Morgunblaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 6
6 F MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Opið mán.-fim. frá kl. 9-18, fös. frá kl. 9-17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson, Óskar Þór Hilmarsson Löggiltur fasteignasali Pétur Þ. Sigurðsson hrl. Sími 562 4250 Borgartún 31 105 Reykjavík Fax 562 4249 www.fjarfest.is fjarfest@fjarfest.is SJÁLAND - GARÐABÆR - NÝTT - Strandvegur 21-23 Nýjar og glæsilegar íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsum, með lyftu, sem standa sjávarmegin við Strandveginn og eru með frábæru útsýni. Íbúðirnar verða 99,9 til 134,8 fm, flestar með suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar tilbúnar án gólfefna, nema á baðherbergi og í þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum frá Brúnási. Stæði í bílageymslu, sem innangengt verður í úr húsinu, mun fylgja öllum íbúðunum. Öll sam- eignin, lóð og bílastæði fullfrágengin. Stutt í miðbæ Garðabæjar og Smáralind. Afhending er í janúar og apríl 2006. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar, Borgartúni 31 og www.fjarfest.is SJÁLAND - GARÐABÆR - NÝTT - Strandvegur 4-6 Nýjar og vandaðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðirnar eru 71,4 fm til 110,3 fm, með suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar tilbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum innréttingum og stærri íbúðin er með stæði í bílgeymslu, sem innangengt er úr húsinu. Minni íbúðin er tilbúin, sú stærri verður tilbúin í janúar 2006. Stutt í miðbæ Garðabæjar og í Smáralind. Byggingarað- ili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjár- festingar, Borgartúni 31 og www.fjarfest.is ÁLFKONUHVARF - ELLIÐAVATN - NÝTT Nýjar og glæsilegar 3ja-4ra herb. íbúðir í fjölbýlishúsi á þessum barnvæna stað. Um er að ræða 4ra hæða steinað fjölbýlishús með lyftu og sérinngangi af svalagangi. Íbúðirnar verða 97,7 til 127,7 fm með suðvestursvölum. Þær verða afhentar tilbúnar án gólfefna, nema á bað- herbergi og í þvottahúsi, en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum innréttingum frá GKS. Stæði í bílageymslu, sem innangengt verður í úr húsinu, mun fylgja flestum íbúðunum. Öll sameignin, lóð og bílastæði skilast fullfrágengin. Afhending er í mars 2006. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfest- ingar, Borgartúni 31 og www.fjarfest.is Einbýlishús Vogar - einbýli Til sölu glæsilegt fullbúið nýtt einbýlishús á einni hæð, 190 fm, með innbyggðum bílskúr. Húsið er stað- steypt, einangrað að utan og klætt báruáli og harðvið. Húsið verður afhent tilbúið án gólf- efna, nema á baðherbergi, í nóvember 2006. Frágengin lóð. Verð 29,5 millj. Parhús - Raðhús Ásgarður - raðhús Til sölu glæsilegt raðhús, 119,3 fm, á tveimur hæð- um auk 24,2 fm sérbyggðs bílskúrs. Á jarð- hæð er anddyri, gestasnyrting, hol, eldhús og tvær samliggjandi stofur. Á efri hæð eru 3 svefnherbergi og nýstandsett baðherbergi. Í kjallara er geymsla og þvottahús. Gólfefni eru parket og flísar, fallegar innréttingar. Húsið er í góðu ástandi, gluggapóstar nýlegir og þak var málað fyrir tveimur árum. Lóð að framan- verðu var öll tekin í gegn fyrir tveimur árum. Verð 29,9 millj. Bjarkarás - Garðabæ Til sölu mjög glæsilegt parhús með innbyggðum bíl- skúr, samtals 185,4 fm, auk sjónvarpsher- bergis í risi sem er með frábæru útsýni. Gólf- efni eru flísar og parket. Sérsmíðaðar innrétt- ingar eru í húsinu. Arinn er í stofu. Sérher- bergi með svefnlofti inn af bílskúr. Lóðin, sem er fullfrágengin, var hönnuð af lands- lagsarkitekt. Stór verönd með skjólveggjum. Verð 47,5 millj. 2ja-3ja herbergja íbúðir Strandvegur - 3ja herb. Til sölu sérlega falleg,vönduð og fullbúin 3ja herb. íbúð á 1. hæð, 106 fm, auk stæðis í bílageymslu. Allar innréttingar eru úr eik, vönduð eldhústæki frá AEG, burstað stál, uppþv.vél og ísskápur. Þvottahús með flísum á gólfi, þvottavél og þurrkari. Á gólfum er dökkur náttúrusteinn og eikarparket. Öll lýs- ing er frágengin. Úr stofu er gengið út á stóra suðurverönd. Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning. Verð 33,5 millj. Katrínarlind - 3ja herb. Til sölu glæsileg 3ja herbergja íbúð, 95,7 fm, á 3. hæð í nýju lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Vandaðar eikarinnréttingar, skápar ná upp í loft. AEG eldhústæki, burstað stál. Flísalagt baðherbergi, gólf og veggir, sturtubaðker og innrétting. Gengið úr stofu út á suðursvalir. Húsið 4ra hæða álklætt fjöl- býlishús með lyftu, byggt af Byggingarfél. Gylfa og Gunnars. Öll sameign og lóð er frá- gengin og er til fyrirmyndar. Verð 26,8 millj. Skaftahlíð - 3ja herb. Til sölu góð og vel skipulögð 89,9 fm, 3ja herbergja íbúð í lítið niðurgröfnum kjallara. Parket er á gólfum. Nýlega standsett baðherbergi með glugga og sturtuklefa. Eldhús innrétting og fataskápar af eldri gerð. Húsið er mjög gott og verið í reglulegu viðhaldi. Verð 18,9 millj. Austurströnd - 3ja herb. Til sölu stór og rúmgóð 3ja herbergja íbúð, 137,6 fm, með sérinngangi og stæði í bíla- geymslu. Íbúðin er mjög opin og með norður útsýni. Á gólfum í anddyri, stofu og herbergi er álímt merbau parket. Rúmgott eldhús með ágætri innréttingu. Vönduð tæki, gaseldavél, háfur og ofn, allt úr stáli. Stórt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðker og tengi fyrir þvottavél. Hjónaherbergi með fata- herbergi innaf. verð 25.9 millj. Rjúpnasalir - 3ja herb. Til sölu glæsileg og vel skipulögð 94 fm ný íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Innréttingar eru sérsmíð- aðar úr birki. Fallegt eikarparket á öllum gólf- um nema baðherb. og þvottaherbergi. Stórar flísalagðar suðursvalir. Upphengt salerni, handklæðaofn og fallegar flísar í baðher- bergi. Verð 22,9 millj 4ra herbergja íbúðir Spóahólar - 4ra herb. Til sölu góð 4ra herb. íbúð á 2. hæð, 93,7 fm, auk 19,2 fm innbyggðs bílskúrs. Gólfefni eru parket og flísar. Vel viðhaldin eldhúsinnrétt- ing. Rúmgott baðherbergi, standsett með baðkeri, flísar á gólfi og veggjum. Útgangur er úr stofu á suðvestursvalir. Þvottaherbergi er inn af eldhúsi. Sérgeymsla er á 1. hæð auk þurrkherbergis og sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Húsið sjálft í góðu ástandi. Verð 20,5 millj Kristnibraut - hæð Glæsileg 4ra herb. íbúð, 129,8 fm, ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er á efstu hæð í litlu fjöl- býlishúsi og er með miklu útsýni út yfir Faxa- flóann, upp á Skaga og til Esjunnar. Íbúðin er sérlega falleg, sérsmíðaðar eikarinnrétting- ar, gólfefni parket og flísar, á eldhúsgólfi eru náttúruflísar. Sérgeymsla er í kjallara. Að ut- an er húsið klætt marmarasalla. Öll sam- eign og lóð er fullkláruð og til fyrirmyndar. Húsið er nýtt, byggt af Byggingafélagi Gylfa & Gunnars. Verð 33,8 millj. Laufvangur - 4ra herb. Til sölu falleg og vel skipulögð 4ra herb., 113,2 fm íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Á gólfum í stofu, holi, gangi og herbergjum er fallegt álímt merabau parket. Korkflísar eru á eld- húsi. Baðherbergi með glugga, baðkeri, flísar á baðgólfi og upp á miðja veggi. Stórar suð- vestursvalir. Sérgeymsla í kjallara. Húsið hef- ur verið í reglulegu viðhaldi. Verð 17,9 millj. Norðurás - 4ra herb. Til sölu mjög góð 4ra herb. íbúð á 2. hæð í vel við- höldnu fjölbýlishúsi. Íbúðin er 121,1 fm og að auki er 26,1 fm innbyggður bílskúr sem innangengt er í úr húsinu. Baðherbergi með baðkeri og sturtuklefa. Stofa er með mikilli lofthæð. Stórt herbergi er á efri hæð sem er í dag notað sem vinnustofa og bókaherbergi, geymslupláss er undir súð. Húsið er nýmál- að og allt í góðu ástandi, hitalagnir eru í úti- tröppum og stéttum næst húsi. Frábært út- sýni. Norðlingaholt - 4ra herb. Til sölu fullbúin án gólfefna, ný, 114,5 fm, 4ra herbergja íbúð með sérinngangi ásamt stæði í bílageymslu. Vandaðar innréttingar eru í eldhúsi sem ná upp í loft, granít borðplata og vönduð eldhústæki. Baðherbergi er flísalagt, með baðkeri og góðri innréttingu. Mynddyra- sími er í íbúðinni. Atvinnuhúsnæði til sölu Grandavegur - Vesturbær Til sölu í vesturbæ Reykjavíkur atvinnuhús- næði sem skipt er niður í tvær einingar. Hús- næðið hefur verið notað fyrir verslun og víd- eóleigu, heilsurækt og snyrtistofu. Húsnæðið er fullinnréttað. Engjateigur - veitingastaður Til sölu bjartur og rúmgóður veitingastaður, 187,9 fm með búnaði, á jarðhæð í Listhús- inu, Engjateig 17 - 19. Einnig er tilheyrandi geymsla, 26,1 fm, í kjallara. Vogar - Vatnsleysuströnd NÝTT 2 ÍBÚÐIR ÓSELDAR Til sölu við Heiðargerði tvær 4ra herbergja íbúðir með sérinngangi. Um er að ræða 3ja hæða steinsteypt hús, einangrað og álklætt að ut- an. Íbúðirnar verða afhentar tilbúnar án gólf- efna nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúðirnar verða með vönd- uðum innréttingum. Íbúðirnar verða með sér- þvottahúsi og geymslu. Öll sameign frágeng- in og einnig lóð. Teikningar og nánari upp- lýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar NÝTT Í SÖLU - VOGAR Á VATNSLEYSUSTRÖND MIÐDALUR - RAÐHÚS Til sölu raðhús á einni hæð með innbyggð- um bílskúr. Húsin skilast fullfrágengin án gólfefna nema baðgólf verður flísalagt. Lóðir verða tyrfðar en án trjágróðurs, girðinga og sólpalla. Á stígum og bílastæðum verður möl. Tilbúið til afhendingar í nóvember 2006. Glæsileg hús á góðu verði. Byggingaraðili er Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölu- mönnum Fjárfestingar. VANTAR EIGNIR - MIKIL SALA Seljendur hafið samband við sölumenn fjarfest@fjarfest.is • www.fjarfest.is • AÐ EIN S T VÆ R E FTI R AÐ EIN S T VÆ R E FTI R MEÐAL algengra orkufrekra tækja á heimilum eru þvottavélar og þurrk- arar. Hér eru nokkur ráð til þeirra sem vilja nýta orkuna betur. – Prófaðu að þvo við lægra hitastig og á styttra þvottakerfi en venjulega. – Notaðu ekki forþvottakerfi nema nauðsyn beri til. Þannig má spara 20% af rafmagninu, auk vatns og þvottaefnis. – Settu eins mikið tau í þvottavélina og hún er gerð fyrir, þó án þess að of- hlaða. – Settu mátulega mikið í þurrkarann, of mikið í einu tekur langan tíma og eyðir því meira rafmagni. – Forðist ofþurrkun því tauið verður krumpað og þá þarf að stinga strau- járninu í samband. Sparið rafmagnið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.