Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 02.11.2005, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN og virðing er borin fyrir frelsi til at- hafna. Verkefnin bíða. Það er mjög mik- ilvægt fyrir Reykjavík að Sjálfstæðisflokk- urinn beri sigur úr být- um í vor eftir tólf ára valdatíð R-listans og því þarf að velja vel á framboðslistann. Nýj- um meirihluta bíða mörg verkefni. Önnur sveitarfélög hafa sótt á og margir borgarbúar hafa flúið borgina. Út- gjalda- og skuldaaukn- ing borgarinnar með meðfylgjandi aukinni gjaldheimtu á íbúa hennar, hefur or- sakað að lífsgæði fjölmargra borg- arbúa hafa versnað til muna í kjöl- farið og þessari þróun verður að snúa við. Það verður einnig að end- urskoða alla stefnumótun í tengslum við málefni aldraðra, leikskólanna og skipulagsmál svo eitthvað sé nefnt. Veljum reynslumikla einstaklinga sem hafa þekkingu á borgarmálum. Í þessi verkefni þarf að velja ein- staklinga sem hafa víðtæka þekk- ingu á málefnum borgarinnar. Ein- staklinga sem tekið hafa þátt í starfi borgarmálanna og hafa nú tækifæri til þess að koma á nauðsynlegum breytingum í krafti meirihlutans. Ég hvet allt sjálfstæðisfólk til að athuga vel ásýnd prófkjörslistans, þegar þeir raða á hann á kjörstað. Það skiptir máli hverja við veljum, hvernig til tekst að búa til betri borg. ÉG VIL hvetja allt sjálfstæðisfólk til þess að mæta á kjörstað 4. og 5. nóvember og kjósa sína fulltrúa til þess að leiða lista Sjálf- stæðisflokksins í kom- andi borgarstjórn- arkosningum. Það er mikilvægt að á lista Sjálfstæðisflokksins verði sterkir menn og konur sem hafa þá reynslu, dugnað og kraft sem þarf til þess að snúa vörn í sókn og gera Reykja- vík að þeirri fyrirmyndarborg sem hún ætti að vera. Borg tækifæra, þar sem hlúð er að öllum einstaklingum Eftir Kristján Guðmundsson Kristján Guðmundsson ’Það skiptir máli hverja við veljum, hvernig til tekst að búa til betri borg.‘ Höfundur er húsasmiður og varaborgarfulltrúi sem býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík Sjálfstæðismenn, búum til betri borg MIKLAR breytingar blasa við í öldrunarmálum á Íslandi. Þjóðin er að eldast og halda þarf vel á spilum til að hlúa sem best að öldruðum íbú- um þessa lands. Heilbrigðisráðu- neytið fer nú með málefni er varða þjónustu við aldraða og ríkið fjár- magnar rekstur elli- og hjúkrunarheimila en breytinga er þörf. Mik- ilvægt er að færa þessi mál til félagsmálaráðu- neytisins sem fer með málefni sveitarstjórna og þannig yfir á sveit- arstjórnarstigið. Tryggja þarf sveit- arstjórnum tekjustofna á móti, líkt og gert var með rekstur skólanna. Þannig er málum hátt- að á öllum Norð- urlöndum. Þjónusta við aldraða á að vera nándarþjónusta og í þess konar breytingu liggja mikil tækifæri fyrir Reykjavík til að hlúa betur að öldruðum íbúum borgar- innar, en jafnframt miklar áskoranir. Það á að vera forgangsatriði hjá Reykjavíkurborg að móta heildræna stefnu í þessum mikilvæga mála- flokki áður en farið er í viðræður við ríkið um hvernig staðið skuli að yf- irfærslu hans til sveitarfélaga. Þjón- usta við aldraða er félagslegt málefni frekar en heilbrigðislegt. Reykjavík á að vera leiðandi í viðræðum við rík- ið til að búa öldruðum öruggt skjól. Heimaþjónustan til hjúkrunar- og elliheimilanna Samfara þessari breytingu ætti að gera breytingu á heimaþjónustu við eldri borgara. Fjöldi eldri borgara í Reykja- vík vill búa á sínu eigin heimili eins lengi og hægt er. Þeim á að hjálpa eins og kostur er með sem bestri heima- þjónustu. Heimaþjón- usta við eldri borgara í Reykjavík er nú rekin af velferðarsviði Reykjavíkur. Verði af því að sveitarfélögin taki yfir þennan mála- flokk felast tækifæri til breytinga og betrumbóta á heimaþjónustunni í því að Reykjavíkurborg geri samninga við elli- og hjúkrunarheimilin í borg- inni. Heimaþjónusta er nándarþjón- usta og hjúkrunar- og elliheimilin eru dreifð um borgina. Samfara þessari breytingu liggur beint við að þau taki yfir heimaþjónustu við aldr- aða. Slík breyting tryggir aukna ná- lægð þeirra sem þjónustuna veita og þeirra sem hana þiggja. Hjúkrunar- og elliheimilin í borginni hafa allt sem til þarf til að veita sem besta heimaþjónustu við eldri borgara. Þar eru eldhús og önnur tæki sem þörf er fyrir og síðast en ekki síst frábær mannskapur s.s. læknar, hjúkrunarfólk og ræstingafólk. Á hjúkrunar- og elliheimilunum í borg- inni er allt sem til þarf til að gera heimaþjónustu við eldri borgara eins öfluga og mögulegt er og jafnframt eins nálæga þeim sem hana þurfa eins og hægt er. Þjónusta við aldraða er nándarþjónusta Eftir Júlíus Vífil Ingvarsson ’Heimaþjónusta ernándarþjónusta og hjúkrunar- og elliheimil- in eru dreifð um borgina. Samfara þessari breyt- ingu liggur beint við að þau taki yfir heimaþjón- ustu við aldraða.‘ Júlíus Vífill Ingvarsson Höfundur er lögfræðingur og býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík HELGI Bogason, „sérfræðingur“ á Innkaupa- og rekstrarskrifstofu Reykjavíkurborgar, svarar grein minni um innkaup Reykjavíkur- borgar í Morgun- blaðinu 28. október 2005. Með fullyrð- ingum um vanþekk- ingu mína á innkaupa- málum og skilnings- leysi mitt á tilkomu laga um opinber inn- kaup, dæmir Helgi best sjálfan sig. Tilkomu gagnrýni og ábendinga minna á inn- kaupum Reykjavík- urborgar, byggi ég á margra ára starfi sem deildarstjóri/verk- efnastjóri hjá Reykjavíkurborg, og á þeim tíma samstarfi við fjölmargar arkitekta- og verkfræðistofur, verk- taka og efnissala. Ásamt þátttöku og aðkomu að mótun innkaupareglna Reykjavíkurborgar, umsjón með skoðanakönnun meðal verktaka um þjónustu fyrrverandi Innkaupastofn- unar Reykjavíkurborgar, og ekki síst ábendingar frá ofannefndum aðilum um innkaupamál. Í tengslum við þessi störf gerði undirritaður sér far um að kynna sér vel lög og reglur um op- inber innkaup. Þar sem Helgi tekur f.h. Innkaupa- og rekstrarskrifstofu að sér að svara grein minni, má ætla að hann sé helsti „sérfræðingur“ skrifstofunnar í þessum efnum. Ef svo er, er sorglegt til þess að vita, að vænta megi sam- bærilegrar afgreiðslu á utanaðkom- andi ábendingum og gagnrýni, eins og raun ber vitni hjá nýstofnaðri Inn- kaupa- og rekstrarskrifstofu Reykja- víkurborgar. Í niðurlagi greinar sinnar segist Helgi leggja „mikla áherslu á vönduð vinnubrögð“, það að taka við gagn- rýni og svara henni málefnalega, telst til vandaðra vinnubragða. Ég hvet Helga til að viðhafa vönduð vinnu- brögð, og skora á hann að standa fyr- ir skoðanakönnun meðal ofannefndra viðskiptavina skrifstofunnar um inn- kaupamál borgarinnar og birta síðan niðurstöður hennar í skorkorti Þjón- ustu- og rekstrarsviðs Reykjavík- urborgar, eins og ætlast er til af öll- um nýstofnuðum sviðum Reykja- víkurborgar. Embættismenn borgarinnar verða að átta sig á, að Reykjavíkurborg er þjónustustofnun, og að hluti af þeirri þjónustu er m.a. að viðhafa skoðanakannanir, til að varpa ljósi á hvaða þjónustustig borg- in veitir viðskiptavinum sínum. Innkaupamál Reykjavíkurborgar Kristinn J. Gíslason svarar Helga Bogasyni Kristinn J. Gíslason ’Reykjavíkurborg erþjónustustofnun og hluti af þeirri þjónustu er m.a. að viðhafa skoð- anakannanir, til að varpa ljósi á hvaða þjón- ustustig borgin veitir viðskiptavinum sínum.‘ Höfundur er verkfræðingur. Í HINUM fjarlægu kjördæmum landsins hefðu þingmenn ekki þurft að kemba hærurnar eftir annan eins gjörning og þingmenn kjördæmis Reykjaness fram- kvæmdu nýlega með styrk til vík- ingasafns í Reykjanesbæ. Það er vegna þess að fólk er kosið til að tryggja hagsmuni þess byggð- arlags sem það er kosið í, en ekki til að vinna beinlínis gegn þeim. Það síðarnefnda er allavega hafið yfir allan grun. Auðvitað ætti þetta að vera þannig að þegar hugað er að hagsmunum hópa eða byggðarlaga þá sé það gert í krafti heildarhagsmuna. Styrking atvinnulífs á Suðurnesjum er þess vegna hluti af stærra samhengi og ber að fagna undir eðlilegum kringumstæðum. Það ber hins vegar svo við að þessa til- teknu hugmynd á annar maður og ann- ar bær. Með atorku- semi og hugmynda- flugi hefur þessi maður og þessi bær unnið viðskipta- hugmynd í anda víkinganna, sem styrkir heildina. Víkingaþorpið í Hafnafirði er hluti af því aðdrátt- arafli sem land víkinganna hefur og við njótum öll góðs af. Það sama má segja um Bláa lónið og aðra frumlega staði. Það er ekki nokkur vafi á því að önnur og rík- isstyrkt útfærsla á víkinga- hugmyndinni mun njóta góðs af 15 ára markaðsstarfi einstaklingsins í Fjörukránni um allan heim – kannski einmitt þegar sá sem sáði getur farið að búast við einhverri uppskeru. Menn kunna þá að spyrja hvort einhver geti bara átt hugmynd og hvort í landinu ríki ekki frjáls samkeppni. Viðskipti séu viðskipti og það þýði ekkert að kvarta und- an samkeppni. Og þá er upplagt að snúa sér að viðskiptalega hlut- anum. Þegar ráðherra mennta- mála fullyrðir að engar hug- myndir séu uppi um veitinga- rekstur eða nokkuð annað sem flokka megi undir samkeppni við Vík- ingaþorpið í Hafnar- firði, þá er erfitt að sjá hvernig hægt er tryggja slíka yfirlýs- ingu – hugsanlega með fullyrðingum ráðamanna í Reykja- nesbæ um að þeir hafi ekkert slíkt í huga. Ráðherrar koma og fara og það gera bæjarstjórar líka. „Nu har vi en anden situasjon,“ segir danskurinn. Það hefur sýnt sig að viðskiptalífið er slungið og margir halda því fram að kaup- sýslumenn séu komnir langt fram úr stjórnmálamönnum hvað varð- ar að nýta sér leikreglur mark- aðarins. Það getur enginn fullyrt að 120 milljóna ríkisstyrkur til uppbyggingar á einum þætti rekstrar verði ekki einfaldlega þægilegur stökkpallur yfir í annað og meira í framtíðinni. Um leið og við hugum að hags- munum heildarinnar skulum við virða framtakssemi einstaklings- ins. Það er sú frjálshyggja sem ég er alinn upp við og vona að sé enn við lýði. Víkingasveita- mennska Haukur Magnússon fjallar um frjálshyggju ’Um leið og við hugumað hagsmunum heildar- innar skulum við virða framtakssemi einstak- lingsins. Það er sú frjálshyggja sem ég er alinn upp við og vona að sé enn við lýði.‘ Haukur Magnússon Höfundur er Cand. ocean/MBA og eigandi Ávaxtabílsins. SVO örmagna er ríkisstjórnin orðin að líflegastar umræður eru nú um hvað taka skuli við af henni. Ögmundur Jónasson hefur m.a. skrifað um þetta greinar og kallað eftir samstarfi við stjórnarandstöðuna í öðru orðinu en kallað okkur í Samfylking- unni hægrimenn í hinu. Þessum skrifum svaraði ég í liðinni viku og spurði hvort VG og Samfylking gætu sameinast um einhver framfaraverk- efni önnur en að draga úr ójöfnuði, en það verkefni sameinar okkur öðrum fremur. Í Morgunblaðinu í dag, mánu- dag, kallar Ögmundur það að Sam- fylkingin tali ekki nógu skýrt. Hann nefnir hinsvegar ekki til sög- unnar eitt einasta framfaramál sem VG og Samfylkingin gætu náð saman um. Og það er nú bara kjarni málsins. Því þó eðlilegt sé að líta fyrst til þess hvort stjórn- arandstaðan geti myndað starf- hæfan meirihluta verður slíkt sam- starf að snúast um eitthvað fleira en að bæta kjör hinna verst settu. Þó að það sé mikilvægasta verk- efnið í dag nægir það ekki eitt sér. Lykillinn að velferðarsamfélagi því sem jafnaðarmenn á Norðurlöndum byggðu upp var að hafa forgöngu um framfarir í efnahags- og atvinnumálum sem urðu undirstöður auk- innar velferðar. En án framfara í efnahags- og atvinnumálum verður velferð ekki aukin að neinu gagni. Þögn Ögmundar um framfara- málin sem félagar í VG eru tilbúnir að styðja sýnir hve nauðsynleg um- ræðan er. Því eigi stjórnarand- staðan að vera trúverðugur val- kostur í næstu kosningum er henni nauðsyn að hafa heildstæða mynd af framfaraverkefnum á öllum sviðum þjóðlífsins sem ráðast eigi í. Annars er engin ástæða til að fela henni forystuna. Helgi Hjörvar svarar Ögmundi Jónassyni ’Þögn Ögmundar umframfaramálin sem VG er tilbúið að styðja sýnir hve nauðsynleg umræðan er.‘ Helgi Hjörvar Höfundur er alþingsmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík. Um hvað, Ögmundur?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.