Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Torskilið samband og asnaleg atburða-
rás kemur við sögu. Hrúturinn tiplar á
tánum en er tilbúinn fyrir hvað sem er;
hnyttni, varnarstöðu, skilning, rausn-
arskap eða hvaðeina sem nauðsynlegt
er svo að allt gangi upp.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Flestir vita ekki hvað amar að. En þú
veist hvað á bjátar og ert þar af leið-
andi á góðri leið með að leysa það. Til-
tekin spurning sem þú berð upp í heyr-
anda hljóði hjálpar þér til að rata rétta
leið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Óheppileg tengsl leiða tvíburann í villur
en heppileg vísa honum veginn. Að
þekkja muninn á þessu tvennu hjálpar
honum að taka framförum. Hafðu sam-
band við einhvern sem er til í að fylgja
þér á sameiginlegri vegferð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nýttu þér styrkleika þína. Kannski
ertu búinn að gleyma hverjir þeir eru.
Góðir vinir og samstarfsmenn minna
krabbann á þá ef hann spyr. Horfðu í
spegilinn og spurðu: Í hverju er ég
bestur?
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Kannski hefur ljónið ekkert fínt tilefni
til að halda upp á, ekkert spennandi til
að hlakka til, en dagurinn í dag er fal-
legur samt sem áður. Njóttu hverrar
töfrandi mínútu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þvílík stilling. Þvílíkur þokki. Þvílík
gæska og mannvinátta. Fólk hrósar þér
stöðugt (að höfundi stjörnuspárinnar
undanskildum) en samt er meyjan van-
metin. Taktu það rólega í bili.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Að hugsa of mikið um aðstæður sínar
skilar venjulega árangri í öfugu hlut-
falli. En í dag er það lykillinn að vel-
gengni, það er að segja ef þú punktar
hjá þér. Ef þú fínstillir aðeins ertu
hugsanlega kominn með prýðis við-
skiptaáætlun.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Að endurskapa sjálfan sig er vissulega
gaman, en ennþá skemmtilegra að spá í
hverja maður laðar að sér með breyttu
framferði. Þér kemur ekki sérstaklega
vel saman við ótilgreint ljón, en gleðst
yfir nærveru þess.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Að kveðjast felur ekki endilega í sér
endalok. Lokaðu dyrunum að tilteknum
aðstæðum í fortíðinni og finndu hvernig
frelsið og krafturinn hríslast um þig.
Bogmaðurinn fær frábært tilboð áður
en sólin sest.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Afbrýði og öfund leiða þér fyrir sjónir
hvað þú vilt fá út úr lífinu. Ef þú bregst
tilfinningalega við fréttum sem vinur
þinn færir þér skaltu gaumgæfa þýð-
ingu þeirra. Hvað merkir hnúturinn í
maganum?
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Peningar eru ekki leiðin til þess að
gera drauma þína að veruleika en
hjálpa svo sannarlega til. Ef félagar
þínir hagnast hagnast þú líka. Ein-
beittu þér að verkefni sem kemur öllum
til góða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ein stærð passar sko alls ekki öllum.
Það sem þú þarft er alls ekki það sama
og kollegarnir, systkini eða ástvinir
þurfa á að halda. Láttu vita hvað þér
finnst, þeir munu aldrei geta upp á því.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Nýtt tungl er innan seil-
ingar og síðasti dagur
mánaðarins er runninn
upp. Hugmyndir okkar um næstu skref
trekkjast í kollinum. Gerum ekki áætl-
anir, höldum frekar okkar striki í at-
höfnum hversdagsins. Næsti kafli lífsins
er dreginn upp á meðan maður sópar
gólfið.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 lofa, 4 ífæru, 7
voru í vafa um, 8 hjól-
gjörð, 9 fótaferð, 11
nöldra, 13 kólna, 14
streyma, 15 þægileg við-
ureignar, 17 blíð, 20 við-
arklæðning, 22 erfingjar,
23 ástæða, 24 ögn, 25 bik.
Lóðrétt | 1 prentað mál, 2
óhóf, 3 sýll, 4 stafn, 5
borguðu, 6 fiskur, 10
ódámur, 12 kraftur, 13
frostskemmd, 15 karp, 16
kjáni, 18 leika illa, 19
segl, 20 þroska, 21 tauga-
áfall.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kunngerir, 8 játti, 9 rýjan, 10 tíð, 11 rimma, 13
innan, 15 skarf, 18 hrönn, 21 jór, 22 padda, 23 elgur, 24
hillingar.
Lóðrétt: 2 urtum, 3 neita, 4 eirði, 5 iðjan, 6 þjór, 7 unun,
12 mar, 14 nár, 15 súpa, 16 aldni, 17 fjall, 18 hrein, 19
öngla, 20 nýra.
Tónlist
Listaháskóli Íslands | Jólatónleikar Tónlist-
ardeildar í Skemmtihúsinu, Laufásvegi 22,
kl. 20. Páll Palomares, fiðla, Gerrit Schuil, pí-
anó, Guðný Þóra Guðmundsdóttir, fiðla, Þor-
valdur Þorvaldsson, bassi og Selma Guð-
mundsdóttir, píanó.
Stúdentakjallarinn | Mood heldur tónleika
kl. 22. Heimasíða Mood: www.mood.is.
Norræna húsið | Háskólatónleikar. Árni
Heimir Ingólfsson, Berglind María Tóm-
asdóttir og Hallveig Rúnarsdóttir. Kl. 12.30.
Grafarvogskirkja | Styrktartónleikar BUGL.
Kl. 20.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Bjargar Þorsteinsdóttur, myndlistarmanns.
Á sýningunni eru vatnslitamyndir sem Björg
hefur unnið að sl. 3 ár. Í Artóteki er íslensk
myndlist til leigu og sölu. Sjá á
http:www.artotek.is. Sýningin stendur til
áramóta.
Aurum | Davíð Örn Halldórsson sýnir mynd-
ir unnar með iðnaðarmálningu á trefjaplötur.
Myndirnar bera nöfnin gonzales og trúlof-
un–ara.
Byggðasafn Árnesinga | Á Washington-eyju
og Grasjurtir. Til nóvemberloka.
Café Babalu | Claudia Mrugowski – „Even if
tomorrow is not granted, I plant my tree" á
Skólavörðustíg 22a. (www.mobileart.de).
Café Karólína | Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
sýnir til 2. des.
Energia | Kolbrún Róberts. Allt fram
streymir. 13 abstrakt olíumálverk. Út nóv-
embermánuð.
Galíleó | REYKJALÍN heldur sýningu á veit-
ingastaðnum Galileó, Hafnarstræti 1–3,
Reykjavík. Á sýningunni eru 25 verk, kola-
teikningar og olíuverk. Sýningin stendur til 1.
des.
Gallerí BOX | Jón Sæmundur Auðarson
sýnir. Til 18. desember. Opið fim.–lau. frá 14–
17.
Gallerí I8 | Þór Vigfússon sýnir til 23. des-
ember.
Gallerí Lind | Ólöf Björg Björnsdóttir er
listamaður nóvembermánaðar.
Gallerí List | Elisa Nielsen sýnir málverk til
2. des.
Gallery Turpentine | Sigtryggur Bjarni
Baldvinsson sýnir til 6. des.
Gerðuberg | Eggert Magnússon sýnir til 9.
jan.
Grafíksafn Íslands | Bjarni Björgvinsson
sýnir til 4. desember.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. janúar.
Hafnarborg | Jón Laxdal til 31. desember.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir
og Margrét Jónsdóttir, til febrúarloka.
Hrafnista, Hafnarfirði | Guðfinna Eugenía
Magnúsdóttir sýnir í Menningarsalnum, 1.
hæð, til 6. des.
Jónas Viðar Gallerí | Þórarinn Blöndal til 4.
des.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýninguna
"Týnda fiðrildið" til loka apríl 2006. sjá:
www.oligjohannsson.com.
Kling og Bang gallerí | Örn J. Auðarson –
Miðgarður – Blárauður – Afgirtur reitur. Opið
fim–sun. kl. 14–18. Til 4. des.
Listasafn ASÍ | Magnús V. Guðlaugsson og
Örn Þorsteinsson sýna til 4. des. Opið kl. 13–
17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafnið á Akureyri | Helgi Þorgils Frið-
jónsson til 23. desember.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13 ísl.
samtímalistamanna. Til 12. febrúar 2006.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tími
Romanov-ættarinnar. Til 4. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Húbert Nói, til
4. des.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guðrún
Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til 23.
apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jó-
hannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæð-
ingu málarans. Til 19. mars.
Listasmiðjan Þórsmörk, Neskaupstað | 10
listakonur frá Neskaupstað sýna á Egillstað-
arflugvelli. Til jan.
Listhús Ófeigs | Dýrfinna Torfadóttir, Rósa
Helgadóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir til árs-
loka.
Norræna húsið | Ósýnileiki: Jonas Wilén,
Henrika Lax og Annukka Turakka, til 18. des.
Nýlistasafnið | Snorri Ásmundsson til 19.
desember.
Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir –
Gegga. Málverkasýning sem stendur til ára-
móta.
Safn | Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Kristinn
E. Hrafnsson – „Stöðug óvissa", Jón Laxdal
– „Tilraun um mann". Opið: miðvikud.–
föstud. 14–18, laugard.–sunnud. 14–17. Til 11.
des.
Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – "Postcards
to Iceland". Opið mánud.–föstud. 13–16, sun-
nud. 15–18.
Suðsuðvestur | Þóra Sigurðardóttir og
Anne Thorseth til 11. des.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson til
áramóta.
Þjóðmenningarhúsið | Í veitingastofu, Mat-
ur og menning, sýnir Hjörtur Hjartarson (f.
1961) málverk.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson.
Leiklist
Loftkastalinn | Stúdentaleikhúsið sýnir
Blóðberg eftir P.T. Andersson í Loftkast-
alanum kl. 20. Agnar Jón Egilsson sér um
leikstjórn og leikgerð. Blóðberg fjallar um
hvernig líf ólíkra einstaklinga tvinnast sam-
an og hvernig örlögin og tilviljanir vefja flétt-
ur sem við öll erum þræðir í.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga nema mánudaga í
vetur frá kl. 10–17. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning og gönguleiðir. www.gljufra-
steinn.is.
Safnahúsið á Egilsstöðum | Sýningin "Við
Heiðar- og Fjallamenn". Myndir, skjöl og
fleira frá Möðrudal og nokkrum bæjum í
Jökuldalsheiði.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið, ís-
lenskt bókband. Hægt er að panta leiðsögn
fyrir hópa. Veitingastofan Matur og menn-
ing býður alhliða hádegis– og kaffimatseðil.
Skemmtanir
Norræna félagið | Jólakvöld Nordklúbbsins.
Hægt verður að búa til jólakort, dreypa á
jólaglögg, útbúa jólaskraut eða hlusta á nor-
ræna jólatónlist og borða piparkökur.
Félagsstarf SÁÁ | Félagsvist og dans verð-
ur í Ásgarði, Stangarhyl 4 (hús eldri borg-
ara) 3. desember og hefst kl. 20. Að lokinni
spilamennsku verða veitt verðlaun og síðan
dansað fram eftir nóttu. Jóhann Larsen
leikur fyrir dansi.
Fréttir
Félag fagfólks um hópmeðferð | Stofn-
fundur verður haldinn miðvikudaginn 30.
nóv. í Norræna húsinu kl. 20–21.30. Markmið
félagsins verður m.a. að vinna að framgangi
hópmeðferðar á Íslandi. Félagið er ætlað
öllu því fagfólki sem stundar hópmeðferð,
eða hefur áhuga á hópmeðferð, óháð að-
ferðafræði, kenningum eða stefnum. Und-
irbúningshópurinn.
Fjölskylduhjálp Íslands | Tökum á móti
matvælum, fatnaði og leikföngum alla mið-
vikudaga kl. 13–17. Úthlutun matvæla er
sömu daga kl. 15–17 að Eskihlíð 2– 4, v/
Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjár-
hagslega, vinsamlegast leggið inn á reikning
101–26–66090 kt. 660903–2590.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar–
og fataúthlutun kl. 14–17. Sími 551 4349,
netfang maedur@simnet.is.