Morgunblaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 28
Alþingi styðji
Mannréttinda-
skrifstofuna
STJÓRN Siðmenntar, félags sið-
rænna húmanista á Íslandi, hvetur
alþingismenn, við afgreiðslu fjár-
laga, til að tryggja fjármagn til
reksturs Mannréttindaskrifstofu Ís-
lands. Toshiki Toma, prestur inn-
flytjenda á Íslandi, hefur einnig
sent alþingismönnum bréf þar sem
hann skorar á þá að samþykkja
fjárframlög til skrifstofunnar.
„Mannréttindaskrifstofa Íslands
hefur verið óháður umsagnaraðili
og álitsgjafi ýmissa álitamála er
snerta mannréttindi og hefur starf
hennar verið óháð samtökum og
stofnunum. Það hefur verið eitt af
grundvallaratriðum í stefnu sið-
rænna húmanista um heim allan að
hafa í heiðri mannréttindi eins og
kveðið er á um í mannréttindayf-
irlýsingu Sameinuðu þjóðanna og
Mannréttindasáttmála Evrópu. Á
Íslandi hefur Mannréttindaskrif-
stofan verið sá aðili sem verið hefur
þar fremstur í flokki. Siðmennt
hvetur því alþingismenn til þess að
tryggja fé til rekstursins,“ segir í
ályktun Siðmenntar.
„Sú ákvörðun stjórnvalda að
hætta beinum framlögum til skrif-
stofunnar árið 2004 hefur gert
skrifstofunni afar erfitt um vik að
sinna hlutverki sínu og hefur haft
skaðleg áhrif á almenna þróun
mannréttindaverndar hér á landi.
Þetta harma ég því það er ekki að-
eins Mannréttindaskrifstofa Íslands
sem ber skaða af þessu breytta fyr-
irkomulagi heldur allir þegnar þjóð-
arinnar sem ekki geta treyst á að
hér starfi öflug mannréttindastofn-
un sem vinnur að framgangi mann-
réttinda á heildstæðan hátt,“ segir í
bréfi Toshiki Toma.
28 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Hollvinafélags lagadeildar
Háskóla Íslands
verður haldinn þriðjudaginn 13. desember
2005 í fundarherbergi á 4. hæð í Lögbergi,
Háskóla Íslands, kl. 17.15.
Dagskrá fundarins:
1) Skýrsla og reikningar stjórnar fyrir liðið
starfsár.
2) Umræður um skýrslu og reikninga.
3) Lagabreytingar.
4) Kosning stjórnar fyrir komandi starfsár.
5) Kosning tveggja skoðunarmanna.
6) Önnur mál.
Allir félagsmenn eru hvattir til þess að mæta.
Stjórn félagsins.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Hlíðargata 44, fnr. 212-5596, Þingeyri, þingl. eig. Jóhannes Kristinn
Ingimarsson og Janine Elizabeth Long, gerðarbeiðendur Hekla hf.
og Íbúðalánasjóður, föstudaginn 9. desember 2005 kl. 10:00.
Kirkjubólsland, landnr. 138012, Ísafirði, þingl. eig. Aðstaðan sf.,
gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins, föstudaginn 9. desember
2005 kl. 13:30.
Sundstræti 45, frystiklefi, fnr. 212-0614, Ísafirði, þingl. eig. Aðlögun
ehf., gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., föstudaginn
9. desember 2005 kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
2. desember 2005.
Una Þóra Magnúsdóttir, fulltrúi.
Félagslíf
MÍMIR 6005120519 I
HEKLA 6005120519 VI
GIMLI 6005120519 III
I.O.O.F. 19 1861257
I.O.O.F.10 1861258
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ÞRÍR nýir sparkvellir voru vígðir í
vikunni á Austurlandi; á Egils-
stöðum, Eskifirði og Djúpavogi.
Vellirnir eru gerðir að undirlagi
Knattspyrnusambands Íslands í
samvinnu við sveitarfélög og nær
verkefnið til alls landsins.Alls eru
sjö sparkvellir komnir upp á Aust-
urlandi en í heild eru þeir orðnir
um 60 á landinu öllu.
Ný knatt-
spyrnu-
aðstaða
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Hilmir Ásbjörnsson og Jóna Mekkín
Jónsdóttirr frá foreldrafélagi
Austra taka við boltagjöf frá Birki
Sveinssyni, fulltrúa KSÍ.
BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og
Michael Kennedy forseti fagráðs Evrópsku réttar-
aðstoðarinnar (Eurojust) hafa undirritað samstarfs-
samning milli Íslands og Evrópsku réttaraðstoðar-
innar, sem hefur aðsetur í Haag.
Eurojust er ætlað að styðja við rannsókn og saksókn
mála sem varða alvarlega fjölþjóðlega brotastarfsemi.
Er meginhlutverk stofnunarinnar að efla samvinnu og
auðvelda samræmingu aðgerða saksóknara og lög-
regluyfirvalda þegar mál varða fleiri en eitt aðild-
arríki. Stofnuninni var komið á fót með ákvörðun ráðs
Evrópusambandsins þann 28. febrúar 2002 og hefur
Eurojust heimild til að gera samstarfssamninga við
þriðju ríki í því skyni að greiða fyrir samskiptum milli
stofnunarinnar og yfirvalda í viðkomandi ríki.
Á fundi dóms- og innanríkisráðherra Evrópusam-
bandsins var Evrópsku réttaraðstoðinni heimilað að
undirrita slíkan samstarfssamning við Ísland.
Starfsemi Eurojust er stjórnað af stjórnarnefnd sem
er skipuð fulltrúa frá hverju aðildarríki Evrópusam-
bandsins. Eru nefndarmenn ýmist dómarar, saksókn-
arar eða háttsettir lögreglumenn í heimalandi sínu.
Stjórnarnefndinni er ætlað að vera vettvangur samráðs
og upplýsingaskipta milli yfirvalda í aðildarríkjunum
og greiða þannig samvinnu um rannsókn og saksókn
mála. Er stofnuninni heimilt að óska eftir upplýsingum
frá yfirvöldum í aðildarríkjunum um tiltekin atriði er
varða rannsókn eða saksókn. Stofnunin getur hins veg-
ar ekki tekið ákvarðanir um rannsókn eða saksókn
mála, heldur er ákvörðunarvald í þeim efnum eftir sem
áður í höndum réttbærra yfirvalda í aðildarríkjunum.
Af Íslands hálfu mun embætti ríkissaksóknara annast
samskiptin við Evrópsku réttaraðstoðina. Í samn-
ingnum felst m.a. að íslenskur sendisaksóknari vinni
með stjórnarnefnd Evrópsku réttaraðstoðarinnar að
málum sem upp kunna að koma og varða Ísland.
Samstarf milli íslenskra yfirvalda og Eurojust er til
þess fallið að auka árangur í baráttu gegn alvarlegum
afbrotum á Íslandi. Samstarfið er eðlilegt framhald af
þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu, samstarfi við
Europol, Evrópulögregluna, og samningi um rétt-
araðstoð sem gerður hefur verið. Þá er unnið að gerð
samnings um meðferð mála um framsal sakamanna.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og
Michael Kennedy, forseti fagráðs Evrópsku rétt-
araðstoðarinnar (Eurojust).
Undirrituðu
samning um
réttaraðstoð
Útboð í
Hraunaveitu
og Ufsarstíflu
LANDSVIRKJUN hefur óskað eftir
tilboðum í fjóra verkþætti Hrauna-
veitu og Ufsarstíflu Kárahnjúka-
virkjunar. Þessum verkum á öllum
að ljúka á árinu 2008. Tilboðum á að
skila í síðasta lagi 24. janúar 2006
vegna þriggja verkþátta og þá verða
þau opnuð hjá Landsvirkjun. Tilboð-
um í fjórða verkþáttinn á að skila í
síðasta lagi 21. febrúar 2006 og þá
verða þau opnuð.
Útboðið varðar lokubúnað og stál-
fóðringu fyrir Hraunaveitu og Ufs-
arstíflu, áætluð verklok í janúar
2008, gerð Ufsarstíflu svo og í stíflu,
göng og skurði vegna Hraunaveitu,
áætluð verklok haustið 2008.
LEIÐRÉTT
Verð á mandarínum
Vegna fréttar um verð á mand-
arínum í Nóatúni sem birt var á vef
Neytendasamtakanna og í kjölfarið
í Daglegu lífi fyrir helgi vill Nóatún
koma eftirfarandi á framfæri.
„Kassi af mandarínum er á tilboði
frá og með 1. desember á 329 kr.
kassinn. Venjulegt útsöluverð á
slíkum kassa er 399 kr.
Kílóverð á mandarínum í lausa-
sölu er 169 kr. en ekki 189 kr.“
FRÉTTIR
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, heilsaði upp á hópinn sem
um helgina lagði af stað til Austur-
Grænlands í þeim tilgangi að örva
skáklífið í landinu. Næstu daga mun
Skákfélagið Hrókurinn í samvinnu
við Barnaheill á Íslandi, Rauða
krossinn og Kalak, vinafélag Íslands
og Grænlands, gefa 500 grunn-
skólabörnum í þessum landshluta
taflsett að gjöf frá Íslendingum. For-
setinn hefur kynnt sér þetta framtak
og hvatti félaga í Hróknum til dáða.
Félagar í Hróknum hafa farið tvisv-
ar sinnum áður í ferð til Grænlands,
dvalist þar í viku í senn og kennt
börnum skák. Hafa undirtektir við
þessu framtaki verði mjög góðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lögðu upp í skákferð til Grænlands