Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 51
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd. ENGINN
SLEPPUR
LIFANDI
FARÐU TIL
HELVÍTIS!
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta og
hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6
Africa United
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
S.V. Mbl.
My Summer Of Love • Sýnd
kl. 6
enskt tal
Kung Fu Hustle • Sýnd kl 6
enskur texti
Adams æbler • Sýnd kl. 8
danskt tal
Pusher III • Sýnd kl. 8
Danskt tal
Ringers: Lord of the fans •
Sýnd kl 10
enskt tal
The Aristocrats • Sýnd kl. 10
enskt tal
OKTÓBERBÍÓFEST |
26. október - 14. nóvember
Miðasala opnar kl. 17.00
Sími 551 9000
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
"FLOTTASTA HROLLVEKJA ÁRSINS"
KÓNGURINN OG FÍFLIÐ / X-FM
EMPIRE MAGAZINE. UK
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fíflið, XFM
Tom Stall lifði fullkomnu
lífi... þangað til hann
varð að hetju.
Frá leikstjóranum David Cronenberg kemur
ein athyglisverðasta mynd ársins.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
Ó.H.T. Rás 2
H.J. Mbl.
Sýnd kl. 6 Ísl. tal
(Besti leikstjóri, Besta
heimildarmynd, Besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin
“Madagascar Mörgæsirnar halda í jólaleiðagur sýnd.
553 2075Bara lúxus ☎
H.J. Mbl.
Ó.Ö.H. DV
Nánari upplýsingar um myndir og dagskrá
á www.icelandfilmfestival.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 51
ÝMISLEGT grunsamlegt er á
seyði, bæði ofanjarðar, í borg sem
gæti verið ættuð úr bókmenntum
Dickens (reyndar margar persón-
anna líka), og ekki síður í undir-
heimum kirkjugarðsins. Líkbrúð-
urin er talsvert frábrugðin öðrum
teiknimyndum, enda höfundurinn
Tim Burton sjálfur, ósvikinn snill-
ingur sem forðast jafnan troðnar
slóðir. Oftast myrkur og drunga-
legur, að þessu sinni bráðfyndinn
og þó að söguþráðurinn sé dálítið
draugalegur er myndin fyrst og
síðast létt og óvenjulegt fjöl-
skyldugrín með röddum val-
inkunnra leikara sem eru sem
smurðar á fígúrurnar. Í ofanálag
fáum við nokkur snyrtileg
söngva- og dansatriði til að auka á
fjölbreytnina.
Aðalpersónan, Viktor (Depp),
er að fara að gifta sig. Sú útvalda
er Viktoria (Watson), dóttir að-
alshjóna sem í raun eru ósvikinn
rumpulýður, gjörsamlega að fara
á kúpuna. Foreldrar brúðgumans
eru á hinn bóginn nýríkt rakk-
arapakk og það eru einmitt auð-
æfin sem foreldrar Viktoríu sjá
við ráðahaginn. Hjónaefnin eru
vænstu manneskjur og sátt hvort
með annað. Æfingarnar daginn
fyrir brúkaupið ganga aftur á
móti brösuglega. Viktor á í vand-
ræðum með að muna hvað hann á
að segja við prestinn, sem að lok-
um brestur þolinmæðina og skip-
ar Viktori að hunskast út og æfa
sig.
Það er komið fram á kvöld,
Viktor gerir sitt besta, les textann
og dregur giftingarhringinn upp á
kræklu sem stendur upp úr jörð-
inni, sem kemur í ljós að er
kirkjugarður og allt stefnir hrað-
byri til heljar. Rétt að stoppa á
þeim tímapunkti og leyfa les-
endum að njóta framhaldsins.
Burton er í essinu sínu og hefur
gaman af að leika sér að kring-
umstæðunum, jarðríki og undir-
heimum. Hann kann greinilega
mun betur við sig í neðra, þar rík-
ir litadýrðin, glaumurinn og
gleðin. Mannfólkið, utan hjóna-
efnin, er mestu vandræðagripir
og endurspegla flest það versta í
fari okkar. Gráðugt, forhert, fullt
af afbrýði, illsku og öfund.
Ef menn vilja leita að dýpri
merkingu í ljúfu og rómantísku
ævintýrinu, má finna svipaðan
ádeilubrodd í Líkbrúðinni og í ná-
myndum Romeros. Ég mæli með
því að gestir njóti hennar sem
frumlegrar og vandaðrar afþrey-
ingar. Teiknivinnan, þar sem beitt
er „stop motion“-tækni (líkt og í
Nightmare Before Christmas), er
eitt af vörumerkjum Burtons og
árangurinn er afraksturinn sann-
arlega öðruvísi. Danny Elfman er
óbrigðull sem fyrr í að skapa rétta
andrúmsloftið með tónum og mel-
ódíurnar hans eru grípandi. Sögu-
þráðurinn hefði gjarnan mátt
vera ferskari, engu að síður slag-
ar Líkbrúðurin hátt upp í hina eft-
irminnilegu Martröð fyrir jólin.
Viktor og Viktoría
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: Októberbíófest
Teiknimynd. Leikstjórar: Tim Burton
og Mike Johnson. Aðalleikendur:
Johnny Depp, Helena Bonham Carter,
Emily Watson, Albert Finney. 76 mín.
Bretland. 2005.
Líkbrúðurin (Tim Burton’s Corpse
Bride) Sæbjörn Valdimarsson
„Ef menn vilja leita að dýpri merkingu í ljúfu og rómatísku ævintýr-
inu, má finna svipaðan ádeilubrodd [...] í námyndum Romeros,“ segir í
dómi.
KOSS og hvellur (Kiss Kiss, Bang
Bang) er leikstjórnarfrumraun
Shane Black, hins gamalreynda
handritshöfundar Lethal Weapon
myndanna og fleiri hasarsmella sem
fjalla um illsamræmanlega félaga
sem glíma við glæpona. Hér bregður
hann á leik, vinnur með „fé-
lagamyndina“ sem hann átti svo
sterkan þátt í að gera vinsæla, en
sækir um leið í hefðabrunn kvik-
mynda- og bókmenntasögunnar og
leikur sér með myndræn og frásagn-
arleg þemu rökkurmyndanna (film
noir) og reyfarabókmennta. Sam-
suðan er galsakennd og sjálfsvísandi,
þ.e.a.s. við höfum þar sögumann sem
vísar stöðugt til eigin frásagnar og af-
hjúpar hana þar með sem tilbúning
eða hreina sagnasmíð. Sögumaðurinn
gengur reyndar svo langt að „frysta“
filmuna þegar hann þarf að hugsa sig
um, jafnvel spóla til baka um nokkra
myndramma þannig að skilin blasa
við. Þessi tegund af kvikmyndagerð
hefur reyndar verið orðuð við póst-
módernisma og er langt frá því að
vera ný af nálinni á því herrans ári
2005. En Shane Black nálgast verk-
efnið með nægilega stórum skammti
af húmor og hæfileikum til þess að
láta herlegheitin ganga upp.
Söguþráður myndarinnar er að
mörgu leyti aukaatriði, en þar fylgj-
umst við með smákrimmanum Harry
Lockhart (Robert Downey Jr.) og
einkaspæjaranum „Gay“Perry (Val
Kilmer) þar sem þeir elta vísbend-
ingar sem leiðir þá inn í dularfulla
ráðgátu og út úr henni aftur. Við sögu
kemur vitanlega fagurt og dularfullt
kvendi, Harmony að nafni (Michelle
Monaghan), sem reynist vera æsku-
ást Harrys. Grófteiknuð ráðgátan
verður þó aðeins rammi utan um
galsafengin gamanatriði og stílfærð-
ar senur, þar sem aðalleikurum er
gefinn laus taumurinn í útfærslu per-
sónanna. Þeir Robert Downey Jr. og
Val Kilmer fara þar á kostum, Dow-
ney Jr. sem lífsþreyttur en sympa-
tískur smákrimmi, en Kilmer sem út-
smoginn spæjari sem er svíkur þó
ekki vini sína. Á heildina litið er
myndin þó full hraðsoðin en virkar
vel sem fersk og skemmtileg tilbreyt-
ing.
Galsakenndur reyfari
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Shane Black. Aðalhlutverk:
Robert Downey Jr., Val Kilmer, Michelle
Monaghan. Bandaríkin, 103 mín.
Koss og hvellur (Kiss Kiss, Bang Bang)
Heiða Jóhannsdóttir
„Grófteiknuð ráðgátan verður þó aðeins rammi utan um galsafengin gam-
anatriði og stílfærðar senur ...“ segir í dómi.
TÍMAMÓTAMYNDIN The Full
Monty – Með fullri reisn (’97), fjallaði
um ósköp venjulega karlmenn, flesta
úr verkamannastétt en atvinnulausa
með sært stolt og sjálfsímynd. Þeir
vildu vinna í málunum til að geta aft-
ur borið höfuðið hátt, taka að sér nán-
ast hvað sem var sem fært gæti þeim
aftur virðinguna. Myndin hitti á rétt-
an tón, varð feikivinsæl og fyrr en
varði skiptu eftirlíkingarnar tugum.
On a Clear Day (‘05) er enn ein
slíkra, að þessu sinni eru það launa-
menn í Glasgow sem taka á honum
stóra sínum þegar erfiðleikar steðja
að. Myndin er þó einkum um einn
þeirra, Frank (Mullan), sem missir
vinnuna þegar nýir og hrokafullir eig-
endur taka við slippstöðinni þar sem
hann hefur alið allan sinn starfsaldur.
Fjölskyldulífið er einnig í molum,
hjónin misstu annan son sinn ungan
og hefur Frank haldið hinum í fjar-
lægð allar götur síðan og óviðunandi
samband ríkir á milli feðganna. Kona
hans (Blethyn), er önnum kafin á bak
við tjöldin að öðlast ökuréttindi á
strætisvagn.
Í þrengingunum þróast sú hug-
mynd með Mullan, sem er vel á sig
kominn og sundmaður góður, að
þreyta sund yfir Ermarsundið. Bæði
til að sanna hvað hann getur og yf-
irvinna það hugarvíl sem hófst við
sonarmissinn og hefur truflað líf hans
á flestan hátt síðan. Hann fær fjóra
samstarfsmenn og kunningja til að
aðstoða sig við undirbúninginn og
verður eldmóðurinn í Mullan til þess
að þeir fara að gera eitthvað í eigin
málum.
Það þarf ekki að fjölyrða um
hvernig myndin endar og hún á vissu-
lega tilfinningaleg augnablik og upp-
lífgandi og er alls ekki slæm skemmt-
un þrátt fyrir að vera lítið meira en
fyrirsjáanleg formúlumynd. Það sem
bjargar On a Clear Day frá því að
fljóta ekki eins og karfi upp á yf-
irborðið, er þéttur leikhópurinn, skip-
aður að mestu leyti lítt þekktum
Skotum. Mullan og þeir sem leika
vængbrotna félaga hans, að Blethyn
að sjálfsögðu meðtalinni, vinna allt að
því afrek að vekja áhuga áhorfandans
á umfjöllunarefninu og vinahópnum
og fá hann til að fylgjast, tiltölulega
sáttan með gangi gömlu klisjunnar.
Synt gegn vandanum
KVIKMYNDIR
Regnboginn: Októberbíófest
Leikstjóri: Gaby Dellal. Aðalleikendur:
Peter Mullan, Brenda Blethyn, Jamie Si-
ves, Billy Boyd, Benedict Wong. 98 mín.
Bretland. 2005.
On a Clear Day „Það sem forðar [myndinni ] frá því
að fljóta eins og karfi upp á
yfirborðið, er þéttur leikhópurinn,
... “ segir í dómi.
Sæbjörn Valdimarsson