Morgunblaðið - 02.11.2005, Page 45
Brúðkaup | 20. ágúst sl. voru gefin
saman í Selfosskirkju af sr. Gunnari
Björnssyni þau Sturla Bergsson og
Sveinbjörg Kristjánsdóttir, Löngu-
mýri 17, Selfossi.
Ljósmynd: Magnús Hlynur Hreiðarsson
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 45
DAGBÓK
Nýlega var hleypt af stokkunum vef-ritinu Hugsandi á slóðinniwww.hugsandi.is. Í ritstjórnarstefnuvefritsins segir meðal annars:
,,Hugsandi á að vera vettvangur þeirra sem
kjósa að deila hugsunum sínum með öðrum, í
formi ritaðra greina eða pistla. En ekki síður
þeirra sem vilja kynna sér þessar afurðir hugs-
ana annarra vegna og meta rök þeirra, skilning
og viðhorf.“
Hrafnkell Lárusson er annar tveggja rit-
stjóra Hugsandi.
,,Við byrjuðum með vefinn 18. október síð-
astliðinn. Við kynnum Hugsandi sem vefrit um
fræði og menningu í víðum skilningi. Við erum
með þessu vefriti að höfða til yngra fólks, fólks
sem er í háskólanámi og þeirra sem nýlega eru
búin að ljúka því. Við viljum leita eftir nýjum
vinklum í umræðunni,“ segir Hrafnkell.
Auk hans er Unnur María Bergsveinsdóttir
ritstjóri og ritnefndina skipa auk þeirra þau:
Helga Katrín Tryggvadóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Karl Jóhann Jóhannsson, Katla Ísaks-
dóttir og Þóra Pétursdóttir.
Að baki vefritinu standa hvorki fyrirtæki né
stofnun heldur aðeins ofangreindir ein-
staklingar sem mynda ritnefndina.
,,Okkur finnst vera þörf fyrir þetta. Á meðan
margir vettvangar eru fyrir pólitískar umræð-
ur á Netinu þá er mjög lítið af menningar- og
fræðasíðum á Netinu. Í fljótu bragði þá held
ég að Kistan sé eina síðan. Þau viðbrögð sem
ég hef fengið eftir að fórum af stað með Hugs-
andi hafa verið mjög jákvæð og eitt af því sem
við bjóðum fólki upp á er að það getur sagt
sína skoðun á því sem er verið að skrifa,“ segir
Hrafnkell.
„Í ritstjórnarstefnu Hugsandi segir einnig:
Hugsandi er ætlað öllum þeim sem áhuga
hafa á fræðum og menningu. Lögð verður sér-
stök áhersla á ungt fólk í fræða- og menning-
argeiranum og Hugsandi vill auka virkni þess í
umræðunni. Skýrt er tekið fram í ritstjórnar-
stefnunni að Hugsandi er ekki ætlað að vera
vettvangur fyrir flokkspólitíska umræðu.“
Til að byrja með verða tvær fastar birtingar
á Hugsandi á viku, á þriðjudögum og fimmtu-
dögum, en birtingum verður fjölgað tímabund-
ið ef efni og aðstæður gefa tilefni til. Síðar er
ætlunin að fjölga föstum birtingum.
Ritstjórn Hugsandi ber ekki ábyrgð á skoð-
unum og ályktunum greinarhöfunda og þá
áskilur ritstjórnin sér rétt til að hafna inn-
sendu efni ef höfundar gæta ekki hófs í dómum
um menn og málefni eða efni greina fellur utan
þess sem ritstjórnin telur vefritið eiga að birta.
Vefrit | Hugsandi er vefrit um fræði og menningu í víðum skilningi
Að deila hugsunum sínum
Hrafnkell Lárusson
er annar tveggja rit-
stjóra vefritsins Hugs-
andi. Hann lauk BA-
prófi í sagnfræði frá
Háskóla Íslands árið
2003 og áætlar að
ljúka mastersnámi í
sagnfræði frá Háskóla
Íslands í febrúar.
Hrafnkell er 28 ára
gamall, einhleypur og
barnlaus. Hann hefur stundað ýmis störf á
sumrin og var meðal annars blaðamaður á
vikublaðinu Austra á Egilsstöðum 1998–1999
en blaðið, sem var málgagn framsóknar-
manna, hefur nú verið lagt niður.
HM í Portúgal.
Norður
♠76
♥DG3 N/NS
♦G1064
♣K1054
Vestur Austur
♠-- ♠109854
♥Á65 ♥109842
♦ÁKD92 ♦87
♣D8762 ♣3
Suður
♠ÁKDG32
♥K7
♦53
♣ÁG9
Danirnir Steen Möller og Peter
Lund hafa náð góðum árangri saman á
undanförnum árum í landsliði eldri
spilara. Þeir eru í danska öldungaliðinu
á HM í Portúgal og virðast vera í góðu
formi. Í spilinu að ofan varð Steen
sagnhafi í fjórum spöðum í suður eftir
þessa sagnröð:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
2 grönd * Dobl 3 tíglar Pass
3 hjörtu Pass Pass 4 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
Vestur kemur láglitunum á framfæri
við spaðaopnun Möllers og sýnir svo
þrílit í hjarta og góða hönd með því að
melda þrjú hjörtu við vali makkers.
Þessi nákvæma lýsing á spilunum fór
ekki framhjá Möllernum.
Vestur tók fyrst þrjá slagi á rauðu
litina, á ÁK í tígli og hjartaás, en skipti
síðan yfir í lauf. Steen setti upp tíuna í
borði og átti slaginn. Hann spilaði síð-
an eldsnöggt spaðasexu – fjarkinn frá
austri og ... tvisturinn heima! Og það
dugði í tíu slagi.
Átti austur að leggja á? Auðvitað, en
það getur hver spilari sett sig í spor
austurs og skilið sofandaháttinn – eng-
inn býst við svo djúpri svíningu. Möller
á hins vegar hrós skilið fyrir kjarkinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Brúðkaup | Gefin voru saman í Lága-
fellskirkju 20. ágúst sl. þau Magnús
Þór Magnússon og Guðlín Steins-
dóttir. Prestur var séra Sigurður Jóns-
son í Odda. Heimili þeirra er í Mos-
fellsbæ.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Fordómar gagnvart
öryrkjum
SÍÐAN skýrsla sem Tryggvi Þór
Herbertsson gerði fyrir heilbrigð-
isráðuneytið sl. vor, og m.a. fjallar
um fjölgun öryrkja, kom út, hefur
því miður þróast mjög neikvæð um-
ræða um fjölgun öryrkja. Einstaka
fjölmiðlar hafa fjallað um þetta á
neikvæðan hátt og ekki bætti úr
skák þegar Tryggingastofnun rík-
isins fékk yfir 30 milljónir til þess
að setja upp eftirlitsdeild innan
stofnunarinnar til þess að koma nú
upp um þá öryrkja sem ynnu svart
og svindluðu á kerfinu á einn og
annan hátt. Alla daga er talað
meira og minna í samfélaginu um
þá sem eru að troða sér inn á ör-
orkubætur og skemma fyrir þeim
sem svo sannarlega eru öryrkjar.
Hvernig getur fólkið á götunni met-
ið það hvort fólk er öryrki eða
ekki? Ég treysti fyllilega þeim
læknum Tryggingastofnunar rík-
isins sem eru sérfræðingar, hver á
sínu sviði, til þess að meta fólk til
örorku.
Ég var ákaflega hneyksluð sl.
sunnudag, 30. október, þegar ég
horfði á Silfur Egils. Egill fór þar
að tala um mikla fjölgun öryrkja og
einn viðmælenda hans, Bjarni
Harðarson, lét m.a. þau orð falla að
þetta væri aumingjaskapur í fólki.
Hann ætti að skammast sín og biðj-
ast afsökunar á þessum ummælum
sínum. Finnst mér einnig að Egill
hefði átt að stoppa hann af.
Mörgum öryrkjum líður mjög illa
vegna þessarar neikvæðu umræðu
sem orðin er og veit ég þess dæmi
að fólk hafi lent í áreiti og einelti
vegna þessa. Enginn veit ævina
sína fyrr en öll er og enginn skyldi
dæma aðra því allir hafa rétt til að
halda sinni mannlegu reisn.
Sigrún Reynisdóttir.
Frábært Kastljós
ÉG VIL koma á framfæri ánægju
minni með nýja Kastljósið. Mér
finnst allir umsjónarmennirnir góð-
ir og þarna eru saman komnir
bestu spyrjendurnir í sama þætt-
inum, þau Þórhallur, Kristján, Ey-
rún, Jóhanna og Sigmar. Ragnheið-
ur á einnig hrós skilið fyrir
frammistöðu sína, hún er alltaf að
bæta sig, enda með Þórhall sér við
hlið. Sem sagt, nýi Kastljósþátt-
urinn er frábær og tekur fyrir fjöl-
breytt málefni. Ég flakka oft á milli
frétta en ég sleppi aldrei Kastljósi.
Gangi ykkur vel og ekki sofna á
verðinum því ég hef heyrt þetta
sama frá svo mörgum öðrum.
Ánægður áhorfandi.
Taska týndist
SVÖRT handtaska með síma og
myndavél o.fl. týndist, líklega í leið
16 eða S4, fyrir rúmum 2 vikum
síðan. Skilvís finnandi skili töskunni
til lögreglunnar eða í skiptistöðina
á Hlemmi eða Mjódd. Fundarlaun.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fréttir á SMS
HVERNIG þjónar íslenska
menntakerfið atvinnulífinu í
tungumálakennslu sinni? Á að
hefja tungumálanámið fyrr? Á að
kenna önnur mál en þau sem nú
er boðið upp á? Á að hætta að
kenna svona mörg mál og í stað-
inn að leggja ofuráherslu á að
kenna eitt (ensku?) vel? Eða á
hugsanlega að bjóða upp á enn
meira úrval? Á að kenna fög eins
og viðskiptafræði á ensku? Á að
hefja skipulagða kínversku-
kennslu allra barna strax? Á að
hætta að leiða nemendur í gegn-
um heim bókmennta og láta þá í
staðinn lesa erlend viðskipta-
tímarit? Hvað þýðir svokallað
menningarlæsi í alþjóða við-
skiptum?
Þessum spurningum og ugg-
laust mun fleiri verður velt upp á
málþingi um tungumál og at-
vinnulífið sem Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur stendur fyrir á
fimmtudaginn kl. 11 í Norræna
húsinu. Slík málþing eru haldin á
hverju misseri en með mismun-
andi áherslum. Í þetta sinn er
sjónum beint að hinni miklu útrás
íslenskra fyrirtækja á undan-
förnum mánuðum og árum.
Frummælendur eru: Sol Squire,
Forstjóri SBC (Sólon Business
Consulting) Europe ehf. og ráð-
gjafi hjá Skýrr, Hildur Árnadótt-
ir, fjármálastjóri Bakkavarar
Group, og Sverrir Berg Stein-
arsson eigandi Árdegis. Fund-
arstjóri er Gauti Kristmannsson,
aðjunkt í þýðingarfræði við Há-
skóla Íslands.
Málþingið er öllum opið og að-
gangur ókeypis.
Málþing um tungumál
og atvinnulífið
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis býður út 43.440 nýja
stofnfjárhluti. Farið er með útboðið skv. reglum um almennt útboð
verðbréfa, þótt núverandi stofnfjáreigendur eigi forgangsrétt til
áskriftar að hinum nýju stofnfjárhlutum. Útboðstímabilið er 7.–21.
nóvember 2005 og fellur áskrift í eindaga 2. desember 2005.
Verð hvers stofnfjárhlutar er 45.497 krónur og er heildarverðmæti
útboðsins því 1.976.389.680 krónur. Heildarnafnverð stofnfjár fyrir
hækkunina er 1.086.000.000 krónur og verður eftir hækkunina
2.172.000.000 krónur að því gefnu að allt seljist. Nafnverð nýrra
stofnfjárbréfa er 1.086.000.000 krónur.
Umsjónaraðili útboðsins er Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis og
má nálgast útboðslýsingu á heimasíðu sparisjóðsins www.spron.is,
og í útibúum hans.
Sparisjóðsstjórn
Stofnfjárútboð
SPRON
Traustur kaupandi óskar eftir raðhúsi við Boðahlein.
Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
RAÐHÚS VIÐ BOÐAHLEIN
ÓSKAST
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali