Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ voru kaldar kveðjur, sem konur fengu frá Snjólfi Ólafssyni í Morgunblaðinu 26. október síðast- liðinn þar sem hann heldur því fram að kynbundinn launa- munur sé eðlilegur. Baráttuhátíð 50.000 ís- lenskra kvenna tveim- ur dögum áður sem fólst m.a. í að mót- mæla kynbundnum launamun var því á misskilningi byggð. Konur fá eðlileg laun miðað við eðli sem svo útskýrir ólíkt starfsval og áherslur í lífinu. Slík eðlishyggja hefur einmitt verið stærsti þátturinn í að viðhalda kynjamismunun. Hug- myndir sem hafa fylgt okkur frá ómunatíð eins og að konur stjórnist meira af til- finningum en karlar af skynsemi. Af sama meiði má nefna þrá- láta baráttu ýmissa fræðimanna á 18. og 19. öld að reyna að sýna fram á að konur hefðu hlutfallslega minni heila og þ.a.l. minni getu til mennta og opinberra starfa. Þess- ar hugmyndir áttu sinn þátt í að viðhalda valda- og kynjakerfi sam- félagsins en settar fram undir fræðilegum formerkjum og hefur Snjólfur nú bæst í hóp þessara metnaðarfullu spekinga og skrifar undir sem prófessor í viðskipta- og hagfræðideild HÍ, líklega til að auka vægi orða sinna. „Sumir elska að taka þátt í lífs- gæðakapphlaupinu og aðrir lifa fyrir að hjálpa öðrum.“ Með þess- um rökum útskýrir Snjólfur launa- muninn og augljóst að hann horfir framhjá öllum þeim konum sem hafa menntað sig til viðskipta- og stjórnunarstarfa m.a. í gegnum viðskipta- og hagfræðideild Há- skóla Íslands. Ég stórefast um að þær hafi lagt minna af mörkum og ætli sér að leggja minna af mörk- um þegar út í atvinnulífið er komið. Meðaleinkunn kvenna er að jafnaði hærri á öllum skólastigum sem þýðir að þær leggja hlutfallslega meira á sig til að ná árangri. Hin rökin fyrir „eðli- legum launamun“ er meiri vilji karla til að vinna mikið eða eins og Snjólfur orðar það: „Þeir sem hafa mjög háar tekjur vinna að jafnaði mjög mikið. Ekki nóg með að þeir vinni mikið þau árin sem þeir hafa miklar tekjur, þeir hafa flest- ir unnið mikið frá unga aldri.“ Rann- sóknir hafa sýnt að konur vinna síst minna en karlar og stelpum eru frekar fengin ábyrgð- arhlutverk í æsku, sérstaklega inn á heimilunum. Það er hins vegar ekki eins víst að stelpunum hafi boðist jafnvel borguð vinna úti á vinnumark- aðnum og drengj- unum. Rannsóknir á framhaldsskólanemum hafa ein- mitt sýnt að 13% þeirra drengja sem hætta í framhaldsskóla gera það vegna þess að þeim býðst gott starf en aðeins 3% stúlkna. Svipaða kynbundna mismunun er eflaust að finna hjá þeim nemendum sem stunda sumarvinnu eða vinnu með- fram námi. Vegna slakrar stöðu kvenna í viðskiptaheiminum er einmitt sér- lega mikilvægt að rætt sé af ein- hverri alvöru og þekkingu um kynjajafnrétti í viðskipta- og hag- fræðinámi og kynntar séu þær rannsóknir sem sýna hverjar séu raunverulegar ástæður fyrir þeirri kvennaslagsíðu sem þar ríkir. Ef svörin eru óljós er mikilvægt að deildin hvetji til frekari rannsókna á því. Háskóli Íslands hefur frá 1998 kerfisbundið unnið að jafn- réttismálum og reynt m.a. að vinna gegn úreltum viðhorfum. Háskól- inn hefur boðið upp á kynja- fræðinám frá 1998 og þar hafa kennarar af flestum fræðasviðum í hug- og félagsvísindum boðið upp á námskeið þar sem ýmsar greinar eru skoðaðar út frá fjölmenningu, jafnrétti og kynjafræðum. Við- skipta- og hagfræðideild hefur hins vegar ekki tekið þátt í þessu og má spyrja sig hvort deildin hafi ekki séð ástæðu til þess og ekki ráðið akademíska starfsmenn með slíka þekkingu. Það hefði einmitt verið auðveld leið til að fjölga konum meðal akademískra starfsmanna þar sem konur hafa frekar sérhæft sig á þessum sviðum. Þetta er ekki síst spurning um ólíka virðingu fyr- ir viðfangsefnum og þau viðfangs- efni sem þykja kvenlæg hafa oftar en ekki minni virðingu. Annað sem vert er að taka fram er að konur hafa verið um og yfir helmingur stúdenta í viðskipta- og hagfræðideild í 10 ár án þess að það hafi skilað sér að einhverju marki í akademískum frama innan deildarinnar og hlýtur að vera huggun fyrir þá sem sjá ofsjónum yfir háu hlutfalli kvennemenda í háskólum. Engin kona er dósent eða prófessor í deildinni, engin kona situr í stjórn Hagfræðistofn- unar en þrjár konur eru lektorar. Mér er kunnugt um að konur hafa verið mun færri í umsækjendahópi um akademískar stöður en karlar, en akademískur frami byrjar oft með tengslum við kennara og þátt- töku í rannsóknum og fræðistörf- um á meðan á námi stendur. Slíkt felur í sér hvatningu til áframhald- andi náms og að þær finni sig vel- komnar í fræðaheiminum, m.t.t. faglegra áherslna og starfsum- hverfis. Samkvæmt Snjólfi er ekki von á því að þetta eigi eftir að breytast því konur að hans mati finna sig meira í að hjálpa öðrum en karlar eru spenntari fyrir lífsgæðakapp- hlaupinu og ekkert við því að gera. Nú bið ég í einlægni allt það góða fólk sem vinnur að jafnréttismálum við Háskóla Íslands að uppfræða Snjólf um jafnréttisstefnu skólans og fá viðskipta- og hagfræðideild til að taka þessi mál alvarlega og af röggsemi. Kaldar kveðjur til kvenna Berglind Rós Magnúsdóttir svarar grein Snjólfs Ólafssonar ’… því konurað hans mati finna sig meira í að hjálpa öðrum en karlar eru spenntari fyrir lífsgæðakapp- hlaupinu …‘ Berglind Rós Magnúsdóttir Höfundur er fyrrverandi jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands. Eggert B. Ólafsson: Vegagerð- in hafnar hagstæðasta tilboði í flugvallarrútuna. Örn Sigurðsson: Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýj- an innanlandsflugvöll. Prófkjörsgreinar á mbl.is www.mbl.is/profkjor PRÓFKJÖR Gísli Freyr Valdórsson styður Kjartan Magnússon í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Leifur Helgason og Viðar Hall- dórsson styðja Jón Kr. Óskars- son í prófkjöri Samfylkingarinn- ar í Hafnarfirði. Heimir L. Fjeldsted styður Kjartan Magnússon í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sturlaugur Þorsteinsson styð- ur Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hrafnkell A. Jónsson styður Gísla Martein Baldursson í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar UM NÆSTU helgi fer fram próf- kjör Samfylkingarinnar í Hafn- arfirði vegna bæjarstjórnarkosning- anna í maí á næsta ári og hef ég ákveðið að gefa kost á mér í 7. til 8. sæti listans. Ég hef gegnt for- mennsku í heilbrigð- isnefnd á þessu kjör- tímabili og hef mikinn áhuga á að gera það áfram þar sem ég tel mig hafa mikla og góða reynslu á því sviði. Sem dæmi um verkefni sem unnið hefur verið að má nefna nýja reglugerð um hunda- og kattahald, en með henni hefur vonandi náðst sátt um sambýli gæludýra og mann- fólks í bæjarfélaginu. Slysum sem tengjast lausagöngu hunda hef- ur fækkað stórlega með virku eft- irliti, jafnframt því sem meðferð gæludýra hefur batnað. Auk þessa má nefna innra eftirlit fyrirtækja og stofnana, sem hefur leitt til þess að sýkingar af völdum matvæla og óþrifnaður í því sam- bandi heyra nánast sögunni til. Næstum allir starfsleyfishafar hafa komið upp slíku eftirliti. Þessu til viðbótar má nefna, að umgengni bæjarbúa hefur stórlega batnað, þó enn megi gera betur. Félags- og öldrunarmálin Það er bitur niðurstaða að skort- ur á úrræðum í öldrunarþjónustu og húsnæðismálum aldraða skuli enn vera áhyggjuefni bæjaryf- irvalda og aðstandenda á árinu 2005 og skammarlegt að ríkisvaldið skuli snið- ganga Hafnarfjörð í fjárveitingum eins og reynslan hefur sýnt síðustu áratugi. Stækkun Sólvangs hefur verið slegið á frest, fjárlög eftir fjár- lög og er það eingöngu frábæru starfsfólki fyrir að þakka að fólki líður vel á Sólvangi. Auk þess vantar önnur húsnæðisúrræði fyrir efnaminni Hafnfirð- inga og mun ég reyna mitt besta til að stuðla að framgangi þeirra mála. Knýja þarf á ríkisvaldið að standa við skyldur sínar, en sam- starf við einkaaðila kemur vel til greina til að flýta megi framgangi mála. Félagsþjónustuna ber að efla til muna, en í þeim málaflokki hefur Samfylkingin staðið fyrir stórátaki á yfirstandandi kjörtímabili. Þó vantar enn á að verkinu sé lokið, sérstaklega þar sem ríkið kemur að málum. Ég tel að reynsla mín af verkalýðs- og velferðarmálum muni nýtast vel í þessum málaflokki. Tómstundir fjölskyldunnar Í íþrótta- og tómstundamálum hefur verið gert stórátak og með til- komu niðurgreiðslna vegna æfinga- og þátttökugjalda barna, 10 ára og yngri, var stórbætt aðkoma minni félaga og samtaka að öllu félagstarfi barna. Það er markmið okkar að gera enn betur á því sviði og mun ég beita mér fyrir því að nið- urgreiðslurnar nái til breiðari hóps en nú er. Þá er það skoðun mín að hlúa beri enn betur að hafnfirsku afreksfólki og styrkja það til frekari afreka. Forvarnastarf hefur tekið mikl- um breytingum til bóta eftir að Samfylkingin komst til valda. Af- brotum hefur fækkað, fræðsla hefur aukist til muna og félagslegum úr- ræðum hefur fjölgað. Með sam- starfi stofnana bæjarins og lög- regluyfirvalda hefur náðst góður árangur á þessu sviði, en betur má ef duga skal og verðum við sífellt að vera á verði. Ég mun áfram leit- ast við að starfa með okkar fólki í þessum málaflokki. Ferðamál Rekstrarfyrirkomulagi ferða- mála var breytt í upphafi þessa kjörtímabils, eftir að málaflokk- urinn hafði verið í fjársvelti á síð- asta kjörtímabili þegar Sjáfstæð- isflokkurinn og Framsókn sátu í meirihluta bæjarstjórnar. Ég er þeirrar skoðunar að auka beri hlut þessa málaflokks og að aftur verði opnuð sérstök upplýsingamiðstöð ferðamanna auk þess sem starf ferðamálafulltrúa verði gert sýni- legra. Þar er enn stór óplægður ak- ur með miklum möguleikum. Prófkjörið Eins og fyrr er getið, sækist ég eftir 7. eða 8. sæti á lista Samfylk- ingarinnar í kosningum í maí. Ég tel að reynsla mín í félagsmálum og hagsmunamálum launafólks muni gagnast Hafnfirðingum vel. Ég hef að leiðarljósi að skapa enn betri Hafnarfjörð þar sem fjölskyldu- málin verða í fyrirrúmi. Jafnframt lýsi ég yfir stuðningi við þá bæj- arfulltrúa Samfylkingarinnar sem gefið hafa kost á sér til áframhald- andi starfa. Þeir hafa skilað frá- bæru starfi. Eftir Sigurgeir Ólafsson ’Stækkun Sólvangs hefur verið slegið á frest, fjárlög eftir fjár- lög og er það eingöngu frábæru starfsfólki fyrir að þakka að fólki líður vel á Sólvangi.‘ Sigurgeir Ólafsson Höfundur er í framboði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og sækist eftir 7. til 8. sæti listans. Prófkjör Hafnarfjörður Fjölskyldan í fyrirrúmi Í BORGINNI okkar Reykjavík býr fjöldi eldri borgara og til þeirra ber að taka sérstakt tillit. Eldri borgarar er breiður hópur og þarfir hinna eldri afar misjafnar. Sumir hafa fulla starfsgetu komnir vel á áttræð- isaldur og jafnvel yfir áttrætt á meðan aðrir hafa misst mikið af sinni starfsgetu þegar þeir komast á starfs- lokaaldur. Atvinna fyrir þá eldri Það er afar jákvætt að fyrirtæki séu farin að óska eftir starfs- kröftum eldri borgara og ég er viss um að margir hafa gaman af því að geta verið áfram á vinnumarkaði á með- an heilsa leyfir. Þeir sem hafa getu og vilja ættu að fá að starfa eins lengi og þeir treysta sér til. Sumir allan daginn en aðrir styttri vinnu- dag ef þeir óska þess. Vilji og geta eiga að ráða hér um. Það er nú þó þannig að eftir því sem árin færast yfir því meiri líkur eru á því að þrek og þor dvíni og smám saman verði þörf fyrir meiri aðstoð. Það er einmitt á þeim árum sem það skiptir svo miklu máli að samfélagið taki tillit til sérþarfa þeirra eldri borgara sem á því þurfa að halda. Sá hópur fer stækkandi í okkar samfélagi og þess vegna þurf- um við að huga enn betur að þeim en áður. Enga kanta og bekki með stuttu millibili Það eru margir eldri borgarar sem þurfa hjálpartæki til að komast leiða sinna utan dyra. Það skiptir miklu máli að auðvelt sé að komast um og ekki séu kantar á gönguleiðum. Það getur líka skipt sköp- um að hægt sé að tylla sér á bekk og hvíla sig með nokkuð reglulegu millibili. Það eykur kjark og þor að vita að hægt sé að hvíla sig nokkrum sinnum á leiðinni, þegar tekin er ákvörðun um að ganga út í búð eða í sund svo dæmi sé tekið. Þetta er nú bara lítið dæmi um það sem við getum gert á einfaldan hátt til að mæta þörfum eldri borgara betur hér í borginni okkar. Samgöngumál innan borgarinnar Samgöngumál í Reykjavík hafa tekið hverri breytingunni af annarri og nú er búið að breyta leiðakerfi strætó. Þar sem áður var miðað við að ekki þyrfti að ganga lengra en 400 m að næstu stoppistöð er nú orðið 700 m. Það auðveldar ekki eldri borgurum að komast leiða sinna með strætisvögnunum ef leiðin að næstu stoppistöð er orðin svo löng að fólk treystir sér ekki til að komast þangað. Það er ekki nóg að tala hátt og mikið um það á tyllidögum að aldr- aðir séu verðmætur hópur sem þurfi að taka tillit til. Það græðir enginn á því. Hér eru það verkin sem tala. Ef ég kemst inn í borgarstjórn á næsta kjörtímabili lofa ég því að verkin munu tala. Eldri borgarar í borginni okkar Eftir Jórunni Frímannsdóttur ’Ef ég kemstinn í borgar- stjórn á næsta kjörtímabili lofa ég því að verkin munu tala.‘ Jórunn Frímannsdóttir Höfundur er varaborgarfulltrúi, hjúkrunarfræðingur, ritstjóri dokt- or.is og sækist eftir stuðningi í 4. sæti á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.