Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 8

Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Auðbrekku 9-11 200 Kópavogur Sími: 520 4500 Fax: 520 4501 sg@sg.is www.sg.is S. Guðjónsson er í fremstu röð í sölu á raf- og lýsingarbúnaði á Íslandi og býður upp á heimsfræg vörumerki, t.d. GIRA, Bticino, Modular, Kreon og Regent. EKKI KLIKKA Á SMÁATRIÐUNUM TENGLAR OG ROFAR Í MÖRGUM LITUM OG GERÐUM. F A B R IK A N Gengi íslensku krón-unnar hefur veriðmikið í um- ræðunni að undanförnu og ekki að ástæðulausu. Á meðan almenningur nýtir sér sterka stöðu krónunn- ar gagnvart dollara með innflutningi á alls kyns varningi berjast útflutn- ingsfyrirtæki í bökkum og fréttir af hagræðingum hjá sjávarútvegsfyrirtækj- um, með tilheyrandi upp- sögnum, berast með reglu- legu millibili. Í efnahags- ályktun aðalfundar Lands- sambands íslenskra útvegsmanna sem fram fór um liðna helgi eru stjórnvöld hvött til að grípa til að- gerða svo fyrirtæki í sjávarútvegi heltist ekki úr lestinni, fólk missi vinnuna og samfélagið tapi þegar upp er staðið. Í einföldu máli má segja að gengishækkunin mikla hafi hafist í kjölfar yfirlýsinga um stóriðju- framkvæmdir á Austurlandi en í ljósi þeirra gerði Seðlabankinn ráð fyrir yfirvofandi þenslu og henni þurfti að mæta með stýrivaxta- hækkunum. Stýrivaxtaferlið hófst fyrir alvöru í maí árið 2004 og voru stýrivextir þá í kringum 5% en þeir hafa hækkað um rúm fimm prósentustig síðan. Eftir að ríkið boðaði breytingar á íbúðalánasjóði með lækkun vaxta og hækkun veð- heimilda til að fjármagna íbúða- kaup, öttu þeir bönkunum út í samkeppni og með íbúðalánum bankanna fór húsnæðismarkaður- inn af stað. Húsnæðisverð hefur hækkað um 40% á síðastliðnum 12 mánuðum og Seðlabankinn fékk yfir sig mikla verðbólgu, þar sem húsnæðisverð er svo stór hluti vísitölu neysluverðs, sem þurfti að bregðast við með enn meiri stýri- vaxtahækkunum. Gengi krónunn- ar styrktist í kjölfarið og einka- neysla almennings jókst gríðar- lega, vegna auðsáhrifa samfara hærra fasteignaverði. Á sama tíma var dollarinn að gefa eftir þannig að krónan styrktist tölu- vert mikið gagnvart honum og mikil aukning varð í innflutningi á vörum og þjónustu. Stórtíðindi í íslenskum fjármálaheimi Gengi krónunnar var því mjög hátt þegar í lok ágústmánaðar síð- astliðins kom upp ný staða, útgáfa erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum hófst. „Við erum búin að fá yfir hundrað milljarða inn í hag- kerfið á síðustu mánuðum,“ segir Steingrímur Arnar Finnsson, hjá greiningardeild KB banka, sem segir útgáfuna vera ein stærstu tíðindi í íslenskum fjármálamark- aði í lengri tíma og lýsandi dæmi um samþættingu íslenska fjár- málakerfisins við það erlenda. „Við hjá greiningardeildinni áætluðum að hreint innflæði vegna stóriðju á þessu ári yrði í kringum 30 til 35 milljarðar og eft- irspurn eftir krónum í gegnum þessa erlendu skuldabréfaútgáfu er því þrefalt á við það sem upp- haflega var áætlað að myndi renna inn. Það hefur styrkt krónuna al- veg gríðarlega.“ Steingrímur segir að þó svo að krónan sé miklu sterkari en geti staðist til lengri tíma litið þá geri greiningardeild KB banka ráð fyr- ir því að hún verði áfram sterk næstu sex til tólf mánuði. Hins vegar megi gera ráð fyrir því að krónan muni byrja að veikjast áð- ur en stóriðjuframkvæmdum lýk- ur. „Við gerum ráð fyrir því að á árinu 2006 verði góður gangur í efnahagslífinu og eitthvað fram á árið 2007.“ Niðursveifla árið 2007 Ingólfur Bender, hjá greining- ardeild Íslandsbanka, tekur undir orð kollega síns um áframhaldandi hátt gengi krónunnar og segir fyr- irséð að það haldist að minnsta kosti vel fram á næsta ár. Grein- ingardeild Íslandsbanka spáir um 20 til 25% lækkun gengis krónunn- ar á næstu tveimur árum eða í að- draganda og samhliða því að yf- irstandandi stóriðjuframkvæmd- um lýkur. „Í spánni er gengið út frá því að ekki komi til frekari stóriðjuframkvæmda strax í kjöl- far þeirra sem nú standa yfir. Þarna er nokkur óvissa þar sem frekari framkvæmdir eru á teikni- borðinu sem hugsanlega gætu haf- ist á allra næstu árum. Bæði er þar um að ræða álver í Helguvík og stækkun álversins í Straumsvík, svo nokkuð sé nefnt,“ segir Ing- ólfur og bætir við að ef af þessum framkvæmdum verði ætti það að mýkja niðursveifluna sem spáð er árið 2007. Ef spáin gengur eftir mun það hafa talsverð áhrif á neytendur því verð innfluttrar vöru og þjónustu hækkar og verðbólgan eykst um tíma. Þetta mun rýra kaupmáttinn en einnig koma niður á skuldsett- um heimilum og þá sérstaklega þeim sem skulda í erlendum gjald- eyri en einnig þeim heimilum sem skulda verðtryggt í krónum þar sem vísitala neysluverðs er svo ná- tengd þróun gengisins. „Á heildina litið rýrir þetta hag heimilanna og gæti til að mynda komið með af- leitum hætti niður á þróun hús- næðisverðs og öðru eignaverði.“ Þannig gætu þeir orðið illa úti sem hafa nýlega ráðist í mjög skuldsett íbúðakaup. Fréttaskýring | Ekki er útlit fyrir að ís- lenska krónan gefi eftir alveg á næstunni Ógn við stöðugleika Útgáfa erlendra skuldabréfa í íslensk- um krónum komin í hundrað milljarða Gengi krónunnar er talið hættulega hátt. Krónan verði áfram sterk næstu sex til tólf mánuði  Greiningardeildir KB banka og Íslandsbanka eru sammála í spám sínum um að gengi krón- unnar muni ekki veikjast næstu sex til tólf mánuði. Þegar líða fer að lokum stóriðjuframkvæmda árið 2007 gæti hins vegar dregið til tíðinda og spáir Íslandsbanki allt að 20 til 25% lækkun gengis krónunnar sem í heildina rýrir hag heimilanna og gæti, með af- leitum hætti, komið niður á þró- un húsnæðisverðs. Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÞETTA er mér hvatning til að halda áfram að gera sögur og mynd- ir,“ segir Þorgerður Jörundsdóttir myndlistarmaður og rithöfundur, í samtali við Morgunblaðið, en bók hennar Þverúlfs saga grimma var valin besta handrit að mynd- skreyttri sögu handa ungum les- endum í keppni sem Bókaútgáfan Æskan efndi til í tilefni af 75 ára af- mæli útgáfunnar. Tilkynnt var um úrslitin í gær og var Þorgerði afhent verðlaunafé sem nam 400 þúsund krónum sem Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi og Suzuki bílar hf. lögðu til. Aðspurð segir Þorgerður hug- myndina að bókinni komna frá sex ára gömlum syni hennar, Jörundi, sem hafi veitt henni ótal hugmyndir til að búa til aðalsöguhetju bók- arinnar, en ljósmyndir af Jörundi prýða jafnframt klippimyndir bók- arinnar. „Þetta er saga sem fjallar um smá þvermóðskukast hjá litlum strák og hvernig hann kemur til baka úr því eftir að hafa lent í tölu- verðum ævintýrum á leiðinni,“ segir Þorgerður sem á fjögur önnur börn. Aðspurð segir hún afar auðvelt að setja sig inn í hugarheim og hegðun barna þegar maður hafi þau sífellt í kringum sig. „Maður sér hvernig þau tala, hvernig þau hugsa og hvernig rökhugsun þeirra virkar.“ Spurð hversu lengi hún hafi verið að vinna bókina svarar Þorgerður því til að hún hafi ekki verið lengi að vinna textann, en hins vegar hafi tekið töluverðan tíma að vinna myndirnar. „Þetta eru flóknar myndir, klippimyndir, og það tók langan tíma að safna saman efni og láta þær ganga upp. Þær eru ekki beint einfaldar.“ Aðspurð hvort hún sé komin með hugmynd að næstu bók svarar Þorgerður því játandi. „Ég er með nokkrar hugmyndir ofan í skúffu, sem vonandi líta einhvern tímann dagsins ljós.“ Samkeppninni ætlað að örva lestraráhuga ungra barna Að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Æskunni var mark- mið samkeppninnar að örva lestr- aráhuga ungra barna, en fjöldi kannana hefur sýnt að úr honum hefur dregið. Í keppnina bárust alls 63 handrit og var þar að mati manna margt gott efni. Dómnefndina skip- uðu Árni Árnason kennari og rithöf- undur, formaður, Guðrún Karls- dóttir íslenskukennari og Sigrún Karlsdóttir félagsráðgjafi. Fram kemur að nefndin hafi verið á einu máli um að Þorgerður skyldi hljóta verðlaunin fyrir verk sitt Þverúlfs saga grimma, bráð- skemmtilega sögu með afar snjöllum og smellnum klippimyndum. Þetta er fyrsta bók höfundar sem er fimm barna móðir. Hún tók BA-próf í heimspeki við Háskóla Íslands 1995 og lauk prófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1999. Hún hlaut þýðingarverðlaun Fræðslu- ráðs Reykjavíkur 1998. Í rökstuðn- ingi dómnefndar segir: „Bókin höfð- ar að sjálfsögðu til ungra lesenda – en hentar einnig afar vel til upp- lestrar fyrir þau börn sem ekki kunna enn að lesa, til gamans fyrir þau og þann sem les.“ Morgunblaðið/Sverrir Þorgerður Jörundsdóttir, myndlistarmaður og rithöfundur, tekur hér við viðurkenningu í samkeppni sem Bóka- útgáfan Æskan efndi til. Bók Þorgerðar, Þverúlfs saga grimma, var valin besta handrit að myndskreyttri sögu. „Ég er með nokkrar hug- myndir ofan í skúffu“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.