Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 47
haldið á Broadway 2. nóvember. Vikan sjálf
er full af atburðum, í hádegishléum verður
söngur og dans og einnig er boðið upp á
skemmtun á kvöldin.
Fréttir
FSS – félag STK stúdenta | Næsti GayDay
FSS er 3. nóv. kl. 20. FSS og ungliðahópur
samtakanna ’78 ætla að vera með kvöld-
verð í félagsheimili FSS, Hinu húsinu. Nán-
ari uppl. á www.gaystudent.is.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun kl. 14–17. Sími 551 4349,
netfang maedur@simnet.is.
Fundir
Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar, stuðn-
ingshópur um krabbamein í blöðruháls-
kirtli, verða með rabbfund, í húsi Krabba-
meinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, í dag, kl. 17. Gestir fundarins
verða Davíð Ingason og Hrönn Harð-
ardóttir frá lyfjafyrirtækinu AstraZenica.
Vestfirðingafélagið í Reykjavík | Aðal-
fundur félagsins verður 6. nóvember kl. 14–
16, í Kvennaskólanum að Fríkirkjuvegi 9.
Venjuleg aðalfundarstörf. Emil Hjartarson
segir sögur að vestan. Allir Vestfirðingar
og gestir þeirra velkomnir.
Fyrirlestrar
Félag íslenskra fræða | Rannsóknarkvöld í
húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3, kl. 20.
Erindi heldur Sigurður Gylfi Magnússon:
Sjálfsbókmenntir á Íslandi. Í erindinu verð-
ur rætt um samhengi íslenskra sjálfs-
bókmennta og hvernig fræðimenn hafa
nýtt slík ritverk í rannsóknum sínum.
Gigtarfélag Íslands | Áhugahópur GÍ um
vefjagigt heldur fræðslufund 3. nóv., kl.
19.30 í húsnæði GÍ, Ármúla 5, 2. hæð. Sól-
veig Hlöðversdóttir og Hulda Jeppesen,
sjúkraþjálfarar á Gigtarlækningastöð GÍ,
fræða um hvernig best sé að koma sér af
stað í þjálfun og ekki gefast upp.
Kennaraháskóli Íslands | Hanna Óladóttir,
aðjúnkt í íslensku við KHÍ, heldur fyr-
irlestur í Bratta, Kennaraháskóla Íslands,
kl. 16.15. Fyrirlesturinn ber heitið: Tungan á
tímum alþjóðavæðingar.
Náttúrufræðistofnun Íslands | Hregg-
viður Norðdahl, jarðfræðingur við Háskóla
Íslands, flytur erindið: Síðjökultími og ísald-
arlok á Íslandi; Erindið er kl. 12.15, í sal
Möguleikhússins á Hlemmi. Nánari uppl. á
www.ni.is.
Oddi – Félagsvísindahús HÍ | Á vegum Fé-
lags þjóðfræðinga á Íslandi og mannfræði-
og þjóðfræðiskorar mun dr. Ezekiel Alembi
frá Kenyatta University, Nairobi, Kenya,
halda fyrirlestur í Árnagarði, stofu 201, kl.
17.15. Fyrirlesturinn heitir: „African theatre
past and present (with an emphasis on
Kenyan theatre today).
Málstofur
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Þorvald-
ur Gylfason, prófessor í viðskipta- og hag-
fræðideild, heldur fyrirlestur um „Indland
og Kína“ í málstofu Hagfræðistofnunar og
Viðskiptafræðistofnunar kl. 12.20 í Odda
stofu 101. Nánari uppl. um málstofuna á
www.vidskipti.hi.is.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 47
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Heilsugæsla kl. 9.30–11.30.
Spil kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist,
spiladagur, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Tungbrjótar verða
gestir í síðdegiskaffinu á fimmtudag
kl. 15.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, mið-
vikudagur kl. 13–16. Grétudagur.
Postulínsmálun. Spilað, teflt, spjallað.
Gróukaffi. Auður og Lindi annast
akstur, sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30.
Viðtalstími í Gjábakka kl. 15–16. Fé-
lagsvist spiluð í Gjábakka í dag kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Söngfélag FEB, kóræfing kl. 17.
Árshátíð FEB verður haldin 4. nóv.
nk. í Akogessalnum, Sóltúni 3, fjöl-
breytt dagskrá: Veislustjóri Árni
Norðfjörð, hátíðarræðu flytur Guðrún
Ásmundsdóttir, danssýning, söngur,
gamanmál o.fl. Skráning og uppl. á
skrifstofu FEB, s. 588 2111.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Les-
hópur FEBK Gullsmára. Brennu–Njáls
saga. Eldri borgarar lesa saman
Brennu-Njálssögu í félagsheimilinu
Gullsmára 13, Kópavogi, alla miðviku-
daga kl. 15.45. Stjórnandi og leiðbein-
andi Arngrímur Ísberg. Ókeypis að-
gangur.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11,
bútasaumshópur kl. 13 í Kirkjuhvoli.
Brids spilað í Garðabergi kl. 13. María
Gottfreðsdóttir augnlæknir verður
með erindi um gláku kl. 16 í Garða-
bergi á vegum FEBG.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Kl.
10.30 gamlir leikir og dansar. Frá há-
degi spilasalur opinn. Kl. 14 kynning á
nýju leiðakerfi Strætó. Kl. 14.30 kór-
æfing. Allar uppl. á staðnum og í síma
575 7720.
Félagsstarfið Langahlíð 3 | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni,
leikfimi kl. 11, námskeið í postulíns-
málun, almenn handmennt, kaffiveit-
ingar.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun, bókband. Kl. 13 leikfimi og kl.
14 verður sala á gjafavöru. Kaffiveit-
ingar kl. 15.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður,
postulínsmálun, kaffi, spjall, dag-
blöðin. Kl. 9 fótaaðgerð og hár-
greiðsla. Kl. 11 banki. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Línudans kl. 11. Saumar kl. 13. Gler-
skurður kl. 13. Pílukast kl. 13.30. Gafl-
arakórinn kl. 16.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16 hjá Sigrúnu, mósaik, ull-
arþæfing og íkonagerð. Jóga kl. 9–12.
Samverustund kl. 10.30–11.30. Böðun
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Björgvin Þ. Valdi-
marsson tónlistarmaður kemur í
heimsókn í hádeginu á föstudag.
Skráning hafin á leiksýninguna Hall-
dór í Hollywood 24. nóv. Fastir liðir.
Uppl. í síma 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun
fimmtudag er Pútt á Korpúlfsstöðum
kl. 10.
Kvenfélagið Hrönn | Jólapakka-
fundur fimmtudaginn 3. nóv. kl. 20 í
Borgartúni 22, 3. hæð. Sjáumst sem
flestar. Stjórnin.
Norðurbrún 1 | Kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, kl. 10.45 bankaþjónusta
fyrsta miðvikudag í mánuði, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun. Kl. 9 smíði,
opin fótaagerðastofa. Sími
568 3838.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið,
Hátúni 12. Félagsvist í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd-
mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafn-
istulaug). Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í
Bónus Holtagörðum. Kl. 13–14 Spurt
og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, handmennt almenn kl. 9.30–
16.30, hárgreiðsla kl. 9, morgunstund
kl. 10, fótaaðgerðir kl. 10, bókband kl.
10–13, verslunarferð kl. 12.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 9.30–11.30. Kirkjuprakkarar kl.
15.30 TTT–starf kl. 17. ÆFAK (yngri
deild) kl. 20.
Árbæjarkirkja | Kirkjustarf með tíu
til tólf ára börnum kl. 16 í Selásskóla.
Söngur, helgistund, sögur og leikir.
Áskirkja | Safnaðarfélag Áspresta-
kalls verður með félagsvist í safn-
aðarheimili kirkjunnar kl. 20. Sam-
verustund, hreyfing og bæn í
safnaðarheimili II, kl. 11–12.
Bessastaðasókn | Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum. Foreldramorgnar eru
frá kl. 10–12. Opið hús eldri borgara er
frá kl. 13–16.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Máls-
verður í safnaðarheimili eftir stund-
ina. Kirkjuprakkarar (7–9 ára) kl. 16.
TTT (10–12 ára) kl. 17. Æskulýðsfélag
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Dómkirkjan | Bænastund í Dómkirkj-
unni kl. 12.10–12.30. Hádegisverður á
kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum
veitt móttaka í síma 520 9700.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag kl. 10 til 12.30. Fyrirlestur
mánaðarlega. Gott tækifæri fyrir
mömmur og börn að hittast og kynn-
ast. Alltaf heitt á könnuni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Boðið er upp á léttan hádeg-
isverð á vægu verði að lokinni stund-
inni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir
altari, orgelleikari Hörður Bragason.
Allir velkomnir. TTT fyrir börn 10–12
ára á miðvikudögum í Rimaskóla kl.
17.30–18.30.
Grensáskirkja | Samverur eldri borg-
ara í Grensáskirkju kl. 14. Boðið er
upp á Biblíulestur og veitingar. Kven-
félagið í kirkjunni heldur utan um
samverurnar.
Háteigskirkja | Starf eldri borgara.
Fyrirbænastund kl. 11. Súpa kl. 12.
Brids kl. 13. Alla fimmtudaga kl. 10 í
Setrinu. Stund í kirkjunni kl. 10.30
Fræðsla og kaffi kl. 11. Góð samvera
fyrir foreldra ungra barna.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl.
10–12 í Hjallakirkju. 10–12 ára krakkar
hittast í Hjallakirkju kl. 16.30–17.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Í dag
kl. 12 bæn.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl-
skyldusamveran hefst kl. 18 með
léttri máltíð á vægu verði. Kl. 19 er
Biblíulestur fyrir alla fjölskylduna. Ás-
mundur Magnússon talar til okkar
miðvikud. 2. nóv. Barna/skátastarf
fyrir 5–17 ára. Allir velkomnir. ATH! kl.
17.30 er unglingafræðsla fyrir börn
fædd 1992.
Keflavíkurkirkja | Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar
kl. 12. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25. Súpa, salat og brauð á vægu
verði, allir aldurshópar. Umsjón sr.
Sigfús Baldvin Ingvason. Æfing
Barnakórs Keflavíkurkirkju kl. 16–17
og Kórs Keflavíkurkirkju kl. 19–22.30.
Stjórnandi Hákon Leifsson.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58–60, miðvikudag 2. nóv. kl. 20.
„Sæll er sá sem þú útvelur“. Margrét
Hróbjartsdóttir talar. Laufey Geir-
laugsdóttir syngur. „Móðir Armen-
anna–Karen Jeppe“, Anna Sig-
urkarlsdóttir segir frá. Kaffi.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn. Kl. 10.30 Gönguhópurinn
Sólarmegin. Kl. 14.10–15.30 Kirkju-
prakkarar (1.–4. bekkur). Kl. 16.15 TTT
(5.–7. bekkur). Kl. 17 Adrenalín gegn
rasisma. Laugalækjarskóla. (Mið-
borgarstarf kirkjunnar o.fl.) Kl. 19.30
Fermingartími. Kl. 20.30 Unglinga-
kvöld. (8. bekkur).
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.
Kaffi og spjall. Fyrirbænamessa kl.
12.15. Prestur sr. Kjartan Jónsson.
Opið hús kl. 15. Guðrún Guðlaugs-
dóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu,
lítur inn. Einnig mun Ágerður Júníus-
dóttir, óperusöngkona, dóttir hennar,
syngja nokkur lög. Kaffiveitingar á
Torginu.
Selfosskirkja | Pabba- og mömmu-
morgunn í Safnaðarheimilinu kl. 11.
Opið hús, spjall og hressing.
Gallerí Sævars Karls
Sýning Guðrúnar Nielsen á Te-
húsi og teikningum hefur verið
framlengd til 17. nóvember.
Norræna húsið
Sýningin Föðurmorð og nornatími
hefur verið framlengd til 13. nóv-
ember.
Sýningar
framlengdar
NÚ stendur yfir sýning þriggja
grundfirskra listakvenna í Sjálf-
stæðishúsinu í Grundarfirði. Ann-
ars vegar sýnir Hrafnhildur Jóna
tölvugrafíska myndlist á glærusýn-
ingu og hins vegar Kristín og Dag-
björt Lína, eigendur Gallerís Tínu í
Grundarfirði, sem sýna leir-
skúlptúra og veggmyndir og gler-
myndir og nytjalist. Þetta er 4. sýn-
ing Hrafnhildar Jónu, en áður
hefur hún sýnt olíu og akrýlmyndir,
bæði í Grundarfirði og á Húsavík.
Að þessu sinni er hún með tölvu-
gerða myndlist sem áhorfendur
geta skoðað á glærusýningu, valið
sér myndir og fengið prentaðar eft-
ir óskum hvers og eins, á pappír,
tau eða striga, einnig er hægt að
velja stærð á verkunum. Efnistök
eru fengin úr hugarfylgsnum lista-
mannsins sem skapar ímyndaðan
sýndarveruleika í bland við ljós-
myndir. Kristín og Dagbjört Lína
reka Gallerí Tínu allt árið um
kring, en á sýningunni eru ný gler-
og leirverk ásamt glernytjalist.
Þær hafa nýverið hafið framleiðslu
á matarstellum ásamt margs konar
fylgihlutum og þar getur við-
skiptavinurinn komið inn í fram-
leiðsluna og komið með sínar óskir
um áferð, liti og stærð. Sýningin er
haldin í tilefni Rökkurdaga, 3ja
vikna menningarhátíðar Grund-
firðinga, sem haldin er í annað sinn
á haustdögum. Til að fræðast meira
um listakonurnar og sjá verk þeirra
hefur verið opnuð heimasíða á slóð-
inni www.vdsl.is/theyr undir
myndlist.
Þrjár konur sýna
í Grundarfirði
MÖGULEIKHÚSIÐ og Kómedíu-
leikhúsið á Ísafirði hafa gengið til
samstarfs um sýningar á ein-
leiknum Gísli
Súrsson í skól-
um á höfuðborg-
arsvæðinu og á
Norðurlandi.
Kómedíuleik-
húsið frumsýndi
verkið á Þing-
eyri í febrúar og
hafa nú þegar
verið sýndar 60
sýningar víðs-
vegar um landið.
Þessa dagana er boðið upp á
sýningar í skólum á höfuðborg-
arsvæðinu, en sýnt var á Norður-
landi í byrjun október. Gísli Súrs-
son mun síðan aftur heimsækja
höfuðborgarsvæðið, í samvinnu
við Möguleikhúsið, 13. til 24.
mars.
Leikurinn byggist á einni af
þekktustu Íslendingasögunum,
Gísla sögu Súrssonar, sem mikið
hefur verið notuð til kennslu í
skólum landsins. Leikurinn segir
af örlögum Gísla Súrssonar og
fjölskyldu hans sem taka land í
Haukadal í Dýrafirði. Gengur
þeim allt í haginn í fyrstu og
verða brátt hinir mestu höfð-
ingjar. En skjótt skipast veður í
lofti og brátt er farið að fella
mann og annan. Þetta endar loks
með því að Gísli er útlægur ger.
Það er Elfar Logi Hannesson
sem flytur einleikinn, en leikstjóri
er Jón Stefán Kristjánsson. Þeir
félagar unnu einnig leikgerðina í
sameiningu. Leikmynd er eftir
Jón Stefán Kristjánsson, leikmuni
gerði Marsibil G. Kristjánsdóttir
og búningahöfundur er Alda Sig-
urðardóttir.
Gísli Súrsson gengur
til samstarfs við
Möguleikhúsið
Elfar Logi
Hannesson
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
FÉLAG húsgagna- og innanhús-
arkitekta (FHI) fagnar hálfrar
aldar afmæli sínu um þessar
mundir, en í tilefni 50 ára afmæl-
isins var efnt til bæði sjónþings og
sýningar á verkum Þórdísar Zoëga
í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi.
Það er vel við hæfi að velja
hönnuð á borð við Þórdísi sem n.k.
táknbera samtakanna enda á hún
að baki langan feril, er þekkt fyrir
fágaða og vandaða hönnun, og
spannar aukinheldur nokkuð breitt
svið á hönnunarvettvanginum.
Sýningin í Gerðubergi sýnir líka
vel hve breitt svið hönnun Þórdís-
ar nær yfir og hve víða hún hefur
komið við – barnaleiktæki, stólar,
borð, eldhúsinnréttingar, Spari-
sjóður Mýrarsýslu, innréttingar í
húsakynnum Íslenskrar erfða-
greiningar, húsbúnaður í Höfða og
afgreiðsluborð í málningarverslun
og tryggingafyrirtæki eru meðal
þeirra fjölbreyttu verkefna sem
hún hefur tekist á við. Og hvert
verkefni ber þess merki að hönn-
uðurinn vinni með umhverfi og að-
stæður á hverjum stað.
Skemmtilega grófur rekaviður
nýtur sín þannig vel í barna-
leiktækjunum, ekki síður en fág-
aður viður í innréttingum Ís-
lenskrar erfðagreiningar. Og
viðurinn setur víða svip sinn á
hönnun Þórdísar, sem verðlaunuð
var fyrir húsgögnin í Höfða (1997)
auk þess að hljóta aðalverðlaun
Hönnunardags sama ár.
Sófinn Mosi, eftir Þórdísi, er
ekki síður vel þekktur enda naut
hann umtalsverðra vinsælda á
Expo sýningunni í Þýskalandi árið
2000 sem hann var sérstaklega
hannaður fyrir. Og þar koma
sterklega fram bogadregnu lín-
urnar, sem svo gjarnan einkenna
hönnun Þórdísar, og kallast ekki
síður á við mýkt íslensku mosa-
breiðunnar sem sófinn dregur nafn
sitt af. Mosa í fullri stærð er þó
ekki að finna í Gerðubergi, en
smágert líkan og veggspjald með
hugmyndum og vinnuferli gera sitt
til að segja söguna sem að baki
liggur og raunar hefði verið verið
vel til fundið að bjóða upp á svip-
aða söguskýringu með fleiri verk-
um. Sýningin er Gerðubergi bygg-
ist nefnilega full mikið á
ljósmyndum, þó þar sé annars
unnið ágætlega með það takmark-
aða rými sem til boða stendur.
Húsakynnin verða hins vegar aldr-
ei nógu rúmgóð til að hýsa það
mikla magn muna sem gaman
hefði verið að sjá á sýningu sem
þessari. Sú staða á raunar einnig
við um hið Íslenska hönnunarsafn
og löngu komin tími til að brag-
arbót verði gerð í þeim málum og
hönnun, íslenskri sem erlendri
fundin húsakynni við hæfi. Ljós-
myndin ein og sér dugar nefnilega
skammt eigi að gera hönnun ít-
arleg skil. Texti, jafnvel teikningar
og svo að sjálfsögðu munirnir
sjálfir verða að hafa þar rými til
að njóta sín.
Hönnun og híbýli
Morgunblaðið/Sverrir
Smágerð líkön af hönnun Þórdísar
Zoëga í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
MYNDLIST
Menningarmiðstöðin Gerðubergi
Sýningin stendur til 15. nóvember. Opið
er mán-þrið frá kl. 11-17, mið. kl. 11-21,
fim-föst. kl. 11-17 og kl. 13-16 um
helgar.
Þórdís Zoëga
Anna Sigríður Einarsdóttir