Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
!"#!#
$% &%
' %
!"
#
$
#"
%&
'
(
)* +,
$
#"
% -,
%% .
/
(
! 0 1
2+
$3
4
'
5
6
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, hefur beint
þeim tilmælum til stjórnar og for-
stjóra Byggðastofnunar, að lánastarf-
semi verði hafin á nýjan leik, þrátt
fyrir að hlutfall eigin fjár stofnunar-
innar sé komið niður fyrir þau 8%
sem áskilin eru í lögum um fjármála-
fyrirtæki. Stofnuninni verður hins
vegar ekki lagt til nýtt fé á þessari
stundu en vinna á að sameiningu at-
vinnuþróunarstarfsemi sem heyrir
undir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
og hefja viðræður við banka og aðrar
fjármálastofnanir um nýjar fjár-
mögnunarleiðir.
Fjárhagsvandi Byggðastofnunar
var til umfjöllunar á ríkisstjórnar-
fundi í gær en starfshópur sem iðn-
aðarráðherra fól að fjalla um vanda
stofnunarinnar skilaði ráðherra til-
lögum sínum í fyrradag.
Störfum á Sauðárkróki
verði ekki fækkað
Ákveðið var á fundi ríkisstjórnar-
innar að tillögu iðnaðarráðherra að
ráðherra hefjist þegar handa við und-
irbúning að því að sameina at-
vinnuþróunarstarfsemi sem heyrir
undir iðnaðarráðuneytið, þróaðar
verði nýjar fjármögnunarleiðir m.a. í
samstarfi við banka og önnur fjár-
málafyrirtæki. Þá var ákveðið að
störfum á Sauðárkróki verði ekki
fækkað og atvinnuþróunarstarfsemi á
Ísafirði, Egilsstöðum og Akureyri
verði efld.
„Við teljum þá starfsemi sem þarna
er það mikilvæga að það sé ekki rétt
að hún sé stöðvuð núna, á meðan þessi
vinna fer fram, vegna þess að hún tek-
ur einhverja mánuði,“ sagði Valgerð-
ur á fréttamannafundi í gær.
Hefur ráðherra haft samband við
Fjármálaeftirlitið vegna áframhald-
andi lánveitinga Byggðastofnunar.
Benti Valgerður á að áframhaldandi
lánastarfsemi stangaðist ekki á við
lög þó eiginfjárhlutfallið væri komið
undir þau mörk sem Fjármálaeftirlit-
ið setur. Að sögn Valgerðar liggur
ekkert fyrir um það í dag hvort lána-
starfsemi verður haldið áfram hjá
Byggðastofnun eftir að breytingarn-
ar eru um garð gengnar. „Það er
möguleiki, eins og kemur fram hjá
starfshópnum, að það verði um það að
ræða að stofnunin, hvað sem hún
kemur til með að heita, veiti ábyrgðir
vegna lána, sem þá hugsanlega væru
veitt af hálfu bankanna,“ sagði hún.
Starfshópur ráðherra komst m.a.
að þeirri niðurstöðu að starfsemi
Byggðastofnunar gæti ekki haldið
áfram nema umtalsverðum fjárskuld-
bindingum verði létt af stofnuninni.
Valgerður sagði á fundinum, að það
myndi kosta nokkur hundruð milljón-
ir króna, að koma eigin fé stofnunar-
innar upp fyrir tilskilin mörk.
Starfshópur ráðherra lagði m.a.
áherslu á að til skemmri tíma, á með-
an ekki komi frekari athugasemdir
frá Fjármálaeftirlitinu, haldi lána-
starfsemi Byggðastofnunar áfram
með hefðbundnum hætti. Jafnframt
verði unnið að ráðstöfunum í lengri
tíma. „Þá [verði] m.a. skoðað hvort til
greina komi afskriftir skulda eða bein
framlög ríkisins til styrktar stofnun-
inni. Samhliða þessu þarf að gera
grundvallarbreytingar á fjármögnun-
arstarfsemi Byggðastofnunar þannig
að hún standi undir þeim rekstri án
fjárstuðnings ríkisins. Þróuð verði
fjármögnunartæki og vinnubrögð
sem miða að því að efla samstarf við
fjármálafyrirtæki með því markmiði
að auðvelda fjármögnun atvinnustarf-
semi á landsbyggðinni. Í þessu sam-
bandi koma ýmsar aðferðir til greina,
t.d. ábyrgðir,“ segir í tilkynningu um
tillögur hópsins.
Efla þarf faglega hæfni
Einnig er lögð áhersla á að stuðlað
verði að auknum árangri á sviði
byggðamála með skýrri stefnumótun
stjórnvalda, ásamt bættri og skýrari
forgangsröðun verkefna. „Nauðsyn-
legt er að efla og þróa faglega hæfni,
einfalda stjórnun og skýra ábyrgð í
rekstri Byggðastofnunar. Samstarf
við atvinnuþróunarfélögin og aðra að-
ila sem vinna að atvinnuþróun og ný-
sköpun verði eflt. Nýta þarf vaxta-
samninga sem tæki til að efla
samstarf á þessu sviði.
Sérstaklega verði hugað að frekari
samhæfingu eða samþættingu starf-
semi Byggðastofnunar, Impru, Iðn-
tæknistofnunar, Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins, vaxtarsamninga og
annarrar atvinnuþróunarstarfsemi á
vegum iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neyta með það að markmiði að
tryggja sterka stöðu og sýnileika
byggðamála í þeirri starfsemi sem
ætlað er að stuðla að atvinnuþróun og
nýsköpun.“ Fram kom í máli Valgerð-
ar í gær að viðskiptabankar væru
farnir að sinna landsbyggðinni meira
en áður. ,,Þess vegna hefur verið þó
nokkuð mikið um uppgreiðslur á lán-
um hjá Byggðastofnun en heildarútl-
án á síðasta ári voru um tíu milljarðar
króna,“ sagði ráðherrann.
„Við erum ekki að setja nýtt fé inn í
stofnunina núna. Við erum hins vegar
að fara í þessa vinnu sem varðar
framtíðaratvinnuþróun í landinu og
ætlum okkur skamman tíma til að
komast að niðurstöðu um hvort það
gengur eftir að sameina þessar stofn-
anir [...] eða einhverjar þeirra a.m.k.
en það verður tíminn að leiða betur í
ljós. Ég vil líta á þetta sem tækifæri,
ekki síst fyrir landsbyggðina, vegna
þess að stoðkerfi atvinnulífsins er
ekki nægilega sterkt í dag.“
Byggðastofnun gert að hefja aftur lánveitingar til skemmri tíma
Viðræður við banka um
nýjar fjármögnunarleiðir
Morgunblaðið/Ásdís
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og Páll Magnússon aðstoð-
armaður ráðherra kynna ákvarðanir vegna vanda Byggðastofnunar.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
BYGGÐASTOFNUN mun nú á nýjan leik hefjast handa við afgreiðslu láns-
beiðna, að sögn Aðalsteins Þorsteinssonar, forstjóra stofnunarinnar. Fram
hefur komið að um 20 erindi bíða afgreiðslu hjá stofnuninni.
„Sú vinna sem ráðherrann er að leggja drög að mun trúlega taka allan vet-
urinn. Ég held að stefnt sé að því að koma þessu fram á vorþinginu. Í millitíð-
inni er stofnuninni ætlað að halda áfram eins og verið hefur,“ segir hann.
Aðalsteinn segist lengi hafa verið þeirrar skoðunar að ástæða sé til að
horfa á stoðkerfi atvinnulífsins í samhengi. 21 starfsmaður er nú hjá Byggða-
stofnun á Sauðárkróki. Aðalsteinn segir starfsmenn fagna því að gengið er
út frá því að starfsmönnum verði ekki fækkað.
Halda áfram að afgreiða
EIN hinna meintu CIA-flugvéla
sem millilenti á Keflavíkurflug-
velli í þessum mánuði var á leið
frá Aserbaídsjan. Þetta kom
fram hjá tyrkneska samgöngu-
ráðherranum þegar hann var
spurður um hvers vegna vélin
hefði lent á flugvelli við Istanbúl.
Umrædd flugvél er með kall-
merkið N505LL og er af gerð-
inni DeHavilland DHC-8.
Að sögn tyrkneska samgöngu-
ráðherrans lenti vélin á Sabiha
Gokcen flugvelli við Istanbúl „af
tæknilegum orsökum“ 15. nóv-
ember á leið frá Bakú, höfuðborg
Aserbaidsjan. Ráðherrann sagði
að enginn farþegi hefði verið um
borð. Flugvélin lagði af stað til
Amsterdam daginn eftir og fjöll-
uðu hollenskir fjölmiðlar töluvert
um komu hennar þangað. Vélin
lenti síðan á Keflavíkurflugvelli
18. nóvember og þaðan hélt hún
áfram til Iqaluit í Kanada. Flug-
vélin N505LL er skráð í eigu
Path Corporation sem New York
Times hefur sagt að sé leppfyr-
irtæki CIA og um það hefur ver-
ið fjallað í tengslum við ólöglegt
fangaflug bandarísku leyniþjón-
ustunnar.
Meint flugvél CIA sem lenti á Keflavík-
urflugvelli fyrir um tveimur vikum
Millilenti á leiðinni
frá Aserbaídsjan
!
"
HLUTHAFAFUNDUR Loðnu-
vinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði
samþykkti í gær að hækka hlutafé
félagsins um rúmar 19,5 milljónir
að nafnverði og er það gert í
framhaldi af kaupum Loðnuvinnsl-
unnar á kvóta í loðnu, karfa og
þorski nú í haust. Á fundinum
voru mættir hluthafar sem ráða
samtals yfir um 90% hlutafjár í
Loðnuvinnslunni.
Verður nýja hlutaféð selt á
genginu 3,8 og mun kaupverð því
nema samtals rúmum 74 millj-
ónum króna. Hafa hluthafar fallið
frá forkaupsrétti á hinu nýja
hlutafé.
Hlutafé í félaginu verður 700
milljónir að nafnvirði eftir útgáfu
hins nýja hlutafjár. Að því er kem-
ur fram í tilkynningu frá félaginu
hefur Loðnuvinnslan nú yfir að
ráða 5.164 þorskígildistonnum í ís-
lenskri landhelgi og er auk þess
með 4,83% aflahlutdeild í kol-
munna.
Loðnuvinnslan
hf. eykur hlutafé
MAÐURINN sem ekið var á við
Miklubraut aðfaranótt sunnudags
hefur verið í stöðugu ástandi þar
sem hann hefur legið í öndunarvél
á gjörgæsludeild Landspítalans.
Hann átti að gangast undir aðgerð í
gær.
Þá er drengurinn sem brenndist í
Grafavogi ásamt félaga sínum 20.
nóvember, þegar þeir voru að
handleika eldfiman vökva sem
kviknaði í, á hægum batavegi.
Hann er þó enn tengdur við önd-
unarvél.
Enn á gjörgæslu
eftir slys
RJÚPNASKYTTA fékk skot í
hönd þar sem hún var á veiðum í
Svínadal fyrir ofan Reyðarfjörð í
gær. Tildrögin voru þau að skytt-
an féll í hálku og við það hljóp
skot úr byssunni og lenti í hend-
inni á eins metra færi. Björg-
unarsveitin Ársól á Reyðarfirði
var kölluð út og var aðeins 6
mínútur að koma manninum til
hjálpar frá því að útkallsbeiðni
barst.
Þegar honum hafði verið veitt
fyrsta aðhlynning var hann flutt-
ur í sjúkrabíl og ekið út á flug-
völlinn á Egilsstöðum þar sem
hann var fluttur með sjúkraflugi
til Reykjavíkur undir kvöldið.
Að sögn læknis töldust meiðsli
mannsins vera nokkuð alvarleg
og átti hann að fara í aðgerð í
gær.
Rjúpnaskytta
fékk skot í hönd
SMYRIL-Line, sem rekur ferjuna
Norrænu, hefur ákveðið að lengja
sumaráætlunina 2006 um tvo mán-
uði. Hefst hún 4. mars nk. og
stendur til 14. október. Frá þessu
er greint í norskum fjölmiðlum.
Ferjan siglir sem kunnugt er
milli Íslands, Færeyja, Hjaltlands,
Danmerkur og Noregs. Í mars nk.
verður hægt að kaupa farmiða
milli Noregs og Íslands á rúmar
10 þúsund krónur. Er þá bílgjaldið
innifalið. Farmiði frá Noregi til
Færeyja mun kosta rúmar 5 þús-
und krónur.
Norræna lengir
sumaráætlun sína
RÚMLEGA 350 manns eru með
diplómatísk vegabréf og rúmlega
110 til viðbótar eru með svonefnd
þjónustuvegabréf.
Þetta kemur fram í svari utanrík-
isráðherra við fyrirspurn Marðar
Árnasonar, alþingismanns, um
diplómatísk vegabréf og þjón-
ustuvegabréf, sem lagt var fram á
Alþingi í gær.
Diplómatísk
vegabréf