Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Einar Oddsson,fyrrverandi
sýslumaður í Vík í
Mýrdal, fæddist í
Flatatungu í Skaga-
firði 20. apríl 1931.
Hann var fyrsta
barn hjónanna Sig-
ríðar Gunnarsdótt-
ur frá Keflavík í
Hegranesi, f. 5.4.
1899, d. 18.3. 1989,
og Odds Einarsson-
ar, bónda í Flata-
tungu, f. 26.1. 1904,
d. 26.4. 1979. Einar
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
17. nóvember sl. Systkini hans
eru: 1) Sigurlaug ljósmóðir, f.
27.9. 1932, hún á dótturina Sigríði
Aðalheiði Pálmadóttur, f. 1956,
hjúkrunarforstjóri. 2) Gunnar,
bóndi í Flatatungu, f. 11.3. 1934.
Kona hans er Helga Árnadóttir
frá Akranesi, f. 12.9. 1944. Börn
þeirra: Einar bóndi í Flatatungu,
f. 1966, Árni, framkvstj. á Sauð-
árkróki, f. 1967, Kári, kennari,
Varmahlíð, f. 1968, og Sigríður
cand. theol. Sauðárkróki, f. 1975.
3) Sesselía Guðrún, nuddfræðing-
ur, f. 21.8. 1939, maki hennar er
Knútur Ólafsson, bókari, f. 19.11.
1936. Börn þeirra: Oddur, raf-
framhaldsnám naut hann kennslu
Eiríks Kristinssonar heima í
Flatatungu. Síðasta veturinn var
hann í Menntaskólanum á Akur-
eyri og lauk stúdentsprófi þaðan
1953. Hann innritaðist haustið eft-
ir í lagadeild Háskóla Íslands,
lauk embættisprófi í maí 1959 og
fékk hdl.-réttindi 1962. Eftir emb-
ættispróf var Einar fulltrúi hjá
Útflutningssjóði, síðar fulltrúi hjá
Sýslumanninum á Ísafirði, þá
fulltrúi hjá Borgardómara í
Reykjavík þar til hann var skip-
aður sýslumaður í Skaftafells-
sýslum í feb. 1963 með aðsetur í
Vík í Mýrdal. Þegar Austur-
Skaftafellssýsla var gerð að sér-
stöku lögsagnarumdæmi 1977 var
Einar áfram sýslumaður vestur-
sýslunnar. Starfinu fylgdu marg-
vísleg félags- og trúnaðarstörf
sem Einar sinnti af alúð og kost-
gæfni. Aðaláhugamál hans fyrir
utan stjórnmálin var þó búskapur.
Stofnaði hann fyrst fjárbú í
Norður-Vík og síðar hrossabú
sem hann sinnti með sýslumanns-
starfinu. Heilsa hans bilaði á
miðjum aldri en hann sinnti þó
starfi sínu til ársins 1992. Þau
hjón höfðu þá átt lögheimili í Vík í
Mýrdal í tæp 30 ár. Eftir það
héldu þau heimili í Úthlíð 6 í
Reykjavík.
Einar vistaðist á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni í febrúar á þessu
ári. Útför Einars verður gerð frá
Háteigskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
virki, f. 1961, Ólafur,
lögreglumaður, f.
1962, Ásta Sigríður,
þroskaþjálfi, f. 1964,
og Knútur Gunnar, f.
1975.
Árið 1961 kvæntist
Einar eftirlifandi
eiginkonu sinni
Höllu Þorbjörnsdótt-
ur, barnageðlækni, f.
í Reykjavík 30. okt.
1929. Foreldrar
hennar voru Char-
lotta Steinþórsdóttir,
f. í Stykkishólmi 29.
des. 1908, d. 1990, og Þorbjörn
Þórðarson málarameistari, f. í
Reykjavík 14. maí 1907, d. 1976.
Synir Höllu og Einars eru: 1) Karl,
bakari og sölumaður, f. 21.2. 1963,
maki Kristín Bragadóttir skrif-
stofumaður, f. 26.6. 1956. Karl á
þrjú börn með fyrri konu sinni
Sólrúnu Viðarsdóttur: Andreu
Ösp, f. 3.9. 1982, Berglindi Ýri, f.
31.5. 1989, og Birki Örn, f. 9.10.
1996. Þau slitu samvistum 1999. 2)
Páll, psychotherapist, sjálfstætt
starfandi, f. 4.5. 1967.
Einar ólst upp í föðurhúsum,
hann fékk kennslu heima nema
nokkrar vikur sem hann var í
barnaskóla á Stóru-Ökrum. Við
Elsku Einar frændi. Nú ert þú
floginn á vit forfeðra þinna – ekki
lengur fangi í þínum stóra líkama.
Hvað maður getur verið eigin-
gjarn að sjá svo sárt eftir þér vit-
andi það að afi og amma, tengda-
foreldrar þínir, Hilmar mágur þinn
og margir, margir fleiri hafa tekið
vel á móti þér. En þú ert einn af
þeim mönnum sem hafa alltaf verið
til í mínu lífi og góðar minningar
munu lifa áfram.
Ég man hvað það var gaman og
spennandi þegar þið Halla voruð
að koma í heimsókn í sveitina til
afa og ömmu í Flatatungu, sem var
þitt æskuheimili. Alltaf var komið
með eitthvert spennandi dót eða
nammi að sunnan eða jafnvel frá
útlöndum. Svo komu Doddi og
systur hans stundum með ykkur og
það þótti mér nú ekki slæmt. Þá
gat ég sýnt þessum borgarbörnum
ríki mitt í sveitinni. Síðar kom ég á
Þórsgötu 1 til tengdaforeldra þinna
og fékk þar að kynnast Kanasjón-
varpinu, sem var undur og stór-
merki fyrir mig, og þá gat Doddi
grobbað sig af sínu ríkidæmi. Þar
sem ég er ekki síður stríðin en þú
varst, þá var ég þér örugglega oft
frekar erfið í samskiptum. En allt
held ég að þetta hafi verið í góðu
hjá okkur þó svo ég hafi eflaust
gjarnan farið yfir strikið eins og
krökkum er lagið. En sumt gleym-
ist aldrei eins og þegar ég gubbaði
í nýja bílinn þinn á leiðinni á Vall-
arbakkana – þá hélt ég að ég yrði
látin ganga heim. Forsetakosning-
arnar, þegar þeir Kristján Eldjárn
og Gunnar Thoroddsen voru í
framboði, eru mér líka minnisstæð-
ar. Framsóknarmennskan var í
heiðri höfð í sveitinni, þú trúðir
hins vegar á sjálfstæðismenn. Það
urðu því ansi heit skoðanaskipti
milli ykkar bræðra við matarborðið
og fannst barninu nóg um enda
skildi ég ekki pólitíkina í þessu.
Annars held ég að ólíkar skoðanir
á mönnum og málefnum hafi aldrei
skemmt samskipti þín við fólk yfir
höfuð.
Svo varstu allt í einu kominn
langt í burtu þegar þú tókst við
sýslumannsembætti í Vík í Mýrdal,
en þá heyrðu báðar Skaftafellssýsl-
urnar undir það embætti og var
svo til 1977.
Mikið fannst mér langt til ykkar
í fyrsta skipti sem ég kom til ykkar
í Vík. Samt voruð þið alltaf að
skreppa þetta og líka með strák-
ana, Kalla og Palla, en Úthlíðin var
fasti punkturinn fyrir sunnan. Á
þessum tíma var það ekki í tísku að
fara út að hlaupa eða í ræktina til
að hlaða batteríið og halda heilsu.
Þar sem þú varst nú einu sinni
bóndastrákur að norðan og þá held
ég að þú hafir leitað hvíldar frá
amstri dagsins í fjárhúsunum í Vík
og hafðir voða gaman af kindunum
þínum. En svo söðlaðir þú um og
fórst yfir í hestamennskuna sem
entist þér alla leið. Þú þreyttist
aldrei á að tala um og dást að þess-
um skepnum og hefur líka átt
margan góðan gæðinginn í gegnum
tíðina. Þið Halla studduð alltaf
hvort annað í öllu, þú hana í nám-
inu og hún þig í hestunum og
vinnunni. Samt hlýtur þetta oft að
hafa verið erfitt, hún lærandi og
vinnandi fyrir sunnan en þú með
þitt stóra hérað fyrir austan. En
aldrei heyrði ég kvartað og ekki
væri þetta talið mál í dag með all-
an þann fjarbúnað sem í boði er en
þá voru aðrir tímar. Svo dundi áfall
yfir, þú fékkst þessa skrambans
blæðingu sem sló þig alveg út um
tíma og skapaði óþol hjá þér fyrir
heilbrigðisstéttum og stofnunum.
En með þrautseigju, dugnaði og
stuðningi þinnar góðu konu þá
reifstu þig upp úr þessu að mestu
og komst aftur í fullan gang og
varst farinn að sinna þínu starfi
tæpum átta mánuðum síðar. Nokk-
ur áföllin þurftirðu að taka eftir að
þú lést af störfum 1992 og segja
má að þú hafir verið orðinn fangi í
þínum eigin líkama. En kollurinn
var sko í góðu lagi. Ég skammaðist
mín oft fyrir hvað þú mundir
margt betur en ég og þú fylgdist
líka svo vel með fréttum, bæði af
atburðum hér heima og erlendis.
Ég held að það hljóti að hafa verið
góð heilaleikfimi fyrir þig þegar þú
fórst að læra tungumál, frönsku,
rússnesku og síðast spænsku, á
efri árum og fórst einn utan í
skóla. Það var virkilega erfitt fyrir
þig þegar þú gast ekki lengur
keyrt en þá tók Halla til sinna ráð
og fór líka að læra spænsku og er
enn að. Þér þótti svo sárt að komst
ekki neitt út einn og vera orðinn
byrði en nú ertu frjáls eins og fugl-
inn fljúgandi og hlærð sjálfsagt að
öllum þessum áhyggjum okkar í
daglega amstrinu. Yngri sonur
minn er í ýmsu líkur þér – skap-
góður, stríðinn og stór. Ég bið þess
að honum hlotnist líka að verða
gæfumaður eins og ég tel þig hafa
verið.
Ég veit að þú lítur vel eftir þínu
fólki, Höllu, strákunum og barna-
börnunum þínum sem hafa misst
svo mikið núna. Þeim votta ég
mína dýpstu samúð, en góðar
minningar lifa áfram.
Sigríður Aðalheiður.
Einar föðurbróðir minn var með
allra stærstu mönnum og bar höfuð
og herðar yfir aðra í fjölskyldunni.
Hann var ekki síður langt yfir
meðallagi stórhuga og afar frjór í
hugsun. Einar fékk margar hug-
myndir og vílaði ekki fyrir sér að
hrinda þeim í framkvæmd meðan
hann hafði heilsu til. Hann var
glaðsinna og hló innilega svo að
augun ljómuðu. Skapmaður var
hann og stjórnsamur eins og sýslu-
manni sæmdi. Ég var ekki búin að
vera lengi í tygjum við manninn
minn þegar Einar fór að færa í tal
hvort að ég ætlaði ekki að fara
gifta mig. Liðu nú nokkrir mánuðir
og ekkert var að gert varðandi
hjónavígsluna. Næst þegar við hitt-
umst færði hann þetta aftur í tal
og var allt annað en ánægður með
aðgerðaleysi frænku sinnar.
Einar átti sér mörg og fjölbreytt
áhugamál. Hann lærði erlend
tungumál sér til gamans og hafði
mikla ánægju af ferðalögum til
fjarlægra landa. Þau hjón fóru víða
meðan heilsa hans leyfði. Einar
hafði ánægju af ljóðum og kveð-
skap. Er þó ótalið það áhugamál
sem átti hug hans og hjarta en það
voru hestarnir. Einar var hesta-
maður af lífi og sál. Á yngri árum
var hann öðrum Skagfirðingum
enginn eftirbátur í hrossaeign, þó
byggi á Suðurlandi. Ef hægt er að
halda hross í himnaríki, þá er
sýslumaðurinn örugglega þegar
farinn að huga að hrossarækt og
koma sér upp stóði þar.
Einar var einstaklega vel giftur.
Halla stóð eins og klettur við hlið
manns síns í öllum hans veikindum
og annaðist hann heima í Úthlíð,
eins lengi og hún mögulega gat.
Þegar ég var við nám í Reykjavík
heimsótti ég þau Einar og Höllu
oft. Þar var mér alltaf tekið tveim
höndum.
Einar lét mig gjarnan segja sér
undan og ofan af náminu. Honum
þótti mikið til koma að ég læsi guð-
fræði, sagðist líka hafa langað til
þess á sínum tíma en taldi sig ekki
nógu trúaðan til að verða prestur.
Því fór hann í lögfræði. Það lýsir
Einari vel, hann gerði ekkert nema
af heilum huga og fylgdi sinni
sannfæringu.
Nú hefur Einar föðurbróðir
minn farið í sína hinstu ferð. Hann
hafði háð mikið og langt stríð í
veikindum sínum og raunar man ég
ekki eftir honum heilum heilsu.
Líkaminn var löngu hættur að bera
þennan stóra mann uppi og er nú
EINAR
ODDSSON
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR ERLA ÞORLÁKSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 1. desember kl. 15.00.
Erla María Kjartansdóttir,
Brynjar Örn Bragason,
Þórir Kjartansson, Unnur Sveinsdóttir,
Birgir Kjartansson, Arnþrúður G. Björnsdóttir,
Þorlákur Kjartansson, Anna María Pétursdóttir,
Guðmundur Kjartansson, Guðrún Svava Viðarsdóttir,
Eyþór Þorláksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Stóruvöllum, Bárðardal,
síðast til heimilis
að Ási í Hveragerði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Áss í Hveragerði fyrir góða umönnun.
Birgir Pálsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Geirþrúður Pálsdóttir,
Sveinn Pálsson, Sigrún Arndal,
Jón Páll Haraldsson, Björk Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, bróðir og vinur,
FRÍMANN MÁR SIGURÐSSON,
Borgarsandi 6,
Hellu,
verður jarðsunginn frá Oddakirkju á Rangárvöllum
laugardaginn 3. desember kl. 14.00.
Jarðsett verður frá Breiðabólstað í Fljótshlíð.
Frímann Ísleifur Frímannsson,
Marta Sigríður Frímannsdóttir,
Guðrún Marta Sigurðardóttir,
Óskar Ísfeld Sigurðsson,
Helga Sigurðardóttir,
Erlendur Ísfeld Sigurðsson,
Þorsteinn Ingvarsson.
Eiginkona mín og móðir okkar,
ÁSRÚN MAGNÚSDÓTTIR,
Dælengi 1,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn
2. desember kl. 11.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Skúli Guðjónsson,
Magnús Skúlason, Sigríður Sigurjónsdóttir,
Kolbrún Skúladóttir, Sigurbergur Brynjólfsson,
Aðalbjörg Skúladóttir, Bárður Árnason.
Okkar ástkæri,
SVANUR INGI KRISTJÁNSSON
húsasmíðameistari,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 2. desember kl. 13.00.
Kristján Rúnar Svansson, Edda Bachmann,
Daníel Árnason,
Einar Eyjólfsson, Edda Möller,
Inga Rósa Sigursteinsdóttir, Þorvarður Elíasson,
afabörn og langafabörn.