Morgunblaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 56
ÞAÐ hlýtur að teljast ótvírætt
þrekvirki hjá 9 ára strák, Degi
Barkarsyni, að bjarga sér á sundi
algerlega upp á eigin spýtur þeg-
ar hann féll í smábátahöfnina í
Keflavík á sunnudag. Hann var að
renna sér á stýrissleða í brekku of-
an við höfnina en tókst ekki að
stöðva sig í einni ferðinni. Kom
hann á fleygiferð niður brekkuna
og stökk á sleða sínum yfir varn-
argarð við höfnina og stakkst á
kaf í sjóinn. Hafa verður í huga að
sjórinn var ískaldur og hefði full-
orðnum manni þótt það næg þrek-
raun að missa ekki stjórn á sér
vegna kuldans, hvað þá að synda í
sjónum og klifra að því loknu upp
á bryggjuna. En allt þetta gerði
Dagur hjálparlaust. „Ég synti
skriðsund en veit ekki hvað þetta
var langt,“ segir hann. „Ég var að
drepast úr kulda en gat samt hald-
ið höfðinu upp úr. Síðan klifraði
ég upp stigann og því næst kallaði
vinur minn, Vignir, á bróður minn
og vin hans.“ Skömmu síðar kom
nærstaddur hjálparmaður að og
skutlaði sundgarpinum heim þar
sem hann fór í heitt bað.
Dagur neitar því ekki að hann
sé góður sundmaður og segist
hafa fengið fínar einkunnir í
skólasundi. Hann var í skóm og
það auðveldaði honum fótatökin.
„Ég var líka í gallabuxum, snjó-
buxum, úlpu og ullarpeysu,“ bætir
hann við. „Ég vissi hvert ég átti að
synda og var alveg með opin aug-
un. Ég tók strax sundtökin og það
gekk bara vel að synda en þetta
gerðist svo hratt að ég hafði eng-
an tíma til að hugsa,“ segir Dagur.
Þegar Dagur var kominn upp
úr sjónum segist hann ekki hafa
getað hreyft sig fyrir kulda. Hann
svarar því játandi að það hafi ver-
ið gott að komast í heitt bað eftir
sundið. Endaði þetta afrek því á
svipaðan hátt og þegar Grettir Ás-
mundarson, mesti sundgarpur Ís-
landssögunnar, baðaði sig í
Reykjadiski eftir Drangeyjarsund
sitt á Skagafirði.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Dagur Barkarson til hægri með vini sínum Vigni Blæ Sigurðarsyni.
„Hafði ekki tíma til að hugsa“
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
4.SÆTIÐ
www.jorunn.is
STÆRRI útgerðir eru í auknum mæli
farnar að gera út báta í krókaaflamarks-
kerfi. Það kann að hluta til að vera skýr-
ingin á því að verð á aflahlutdeild innan
kerfisins hefur verið að hækka.
Nú eru greiddar um 1.330 krónur fyrir
kílóið af óveiddum þorskkvóta í krókaafla-
markskerfi og er þá um að ræða kvóta sem
seldur er án báts. Fyrir um ári var verðið
um 820 krónur og nemur því hækkunin um
38%. Verð á þorskkvóta í aflamarkskerf-
inu, stóra kerfinu svokallaða, er að vanda
talsvert hærra en í krókaaflamarkskerfi en
þó hefur dregið þar saman á undanförnum
árum. Nú eru greiddar um 1.775 krónur
fyrir kílóið af þorskkvóta í aflamarkskerfi
og ber því ennþá talsvert á milli.
„Eins og kunnugt er var heimilað að
stækka krókaaflamarksbátana í 15 tonn.
Stærri útgerðir hafa í auknum mæli verið
að seilast í krókaaflamarkskvótann, enda
lítið framboð af kvóta í stóra kerfinu. Þá
eru þessir öflugu bátar búnir beitningar-
vélum og skila í land hráefni sem uppfyllir
kröfur sem gerðar eru um ferskleika og að
fiskur sé veiddur á króka,“ segir Eggert
Sk. Jóhannesson hjá Skipamiðluninni Bát-
um og kvóta.
Stærri
útgerðir
sækja í
krókakerfið
Krókakvótinn | B1
STRAUMUR-Burðarás Fjárfestinga-
banki hf. hefur selt alla eignarhluti sína í
Keri hf., 34%, og er félagið sjálft kaupand-
inn. Straumur-Burðarás Fjárfestinga-
banki hf. hefur jafnframt selt alla eign-
arhluti sína í Eglu hf. til félagsins sjálfs og
er kaupverðið rúmur 1 milljarður króna.
Eftir viðskiptin á Kjalar ehf., félag í að-
aleigu Ólafs Ólafssonar, stjórnarfor-
manns Samskipa, nærri 87% hlut í Keri.
Þá á Ker 68% hlut í Eglu hf. sem er eign-
arhaldsfélag um 10,88% hlut í Kaupþings
banka hf. Kjalar ehf., félag Ólafs Ólafs-
sonar, á nærri 28% hlut í Eglu.
Breytingar
á eignar-
haldi Kers
Straumur-Burðarás | 14
HLUTHAFAFUNDUR FL Group
samþykkti í gær að auka hlutafé fé-
lagsins um 44 milljarða að markaðs-
virði. Þar er meðtalið hlutafé sem
afhent verður í skiptum fyrir hluti í
Sterling Airlines. Alls mættu
fulltrúar 75% hlutafjár á fundinn.
Einnig var samþykkt að fækka
stjórnarmönnum úr sjö í fimm.
Sjálfkjörnir í stjórn FL Group voru
Skarphéðinn Berg Steinarsson, Jón
Ásgeir Jóhannesson, Magnús Ár-
mann, Smári S. Sigurðsson og Þor-
steinn M. Jónsson. Til vara Kristinn
Bjarnason og Þórður Bogason. Á
fundinum gerði Hannes Smárason
forstjóri grein fyrir breytingum á
skipulagi félagsins, nýjungum í
rekstri og framtíðarhorfum.
Heildarhlutafé FL Group verður
80 milljarðar króna að markaðsvirði
að loknu hlutafjárútboði, eigið fé um
65 milljarðar og gert er ráð fyrir að
félagið velti um 100 milljörðum á ári
eftir kaupin á Sterling. Heimilt
verður að greiða fyrir nýja hluti í
FL Group með hlutabréfum í
nokkrum tilteknum félögum auk
reiðufjár. Núverandi hluthafar hafa
þegar skráð sig fyrir 28 milljörðum
króna. Gert er ráð fyrir að lykil-
starfsmenn fjárfesti fyrir þrjá millj-
arða, Kaupþing og Landsbankinn
fyrir átta milljarða og sölutryggja
þeir til viðbótar fimm milljarða
króna útboð sem beint verður að
fagfjárfestum.
Vilhjálmur Bjarnason, hluthafi
og aðjúnkt við HÍ, spurði forstjóra
og stjórn FL Group m.a. hvers
vegna Sterling hefði ekki verið
keypt á öðru og lægra verði og hve
mikið bankarnir tækju fyrir að sölu-
tryggja hlutafjárútboðið. Enn frem-
ur hve stór hluti viðskipta með
hlutafé í easyJet í ár og í fyrra hefði
verið án þess að Flugleiðir og FL
Group hefðu átt hlut að máli. Einnig
bað hann endurskoðendur að upp-
lýsa hvort þrír milljarðar hefðu ver-
ið fluttir af reikningi félagsins í
þágu annarra en félagsins sjálfs.
Hluthafafundur FL Group var í gær, heildarhlutafé verður 80 milljarðar
Morgunblaðið/Sverrir
Hlutafé aukið um 44 millj-
arða og fækkað í stjórn
Samþykkt að | Miðopna
RÁÐANDI hluthafar þýska fyrirtækisins
Pickenpack – Hussman & Hahn Seafood,
þeir Finnbogi Baldvinsson, forstjóri fé-
lagsins, og Samherji, munu eignast
21,25% hlutafjár í Icelandic Group.
Í gær var tilkynnt um kaup Icelandic
Group á þýska fyrirtækinu, en það er
stærsta framleiðslufyrirtæki í Þýskalandi
á sviði frystra sjávarafurða. Kaupverðið
verður greitt með nýju hlutafé í Icelandic
Group. Miðað við markaðsverð Icelandic
Group er kaupverð þýska fyrirtækisins
um 5,5 milljarðar. Eftir hlutafjáraukn-
inguna verður hlutur þeirra Finnboga og
Samherja í Icelandic Group því 21,25%.
Finnbogi hefur verið ráðinn forstjóri Ice-
landic Europe.
Eignast
21,25% hluta-
fjár í Icelandic
Group
Icelandic | 14
♦♦♦
♦♦♦
NÝJAR farangursreglur taka gildi í
flugi Icelandair milli Bandaríkjanna
og Evrópu frá og með 15. nóvember
næstkomandi.
Farþegar á almennu farrými
mega innrita tvær einingar af far-
angri. Hvor eining má ekki vera
meira en 158 cm að samanlagðri
lengd, breidd og hæð og ekki þyngri
en 23 kg. Farþegar á Saga Business
Class mega taka með tvær einingar
(2 stk.) af innrituðum farangri sem
vega að hámarki 32 kg hvor um sig
og samanlögð lengd, breidd og hæð
má ekki vera meira en 158 cm.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Icelandair, er
þessi breyting gerð í hagræðing-
arskyni og í takt við breytingar sem
evrópsk flugfélög á borð við Luft-
hansa og SAS eru að gera.
Guðjón sagði að farangursheimild
farþega á almennu farrými yrði
minnkuð úr 64 kg í 46 kg. Farang-
ursheimild farþega á Saga farrými
verður óbreytt hvað þyngd varðar,
64 kg. Hann benti á að í Evrópu-
flugi megi hver farþegi á almennu
farrými taka með sér 20 kg af far-
angri.
Ekki vegna innkaupa
Íslendinga
„Sú spurning vaknar hvort þetta
sé vegna mikilla innkaupa Íslend-
inga í Bandaríkjunum,“ sagði Guð-
jón. „Það er alls ekki. Yfirgnæfandi
meirihluti farþega okkar í Ameríku-
fluginu eru Bandaríkjamenn eða
Evrópubúar, aðrir en Íslendingar.
Farangur Íslendinga vegur því ekki
þungt í flugvélunum. Þessi breyting
er gerð almennt til hagræðingar og
til að færa reglur okkar í átt til þess
sem almennt gildir í Evrópu.“
Guðjón sagði að reglurnar myndu
gilda í Ameríkuflugi félagsins yfir
Atlantshafið, einu gilti hvar ferðin
hæfist í Evrópu eða Bandaríkj-
unum.
Farangurs-
heimildir í
Ameríku-
flugi
þrengdar