Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Vorum að fá í einkasölu mjög glæsi- legt 277 fm raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Mikið hefur verið lagt í eignina og er hún mjög vel skipulögð og fallega innréttuð. Fjögur svefnherbergi og möguleiki á því fimmta. Stofan er björt með sólstofu og útgengi á suðurverönd. Borðstof- an er rúmgóð með útgengi í bakgarð sem snýr í norður. Fallegt eldhús með fallegri ljósgrárri sprautaðri innrétt- ingu. Á gólfum eru flísar, parket og sérinnflutt ullarteppi. Fallegur garður í góðri rækt. STÓRGLÆSILEG EIGN Í FJÖLSKYLDUVÆNU UMHVERFI. Allar nánari uppl. á skrifstofu DP FASTEIGNA. 4540 TJARNARMÝRI - 170 SELTJARNARNESI Spánarþing ræðir í dag, mið-vikudag, kröfu Katalónaum enn aukna sjálfstjórn.Mál þetta hefur komið José Luis Rodríguez Zapatero, for- sætisráðherra minnihlutastjórnar sósíalista, í nokkurn vanda því sam- starfsmenn hans standa að kröf- unni, sem margir telja að feli í sér ógnun við einingu spænska ríkisins. Og hægri menn hafa löngum vænt sósíalista um kæruleysi við þá varð- stöðu. Umræðan í dag kemur í kjölfar samþykktar héraðsþingsins í Katalóníu frá 30. september þar sem krafist er breytinga á sjálf- stjórnarstöðu héraðsins innan Spánar. Á það m.a. við um skatt- heimtu en Katalónar vilja að stærra hlutfall hennar verði eftir heima í héraði auk þess sem þeir krefjast þess að heimastjórninni verði feng- in aukin völd á því sviði. Mesta at- hygli vekur þó sá liður samþykktar þingsins þar sem farið er fram á að Katalónar fái stöðu „þjóðar“ innan spænska ríkisins. Breytingar í þessa veru verða ekki gerðar án samþykkis þingsins í Madríd. Eining ríkisins Kröfur um aukna sjálfstjórn eru viðteknar á Spáni. Segja má að karp og spenna í samskiptum hér- aðsstjórna og miðstjórnarvaldsins í Madríd sé einn af drifkröftum spænskra stjórnmála. Á Spáni er að finna 17 sjálfstjórnarhéruð. Þau njóta á hinn bóginn mismikillar sjálfstjórnar og því telst Spánn ekki sambandsríki með sama hætti og t.a.m. Þýskaland eða Bandarík- in. Mest eru völd heimastjórnanna í Katalóníu, Baskalandi og Galisíu en víða kraumar þjóðernishyggja með tilheyrandi kröfu um aukið forræði í eigin málum. Ótti margra á Spáni er sá að kröfur þessar verði til að grafa undan einingu ríkisins, sem skýr- lega er kveðið á um í stjórnar- skránni frá árinu 1978. Þessi af- staða einkennir mjög málflutning hægri manna. Raunar hefur Mar- iano Rajoy, leiðtogi Þjóðarflokksins (Partido Popular, PP), haldið því fram að krafa Katalóna sé fallin til að „rjúfa eininguna um stjórn- arskrána“. Eining ríkisins hefur löngum verið spænskum hægri mönnum nánast trúaratriði. En jafnframt óttast margir ráða- menn í öðrum sjálfstjórnarhéruðum að krafa Katalóna verði til þess að raska þeirri tekjudreifingu, sem fram fer af hálfu miðstjórnarvalds- ins í Madríd. Þá kunni aðrar sjálf- stjórnir – og þá horfa menn einkum til Baskalands – að setja fram svip- aðar kröfur og Katalónar. Raunar er þjóðernishyggja öflug í Baska- landi og fram hafa komið þar kröf- ur um að Baskar fái einnig stöðu sjálfstæðrar „þjóðar“ sem standi í „sérstöku sambandi“ við spænska ríkið. Samþykkt þingsins í Katalóníu kemur sér sérlega illa fyrir Zapat- ero forsætisráðherra. Hann treystir á stuðning vinstri sinnaðra, kata- lónskra lýðveldis- og þjóðernissinna á þinginu í Madríd en þar ræðir um nýlegan flokk er nefnist Esquerra Republica de Catalunya (ERC). Sá flokkur myndar svo aftur meiri- hluta á þingi Katalóníu með sósíal- istum, sem fara fyrir heimastjórn- inni. Zapatero hefur því kosið að sigla milli skers og báru. Og svo virðist sem sú viðleitni hans geti reynst honum dýrkeypt. Í síðustu skoð- anakönnunum mældist fylgi við PP- flokkinn örlítið meira en stuðningur við sósíalista á landsvísu. Það eru mikil umskipti á því eina og hálfa ári, sem liðið er frá því sósíalistar fóru með sigur af hólmi í þingkosn- ingunum á Spáni. Zapatero er boð- beri sátta og „samræðustjórnmála“ en nú sýnast margir þeirrar hyggju að hann skorti dug og hörku í þessu stóra máli. Skoðanakannanir í Katalóníu benda til þess að mikill stuðningur sé við kröfuna um breytta stöðu innan Spánar. Einkum og sér í lagi eru margir þeirrar hyggju að Kata- lónar leggi of mikið í formi skatt- greiðslna til miðstjórnarinnar í Madríd. Þá taka um 60% aðspurðra undir þá skoðun að Katalónar séu „þjóð“ innan spænska ríkisins. „Skýrar tillögur“ boðaðar Spænska dagblaðið El País greindi frá því í gær að Zapatero hygðist kynna „skýrar tillögur“ um breytingar á stöðu Katalóníu innan spænska ríkisins við þingumræð- una í dag. Sagði þar að hugmyndir forsætisráðherrans myndu lúta að fjármálum héraðsins, samskiptum stjórnvalda þar og miðstjórn- arinnar og hvernig tryggja bæri einingu spænska markaðarins. Síð- astnefnda atriðið hefur valdið mönnum verulegum áhyggjum á undanförnum dögum enda hafa komið fram áskoranir á Spáni þess efnis að neytendur kaupi ekki vörur frá Katalóníu til að andmæla kröfu þingsins þar. Að auki hleypti það illu blóði í marga Spánverja er Josep-Lluís Carod-Rovira, leiðtogi ERC-flokksins, lét að því liggja fyrr í ár að Katalónar ættu ekki að styðja þá viðleitni stjórnvalda á Spáni að fá ólympíuleikana til Madríd árið 2012. Samtök spænskra stórfyrirtækja hafa lýst yfir áhyggjum af sjálf- stæðistilburðum Katalóna og varað við því að einingu spænska mark- aðarins kunni að vera stefnt í voða. Slíkt ástand sé ekki fallið til að stuðla að frekari vexti stærri fyr- irtækja í landinu. Fréttaskýring | Spánarþing ræðir í dag kröfur Katalóna um aukna sjálfstjórn. Ásgeir Sverrisson segir frá umræðunni og erfiðri stöðu Zapateros forsætisráðherra. Samstarfsmenn hans standa að kröfunni. Eðlileg krafa þjóðar eða til- ræði við ríkið? Reuters José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar. Bishkek. AFP. | Mannfall varð í fangelsisóeirðum í Moldovanovka- fylki í Mið-Asíuríkinu Kirgistan í gær. Háttsettur embættismaður innanríkisráðuneytis landsins, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að óeirðalögregla hefði verið send til fjögurra fangelsa í gær- morgun. „Ástandið í fangelsunum er áfram slæmt,“ sagði embættismað- urinn. Íbúi í grennd við eitt fang- elsið sagði fréttamanni AP að skothvellir hefðu heyrst frá fang- elsinu í u.þ.b. 30 mínútur. Blóðug átök urðu í fangelsunum og minnst fimm fangar féllu, að sögn yfirvalda. Óstaðfestar fregnir hermdu að 20 hefðu fallið. Munu átökin hafa byrjað þegar Aziz Batukayev, leiðtogi þekkts glæpa- gengis, var fluttur frá Moldov- anovka-fangelsi til annars og ró- legra fangelsis ásamt 25 liðs- mönnum sínum. Var þá leitað á öllum föngunum en Batukayev er sagður ráða lög- um og lofum í öllum fangelsum landsins. „Það er ekkert leynd- armál að margir fangar eru með farsíma og þeir eru notaðir til að dreifa skilaboðum milli allra fang- elsanna,“ sagði embættismaður í Moldovanovka. Þingmaður sem var í heimsókn í Moldovanovka í október lét lífið þegar til átaka kom milli fanga og fangavarða. Um 2.000 afbrota- menn eru í fangelsinu. Fréttavef- urinn Kyrgyz Post segir að óeirðir hafi verið tíðar í fangelsum Kirg- istan að undanförnu þar sem fang- ar séu óánægðir með aðbúnað sinn. Mikið sé um sjúkdóma og fangar séu vannærðir. Mannskæð fanga- uppreisn í Kirgistan Reuters Hermaður í Kirgistan á leið upp í varðturn við Moldovanoka-fangelsið. PALESTÍNUMENN í Jabalya- flóttamannabúðunum á Gaza- svæðinu hrópa vígorð gegn Ísrael við bíl sem eyðilagðist í flug- skeytaárás ísraelska hersins í gær. Tveir liðsmenn vopnaðra hreyf- inga Palestínumanna biðu bana í árásinni. Að minnsta kosti tíu veg- farendur særðust. Hörð átök blossuðu einnig upp í Jenín á Vesturbakkanum í gær þegar að minnsta kosti 40 ísr- aelskir skriðdrekar og herjeppar réðust inn í borgina. Fregnir hermdu að foringi Al-Aqsa- píslarvottasveitanna hefði verið handtekinn.Reuters Árás á Gaza og átök í Jenín

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.