Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 36

Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þuríður Jóns-dóttir fæddist í Grafardal í Hval- fjarðarstrandar- hreppi 31. janúar 1933. Hún lést á Landspítalanum miðvikudaginn 26. október síðastlið- inn. Foreldrar Þur- íðar voru Jón Böðv- arsson, bóndi í Grafardal, f. 5. júní 1901, d. 15. janúar 1963, og Salvör Brandsdóttir, f. á Fróðastöðum í Hvítársíðu 22. febrúar 1905, d. 14 apríl 1951. Systkini Þuríðar eru: Brandur, fyrrverandi bóndi á Katanesi á Hvalfjarðarströnd, f. 13. október 1938, kvæntur Guðfinnu Sveins- dóttur, f. á Svarfhóli í Svínadal 22. desember 1944, þau eiga fjög- ur börn; Kristín, f. í Grafardal 1. desember 1939, gift Heiðari Kristjánssyni, f. á Hæli í Torfa- lækjarhreppi 26. janúar 1939, þau eiga fjögur börn; Böðvar vél- stjóri, Grafardal, f. 20. júní 1942, hann Þorvaldur, f. 22. október 1987, og Ingibjörg Andrea, f. 2. október 1993; Daníel, f. 4. júlí 1969. Þá tóku Þuríður og Sig- urbjörn fósturbarn, Ingibjörgu Rannveigu Ingólfsdóttur, f. 25. júlí 1966, og var hún til heimilis hjá þeim frá átta ára aldri og fram til fjórtan ára aldurs. Þuríður er gagnfræðingur frá Gagnfræðaskóla Akraness 1953. Hún lauk námi frá Hjúkrunar- skóla Íslands í mars 1961. Þur- íður var hjúkrunarfræðingur á Borgarspítalanum í Reykjavík 1. apríl 1961 til 30. maí 1962, á Reykjalundi 1. júní 1962 til 1. september 1963, og á Flókadeild Kleppspítala 1. september 1963 til 1. júní 1964, auk þess um árabil á ellideildinni í Hafnarbúðum og á Nýrnadeild Landspítalans í nokk- ur ár. Frá haustinu 1989 og allt til starfsloka árið 2000, þegar hún fór á eftirlaun, var Þuríður hjúkr- unarfræðingur í Heilsugæslustöð Kópavogs. Hún var skólahjúkrun- arfræðingur í Þinghólsskóla, Kársnesskóla og Kópavogsskóla. Jafnframt starfaði hún á heilsu- gæslustöðinni í Fannborg. Þar lauk hún starfsferli sínum og fór á eftirlaun árið 2000. Þuríður verður jarðsungin frá Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. kvæntur Ólafíu Sig- urðardóttur kenn- ara, f. 27 október 1935. Í Grafardal bjó í tvíbýli með Jóni Böðvarssyni bróðir hans Þorsteinn, f. 9. júní 1902, d. í Vatns- horni í Skorradal 23. júní 1977, kvæntur Jónasínu Bjarnadótt- ur frá Lambadal í Dýrafirði, f. 11. sept- ember 1908, d. 26. febrúar 2004. Börn þeirra sem ólust þar upp eru Kristján, f. 20. október 1933, Böðvar, f. 8 september 1936, Bjarni Sigfús, f. í Grafardal 26. ágúst 1940 og Sigríður, f. í Graf- ardal 10. október 1943. Hinn 3. ágúst 1963 giftist Þuríður Sigurbirni Þorvaldssyni húsasmið frá Sveinseyri í Dýra- friði, d. 10. nóvember 1995. Börn Þuríðar og Sigurbjörns eru: Mar- grét, f. 16. ágúst 1964, var í sam- búð með Bergþóri Val Þórissyni frá Blönduósi, börn þeirra eru Jó- dagskvöldið 20. október að samvist- ir okkar móður minnar væru að fella laufin eins og trén í garðinum. Við höfðum búið tvö síðan faðir minn féll frá fyrir krabbameini 10. nóvember 1995. Þá ellefu mánaða baráttu háðum við saman. Það var erfitt tímabil og sáraukafullt, nokk- uð sem setti mark sitt á Þuríði móð- ur mína. Og mig sjálfan. Öll sú bar- átta situr föst í minningunni. Það er svo einkennilegt til þess að hugsa að svo nærri tíu árum síðar fylgi hún föður mínum á brott, hann á kaldri nóvembernótt en hún á björtum en köldum morgni 26. október sl. eftir skamma sjúkralegu á Landspítalanum. Eitt sterkasta skapgerðarein- kenni Þuríðar, móður minnar, var þrautseigja, seigla og hæfileiki til skynja hvenær sækja skyldi og hve- nær slegið af. Hún var sem mann- eskja baráttuglöð, hörð af sér en samt svo full af þörf fyrir að að- stoða aðra. Þessi hæfileiki Þuríðar naut sín vel í hjúkrunarstarfinu, en lífsstarf hennar var hjúkrunar- fræði. Hún starfaði á Heilsugæslu- stöð Kópavogs frá 1989 til ársins 2000 er hún lét af störfum fyrir ald- urs sakir. Meðfram störfum sínum á Heilsugæslustöðinni var hún skólahjúkrunarfræðingur í Kárs- nesskóla og Kópavogsskóla. Þau voru ófá vandamálin sem hún sinnti hjá þeim ungu skjólstæðingum sín- um. Síðan 1989 bjuggum við hérna á Kársnesbraut 135 og síðustu tíu árin héldum við tvö heimili eftir að faðir minn Sigurbjörn dó í nóvem- ber 1995. Þuríður var hreinskilin og sagði sína meiningu og var órög að fara í slóðir sem aðrir hikuðu við eða treystu sér ekki. Þetta síðasta ár okkar saman árið 2005 var á margan hátt sérstakt. Þuríður hafði alla tíð verið heilsu- hraust ef frá er skilinn hár blóð- þrýstingur sem hrjáði hana lengi. Á þessu ári hafði hún farið að tapa mikið sjón og ég get ekki annað en dáðst að æðruleysi hennar og ein- stöku baráttuþreki sem þar kom í ljós. Hún var ótrúlega hress og lét þessa erfiðleika ekki beygja sig. Fundvís á jákvæðu hliðarnar og ekki að velta sér um of upp úr að- steðjandi vanda. Engin manneskja var mér eins náin og Þuríður móðir mín. Ekki bara það að við byggjum saman öll þessi ár og stæðum sam- an í gegnum þykkt og þunnt, heldur að það var alltaf hægt að ræða mál- in og leysa þau, ef einhver ágrein- ingur kom upp þá var hann ræddur og leystur. Þegar svo rétt upp um miðnætti fimmtudagskvöldið 20. október sl. hún varð mikið veik og fékk alvar- legt hjartaáfall, þá var ég hjá henni. Þó að þær stundir væru erfiðar og endurlífgunartilraunir mínar bæru ekki árangur, þá er ég sáttur við að hafa fengið tækifæri til þess að Það haustaði snemma í ár. Kaldir vindar og stríð veður. En margir bjartir og fagrir dagar féllu okkur líka í skaut. Núna er komið undir vetur og við sjáum aðeins fram á óvissan vetur. Ekkert okkar veit hvað sá vetur kann að færa í fangi sér til okkar. Það er eins með lífið sjálft að við vitum aldrei hvað næsti dagur kann að bera í skauti sér, við vöknum að morgni og höldum hvert okkar leið inn í dögunina. Ekkert okkar veit hversu langt á veg hver er kominn og hversu langt í viðbót haldið mun verða. Það eru örlögin sem grípa í tauma, beygja okkur af leið og það eina sem við öll getum verið viss um er að alveg eins og við komum í þennan heim, þá munum við yfirgefa hann að endingu. Ekki hefði mig rennt í grun um það eitt fallegt miðvikudagskvöld í september sl. þegar við mamma ók- um vestur á land, til stuttrar dvalar á Brekku í Dölum, að það yrði okk- ar síðasta ferð saman, þar sem við ókum vestur, kvöldsólin féll á falin stráin og gulnað landið. Við hlust- uðum á það í útvarpinu að Davíð Oddsson væri að hætta í stjórn- málum og okkur varð að orði að þetta væru straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Hvorugt okkar grun- aði að það væru framundan innan skamms tíma vatnaskil í lífi okkar beggja. Þannig er það með lífið, okkur er aðeins gefinn skammur tími. Kannski er það líka gott að vita ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér en engu að síður mætt- um við öll leiða hugann að því að hver dagur kann að vera tækifæri, tækifæri til að njóta, nota og koma því í verk sem stundum er álitið að megi bíða til morguns. Því síður grunaði mig fimmtu- reyna að bjarga henni eins og hún hjálpaði mér á erfiðu tímabili í lífi mínu fyrir nokkrum árum. Það var allt reynt sem hægt var en þegar á endapunktinn er komið verður ei snúið við. Ég vil að lokum þakka öllum sem komu okkur til aðstoðar þetta erf- iða kvöld, lögreglumönnum í Kópa- vogi, sjúkraflutningamönnum og ekki síst starfsfólkinu á gjörgæslu- deildinni á Landspítalanum og starfsfólki hjartadeildarinar þar sem hún lést. Læknar, hjúkrunar- fræðingar og allir aðrir, guð blessi ykkur öll fyrir hlýjan hug og mik- inn vilja til að hjálpa. Það er á svona stundum sem við finnum hvar góðir og hjálpsamir ættingjar eru ómetanlegir. Ég þakka ykkur öllum og guð blessi ykkur. Ég vil að endingu vitna í ljóðið Sálarskipið sem skáldið Hjálmar Jónsson frá Bólu orti. Í sínu mikla andstreymi og þreng- ingum hafði hann það hugfast að við megum aldrei gefast upp, ekki missa kjarkinn þó á móti blási. Guð blessi minningu þína, elsku mamma. Sýnist mér fyrir handan haf hátignarskær og fagur brotnuðum sorgar öldum af upp renna vonar dagur. Daníel Sigurbjörnsson. Þegar sundur liggur leið, lítið mundi saka, gleðja lund og líta um skeið litla stund til baka. Þessa vísu bjó Jón í Grafardal til, þegar Þura dóttir hans flutti að heiman í skóla. Nú hefur Þura flutt á ný og það yfir móðuna miklu. Margar hlýlegar greinar skrifaði hún um sitt fólk. Nú er komið að okkur að minnast hennar. (Og líta litla stund til baka). Þá vefst manni tunga um tönn. Í rúmlega 40 ár höf- um við tilheyrt sömu fjölskyldu. Ég var heimagangur hjá henni vetur- inn 1964–65. Þá var hún nýbyrjuð að búa með manni sínum Sigurbirni og Magga var pínulítil með krull- urnar sínar í allar áttir. Alltaf var mér tekið með hlýju og spurt hvort ég væri svöng. Þegar við bróðir hennar fórum að búa í Katanesi vorið 1965 vann Sigurbjörn við smíðar um helgar og í fríum hjá okkur. Þá komu þær mæðgur oftast með og seinna Daníel líka. Frá þessum árum streyma fram margar góðar og ljúfar minningar. Einnig voru þau alltaf hjá okkur um ára- mót. Seinna leigði Magga og fjöl- skylda sér griðastað inni á bökkum í Katanesi og þær mæðgur voru með hesta hjá okkur á sumrin. Fjöl- skyldurnar hafa því verið saman í leik og starfi um langt árabil. Mér finnst ég eiga í hennar börnum og hún í mínum. Þura var útivistar- kona og naut þess að ganga inn með sjó og horfa á fjallahringinn. Gönguferðir voru hennar líf og yndi. Hún hafði miklar mætur á fæðingarstað sínum Grafardal og einnig á fram–Skorradal, þar sem hún gekk í barnaskóla og átti sína vini. Þura missti móður sín ung stúlka og það setti mark sitt á hana. Hún breiddi verndarvængi sína yfir systkini sín þrjú sem yngri voru og tók á sig ábyrgð þeirra vegna. Frændsystkini hennar í Grafardal og fjölskyldur þeirra nutu einnig umhyggju hennar. Í nokkur ár var hún á sumrin með börn sín í Vatnshorni í Skorra- dal. Þar var oft gestkvæmt og fannst mér oft töfrum líkast að koma til hennar þar. Langt var í að- drætti og hún Þura keyrði ekki bíl. Samt var alltaf nóg til. Silungurinn úr vatninu var eldaður á marga vegu og og dáðist ég oft að hug- kvæmni hennar til að bjarga sér. Þura var sérstaklega dugleg að fylgjast með sínu fólki, hringdi reglulega ef of langt leið á milli. (Nú þurfum við að taka upp hennar merki.) Hún var með spjald uppi á vegg, þar voru símanúmer allra sem hún hringdi reglulega í. Fyrir um það bil ári missti hún sjón og hafði einungis jaðarsjón eft- ir það. Hún gafst samt ekki upp en fékk Daníel son sinn til að stækka letrið á spjaldinu, svo hún gæti samt hringt í sitt fólk. Það var nátt- úruunnanda eins og Þuru þung raun að missa sjónina og leitaði hún ýmissa ráða til að komast leiðar sinnar. Hún fékk konu frá Sjón- stöðinni heim til að leiðbeina sér með hjálpartæki vegna blindunnar. Þura var mjög ánægð með aðkomu hennar að sínum málum. Skulu hér færðar þakkir fyrir það. Tveimur vikum fyrir andlátið hringdi hún í mig og sagði frá því að henni fyndist hún hafa gagn af gömlum kíki frá Grafardal, þegar hún sat í bíl eða fór út að ganga. Að samtali loknu sagði ég við bróður hennar að mig langaði til að athuga hvort ekki væri til betri kíkir en sá gamli til þess að gefa henni. Til þess gafst ekki tími. Ég ætla í stað- inn að leggja inn hjá Blindrafélag- inu í minningu hennar. Starf þess er ómetanlegt þeim sem sjónskertir eru.. Ég trúi því, að hún Þura horfi niður til okkar og haldi verndar- hendi yfir okkur eins og hún hefur alltaf gert. Blessuð sé minning mætrar konu. Guðfinna. Hesturinn minn brúni, stígðu hægt og létt yfir þessa gleymdu og grýttu troðninga. Nú geng ég einn í hug mínum grasi vaxinn slóða. – Hesturinn minn brúni, stígðu hægt vegna þess. (Guðmundur Böðvarsson.) Tengslin við frændsystkini á bernskuárunum eru oft dálítið sér- stök, eins og vörður í huganum sem ekki fennir yfir. Gildir þá einu hvort sambandið er mikið eða lítið síðar á ævinni. Þegar ég var að alast upp í Hvít- ársíðunni, fannst mér stundum að bærinn Grafardalur í Skorradal þar sem Salvör Brandsdóttir móður- systir mín bjó, væri afskekktasti staður á jörðunni, svo sjaldan sáum við frændsystkini okkar, sem þar voru að alast upp. Þá var enn ferðast mikið á hestum og bílar ekki í hvers manns eigu. Þó hefur Þuríður einhverntíma á þessum ár- um sent mér bókina Rauðgrana, sem var ein magnaðasta barnabók þeirra tíma. Á ég þessa bók frá henni áritaða, þótt einhver henni eldri hafi haldið á pennanum. Grafardalsbörnin voru þó dug- legri að rækta frændsemina en við, og minnist ég þess að þau komu eitt sinn, ásamt frændsystkinum sínum, þeysandi á hestum sínum inn Hvít- ársíðu og komu við á Sámsstöðum. Síðan var farið að Kirkjubóli þar sem frændi þeirra, skáldið Guð- mundur Böðvarsson bjó. Ég man þá eftir Þuríði sem glaðlegri stúlku, með sítt ljóst hár, dálítið forvitinni um lífið og tilveruna eins og hún var æ síðan. Hún þurfti snemma að axla sínar byrðar, því móðir hennar dó þegar hún var átján ára, yngri systir hennar Kristín ellefu ára og Böðvar átta ára. Man ég seinna, að þegar yngri systkinin dvöldu hjá okkur um tíma, komu þau með föt sem stóra systir hafði saumað á þau eft- ir að móðir þeirra dó. Því Þuríði var margt til lista lagt. Hún var góður teiknari, vel ritfær og hafði skemmtilega frásagnar- gáfu. Kannski blundaði alltaf í henni listamaðurinn. Það var þó móðurhlutverkið og hjúkrunar- starfið, sem hún lagði alla sína krafta í. Þeir hafa örugglega ekki verið sviknir sjúklingarnir sem hún annaðist, og heyrt hef ég að börn- um hafi þótt sérstaklega gott að leita til hennar, þegar hún starfaði sem skólahjúkrunarkona. Börnin hennar og barnabörnin voru gim- steinarnir hennar. Þuríður hafði yndi af hesta- mennsku og garðrækt. Þegar ég ásamt systur minni og mági hitti hana í fallega garðinum hennar síð- astliðið sumar, var hún næstum orðin blind. Hafði fengið skemmd í augnbotna á skömmum tíma. Hún tók þessu af æðruleysi, ákveðin í að gefast ekki upp. Hún gat þess þó, að hún saknaði þess sérstaklega að geta ekki séð andlit Jóhanns Þor- valdar og vina hans, þegar þeir voru við tónlistaræfingar í bílskúrn- um hennar. Daníel sonur hennar var henni einstök hjálparhella, en þau héldu heimili saman. Þegar ég talaði við hana í síma skömmu áður en hún dó, hafði Mar- grét dóttir hennar hjálpað henni á hestbak og teymt undir henni. Það fannst henni yndisleg upplifun. Þegar talið barst að eilífðarmál- unum greindi okkur ekki á. Þess vegna segi ég: Góða heimferð frænka, finnumst seinna. Við systk- inin frá Sámsstöðum þökkum þér samfylgdina. Þuríður Guðmundsdóttir. Ég hafði ekki hugmynd um að tími minn og ömmu minnar, Þur- íðar Jónsdóttur, væri ekki enda- laus. Ég veit þó að hann var ómet- anlegur. Tíminn; það sem ég man og mun ekki gleyma: Rigning og leikur í pollagallanum undir þakrennunni. Gönguferðir í kringum lygna höfn- ina. Grafardalur, að vetri og um sumar. Fyrirhugaðar sundferðir í köldum sjónum í Hvalfirði, við Katanes. Berjatínsla við Vatnshorn. Jólin í Kópavogi. Yndislegar skötu- veislur. Óteljandi skipti hjá þér og Daníel. Leikur í sólinni. Ómetanleg- ur stuðningur við allt sem ég tók mér fyrir hendur. Svo margt sem ég vildi segja en ég finn ekki réttu orðin. Ég mun ætíð minnast þín; í gegnum lífið og í gegnum tónana. Ég vildi óska þess að allir veittu sínum nánustu þá ást- úð og hlýju sem þú, amma mín, veittir mér. Jóhann Þorvaldur Bergþórsson. Það var á fallegum vetrardegi sem Þura frænka kvaddi þetta jarð- neska líf eftir stutta dvöl á spítala. Geislar morgunsólar gylltu sjón- deildarhringinn, veður var kyrrt og stillt. Þegar ég kom út þennan dag var mér virðing og þökk efst í huga. Þökk fyrir góðar stundir í bernsku, það var alltaf tilhlökkun þegar að Þura og fjölskylda komu í heimsókn og gistu í Katanesi. Þau voru ófá áramótin sem fjöl- skyldurnar áttu saman, ekki var alltaf gott ferðaveður þegar þau komu með Akraborginni eða rút- unni að sunnan. Einnig komu upp í hugann dagar í Vatnshorni í Skorradal, þegar við fórum þangað í heimsókn vorum við sótt yfir vatnið á árabát, boðið var upp á nýjan silung, skyr og ber. Þá voru ekki nútíma tæki og tækni til staðar eins og í dag. Börn- ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.