Morgunblaðið - 05.12.2005, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.12.2005, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ELSTI sjálfboðaliði sem starfar á vegum Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands verður níræður á næstu dögum. Konan sú prjónar til styrktar Rauða krossinum í viku hverri. Yngsti sjálfboðaliðinn sem sinnir skipulögðu sjálfboðastarfi er um átján ára gamall. Enn yngri sjálfboðaliðar, eða um 200–300 börn, færa Rauða krossi Íslands peninga- gjafir, yfirleitt hagnað af tombólum, ár hvert. Um allt land starfa deildir innan Rauða kross Íslands og er sjálfboðaliðastarf víða en misöflugt enda deildirnar misjafnlega fjöl- mennar. Í dag er alþjóðlegur dagur sjálf- boðaliðans og verður deginum fagn- að í húsakynnum Reykjavíkurdeild- arinnar milli kl. 17 og 19. Öllum tombólubörnum verður einnig boðið í bíó í tilefni dagsins. Um 600 sjálfboðaliðar Um sexhundruð sjálfboðaliðar starfa hjá stærstu deild Rauða kross Íslands, Reykjavíkurdeildinni. Verkefni þeirra eru margskonar, t.d. símsvörun hjá Hjálparsímanum, starf með ungu fólki í félagsstarfi, starf með geðfötluðum, aðstoð við aldraða, sjúka og einmana, við flokk- un og sölu fatnaðar, starf að neyð- arvörnum og við margskonar fjár- öflun. Til dæmis kemur hópur kvenna saman einu sinni í viku og prjónar. Helmingur prjónavaranna er seldur en hinn er sendur utan til þurfandi. Þá heldur föndurhópur vinsælan basar árlega. „Verkefnin eru mörg og þau kalla á endalausa endurnýjun í hópi sjálfboðaliða,“ segir Huldís Haraldsdóttir, for- stöðumaður sjálfboðamiðlunar Reykjavíkurdeildarinnar. Huldís segir misjafnt hversu lengi sjálf- boðaliðar starfi hjá Rauða krossin- um, sumir aðeins í fáar vikur en aðr- ir áratugum saman. Nokkur hreyfing er því á sjálfboðaliðahópn- um sem skýrir þörf á endurnýjun. „Svo við erum alltaf að leita að fólki.“ Huldís segir sjálfboðaliða á ýms- um aldri. Verkefnin eru fjölbreytt og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Töluverður fjöldi ellilíf- eyrisþega starfar í þágu Reykjavík- urdeildarinnar en unga fólkið lætur líka mikið að sér kveða í öflugri ung- mennahreyfingu deildarinnar. Töluvert fleiri konur starfa sem sjálfboðaliðar en verkefnin höfða misjafnlega mikið til kynjanna að sögn Huldísar. Hún segir mismunandi hvers vegna fólk gerist sjálfboðaliðar en flestir vilja einfaldlega láta gott af sér leiða. „Svo eru margir sem koma til okkar og segjast loks hafa meiri tíma aflögu og vilja starfa fyrir Rauða krossinn.“ Huldís minnir á að Rauði krossinn byggi starf sitt um allan heim á sjálf- boðaliðum. „Rauði krossinn væri ekki til án sjálfboðaliða. Það eru al- veg hreinar línur.“ Hægt er að sækja um að verða sjálfboðaliði á vef Rauða kross Ís- lands, www.rki.is eða með því að hafa samband við viðkomandi svæð- isskrifstofu. Alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans fagnað hjá Reykjavíkurdeild Rauða krossins Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is Elsti sjálfboðaliðinn níræður „ÞETTA er mjög gefandi og skemmtilegt,“ segir Ingibjörg Björnsdóttir, sem starfar sem sjálfboðaliði í heimsóknarþjónust- unni hjá Reykjavík- urdeild Rauða kross Íslands. Heimsókn- arvinir svokallaðir heimsækja einu sinni í viku fólk sem er ein- mana og vantar fé- lagsskap. Oft er um aldrað fólk að ræða eða öryrkja á ýmsum aldri. „Þetta er mjög skemmtilegt því það skapast oft mjög gott samband á milli fólks. Þeir sem maður heimsækir verða oft mjög góðir vinir manns.“ Ingibjörg segir að starfið felist m.a. í að spjalla við fólkið, drekka með því kaffi, fara út í gönguferð- ir eða lesa fyrir það. Hún telur heimsóknirnar skila báðum aðilum miklu. „Kona sem ég heimsótti var rúmliggjandi og sjóndöpur en hafði gaman af ljóð- um og bókmenntum. Ég fór og las fyrir hana í klukkutíma í senn. Hún hafði mjög gaman af þessu og ég hafði það líka vegna þess að við vorum að lesa svo falleg ljóð. Hún beið eftir heimsóknunum í hverri viku og ég fékk alltaf svo fallegt bros í hvert skipti sem ég kom. Hún ljómaði og ég hafði svo gaman af þessu líka og hlakkaði til heimsóknanna.“ Undantekningar- laust eru allir mjög þakklátir fyrir þessar heimsóknir, að sögn Ingibjargar. Hún seg- ir það skipta máli að um sjálfboðastarf sé að ræða því þá séu forsendur aðrar en í launavinnu. Ingibjörg hefur starfað sem sjálf- boðaliði í tvö og hálft ár hjá Rauða krossinum. Hún vinnur auk þess fulla vinnu hjá Rannís. „Þetta tekur ekki það mikinn tíma,“ segir Ingibjörg en hún starfar í um 8–12 tíma á mán- uði sem sjálfboðaliði. Nú í desem- ber gætu tímarnir orðið fleiri því þá tekur Ingibjörg þátt í jólastarf- inu sem felst m.a. í aðstoð við út- hlutun hjá Hjálparstarfi kirkj- unnar og mæðrastyrksnefnd. Gefandi fyrir alla aðila Ingibjörg Björnsdóttir BIRGIR Freyr Birgisson, nemi í fé- lagsráðgjöf við Háskóla Íslands, hef- ur starfað sem sjálfboðaliði við fjöl- mörg verkefni innan Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands í um áratug. Núna er hann m.a. virkur í skyndihjálparhópi deild- arinnar sem er sérhæfð- ur sjúkrahópur sem sér um skyndihjálpargæslu á tónleikum og öðrum stórviðburðum, s.s. útihátíðum. Hann segir markmið Rauða krossins, að starfa af hlutleysi, án til- lits til trúarbragða og taka ekki afstöðu í deilu- málum, hafa dregið sig að hreyfingunni og sjálfboðaliða- starfinu á sínum tíma. „Hlutleysið er algjört og við erum aðeins að hjálpa þar sem þörfin og neyðin er,“ segir Birgir. „Þetta er það sem heillaði mig, þetta hlutleysi.“ Birgir segir að félagsskapurinn skipti líka mjög miklu máli og að verkefnin séu skemmtileg. Hann segir mismikið af sínum frí- tíma fara í sjálfboðastarfið. „Maður ætlar kannski ekki að vera neitt rosalega virkur en áður en maður veit af er maður kominn í allt.“ En hann segir vel hægt að starfa sem sjálfboðaliði í fjóra tíma á mánuði, „en þetta getur vel far- ið upp í meira.“ Reynsla af sjálf- boðaliðastarfi geti líka gagnast við starfs- og námsumsóknir. Sá sem hefur unnið sem sjálf- boðaliði er eftirsóttur vinnukraftur á mörgum sviðum. „Sjálfboðaliða- starf Rauða krossins er ekkert annað en góð starfsreynsla og starfs- þjálfun,“ segir Birgir. Fólki er treyst fyrir að bera ábyrgð á vissum verkefnum og sú reynsla getur komið sér vel síðar. Aðspurður hvort til sé hinn dæmi- gerði sjálfboðaliði svarar Birgir um hæl: „Jú, hinn dæmigerði sjálf- boðaliði í ungmennahreyfingunni er kvenkyns á aldrinum 21–26 ára, ein- hleyp og drekkur Pepsí og borðar Appollo-lakkrís.“ Þetta segir hann niðurstöður skoðanakönnunar sem gerð var fyrir útgáfu tímarits ung- mennahreyfingarinnar, „þetta var svona meira í gríni en þetta var nið- urstaðan.“ Hlutleysið heillandi Birgir Freyr Birgisson SNJÓNUM kyngdi niður á Akureyri um helgina og er þar því orðið mjög jólalegt um að litast. Trjágróðurinn skartar sínu fegursta, hvort sem hann prýða bæði jólaljós og snjór eða aðeins snjór. Að venju er það unga kynslóðin sem fagnar hvað mest og biðu vinkonurnar Ríkey og Björg ekki boðanna og þustu á leið í næstu brekku með snjóþoturnar sín- ar. Það er um að gera að nota tím- ann því hann gæti horfið fljótt. Morgunblaðið/Kristján Snjóþoturnar dregnar fram á Akureyri SAMKVÆMT bókhaldi stofnana ríkisins fyrir árin 2003 og 2004 urðu helstu breytingar á heildarútgjöld- um til bifreiða-, ferða- og risnu- kostnaðar þær að kostnaður hefur hækkað um 29 milljónir króna á milli ára eða um tæplega eitt pró- sent. Þetta kemur fram í svari Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur á Alþingi. Samkvæmt upplýsingum fjár- málaráðherra nam ferðakostnaður á árinu 2004 2.229 milljónum króna sem er um eins prósents lækkun frá fyrra ári. Bifreiðakostnaður nam 1.221 milljón króna á árinu 2004 sem er 2,6% hækkun frá árinu 2003 og risnukostnaður nam um 327 millj- ónum króna á árinu 2004 sem er um 10% hækkun frá fyrra ári. Jóhanna spurðist einnig fyrir um hvort ráðherra teldi að hægt væri að ná fram sparnaði, og þá hversu miklum, í sömu kostnaðarliðum. Ráðherra taldi hins vegar ekki til- efni til sérstakrar sparnaðarkröfu á ráðuneyti og ríkisstofnanir hvað þetta varðaði þar sem í sambæri- legri fyrirspurn fyrir einu ári kom fram að kostnaður lækkaði á milli áranna 2002 og 2003 og nemur lækkun útgjalda af þessum liðum frá árinu 2002 tæplega 320 millj- ónum á verðlagi ársins 2004. Kostnaður jókst um tæpt eitt prósent SAMKVÆMT úttekt Lands- sambands íslenskra útvegs- manna starfa fáir erlendir sjó- menn á íslenskum fiskiskipum. LÍÚ gerði athugun á fjölda út- lendinga á fiskiskipum hjá 25 stærstu útgerðum landsins. Hjá þeim fyrirtækjum starfa um 2.400 sjómenn og þar af eru ellefu útlendingar sem ráðnir hafa verið til starfa á þessu ári. Til viðbótar eru 14 sjómenn af erlendu bergi brotnir á skipun- um en þeir eru búsettir á Ís- landi. Hlutfall erlendra sjó- manna hjá þessum stærstu fyrirtækjum er því aðeins 0,4-1 % eftir því við hvora töluna er miðað. Vinnumálastofnun hefur veitt 24 ný tímabundin atvinnu- leyfi fyrir sjómenn á þessu ári. Meira en helmingur leyfanna var veittur Pólverjum og flest þeirra fóru til starfsmanna á höfuðborgarsvæðinu eða átta talsins, sex fóru á Vestfirðina. LÍÚ telur líklegt að ásókn erlendra sjómanna í störf á ís- lenskum fiskiskipum muni vaxa á næstu árum. Fáir erlend- ir sjómenn á íslenskum skipum TÖLUVERÐUR viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í gær vegna komu tveggja hreyfla farþegaþotu með bilaðan hreyfil. Um 300 farþeg- ar voru um borð en þotan lenti heilu og höldnu um kl. 16. Þotan er í eigu Air Canada, af gerðinni Airbus 330 og var á leið frá Frankfurt í Þýska- landi til Toronto í Kanada þegar bil- unar varð vart. Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, taldi ólíklegt að mikil hætta hefði verið á ferðum og kvað allan viðbúnað hafa gengið snurðulaust. Viðbúnaður vegna þotu MISTÖK í vinnsluferli við bók Guð- mundar Magnússonar, „Thorsar- arnir, auður og örlög“, olli því að farga þurfti ákveðnum fjölda ein- taka áður en þau voru send í versl- anir. Ekki hefur fengist upplýst hversu mörg eintök um var að ræða og tap Eddu útgáfu vegna mistak- anna er óverulegt að sögn Páls Braga Kristjónssonar forstjóra. Rótin var sú að rangt handrit var sent í prentun en þegar það upp- götvaðist var bókunum fargað og rétta handritið prentað. Komu bæk- urnar á markað síðastliðinn fimmtudag. Rangt hand- rit fór í prentun ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ MANNANAFNANEFND hefur meðal annars samþykkt karlmanns- nöfnin Dreka og Leo og kvenmanns- nafnið Verónu en hafnað nöfnunum Ole, Kenneth og Maia þar sem þau teljist ekki rituð í samræmi við al- mennar ritreglur íslensks máls. Nefndin samþykkti hins vegar nafn- ið Lisbeth en því nafni hefur áður verið hafnað. Nöfnunum Ole og Kenneth hafnað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.