Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gylfi Jónssonfæddist í Reykjavík 13. júlí 1941. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi 21. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Svanlaug Kristjáns- dóttir frá Álfsnesi, f. 16. desember 1898, d. 30. júní 1966, og Jón Þorbjörnsson, útgerðarmaður í Reykjavík, f. 23. júní 1909, d. 1. maí 1981. Systkini Gylfa eru Hulda, f. 1937, og Dagmar, f. 1942. Maki Huldu er Þráinn Þor- steinsson, börn þeirra eru Fjalar, Svanlaug, maki Árni Sólonsson eiga þau tvö börn, og Berglind, maki Jón Emil Magnússon, eiga þau tvö börn. Hinn 7. ágúst 1996 kvæntist Gylfi Sigurlaugu Einarsdóttur, f. 21. ágúst 1946. Foreldrar hennar eru Guðlaug Sigurjónsdóttir, f. 11.8. 1921, og Einar J. Gíslason, f. 11.9. 1918. Systkini Sigurlaugar eru Ólöf, maki Bogi Þórðarson, þau eiga tvö börn og þrjú barna- börn, Erna, maki Bergþór Einars- son, þau eiga tvö börn og þrjú barna- börn, Einar Örn, maki Hulda Har- aldsdóttir, þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn, Hrefna látin, hún átti einn son. Gylfi ólst upp í Reykjavík, fyrst á Framnesveginum og síðan í Austur- bænum þar til hann og Sigurlaug hófu sambúð á Ásvegi 16, hjá foreldrum Sigurlaugar, og síð- an í eigin húsnæði í Fannafold 116. Gylfi gekk í Melaskólann og síð- an í Austurbæjarskólann. Þaðan lá leiðin í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann stundaði nám í vélvirkj- un á námssamningi hjá vélsmiðju Kristjáns Gíslasonar. Hann starf- aði þar í nokkur ár en fór síðan að starfa hjá Varnarliðinu á Kefla- víkurvelli þar sem hann starfaði um árabil. Síðan í bandaríska sendiráðinu og síðustu árin hjá Marel. Útför Gylfa verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Hver óttast er lífið við æskunni hlær sem ærslast um sólríka vegi, og kærleikur útrás í kætinni fær, sé komið að skilnaðardegi. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingr.) Takk fyrir allt, Gylfi minn. Þín Sigurlaug (Silla). Kæri vinur, mágur og svili. Við vilj- um þakka þér samfylgdina með fáein- um orðum. Þið Sigurlaug byrjuðuð búskap á Ásveginum í fjölskylduhúsinu á eftir okkur. Nokkrum árum síðar keyptuð þið húsið í Fannafoldinni tilbúið undir tréverk. Þar vannst þú hörðum hönd- um af eljusemi og natni við að gera húsið íbúðarhæft. Við skynjuðum fljótlega að ykkur liði vel þar, því þið voruð mjög heimakær. Nákvæmni þín kom ekki síður í ljós í umgengni við bíla. Enda lagðir þú mikla vinnu í að halda bílunum ykkar beggja vel við. Við sögðum stundum að það væri hugsað um þá eins og ungabörn. Þið ferðuðust mikið innan- lands og utan. Hér fyrr á árum voruð þið miklir tjaldbúar á ykkar ferðalög- um um landið en seinni árin sagðist þú vera búinn með þinn skammt og þið völduð í staðinn góð hótel eða íbúðir. Á sextugsafmæli þínu fóruð þið til Ítalíu og heilluðust af landi og þjóð. Í undirbúningi var skipulagning fleiri ferða á þær slóðir. Í fyrra þegar við héldum upp á afmæli á Flórída voruð þið með okkur ásamt Ernu systur Sigurlaugar og Bergþóri manni hennar sem heimsóttu okkur frá Kanada og áttum við þar skemmtilega viku saman. Líka er gott að minnast góðrar stundar hjá Einari Þór og Jönu þegar þau bjuggu á Dalvík og ferðar okkar til Flateyjar. Margs er að minnast en ekki óraði okkur fyrir að síðasta ferðin yrði í sumar til Akureyrar þar sem við nut- um gestrisni ykkar hjóna. Við viljum þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur á vinnustað Sig- urlaugar, það er okkur ómetanlegt. Nú er komið að lokum. Hafðu bestu þakkir fyrir að vera góður eig- inmaður og traustur vinur okkar allra í fjölskyldunni. Við viljum fyrir hönd Sigurlaugar senda þakkir til starfsfólks Marels fyrir einstakan stuðning og einnig þakkir til starfsfólks bráðamóttöku, gjörgæslu og taugalækningadeild B2 Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Ólöf og Bogi. Mig langar að skrifa nokkur orð um mág minn Gylfa sem nú er fallinn frá í blóma lífsins. Við getum spurt af hverju, en fáum engin svör. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Ég sem var að spyrja ykkur hvort þið kæmuð ekki í heimsókn bráðum. Þið sögðuð kannski seinna. Það var ætíð gaman að koma til ykkar. Alltaf tekið vel á móti okkur. Ég gleymi ekki þegar við komum um síðustu jól og borðuðum allar fiskibollurnar, þær voru svo góðar. Elsku systir, ég vildi að ég væri komin til að taka utan um þig og vera hjá þér á þessari erfiðu stund. Beggi, Gulla, Árni og fjölskyldur hér í Kanada senda þér innilegustu sam- úðar kveðjur. Guð veri með þér, Silla mín. Kær kveðja. Erna. Trúfasta, hreina sæla sál svifin til lífsins stranda orð Guðs var hér þitt hjartans mál í hverri neyð og vanda. Svali nú ljúfust lífsins orð á lifandi manna sælustorð um eilífð þínum anda. (M. Joch.) Þessi orð skáldsins koma í huga minn er ég minnist mágs míns og góðs vinar, Gylfa Jónssonar, sem lést 21. október sl. eftir skamma sjúk- dómslegu. Samleið okkar Gylfa er orðin löng. Hún spannar alls 48 ár, eða frá þeim tíma er ég fór að venja komur mínar á heimili foreldra hans í Reykjavík. Ástæðan fyrir þessum heimsókn- um var sú, að ég hafði orðið ástfang- inn af systur hans, henni Huldu minni. Okkur Gylfa varð fljótt vel til vina. Á skömmum tíma varð ég þess áskynja að þessi piltur var ljúfur og góður. Hann var hógvær og af hjarta lítillátur. Það bar aldrei skugga á vin- skap okkar í öll þessi ár. Gylfi var fæddur og alinn upp í Reykjavík. Í borginni við Sundin liggja spor bernsku hans, sem og systkina. Hann minntist alltaf þess- ara ára af gleði, enda ólst hann upp ásamt systkinum sínum við mikið ást- ríki í faðmi yndislegra foreldra. Gylfi var barnlaus, en hins vegar var hann sérstaklega barngóður mað- ur og reyndist börnum okkar Huldu afar vel. Hann var mjög örlátur í þeirra garð. Og fyrir það erum við þakklát. Gylfi var hamhleypa til allra verka. Hann var samviskusamur og eftir- sóttur til vinnu. Hann lærði vélsmíði, enda hafði hann frá unga aldri haft mikinn áhuga á öllu er tengdist vélum og tækni. Hann var vel gefinn maður og átti því gott með að læra. Gylfi var alveg sérlega lánsamur er hann kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni Sigurlaugu Einarsdóttur árið 1970. Þau voru hamingjusöm allan þann tíma sem þau áttu saman og reyndust hvort öðru afar vel. Við Hulda og börnin viljum fá að senda þér, kæra Silla, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum al- góðan Guð að veita þér styrk og huggun í sorg þinni og söknuði. Að leiðarlokum viljum við taka undir með skáldinu er það segir: Fagna þú, sál mín. Lít þú víðlend veldi vona og drauma; er þrýtur rökkurstíginn. Sjá hina helgu glóð af arineldi eilífa kærleikans á bak við skýin. Fagna þú, sál mín, dauðans kyrra kveldi, kemur upp fegri sól, er þessi er hnigin. (J. J. Smári.) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þráinn Þorsteinsson, Mosfellsbæ. Á einni svipstundu getur allt breyst. Það fundum við best þegar Gylfi svo óvænt varð alvarlega veik- ur. Við fráfall hans rifjast upp ýmsar minningar. Minningar um snaggara- legan mann sem var vandvirkur og einstaklega prúður. Gylfi og Silla voru mjög samrýnd, og hófu sinn bú- skap í kjallaranum á Ásveginum. Seinna byggðu þau raðhús í Fanna- fold 116 og hafa búið þar síðustu 17 árin. Þar hefur alltaf verið gott að koma og gestrisnin mikil. Gylfi var hjálpsamur ef þurfti að kíkja á bil- aðan bíl eða líta á eitthvað sem þurfti að laga. Þá hafði hann oft góðar lausnir. Gylfi og Silla ferðuðust bæði innan lands og utan og oft dvöldu þau í orlofshúsum. Gaman var að koma til þeirra á síðasta ári í Brekkuskóg þar sem fjölskyldur þeirra voru saman komnar í afmæli. Þar nutu allir sín og ekki síst Kristófer og vinur hans því Gylfi var barngóður og passaði upp á að þeir hefðu nóg að gera í heita pott- inum. Minnisstæðar eru samveru- stundir Ásvegsfjölskyldunnar þar sem Gylfi sá um að við nytum góðrar tónlistar og hann naut sín sjálfur sem plötusnúður. Elsku Silla, þú hefur misst mikið en vonandi gefa fallegar minningar þér styrk til að halda áfram. Blessuð sé minning Gylfa. Hulda og Einar Örn. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar við systkinin minn- umst Gylfa hennar Sillu. Við eldri systkinin munum vel eftir þegar þau Silla og Gylfi bjuggu í kjallaranum hjá ömmu og afa á Ásvegi. Seinna fluttu þau í Grafarvoginn. Það var alltaf svo gaman að heimsækja þau bæði í kjallarann og í Fannafoldina. Við vorum varla komin inn fyrir dyrn- ar þegar þau byrjuðu að dekra við okkur og bjóða upp á gos og sætindi. Í Fannafoldinni fannst okkur sérstak- lega gaman að fara í tækin hans Gylfa uppi á lofti. Gylfi sá alltaf til þess að manni leiddist aldrei. Hann hjálpaði Hauki oft að gera við bílana hans og mótorhjól. Við erum mjög þakklát fyrir að hafa kynnst Gylfa. Elsku Silla frænka, megi guð vera með þér og styrkja þig á þessum erf- iða tíma. Svana, Haukur og Hrafnhildur. Hver minning er dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Silla. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veiti þér styrk í sorginni. Fjalar, Svanlaug Ida, Árni Valur, Berglind, Jón Emil, Sólon Kristinn, Halla Berglind, Hulda Bryndís og Hilmar. GYLFI JÓNSSON Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNBJÖRNS JÓNSSONAR, Hraunvangi 7, Hrafnistu, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu, elskulegu starfsfólki B2 Hrafnistu, starfsfólki B2 Landspítala Fossvogi, MND-teymi, MND-fé- laginu og sr. Sigríði Kristínu Helgadóttur fyrir þann stuðning sem þau sýndu honum í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Kristín Gróa Gunnbjörnsdóttir, Ingimar Kristjánsson, Sigfús Brynjar Gunnbjörnsson, Anna Björk Brandsdóttir, Jón Valdimar Gunnbjörnsson, Ragna Jóna Helgadóttir, Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir, Rósinkar Snævar Ólafsson, Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir, Heimir Lárus Hjartarson, Guðjón Heiðar Gunnbjörnsson, Elínborg Sigvaldadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SOLVEIGAR JÓNSDÓTTUR frá Hofi á Höfðaströnd, Sléttuvegi 15, Reykjavík. Ásdís Ásbergsdóttir, Jón Ásbergsson, María Dagsdóttir, Sigurður Pálmi Ásbergsson og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR ÁGÚSTSDÓTTUR frá Mjölni, Vestmannaeyjum. Hjartans þakkir færum við starfsfólki á hjúkrun- arheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi fyrir góða umönnun og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Ingólfur Þórarinsson, Marta Sigurjónsdóttir, Einar Þórarinsson, Sólveig Þorleifsdóttir, Guðrún Þórarinsdóttir, Gísli B. Lárusson, Ágúst Þórarinsson, Guðrún Ingibergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur, frændi og vinur, ÞORKELL STEINSSON (Gulli), Hafnarstræti 16, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu- daginn 30. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 8. nóvember kl. 13.30. Steinn Steinsson, Bryndís Guðmundsdóttir, Þorsteinn Steinsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Finna Birna Steinsson, Baldur Hafstað, Friðrik Steinsson, frændsystkini og starfsfólk og íbúar í Hafnarstræti 16. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR SIGURGEIRSSON, Austurvegi 5, Grindavík, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju föstu- daginn 4. nóvember kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Orgel- sjóð Grindavíkurkirkju. Sigurrós Benediktsdóttir, Hildur Gunnarsdóttir, Ragnar Ragnarsson, Sigurrós Ragnarsdóttir, Gunnar Ólafur Ragnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.