Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 52

Morgunblaðið - 02.11.2005, Síða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster. M.M.J. / Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Roger Ebert S.V. / MBL  "Fyrirtaks skemmtun sem hægt er að mæla með" MMJ - kvikmyndir.com KynLíf. MoRð. DulúÐ. Velkomin í partýið. Frá hÖfundi LEthal weApon. DOOM kl. 5.45 og 8 b.i. 16 ára Cinderella Man kl. 10.10 b.i. 14 ára Flightplan kl. 5.30 - 8 b.i. 12 ára Robert Downey Jr. Val Kilmer OKTÓBERBÍÓFEST  S.V. / MBL H.J. Mbl. 26. október - 14. nóvember GlettiLega gÓð og frumLEg spEnnuGrínmynd með töFf leiKUrum. Ó.Ö.H / DV L.I.B. / topp5.is The Merchant of Venice • Sýnd kl. 5.45 ísl. texti Grizzly Man • Sýnd kl.5.45 Enskt tal The Assas. Of R. Nixon • Sýnd kl.6 - 8 ísl. texti Rize • Sýnd kl. 8 Enskt tal Corpse Bride • Sýnd kl. 8.30 ísl. texti Frozen Land • Sýnd kl. 10 Enskur texti Voces Inocentes • Sýnd kl. 10 Spænskt tal/enskur texti Drabet (Morðið) • Sýnd kl.10.15 ísl. texti S.V. Mbl Nánari upplýsingar um myndir og dagskrá á www.icelandfi lmfestival.is P.B.B Mbl The Merchant of Venice D ikta kom næst á svið og tók sinn tíma að komast á flug. Sitthvað var vel gert og þannig var annað lag sveitarinnar snoturt í einfald- leika sínum. Lokalag þeirra Dikta-manna var án söngs og ágætt til síns brúks, en heldur stefnulaust er á leið.“ Svo skrifaði Árni Matthíasson um framkomu hljómsveitarinnar Diktu á fyrsta kvöldi Músík- tilrauna Tónabæjar árið 2000. Hljómsveitin komst í úrslit það árið en varð þó að sjá á eftir hinum eftirsóttu verðlaunum til ærslabelgj- anna í XXX Rottweilerhundum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar; Dikta sendi frá sér frumburðinn Andartak árið 2002 sem hlaut nokkuð góðar viðtökur gagn- rýnenda („… fullmótuð sveit, kraftmikil og frumleg í senn …“ sagði meðal annars í dómi fyrrnefnds Matthíassonar) og á næstu dögum kemur önnur plata Diktu, Hunting for Happiness út hjá Smekkleysu. Blaðamaður settist niður með meðlimum Diktu á virðulegri krá hér í borg. Upptökutæk- inu var stillt á mitt borð og á meðan sumir kveiktu sér í og aðrir fengu sér að borða, fékk sá hinn sami og pantaði sér Capuccino, leyni- lega ástarjátningu frá gengilbeinunni, ritaða í froðuna. Ekki slæm byrjun á viðtali það. Rekinn fyrir að reykja Tilurð hljómsveitarinnar Diktu sem hingað til hefur verið kennd við Garðabæinn, má rekja til þess þegar þeir Jón Bjarni Pétursson gít- arleikari, Jón Þór Sigurðsson trommuleikari og Skúli Gestsson bassaleikari hófu að spila sam- an í bílskúr Jóns Bjarna. Í upphafi voru þeir með söngvara, en stuttu eftir að hljómsveitin fékk inni í Garðaskóla varð söngvarinn að ganga plankann eftir að skólayfirvöld komust að því að hann brúkaði tóbak. Þá gekk söng- kona til liðs við sveitina en með henni tók Dikta í fyrsta skipti þátt í Músíktilraunum Tóna- bæjar, á því herrans ári 1999. Söngkonan sagði skilið við sveitina skömmu síðar en í hennar stað kom söngvarinn, gítarleikarinn og Bessa- staðahrepps-ómaginn, Haukur Heiðar Hauks- son, óvænt til sögunnar. Haukur hafði áður verið í hljómsveitinni Plug í Garðabænum en hún gerðist meðal ann- ars svo fræg að taka þátt í Rokkstock 1999, í hverri Brain Police sigraði. Haukur segist lítið hafa þekkt strákana þeg- ar þeir voru allir við nám í Garðaskóla en þegar hann hóf að sækja MH ferðaðist hann iðulega í sama strætó og Skúli sem þá gekk í Versló; „Einn morguninn segir hann mér að hljóm- sveitin hans væri hætt og þá bauð ég honum að kíkja á æfingu,“ segir Skúli. „Og síðan hefur hann eiginlega ekki hætt að kíkja.“ Næstum því reknir úr Músíktilraunum Þeir segjast í upphafi hafa verið mikið í síð- rokks-pælingum ýmis konar. „Mogwai var áhrifavaldur og ýmsar aðrar og við vorum mik- ið að pæla í mismunandi uppbyggingum laga og þar fram eftir götunum,“ segir Haukur. „Það má jafnvel segja að við séum svolitlir geðklofar þegar það kemur að tónlist því að stefnurnar koma mjög víða að og lögin hljóma mismunandi eftir því.“ Eins og áður sagði gerði Dikta aðra atlögu að Músíktilraunum Tónabæjar árið 2000 en sú at- laga virtist í upphafi ekki ætla að verða beysin. „Það var næstum því búið að reka okkur úr þeirri keppni,“ segir Haukur og ljóst að sú upp- lifun fær hárin enn til að rísa. „Við spiluðum á fyrsta kvöldinu lag sem ég hafði áður tekið með Plug á Rokkstokk og kom því út á geisladiski og myndbandi en reglur Músíktilrauna segja til um að lögin sem þar eru spiluð, megi ekki hafa komið út áður á plötu. Við gerðum okkur ekk- ert grein fyrir þessu en af einhverjum óskiljan- legum ástæðum þekkti Árni Matthíasson lagið og lengi vissum við ekki hvort við fengjum að halda áfram.“ Segjast þeir hafa skriðið upp á Morgunblað með afsökunarbréf og eftir nokkurt skraf hafi þeir að lokum fengið að halda áfram með því skilyrði að þeir spiluðu annað lag á úrslita- kvöldinu. „Það lag hét Taminora og komst meðal ann- ars á toppinn á X-inu, þannig má segja að þetta hafi verið lán í óláni.“ Ace úr Skunk Anansie Þeir viðurkenna að það hafi verið sárt að vinna ekki Músíktilraunir en segja þó að þeir hefðu hvort eð er ekki átt sigurinn skilið. „Við vorum ekki góðir á úrslitakvöldinu, samanborið við undanúrslitakvöldið. Þetta var í annað skipti sem við komum fram og kannski ekki við öðru að búast.“ Eftir Músíktilraunir sneri Dikta aftur inn í bílskúrinn og nærri tveimur árum síðar, um jól- in 2002, leit frumburðurinn, Andartak, dagsins ljós. Sú plata kom út í 600 eintökum og gekk ágætlega, seldist upp í kostnað, eins og þeir segja, og hlaut fína dóma víðast hvar. Það var svo stuttu fyrir Airwaves hátíðina 2004 sem Dikta sendi fyrrverandi gítarleikara Skunk Anansie, Ace, tölvupóst með boði um að heyra þá spila á hátíðinni. Ace sem var staddur hér á landi á vegum Kerrang! tímaritsins, sá hins vegar ekki póstinn fyrr en hann sneri aftur til Englands en bauðst þó til að hlusta á prufu- tökur sem hljómsveitin sendi um hæl. Stutt er frá því að segja að Ace heillaðist af hljómi sveit- arinnar og bauðst í framhaldinu til að koma aft- ur til landsins og stjórna upptökum á plötunni sem nú er að koma út. „Ace kom með ýmsar ábendingar hvað varð- aði uppbyggingar á lögunum, segir Skúli. „Við vorum nokkuð efins um áhrif þess að fá hann hingað en hið gagnstæða kom á daginn. Fyrstu dagana vorum við bara í æfingahúsnæðinu að spila og þá kom hann með margar ábendingar og athugasemdir um hvað mætti betur fara og svo eftir að við vorum komnir inn í hljóðverið hjálpaði hann okkur mikið með hljóðheiminn allan. Þessi plata hefði orðið allt öðruvísi og mun slakari hefði Ace ekki komið að henni. Að Hrannari Ingimarssyni upptökumanni og hljóðblandara ólöstuðum. „Hrannar var sá eini sem við vildum vinna með og það var okkur mikill léttir þegar hann féllst á verkið.“ Efnahvörf í heila Við þeirri sígildu spurningu um hvernig lögin verði til segja þeir að það sé allur gangur á því. Sum lögin verði til á æfingum þar sem öll hljómsveitin leggi jafnt til þeirra en önnur fæð- ist á persónulegri nótum, í ranni hvers og eins. „Í seinni tíð höfum við lært að taka æfing- arnar okkar upp því að það hefur gerst að við höfum gleymt lögunum jafnóðum,“ segir Skúli. „Ég lenti í því um daginn að hlusta á tveggja mánaða gamla upptöku af lagi sem mér til mik- illar undrunar reyndist mjög gott. Á næstu æf- ingu á eftir urðum við að „pikka“ lagið upp og svo fór á endanum að þetta lag komst á plöt- una. „Þeir eru líklega ófáir gullmolarnir sem við höfum samið en gleymt jafnóðum,“ bætir Haukur við og kímir. Og það er hann sem sem- ur textana. „Já, það hefur einhvern veginn fall- ið í minn hlut. Textarnir á Andartaki voru á ís- lensku en nú eru þeir á ensku. Við ákváðum það bara að … nei, þetta gerðist bara, er það ekki?“ Hinir samsinna því að svona hafi þetta bara æxlast, ekki síður fyrir sakir þær, að áður en textarnir eru samdir, sé einhvers konar hálf- enska rauluð yfir lögin. Haukur kaupir þessa útskýringu og heldur áfram að útskýra yrk- isefnið „Textarnir mínir hafa yfirleitt verið svo- lítið myrkir en undanfarið hafa þeir orðið póli- tískari. Ég veit í raun ekki hvað gerðist. Einhver efnahvörf urðu í heilanum og núna er ég einhverra hluta vegna bæði að yrkja um það sem er að gerast í samfélaginu í dag og hvert samfélagið er að stefna, þá í sambandi við per- sónufrelsi og aukið eftirlit með borgurunum,“ og vísar Haukur þar í lag á nýju plötunni sem kallast „My Other Big Brother“. Gabríela, iTunes og myndband Það er augljóst á þeim Diktu-mönnum að eft- irvæntingin eftir plötunni er mikil. Einhverjir tækniörðugleikar urðu þó í framleiðslunni á dögunum og nú segjast þeir bara bíða þess að platan festist um ókomna tíð í tollinum …! Þeir eru þó vissir um að plötuumslagið sé gott, enda hannað af ekki ómerkari listamanni en Gabr- íelu Friðriksdóttur. Þegar er fyrsta smáskífa lagsins „Someone, Somewhere“, byrjuð að hljóma á hinum ýmsu útvarpsstöðvum en myndbandið við það lag er á leiðinni og næst hyggjast þeir sleppa laginu „Breaking the Waves“ í loftið, „sem upphaflega átti að vera fyrsta smáskífulag,“ bæta þeir við. Dikta hefur nýlega gert þriggja platna samning við Smekk- leysu sem þeir binda nokkrar vonir við en fyr- irtækið hefur meðal annars komið plötunni inn á iTunes sem þykir nokkuð gott. Þegar þeir eru spurðir hvort þeir hyggist ekki leita út fyrir okkar heimamarkaðinn í framhaldinu, segja þeir að það sé að sjálfsögðu stefnan. „Ace sagð- ist ætla að dreifa plötunni til málsmetandi manna ytra en hann sagðist um leið ekki geta gert miklu meira en að sjá til þess að fólkið hlustaði á plötuna. Við ætlum okkur að spila mikið hérna heima á næstunni, fara út á land og kynna plötuna og tónlistina fyrir sem flesta. En auðvitað langar okkur út að spila.“ Það liggur þá beinast við í lokin að blaðamað- ur óski eftir útskýringu á nafni plötunnar, Hunting for Happiness. „Þetta er tekið úr eina textanum sem ég samdi ekki og kallast „This Song Will Save the World“ eftir hann Skúla.“ Og Skúli tekur við. „Já, pælingin er eiginlega fengin að láni frá grínaranum Eddie Izzard og fjallar um veiðiréttinn á hamingjunni og er einskonar ádeila á Bandaríkjamenn sem eru í sífelldri leit að hamingjunni en skjóta hana svo um leið og hún birtist.“ Tónlist | Hljómsveitin Dikta sendir frá sér plötuna Hunting for Happiness Um hamingjuna og Stóra bróður Morgunblaðið/Kristinn Hljómsveitin Dikta á ónefndum stað í grennd við ónefnda krá. Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is www.dikta.net

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.