Morgunblaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 F 3 Barðastaðir - 3ja herb. - Grafarvogi *NÝTT Á SKRÁ* Góð 98,3 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í 3ja hæða fjölbýli við Barðastaði í Grafarvogi. Gott sjónvarpshol, tvö svefnherbergi, baðherbergi með kari og sturtuklefa. Stofan er opin og björt og eldhús með fallegri L-laga innréttingu. Lítið þvottahús er inn af eldhúsi. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd og sérgarð í suðvestur. Góð staðsetning, stutt í nýjan grunnskóla, leikskóla og á golfvöllinn. Verð 20,5 m. Þórufell - 2ja herb. - Rvk. Rúmgóð og björt 57,6 fm íbúð á 3. hæð í 4ra hæða fjölbýli við Þórufell í Reykjavík. Stór og björt stofa, eldhús með litlum borðkrók, gott svefnherbergi og lítið baðherbergi með sturtu. Eldhúsinnrétting og fataskápar ca 9 ára gamlir. Þetta er tilvalin eign fyrir þá sem eru að byrja. Íbúðin er laus til afhendingar strax. Verð 10,9 m. Hvassaleiti - 4ra herb. + bílskúr. 101,5 fm 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í 4ra hæða fjölbýli ásamt 20,4 fm bílskúr á þessum vinsæla stað í Reykjavík. Íbúðin er staðsett í enda og því mjög björt og rúmgóð. Mjög stór stofa og borðstofa og eldhús með góðum borðkrók. Svalir snúa í suðvestur. Húsið var málað að utan fyrir tveimur árum og lítur vel út. Hiti er í stétt fyrir framan húsið. **Verð 20,9 m.** Kleppsvegur - 4ra herb. + aukaherb. - Rvk. 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með aukaherbergi í kjallara í 3ja hæða fjölbýli við Kleppsveg, samtals 129,2 fm. Íbúðin sjálf er rúmgóð og björt, eldhús með borðkrók, góð stofa og sérþvottahús. Svalir bæði í vestur og austur. 21,5 fm aukaherbergi í kjallara með eldhúskrók og aðgangi að baði, tilvalið til útleigu. Frábær staðsetning, rétt við Holtagarða, fallegt útsýni til Esjunnar. Verð 23,7 m. SUÐURLAND Fokhelt raðhús í Hveragerði *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá tvö 186,6 fm parhús í byggingu við Hraunbæ 6-8 í Hveragerði. Íbúðin er 152,2 fm með þremur svefnherbergjum, stórri stofu og eldhúsi, baðherbergi og sérþvottahúsi. Stór og rúmgóður 34,4 fm bílskúr er sambyggður húsinu. Húsin afhendast fokheld vorið 2006. Verð 18,6 m. Fokhelt 150 fm raðhús á 14,3 milljónir! *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fjögur 150 fm raðhús á einni hæð í byggingu í nýju hverfi í Þorlákshöfn. Þarna er góður skóli, gróskumikið íþrótta- og tómstundastarf ásamt öflugri heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Húsin afhendast fokheld og er verðið frá 14,3 millj. Ath. allt að 8-10 milljónum lægra verð en á sambærilegum eignum á höfuðborgarsvæðinu en samt aðeins í 30 mínútna akstursfjarlægð! Afhending í desember 2005. Þrastarhöfði - 5 herb. íbúð Vorum að fá í sölu 129,2 fm 5 herbergja íbúð á jarðhæð í nýju fjölbýlishúsi sem nú er í bygginu ásamt bílstæði í bílakjallara. Íbúðin verður afhent fullbúin án gólfefna en gólf á baðherbergi og þvottahúsi verða flísalögð. Eikarskápar og -hurðir í íbúðinni. Íbúðin er til afhendingar í febrúar 2006. Verð 27,5 m. Víðiteigur - 90,4 fm endaraðhús Erum með mjög fallegt 90,2 fm endaraðhús á einni hæð með risi og sólskála. Húsið stendur innst í botnlanga, falleg aðkoma er að húsinu og góður sérgarður að sunnanverðu. Gott svefnherbergi, baðherbergi með kari, stofa og fallegt eldhús. Opið er inn í sólskála með kamínu og ófrágengið risloft gefur ýmis tækifæri. Falleg eign rétt við miðbæ Mosfellsbæjar, til afhendingar við kaupsamning. Verð 22,9 m. Merkjateigur - neðri sérðhæð. 86,1 fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi við Merkjateig í Mosfellsbæ. Stór stofa og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sérþvottahús og forstofa. Bílastæði fyrir framan íbúðina og gott aðgengi. Íbúðin getur verið laus til afhendingar strax. Verð 17,8 m. Klapparhlíð - 2ja herb. Erum með til sölu fallega 66,1 fm 2ja herbergja íbúð með geymslu á 2. hæð í nýlegu 3ja hæða fjölbýli. Gott svefnherbergi með mahónískáp, baðherbergi með sturtu, sérþvottahús og eldhús og stofa. Góðar suðvestursvalir og fallegt útsýni. Leikskóli og grunnskóli og væntanleg sundlaug í augsýn. Verð 14,8 m. Markholt - 3ja herb. Erum með 80,7 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í 2ja hæða fjölbýli rétt við miðbæ Mosfellsbæjar. Tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús með borðkrók, stofa og baðherbergi með sturtu. Íbúðinni fylgir sérafnotaréttur af lóð. Stutt í skóla og leikskóla. ***Verð 14,8 m.*** Byggingarlóðir í Teigahverfi Erum með byggingarlóð undir tvö einbýlsihús, hvort með heimild fyrir aukaíbúð, við Birkiteig í Mosfellsbæ. Lóðinni fylgir einnig 1.136 fm landskiki sem eftir er að skipuleggja. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Fasteignasölu Mosfellsbæjar. Egilsmói - 1 ha einbýlishúsa- lóð 1 hektara lóð undir stórt einbýlishús ásamt rétti til byggingar á hesthúsi og/eða gróðurhúsi. Lóðin er á grónu og skjólgóðu svæði framarlega í Mosfellsdsalnum. Samþykktar teikningar af mjög fallegu einbýlishúsi liggja fyrir eftir Hlédísi Sveinsdóttur arkitekt. Lóðin er ein af fáum lóðum í dalnum sem tilbúnar eru til byggingar. Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja hafa rúmt um sig og hobbýið. Lögbýlið Lundur Lögbýlið Lundur er tæplega 10 ha eignarlóð í miðjum Mosfellsdalnum. Á jörðinni er lítið einbýlishús og í kringum húsið er töluverð trjárækt. Jörðin liggur meðfram Þingvallarvegi að sunnaverðu. Mjög fallegur 9 holu golfvöllur liggur rétt við landið og Kaldakvísl er rétt við landamerkin að norðanverðu. Þetta er falleg staðsetning með mikla framtíðarmöguleika. Völuteigur - atvinnuhúsnæði TIL LEIGU. Vorum að fá til leigu 1.431 fm atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum við Völuteig. Rýmið er í dag fullbúið sem skrifstofur. Hægt er skipta rýminu niður í annarsvegar 585 fm skrifst. á einni hæð og hinsvegar 846 fm skrifst. á tveimur hæðum. Spennandi valkostur á hagstæðu verði. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði. Völuteigur - atvinnuhúsnæði Vorum að fá til sölu 1.487 fm atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum við Völuteig í Mosfellsbæ. Um er að ræða 1.008,7 fm atvinnurými á jarðhæð og 478,6 fm milligólf. Húsnæðið var innrétttað fyrir kjúklingaframleiðandann Reykjagarð og er þar m.a. stór frystiklefi, kæliklefar, lager og gott skrifstofurými. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði. Verð 90,0 m. Tröllateigur 141-150 fm íbúðir *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu fjórar 141-150 fm íbúðir í nýju fjórbýlishúsi í byggingu við Tröllateig 43 í Mosfellsbæ. Húsið er eitt síðustu húsanna í nýju hverfi sem er að rísa við miðbæ Mosfellsbæjar. Stutt er í alla þjónustu, skóla og íþróttasvæði. Íbúðirnar eru 3ja-5 herbergja og afhendast fullbúnar með innréttingum en án gólfefna, en þó verður baðherbergi og þvottahús flísalagt. Íbúðirnar verða afhentar í maí og júní 2006. Verð frá 27,9 m. Þrastarhöfði 1-3, nýjar 3ja og 4ra herb. íbúðir Erum með í sölu nokkrar 3ja og 4ra herbergja íbúðir ásamt bílageymslu í kjallara í 3ja hæða fjölbýlishúsi sem nú er í byggingu við Þrastarhöfða. Íbúðirnar eru frá 96-123 fm og afhendast fullbúnar án gólfefna næsta vor. Hér er um mjög góða staðsetningu að ræða, enda nýr skóli og leikskóli í næsta nágrenni og sundlaug á næsta leiti. Lómasalir - 4ra herb. - Kópavogi Erum með mjög fallega og bjarta 124,2 fm 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í 4ra hæða lyftuhúsi við Lómasali í Kópavogi. Þrjú mjög rúmgóð herbergi, björt stofa, eldhús með kirsuberjainnréttingu og borðkrók, baðherbergi með kari og sjónvarpshol. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Mjög fallegt útsýni er í vesturátt yfir Rjúpnahæð og út á Sundin. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. **Verð 26,9 m.** Gvendargeisli - 118 fm íbúð + bílakj. *NÝTT Á SKRÁ* Mjög glæsileg og björt 117,9 fm 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli með opnum stigagangi og bílastæði í bílakjallara. Í íbúðinni eru þrjú góð svefnherbergi, flísalagt baðherbergi, björt stofa og eldhús með fallegri innréttingu. Sérþvottahús og stór geymsla. Eikarparket og flísar á gólfum, hlynur í innréttingum og innihurðum. Stórar svalir með mjög fallegu útsýni til suðurs og austurs. Verð 28,7 m.  Akurholt - 233 fm einbýlishús *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu 233,4 fm einbýlishús á einni hæð, þar af 63,7 fm bílskúr, við Akurholt í Mosfellsbæ. Undir húsinu er útgrafinn kjallari með möguleika á ca 80 fm aukaíbúð. Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, stóra stofu með arni, eldhús með fallegri innréttingu og baðherbergi með hornbaðkari og sturtu. Alvöru bílskúr með gryfju og miklu geymsluplássi. Útgrafinn kjallari undir húsinu gefur marga möguleika. Verð 41,8 m. Ásland - 203,8 fm parhús *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í einkasölu mjög glæsilegt parhús, innst í botnlanga með glæsilegu útsýni. Húsið er á tveimur hæðum. Á jarðhæð er bílskúr, forstofa og 2ja herbergja íbúð en á efri hæðinni er stór stofa, eldhús, baðherbergi og 2-3 svefnherbergi. Stórt hellulagt bílaplan og timburverönd aðlöguð að náttúrugrjóti. Húsið stendur hátt í lóðinni og því er einstakt útsýni frá því. Verð 49,7 m. Furubyggð - 112 fm endaraðhús *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í 112,4 fm endaraðhús á mjög fallegum stað við Furubyggð í Mosfellsbæ. Í húsinu eru þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi með kari, sérþvottahús, mjög stór stofa/sólstofa og eldhús með borðkrók. Húsið stendur á fallegri og gróinni hornlóð í barnvænu umhverfi. Verð 28,5 m. Krókabyggð - 108 fm endraðhús *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá gott endaraðhús með tveimur svefnherbergjum, stórri stofu, eldhúsi með borðkrók, baðherbergi með kari og rislofti á góðum stað í Mosfellsbæ. Stór og afgirtur suðvesturgarður og hellulagt bílaplan fyrir framan húsið. Stórt risloft gefur möguleika á enn betri nýtingu. Verð 26,9 m. Árbakki - Sveit í borg Erum með í sölu 134,8 fm einbýlishús á mjög fallegri og gróinni 1.889 fm eignarlóð við Bjargsveg í Mosfellsbæ. Varmáin liðast meðfram lóðinni og sérlega fallegar gönguleiðir eru allt í kring. Mögulegt er að byggja við húsið bílskúr. Tilvalin eign fyrir náttúru- og dýraunnendur. Keyrt er inn Reykjaveg og til vinstri inn Bjargsveg. **Verð 32,9 m.** Krókabyggð - 108 fm endaraðhús Erum með 96 fm endaraðhús með 12 fm millilofti við Krókabyggð. Í íbúðinni eru þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi með kari, eldhús og rúmgóð stofa. Þetta er tilvalin eign fyrir þá sem vilja skapa sinn eigin stíl á íbúðina. **Verð 25,4 m.** Fálkahöfði - 3ja herb. + bílskúr *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu mjög fallega 103,8 fm endaíbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli í Fálkahöfða með mjög fallegu útsýni, ásamt 29,2 fm bílskúr. Stór og björt íbúð með eikarparketi og flísum á gólfum. Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Skóli og leikskóli í augsýn og sundlaug í byggingu. Verð 25,5 m. HVERNIG væri að skoða þann möguleika að kaupa útiljós inn á baðherbergi? Það er nefnilega hægt því þau eru vatnsheld. Útiljós og baðherbergi? ÖRTREFJAKLÚTAR eru fremur nýleg upp- finning (15–20 ára) sem nýta meðal annars rafmögnun til að safna ryki og skít. Ekki er þörf á að nota hreingerningarefni með þeim. Klútana má þvo eftir notkun. Klútarnir fást í byggingavörubúðum og í mörgum stórmörk- uðum. Þeir eru dýrari en aðrir klútar en þann kostnað færðu fljótt til baka með minni efna- notkun. Heilsusamlegri þrif
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.