Akureyri 20 Dagbók 42/45
Landið 20 Staður og stund 46
Suðurnes 21 Leikhús 48
Daglegt líf 22/23 Bíó 50/53
Menning 24 Ljósvakamiðlar 54
Umræðan 26/34 Veður 55
Forystugrein 28 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
SJÖTTA
SKÁLDVERKIÐ
ER KOMIÐ ÚT!
„Fólk á öllum aldri
smitast af gleðinni
… enginn ætti að láta
þennan furðufugl
fram hjá sér fara.”
Þórarinn Þórarinsson / Fréttablaðið
Geggjað grín, hörku hasar
klístrað klúður
www.jpv.is
LÍFEYRISSJÓÐUR Suðurlands
hefur tilkynnt um verulega lækkun
alls lífeyris um þessi mánaðamót. Líf-
eyrisgreiðslur til lífeyrisþega á Suð-
urnesjum lækka um 16% og greiðslur
til lífeyrisþega á Suðurlandi lækka
um 12%.
Lífeyrissjóður Suðurlands og Líf-
eyrissjóður Suðurnesja sameinuðust
1. júlí síðastliðinn og hafa síðan verið
reknir undir nafni Lífeyrissjóðs Suð-
urlands. Vegna sameiningarinnar var
gerð úttekt á tryggingafræðilegri
stöðu þeirra, samkvæmt nýjum
reglum þar um. Samkvæmt upplýs-
ingum Friðjóns Einarssonar fram-
kvæmdastjóra varð niðurstaðan sú að
lækka þurfti réttindi sjóðfélaga, um
16% á Suðurnesjum og 12% á Suður-
landi. Segir hann að aukin örorka og
lengri lífaldur valdi mestu um þetta.
Friðjón segir að lífeyrissjóðir
landsins hafi verið að fara í gegn um
þetta ferli og leiðrétta lífeyris-
greiðslur í samræmi við niðurstöð-
una. Lækkunin er meiri hjá Lífeyr-
issjóði Suðurlands en flestum öðrum
sjóðum. Friðjón segir að mikið at-
vinnuleysi meðal kvenna á Suðurnesj-
um hafi leitt til þess að örorka sé þar
algengari en víða annars staðar og
það skýri meðal annars mikla lækkun
lífeyris á því svæði. Hann bendir þó á
að réttindi sjóðfélaga hafi verið hækk-
uð um liðlega 10% fyrir fimm árum og
þurfi að taka tillit til þess þegar litið
er á tölurnar. Hins vegar hafi rétt-
indin á Suðurlandi ekki verið aukin og
því miður þurfi að lækka lífeyris-
greiðslur þar um 12%.
Spurður um áhrif sameiningarinn-
ar segir Friðjón að ráðast hefði þurft í
þessar leiðréttingar hvort sem sjóð-
irnir hefðu sameinast eða ekki. Hún
mundi hins vegar vonandi skila þeim
sterkari stöðu í framtíðinni.
Lífeyrisgreiðslur
lækka um 12–16%
AFKOMA Haga á fyrri helmingi yf-
irstandandi rekstrarárs, frá mars-
mánuði til ágústloka, var töluvert
undir væntingum. Tap af rekstrinum
nam 708 milljónum króna á tíma-
bilinu en á sama tímabili í fyrra var
hagnaður tæplega 1,3 milljarðar
króna. Mest munar þar um að sölu-
hagnaður eignarhluta í öðrum fé-
lögum var jákvæður um 2,4 milljarða
króna í fyrra en í ár var þessi liður
neikvæður um 10 milljónir króna.
Framlegð félagsins jókst á milli
ára um ríflega 400 milljónir króna en
rekstrarkostnaður hækkaði um 657
milljónir króna, þar af jukust laun og
launatengd gjöld um 325 milljónir.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBITDA) var 614
milljónir að þessu sinni og lækkaði
um 71 milljón króna. Eignir félagsins
jukust um 3,1 milljarð króna en eigið
fé dróst saman um 706 milljónir.
Hörð samkeppni skýrir tapið
Í fréttatilkynningu frá Högum
segir að hagnaðurinn sé langt undir
væntingum stjórnenda félagsins.
„Gríðarlega hörð samkeppni ríkti á
lágvöruenda matvörumarkaðarins
nær allt rekstrartímabilið og er það
helsta ástæðan fyrir lakari afkomu
fyrirtækisins,“ segir í tilkynning-
unni. Fram kemur einnig að stjórn-
endur félagsins telji að samkeppni
verði áfram mikil á matvörumarkaði,
því mun félagið á næstu mánuðum
leita allra leiða til að auka hag-
kvæmni í rekstri með því að endur-
skoða innkaup og annan rekstrar-
kostnað.
Fyrirtæki Haga eru Bónus, Hag-
kaup, 10–11, Aðföng, Stórkaup, Ban-
anar, Ferskar kjötvörur, Deben-
hams, Topshop, Noron (Zara), Útilíf,
Trenor (Topshop í Svíþjóð), Skelj-
ungur og Orkan. Hjá félaginu starfa
um 2.800 manns.
Tap rúmar 700 milljónir
Afkoma Haga á sex mánaða tímabili töluvert undir væntingum stjórnenda
„ÉG hugsaði allan tímann að ég
myndi deyja og kannski að ég myndi
líklega deyja úr kulda eftir allt sam-
an,“ segir Jórunn G. Hólm, nítján
ára stúlka sem bjargaðist eins og
fyrir kraftaverk þegar fjögurra
tonna hliðarvagn flutningabíls fauk
ofan á bíl hennar í Leirársveitinni á
sunnudagskvöld.
Jórunn hafði ekið útaf á bíl sínum
í miklum vindstreng sem ríkti þar
sem slysið varð og beið hjálpar þeg-
ar vörubíll með eftirvagn lenti í
sama vindstreng með þeim afleið-
ingum að eftirvagninn fauk út af
veginum og á bíl Jórunnar. „Ég
horfði bara upp og sá vagninn koma
á fleygiferð og svo veit ég eiginlega
ekki hvernig ég bjargaðist. Kannski
beygði ég mig eitthvað, en ég man
að ég fékk mjög þungt högg á höf-
uðið og fann mikið til í því og alls
staðar í líkamanum,“ segir Jórunn.
„Ég fylltist strax mikilli innilok-
unarkennd og það varð ótrúlega
kalt inni í bílnum. Síðan fann ég að
vagninn hélt áfram að síga niður á
bílinn og hann hélt áfram að leggjast
saman, svo ég kom mér einhvern
veginn inn í farþegasætið þar sem
var meira pláss og þar var ég bara í
fósturstellingunni. Ég var ofboðs-
lega hrædd við að lamast.“
Héldu í höndina gegnum rifu
Ökumaður vöruflutningabílsins
kom strax að bíl Jórunnar og fljót-
lega bar nokkra aðra menn að, en
þeir gátu lítið gert fyrir hana annað
en að stinga höndunum inn um
þrönga rifu á bílnum og halda í
höndina á henni og tala við hana á
meðan beðið var eftir sjúkrabíl og
slökkviliði til að ná Jórunni út úr
bílnum. Eftir fimmtán til tuttugu
mínútur komu sjúkraflutningamenn
á staðinn, en rúmum klukkutíma eft-
ir slysið tókst að ná Jórunni út. „Mér
var svo kalt og ég hélt að ég myndi
deyja úr kulda. Sjúkraflutn-
ingamennirnir réttu mér teppi, en
það datt alltaf af mér þar sem ég var
og ég gat ekki lagað það, vegna þess
að það var svo þröngt,“ segir Jór-
unn, sem hefur ekki sofið síðan slys-
ið varð. „Ég var og er enn í sjokki og
get ekki sofnað, ég er búin að reyna,
en ég er öll trekkt.“
Jórunn stundar nám á Fé-
lagsliðabraut Borgarholtsskóla og
hefur m.a. starfað á dvalarheimilinu
Eir. „Mig hefur alltaf langað að
vinna með öldruðum í framtíðinni en
ég hef miklar áhyggjur af því að það
verði ekki úr því, ég meiddi mig
mjög mikið í bakinu og var nýkomin
úr brjósklosaðgerð,“ segir Jórunn
en vonast þó til að ná bata.
„Ég fylltist strax mikilli
innilokunarkennd“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jórunn kveðst fullt eins búast við því að mesta áfallið sé enn ókomið, enda
sé hún enn ekki fullkomlega með sjálfri sér eftir slysið.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
EINN slasaðist þegar fólks-
bíll og vörubifreið skullu sam-
an við gatnamótin við Reykja-
nesbraut og Arnarnesveg um
klukkan 19 í gærkvöld. Að
sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði var ökumaður fólksbíls-
ins fluttur til skoðunar á
slysadeild LSH í Fossvogi.
Meiðsl hans reyndust ekki al-
varleg og var hann útskrif-
aður skömmu seinna. Tals-
verð hálka var og er við
gatnamótin.
Fólksbíll og
vörubifreið
skullu saman
ENGINN slasaðist þegar þrír
bílar skullu saman laust upp úr
kl. 20 í gærkvöldi við afrein af
Fífuhvammsvegi í Kópavogi inn
á Hafnarfjarðarveg til norðurs.
Ein bifreiðin lagðist á hliðina
við áreksturinn, en mikil hálka
var á svæðinu. Um klukkan sjö í
gærkvöld hafði önnur bifreið
hafnað þar utan vegar vegna
hálkunnar.
Engin slys urðu á fólki að
sögn lögreglunnar í Kópavogi,
en kallað var eftir bíl til þess að
salta og eyða hálku í beygjunni.
Bílarnir eru ekki taldir vera
mikið skemmdir.
Þriggja bíla
árekstur
í Kópavogi