Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 21 MINNSTAÐUR Reykjanesbær | Starfið í Íþrótta- akademíunni í Reykjanesbæ er kom- ið á skrið í glæsilegu húsnæði í ná- grenni Reykjaneshallarinnar. Þrjátíu og tveir nemendur stunda þar nám í íþróttafræði á háskólastigi og nem- endur afreksbrautar á framhalds- skólastigi og 70 háskólanemar í fjar- námi hafa þar aðstöðu. Íþróttafræðinámið er samvinnu- verkefni Íþróttaakademíunnar og Háskólans í Reykjavík sem ber ábyrgð á kennslunni. Húsnæði sem byggt var sérstaklega fyrir Íþrótta- akademíuna var ekki tilbúið fyrr en mánuði eftir að háskólanámið hófst. Geir Sveinsson framkvæmdastjóri segir málin hafi verið leyst til bráða- birgða. „Nemendur voru almennt skilningsríkir vegna þessara byrj- unarörðugleika og þolinmóðir. En það er gott að vera loksins kominn í eigið húsnæði. Við höfum mjög góða aðstöðu í þessu glæsilega húsi og mér finnst að flestum líði vel hér.“ Samkvæmt samkomulagi við menntamálaráðuneytið verða teknir inn þrjátíu nemar á ári í þetta nám sem tekur þrjú ár og verða því að minnsta kosti níutíu nemendur á þriðja skólaári. 85 umsóknir bárust þegar námið var auglýst. „Við rennd- um nokkuð blint í sjóinn og ýmsir höfðu varað okkur við því að ekki yrði eftirspurn eftir þessu námi og erfitt yrði að fá kennara. Það kom því á óvart hvað margir sóttu um og þá fengum við úrvals kennara án þess að þurfa að auglýsa,“ segir Geir. Nemendurnir koma úr ýmsum átt- um og eru með ólíkan bakgrunn. Mik- ill meirihluti býr á höfuðborgarsvæð- inu. Við val á nemendum var litið á einkunnir á stúdentsprófi og einnig á feril þeirra í íþróttum. Þá voru fjórir nemendur teknir inn án stúdents- prófs vegna þess hvað þeir þóttu sterkir á öðrum sviðum. Geir segir að námið verði þróað áfram næstu árin á þeim grunni sem þegar hafi verið lagður. „Háskólinn í Reykjavík hefur lagt áherslu á mast- ersnám í kennslufræði- og lýð- heilsudeild sinni. Við höfum þá fram- tíðarsýn að byggja upp mastersnám í íþróttafræðum. Upp á það hefur ekki verið boðið hér á landi,“ segir Geir. Efnilegum breytt í afreksfólk Fjórar stoðir eru í rekstri Íþrótta- akademíunnar. Nemendur í fjarnámi við Háskólann á Akureyri hafa þar aðstöðu. Þá bjóða Akademían og Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS) upp á nám á afreksmannabraut. Nem- endum í einum bekk FS gefst kostur á að æfa íþrótt sína á vegum Íþrótta- akademíunnar á morgnana og stunda síðan bóklegt nám við Fjölbrauta- skólann yfir daginn. Geir segir að þessi tilraun gangi vel, krakkarnir hafi sýnt góðar framfarir á stuttum tíma. „Markmiðið er að hjálpa efni- legu íþróttafólki að verða afreksfólk á fjórum árum.“ Telur hann að þetta framtak hafi verið löngu tímabært og sér ýmsa möguleika til að þróa námið frekar. Fjórða stoðin undir rekstrinum er fjölbreytt námskeiðahald á sviði al- mennrar lýðheilsu og íþrótta. Verið er að undirbúa fyrstu námskeiðin. 32 brautryðjendur í íþróttafræðinámi við Íþróttaakademíu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Akademían Glæsilegt hús Íþróttaakademíunnar er á framtíðaríþrótta- og háskólasvæði Reykjanesbæjar. Gott að vera loksins komin í eigið húsnæði Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SUÐURNES „ÞAÐ er gaman að vera með í þessu frá byrjun og taka þátt í að skapa nýjar hefðir. Þetta hefur verið skemmtilegt, það sem af er,“ segir Kristján Th. Friðriksson, nemandi á íþróttafræðibraut við Íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ. Hann var ásamt félaga sínum, Jóni Páli Pálmasyni, að leggja loka- hönd á skipulagningu handknatt- leiksæfingar sem þeim hafði verið falið að annast ásamt fleiri nem- endum. Báðir hafa þeir mikinn áhuga á íþróttum. Kristján er keppnis- maður í körfuknattleik og hefur einnig komið við í öðrum íþróttum og Jón Páll þjálfar knattspyrnulið og hefur sjálfur verið í íþróttum. „Ég held að það sé skemmtilegt að vinna við þetta. Aukning er í þess- um geira og ég tel að miklir möguleikar séu á góðu starfi,“ segir Kristján. Jón Páll segir að áhugi á þjálfun og að starfa með börnum hafi beint athygli hans að þessu námi. Meirihluti nemenda í íþrótta- fræðinni er búsettur á höfuðborg- arsvæðinu og ekur á milli þá fjóra daga sem kennslan fer fram. Þeir fara oftast fjórir til fimm saman í bíl til að draga úr kostnaði og skiptast á um að aka. Þeir félagar segja að það sé lítið mál að fara á milli og segja að það sé engin hindrun í að stunda námið í Reykjanesbæ. Verkefni Jón Páll Pálsson og Kristján Th. Friðriksson undirbúa æfingu. Gaman að skapa nýjar hefðir BAKGRUNNUR nemenda í íþróttafræðináminu í Reykja- nesbæ er ólíkur, nema hvað allir hafa áhuga á íþróttum. Meðal nemenda eru afreksmenn og at- vinnumenn í íþróttum en einnig fólk sem hefur haft íþróttir sem áhugamál. Unnur Pálmarsdóttir er í fyrrnefnda hópnum og Dagný Erla Ómarsdóttir í þeim síðarnefnda. Unnur hefur stundað líkams- rækt í mörg ár, keppt í þolfimi og starfað sem líkamsræktar- og þolfimikennari hér á landi og á námskeiðum út um allan heim. „Þetta nám heillaði mig þegar ég las viðtal við Geir Sveinsson í Morgunblaðinu. Ég hafði verið að hugsa um að fara út í nám en sá að þetta myndi henta mér,“ segir Unnur þegar hún er spurð að því hvernig áhugi hennar hafi vaknað. „Mig langaði að læra eitthvað í sambandi við lýðheilsu og stjórnun og fannst öll námskeiðin heillandi. Það er mikilvægt að stunda fyrirbyggjandi starf á þessu sviði svo krakkarnir fari ekki út í ógöngur. Við eigum að vera góðar fyrirmyndir. Þetta er góð leið til að mennta sig betur og svo er þetta líka svo skemmtilegur hópur.“ Dagný Erla var í íþróttalýðhá- skóla í Sönderborg í Danmörku síð- asta vetur og hefur hug á að gerast íþróttakennari, jafnvel að flytjast aftur heim til Seyðisfjarðar í þeim tilgangi en hún er nýflutt til Reykjavíkur. Hún sótti um í Íþróttakennaraskólann á Laug- arvatni en valdi Íþróttaakademíuna þegar hún fékk boð um skólavist á báðum stöðum. „Ég var á heimavist í menntaskóla og langaði ekki aftur á vist. Það er gott að hafa þennan valkost og hleypa nýju blóði inn í þessa grein,“ segir hún. Báðar búa þær á höfuðborgar- svæðinu og keyra á milli. Segja það þægilegt enda beinn og breiður vegur. „Það er gott að komast út úr Reykjavík til að stunda nám,“ segir Unnur og Dagný bætir því við að ekki sé bílastæðavandamálunum fyrir að fara. Sá að þetta myndi henta mér Íþróttafræði Unnur Pálmarsdóttir og Dagný Erla Ómarsdóttir íþróttafræði- nemar hafa ólíkan bakgrunn.                                                                              !"#  #  !$#  #                 !" #! $ %&  ' $   !" #! $ ((( &   $ %   Sandholt - einbýli Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. Vorum að fá í sölu einbýlis- hús á tveimur hæðum við Sandholt í Ólafsvík. Húsið er steinhús byggt árið 1967 ásamt bílskúr og er samtals 218 fm. Húsið er nýlega klætt að utan og við suður- hlið er trésólpallur. Gluggar og þak endurnýjað. V. 22 m. 4275

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.