Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „Gagnlegt öllum sem vinna að lífsgæðum og vanda ævigönguna.“ Sigurður Árni Þórðarson „Ég hef lengi beðið eftir þessari bók um lífsgildin og las hana mér til mikillar ánægju.“ Vigdís Finnbogadóttir „Gunnar Hersveinn vekur okkur til umhugsunar um sorg, ást, efa, stríð og samhengi manneskjunnar á okkar tímum.“ Sigurbjörg Þrastardóttir „Áttaviti sem vísar veginn“ Vigdís Finnbogadóttir www.jpv.is EMBLA, ný leitarvél á netinu sem skilur íslensku, var tekin í notkun í gær. Er vélin vistuð á mbl.is og aðgengileg þaðan en um er að ræða samstarfsverkefni mbl.is, sem leggur til netumhverfi, Spurl ehf., sem leggur til leitarvélina, og Orðabókar Háskóla Íslands en öll málfræðivinna á uppruna sinn þar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði vef- inn formlega í Þjóðarbókhlöðunni og sagði hún við það tækifæri að sér þætti nafnið gríðarlega skemmtilegt og sjálf sæi hún fyrir sér að hún ætti eftir að embla mjög mikið á vefnum því mik- ilvægt væri að hægt væri að nálg- ast netheimana á forsendum ís- lenskunnar. Að sögn Kristínar Bjarnadóttur, verkefnastjóra hjá Orðabók Há- skólans, byggist leitarvélin á verk- efninu „Beygingarlýsing íslensks nútímamáls“ sem unnið var af Orðabók Háskólans fyrir styrk úr Tungutæknisjóði sem mennta- málaráðuneytið setti á laggirnar 1999. Verkefnið er vistað á síðu Orðabókar Háskólans og þar get- ur almenningur flett upp á um 176.000 orðum sem gefa allt upp í 4,8 milljónir beygingarmynda. Á Emblu eru þessar upplýsingar notaðar til að tryggja að leitað sé að öllum orðmyndum innsleginna orða. Ef Embla þekkir ekki orð sem slegið er inn sendir hún upp- lýsingar til baka til Orðabókar Háskólans og þá er hægt að bæta því orði við. Fleiri niðurstöður Hjálmar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Spurl ehf., segir Emblu virka þannig að þegar not- andi slær inn orð athugar Embla hvort hún þekki þau og leitar svo að öllum myndum orðsins. Sem dæmi má nefna að slái notandi inn leitarorðið „flugvöllur“ finnast líka greinar þar sem talað er um „flug- völlinn í Vatnsmýri“ og „Flugvelli í Evrópu“. Þetta gerir það að verkum að Embla gefur oft fleiri niðurstöður en aðrar leitarvélar. Segir Hjálmar Emblu fyrsta skrefið í þá átt að gera leitarvélar hæfar til að leita á íslensku og sé frekari þróun í þá veru í gangi. Segir hann flestalla leitartækni hingað til hafa átt upptök sín á enskumælandi svæðum og vegna þess hve enska sé að þessu leyti einfalt tungumál henti þær leitarvélar ekki alltaf íslensk- unni né mörgum öðrum tungu- málum sem hafi margar beyging- armyndir. Því væri hægt að taka þessa hugmyndafræði upp víðar í heiminum en hann viti ekki til þess að það hafi verið gert á þenn- an hátt áður. Leitað í átta milljónum vefsíðna Embla leitar á íslenskum vef- svæðum, sem nú er í kring um átta milljónir síðna, ásamt því að leita samhliða í Gagnasafni og Myndasafni Morgunblaðsins. Þá er hægt að leita í öllum fréttum mbl.is. Í Gagnasafni Morgunblaðs- ins eru nú um 900.000 fréttir og greinar frá árinu 1987 til dagsins í dag, 300.000 fréttir sem skrifaðar hafa verið á mbl.is eingöngu frá upphafi árs 1998 og í Myndsafni eru rúmlega 104.000 myndir. Þá bendir Embla á innsláttarvillur og boðið er upp á fjölskylduvæna leit þar sem leitarvélin síar frá vefsíð- ur sem ekki eru ætlaðar öllum aldurshópum. Auglýsingar tengdar leitarorðum Að sögn Ingvars Hjálmarssonar, netstjóra mbl.is, gefst auglýs- endum nú tækifæri til að velja orð, eitt eða fleiri og skrá inn aug- lýsingu sem tengist orðunum. Í hvert sinn sem leitað er með völdu orði birtist auglýsing frá viðkom- andi í hægri dálki Emblu. Val orða er án greiðslu en verðið fer eftir fjölda valinna birtinga. Notendur og/eða auglýsendur geta einnig skoðað vinsælustu leitarorðin síð- asta sólarhring sér til glöggvunar. Hægt er að nálgast vefinn með því að smella á flipann Embla á mbl.is eða slá inn slóðina: http://embla.mbl.is/ Leitarvélin Embla verður vistuð á mbl.is Ný leitarvél sem skilur íslensku Morgunblaðið/Sverrir Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri Spurl ehf., Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Ingvar Hjálmarsson, netstjóri mbl.is, við opnun nýju netvélarinnar Emblu í Þjóðarbókhlöðunni í gær. Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið ehf. hefur í dag útsendingar á stöðinni Skjáreinn plús yfir dreifikerfi Símans. Stöðin, sem sýnir efni Skjáseins klukkutíma á eftir, er aðgengileg viðskipta- vinum breiðbandsins og þeim sem eru með sjónvarp í gegnum ADSL. Að sögn Friðriks Friðriksson- ar, þróunarstjóra Skjásins, er öll dagskrá færð til um einn klukku- tíma og er þar um að ræða aukna þjónustu við áhorfendur Skjáseins. „Við höfum orðið varir við mikinn áhuga á því að koma til móts við fólk sem vill hnika dagskránni og hafa meiri mögu- leika á að horfa á hana þegar því hentar,“ segir Friðrik. Skjáreinn plús í „loftið“ PÓLVERJARNIR átján, sem unnið hafa við Kárahnjúkavirkjun í gegn- um starfsmannaleiguna 2 B, komu til Egilsstaða skömmu fyrir hádegi í gær til að kanna launainnlegg sín í Landsbankanum og senda fé heim til fjölskyldna sinna í Póllandi. Ráðgert hafði verið að þeir færu til síns heima í fyrradag, en þeir neituðu að yfir- gefa svæðið fyrr en þeir fengju launaseðla frá 2 B með uppgjöri við starfsmannaleiguna í hendur. „Ég er hér að athuga hvort launin mín séu rétt greidd og millifæra pen- inga til Póllands,“ sagði Krzysztof Dobrowski, einn pólsku starfsmann- anna í Landsbankanum í gær. „Ég veit ekki hvort eða hvenær ég fer til baka til Póllands en ég og félagar mínir hafa áhyggjur. Það er óþolandi að starfsmannaleigan hafi farið inn á reikninga okkar og við viljum fylgj- ast með því hvort einhverjar þúsund- ir króna séu að týnast út af reikning- unum. Við förum nú aftur í Kára- hnjúka og reynum að sjá hvað setur, með hjálp verkalýðsfélaganna, sem eru að aðstoða okkur í þessum vand- ræðum. Við viljum fá launaseðlana til að bera þá við bankainnlegg og sjá að okkar mál séu á hreinu áður en við færum okkur um set. Við erum mjög vonsviknir, en okkur hefur sumum verið boðin önnur vinna og með það erum við ánægðir. Við viljum ekkert endilega fara héðan. En í dag veit ég ekkert hvað verður.“ Eftir hádegismat á Egilsstöðum fóru þeir aftur upp í Kárahnjúka, í búðir Suðurverks þar sem þeir hafa unnið sl. mánuði og hyggjast dvelja þar efra í boði verktakafyrirtækisins uns launaseðlarnir liggja fyrir. Taka hugsanlega aðra vinnu Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðar- maður við Kárahnjúkavirkjun, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær ekkert hafa skýrst varðandi afhend- ingu launaseðlanna umræddu og væri það mál í höndum Sveins Andra Sveinssonar, lögmanns 2 B. Lög- maðurinn hefur sagt það samnings- mál milli 2 B og mannanna að starfs- mannaleigan geymi launaseðlana, þeim hafi verið greidd laun, orlof og annað tilheyrandi. Við erum að reyna finna lausn á þessu,“ sagði Oddur. „Við sættum okkur ekki við að Pólverjarnir fái launaseðlana sína á Keflavíkurflug- velli og þeir verða uppfrá uns úr leysist.“ Starfsmenn 2 B könnuðu launainnlegg sín hjá Landsbanka á Egilsstöðum Morgunblaðið/Steinunn Pólverjarnir skoðuðu stöðuna á reikningum sínum hjá Landsbankanum. Bíða áfram eftir launaseðlunum Eftir Steinunni Ásmundsdóttur austurland@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.