Morgunblaðið - 05.12.2005, Side 20

Morgunblaðið - 05.12.2005, Side 20
20 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. M iklar breytingar hafa orðið í mjólkurfarmleiðslu á síð- ustu árum. Bændum hefur fækkað, búin hafa stækk- að og jafnframt hafa bændur verið að ráðast í miklar fjárfest- ingar í húsnæði og tækjum. Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsöl- unnar, segir að samhliða hafi orðið mikil hagræðing í mjólkuriðnaðinum sem sjá- ist best í því að heildsöluverð á mjólk hafi ekkert breyst í þrjú ár á sama tíma og verð til bænda hafi hækkað. Osta- og smjörsalan er sameignarfyr- irtæki í eigu mjólkursamlaganna í land- inu. Það sér um allt markaðsstarf og sölu á ostum fyrir samlögin, pökkun á föstum ostum, sölu á smjöri, öðru viðbiti og mjólkurdufti. Fyrirtækið velti á síð- asta ári um 5,4 milljörðum króna. Á und- anförnum árum hefur sala á ostum auk- ist um 7–10% árlega og er komin upp í um 16 kíló á mann, en var í kringum 1960 u.þ.b. 2,5 kíló. Breytt eignarhald Að stofnun Osta- og smjörsölunnar árið 1958 stóðu Mjólkursamsalan og Sam- band íslenskra samvinnufélaga, SÍS, en eignarhaldið er breytt í dag. „Umhverfið hefur breyst mikið á þess- um bráðum 50 árum,“ segir Magnús. „Nú eru eigendurnir einungis fjórir, þ.e. MS, Norðurmjólk, Kaupfélag Skagfirð- inga og Mjólkursamlag Ísfirðinga. Osta- og smjörsalan sér um sölu á framleiðsluvörum eigenda sinna og flytur einnig inn ost. Það er einnig nokkur framleiðsla á okkar vegum í húsnæðinu á Bitruhálsi í Reykjavík. Við pökkum nán- ast öllum osti sem framleiddur er í land- inu, búum til rifinn ost, framleiðum smurost og ostakökur. Við erum hins vegar ekki í frumframleiðslu. Við rekum umfangsmikið dreifingarkefi og dreifum um 50% af öllum mjólkurvörum í land- inu.“ Osta- og smjörsalan er ráðandi aðili á ostamarkaði. Fyrirtækið er þó ekki eitt um að selja ost. Ostahúsið hefur verið á þessum markaði í allmörg ár, en það framleiðir rjómaost og fleira, en hráefnið kaupir fyrirtækið af Osta- og smjörsöl- unni. Síðan er Mjólka ehf. að koma inn á þennan markað. „Mjólka var að koma með fetaost inn á markað í samkeppni við okkur og innflutning. En það er einn- ig heilmikið flutt inn af fetaosti af öðr- um,“ segir Magnús. Er ykkar framleiðsla háð opinberri verðlagningu? „Það er opinber verðlagning á ákveðnum vöruliðum sem við erum að selja, annað er frjálst. Verðlagsnefnd bú- vöru verðleggur ákveðna vöruliði og því verðum við að hlíta, en síðan getum við verðlagt svokallaða sérvöru sjálfir. Verðlag á mjólkurvörum hefur ekki hækkað í þrjú ár. Venjan var sú að verð verkaskipti landinu og smjörsölun ríki einhver „Eigendu geta keppt Það er t.d. mygluost á síðan keppa eru hugmy inu frekar Það er líka Menn kepp hinn framle eitthvað í h Vörufram urvörum he ustu árum. koma fram fyrir að ma megi fullyr gott. Hvað andinn geti ostum eða Neysla á Er ekki sjá stöðvast? „Nei, þes Það lítur út ágætt ostaá orðin gríða merkilegt a auka ostasö þessi gríða skyrdrykkj ert ekki að tíma og þú kannski má áhrif á sölu Eigum lík í innflutni Þegar innfl tollum var talsvert ma ost, en síða „Jú, það upphafi. Í d tonn, auk 1 kom til veg menn. Þess mega bjóða unni höfum um málum. höfum stun ekki. Tilgan vöruúrval. hækkaði um áramót, en það hefur ekki hækkað í þrjú ár þrátt fyrir að framleið- endur hafi fengið hækkun til sín.“ Finnst þér tímabært að afnema þessa opinbera verðlagningu? „Það hefur verið heilmikið rætt um það og í augnablikinu er mikil umræða um þetta kerfi almennt. Það má ekki gleyma því að aðilar vinnumarkaðarins eiga sæti í verðlagsnefnd búvara og þeir vakta verðlagningu okkar og hafa heil- mikið um hana að segja. Ef að það ætti að afnema opinbera verðlagningu á mjólkurvörum yrði að taka allt kerfið til endurskoðunar, þ.e.a.s. til framleiðand- ans líka. Það er að mínum dómi ekki hægt að afnema heildsöluverðlaginguna eina og sér og lögbinda áfram verðið á mjólkinni til bóndans. Við getum ekki starfað á markaðnum bundnir í annan fótinn. Það er mín skoðun að þetta kerfi hafi reynst neytandanum ágætlega og að sjálfsögðu bóndanum einnig. Í eðli sínu er það þannig að það er verið að framleiða ferskvöruna næst markaðinum á höfuðborgarsvæðinu og umfangsminni vöru sem hefur lengri líf- tíma lengra í burtu, sem m.a. þýðir minni flutningskostnað. Samtök af- urðastöðva stýra því nokkuð hvar það er gert, en mjólkursamlögin hafa svolítið um það að segja einnig hvað er fram- leitt.“ Viðhorf til mjólkurfitunnar að breytast Magnús segir að það sé að verða talsvert vandamál hversu mikill munur sé á neyslu próteins annars vegar og á fitu hins vegar, en ástæðan er mikil sölu- aukning á fitulitlum mjólkurvörum, ekki síst skyri. „Maður hefur það þó á tilfinn- ingunni að viðhorf til mjólkurfitunnar sé að breytast. Það var söluaukning á smjöri á síðasta ári og sú aukning virðist ætla að halda áfram. Eftir sem áður þurfum við að flytja út talsvert mikla fitu og hún er seld á heimsmarkaðsverði sem er ekki hátt. Síðan líðum við fyrir hátt gengi krónunnar eins og aðrir út- flytjendur. Við höfum flutt út smjör til nánast allra heimshorna. Ég er viss um að ís sem íslenskir ferðamenn hafa borð- að í Taílandi hefur verið framleiddur úr íslensku smjöri.“ Það liggur fyrir að það er ákveðin Forstjóri Osta- og smjörsölunnar segir að m Verð á mjólk ekki hækkað „Það er í sjálfu sér merkilegt að það skuli vera hægt að auk verður þessi gríðarlega söluaukning á skyri og skyrdrykkj Magnús Ólafsson, for- stjóri Osta- og smjörsöl- unnar, segir að ef eigi að afnema opinbera verð- lagningu á mjólk verði um leið að afnema þá trygg- ingu sem bændur hafi fyr- ir mjólkurverði. Hann segir í samtali við Egil Ólafsson að mjólkuriðn- aðurinn geti ekki keppt á markaðinum bundinn í annan fótinn. LEIT AÐ RISTILKRABBAMEINI Stöðugar framfarir verða í bar-áttunni gegn krabbameini, þótt enn sé langt í land í baráttunni við þennan illvíga sjúkdóm. Forvarnir eru mjög mikilvægar í viðureign- inni vegna þess að því fyrr sem krabbamein greinist þeim mun ólíklegra er að það nái að dreifa sér og líklegra að hægt verði að upp- ræta það. Um árabil hefur farið fram skipuleg leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum meðal kvenna á Íslandi. Nú liggur fyrir þings- ályktunartillaga á Alþingi um að hefja skiplega leit að krabbameini í ristli og er hún til meðferðar hjá heilbrigðis- og trygginganefnd. Finnar tóku fyrstir Norðurlanda- þjóða upp slíka leit í september 2004 og segir Nea Kristine Malila, læknir hjá Krabbameinsfélagi Finnlands, sem stödd var hér á landi til að kynna árangurinn í lið- inni viku, að þátttakan hafi verið vonum framar. Hún segir að rann- sóknarniðurstöður sýni að skimun bjargi mannslífum og sönnunar- gögnin séu traust. Ásgeir Theodórs yfirlæknir hefur unnið að undirbúningi skipulegrar leitar að ristilkrabbameini hér á landi. Hann segir að allir séu sam- mála um að skipuleg leit beri ár- angur, en deilt sé um hversu mik- inn og hver kostnaðurinn sé. Ristilkrabbamein greinist yfir- leitt á aldrinum 70 til 80 ára, en eins og Ásgeir segir byrjar það oft- ast sem góðkynja separ í ristlinum og tekur um sjö til níu ár að breyt- ast í illkynja mein. Vinnuhópur á vegum landlæknis hefur lagt til að hafin verði leit meðal karla og kvenna á aldrinum 55 til 70 ára á tveggja ára fresti. Þá sé hægt að greina sjúkdóminn á byrjunarstigi áður en hann nái að dreifa sér og ná árangri í meðferð hans. Nú deyja árlega að meðaltali 55 Íslendingar á ári af völdum krabba- meins í ristli. Ásgeir segir að með skipulegri leit að ristilkrabbameini megi fækka dauðsföllum af völdum þess um 10 til 12 á ári. Skimunin færi þannig fram að fólk fengi sent próf og ætti að senda það til baka. Búast mætti við að það yrði sent 13 þúsund Íslend- ingum á áðurnefndu aldursskeiði og af þeim þyrftu að öllum lík- indum rúmlega þúsund að fara í ristilspeglun. Árlegur kostnaður yrði sennilega um 30 milljónir á ári. Hér er einfalt mál á ferðinni og útreikningurinn ekki flókinn. Mannslíf verða aldrei metin til fjár, en 30 milljónir króna fyrir 10 til 12 mannslíf er ekki há upphæð. Evr- ópusambandið hefur hvatt til þess að aðildarríkin hefji skimun eftir krabbameini í ristli hjá fólki 50 ára og eldra og Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin gerir slíkt hið sama. Það er sennilega einfaldara fyrir Ís- lendinga að skipuleggja og fram- kvæma skipulega leit að ristil- krabbameini en flestar aðrar þjóðir vegna smæðar samfélagsins. Hér er hægt að vinna gott verk með einföldum hætti. GOTT FRAMTAK Það var gott framtak hjámenntaráði Reykjavíkur-borgar að láta gera skýrslu um aðdraganda kennaraverkfallsins fyrir ári. Og óvenjulegt. Ætli séu nokkur dæmi þess, að samningafer- ill hafi verið kannaður með þessum hætti? Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs, sagði af þessu tilefni í samtali við Morgunblaðið: „Ég leyfi mér að tala fyrir hönd þeirra, sem við höfum sezt að borði með, bæði kennara og samninga- nefndar okkar, þegar ég segi að við séum tilbúin til að líta á þetta gagn, sem leiðarvísi til framtíðar, en ekki sakbendingu um það, sem gerðist í fortíðinni.“ Skýrsluhöfundar segja: „Brýnt er að hið opinbera og stéttarfélög kennara skoði með skipulögðum hætti hvernig megi komast hjá slíkum alvarlegum kjaradeilum í framtíðinni og hvern- ig unnt sé að tryggja betri sátt um kjör kennara en verið hefur.“ Eiríkur Jónsson, formaður Kenn- arasambands Íslands, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær í tilefni af þessari skýrslugerð: „Mér finnst margt í þessari skýrslu skrítið og annað er skárra en það hefur margoft komið fram að það vantar allan trúnað á milli samningsaðila. Stuttu eftir þetta verkfall fór ég að vinna með leik- skólakennurum í kjarasamninga- gerð og það var allt öðru vísi.“ Það er gömul saga og ný, að í kjarasamningum getur skapazt sér- stakt andrúmsloft, sem enginn utan samninganefndanna skilur. Andrúm stífni og þvermóðsku. Þó er það svo, að með þeim einfalda hætti, að fólki tali saman, er oft hægt að vinna lítil kraftaverk. Kennarar hafa átt og eiga kröfu til meiri viðurkenningar á mikilvægi starfa þeirra en þeir hafa lengst af notið. Í því felst, að það á að við- urkenna framlag þeirra til sam- félagsins með sómasamlegum laun- um. Og það er líka löngu tímabært að undirstrika með afgerandi hætti mikilvægi kennarastarfsins, sem oft hefur verið gert lítið úr. Í þjóðfélagi nútímans eru fá störf jafn mikilvæg og kennarastarfið. Kennarar geta ráðið úrslitum um hvernig ungu fólki farnast í lífinu. Vonandi verður þessi vinna á veg- um menntaráðs Reykjavíkurborgar til þess, að kjarasamningar við kennara og raunar kjarasamningar borgarinnar almennt og annarra að- ila, sem þurfa að semja um kaup og kjör, fari fram með skipulegri og skynsamlegri hætti en gerðist fyrir ári. Takist það hefur miklu verið áorkað með þessari skýrslugerð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.