Morgunblaðið - 05.12.2005, Síða 15

Morgunblaðið - 05.12.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 15 ERLENT tekið þátt í viðbjóðnum, kaupum á börnunum og upptökum á klámmynd- böndum, allt frá bakaranum og leigu- bílstjóranum til prestsins í hverfinu. Alls voru 70 einstaklingar nefndir á listum barnanna og 17 börn úr hverf- inu á aldrinum 4-12 ára. Svo mikið var umfang málsins, að haft var eftir lög- reglustjóranum Xavier Masson, að ákveðið kerfi hefði verið sett upp „þar sem þeir skyldu kærðir, sem væru að minnsta kosti nefndir af einum full- orðnum og þremur börnum því ann- ars væri hæglega hægt að kæra helm- ing Outreau-hverfisins“. Að lokum voru 17 einstaklingar færðir í gæslu- varðhald. Outreau-málið vakti að vonum mikla athygli og þess var krafist, að allt yrði gert til að koma lögum yfir hina seku. Það var svo ekki fyrr en á síðasta ári, þegar byrjað var að dæma í málinu, sem aðalsakborningarnir fjórir, foreldrar Delay-barnanna og nágrannahjónin, fóru að draga ásak- anir sínar á hendur nágrönnunum 13 til baka. Málið var þó flókið vegna þess, að játningar lágu fyrir hjá sum- um þessara 13 manna, sem einnig tóku þátt í að sakfella aðra innan „hringsins“. Einnig kváðust börn utan Delay-fjölskyldunnar hafa verið mis- notuð. Nú er vitað, að margar þessara ásakana voru upplognar og jafnvel hugsanlega þvingaðar fram. Daniel Legrand, einn sakborninganna, sem voru sýknaðir síðastliðinn fimmtudag, sagðist meira að segja hafa orðið vitni að því er ungri, belgískri stúlku var nauðgað og hún barin til dauða í íbúð Delay-hjónanna. Hefði hún síðan ver- ið grafin í garðinum. Legrand sagði seinna, að hann hefði logið þessu til að sýna fram á fáránleika málsins. „Ég hélt, að kæmi ég með eitthvað fáran- lega ótrúlegt, myndi kannski einhver endurskoða allar þessar ásakanir.“ Þótt engar haldbærar sannanir lægju fyrir, voru 10 sakborninganna dæmdir fyrir að hafa misnotað sín eig- in börn og annarra. Voru dómarnir byggðir á vitnisburði barnanna, Delay-hjónanna og nágrannahjóna þeirra. Sjö sakborninganna voru þó sýknaðir. Þegar málið var svo tekið upp að nýju í nóvember 2005, kom í ljós, að það, sem talið var vera einn óhugnan- legasti barnaklámshringur franskrar sögu, var sorglegur og alltof algengur fjölskylduharmleikur, sem tekið var á af óvenjulegri hörku og trúgirni af dómsyfirvöldum. Rannsóknardómar- inn Fabrice Burgaud, sem fór upp- haflega með málið, þótti hafa beitt sér fyrir sakfellingu af mikilli hörku og jafnvel hunsað sönnunargögn. Outreau-málið er einstakt og ekk- ert dómsmál eftir síðari heimsstyrjöld hefur vakið jafnmikla umræðu um franskt réttarkerfi. Í fyrsta skipti hvatti ákæruvaldið til sýknudóms yfir ákærðu og Yves Blot ríkissaksóknari baðst afsökunar á fyrri dómnum fyrir hönd réttarins. Pascal Clément dóms- málaráðherra hét ítarlegri rannsókn á réttarkerfinu og lofaði fjárhagslegum skaðabótum til þeirra sýknuðu. Jafn- vel forsætisráðherra Frakklands, Dominique de Villepin, sagðist miður sín vegna málsins og viðurkenndi „réttarfarslegt klúður“. Þrátt fyrir lofaðar breytingar og skaðabætur munu þau sýknuðu seint bíða þess bætur að hafa verið í varðhaldi í marga mánuði, jafnvel nokkur ár. Málið hefur sundrað fjölskyldum, börn hafa verið sett í fóstur og flest hjónanna skilið. Einn mannanna stytti sér aldur í gæsluvarðhaldi. Sak- borningarnir fjórir, sem eftir eru, hafa hins vegar játað sig seka um nauðganir og misnotkun á Delay- börnunum og voru dæmdir í 4-20 ára fangelsi. OUTREAU-málið svokallaða, þar sem 17 einstaklingar úr sama hverfi voru ákærðir fyrir grófa kynferðis- lega misnotkun á jafnmörgum börn- um, er talið eitt stærsta og flóknasta mál sinnar tegundar og hefur tekið óvænta stefnu í franska dómskerfinu. Það, sem leit út fyrir að vera eitt óhugnanlegasta barnaníðingsmál franskrar sögu, reyndist vera byggt á ófullnægjandi sönnunargögnum og hefur hver vitnisburðurinn á fætur öðrum verið hrakinn. Nú hafa 13 ein- staklingar af 17 verið sýknaðir, sumir eftir að hafa verið rúm 3 ár í varðhaldi. Í kjölfar sýknudómsins hafa há- værar raddir heyrst um galla franska réttarkerfisins og keppast nú hátt- settir embættismenn við að biðja sak- borningana fyrrverandi afsökunar og lofa endurbótun á réttarkerfinu. Skuggi Dutroux-málsins Málið hófst fyrir fimm árum þegar fjögur systkini í bænum Outreau í Pas-de-Calais-héraði í Norður- Frakklandi sýndu alvarleg ummerki kynferðislegrar misnotkunar og síðan kom í ljós, að þau höfðu verið misnot- uð á fimm ára tímabili af báðum for- eldrum sínum, Thierry og Myriam Delay, en einnig af nágrannahjónum þeirra, David Delplanque og Aurelie Grenon. Á þessum tíma var mál belg- íska barnaníðingsins Mark Dutroux ofarlega á baugi í fjölmiðlum og því voru ásakanir barnanna teknar mjög alvarlega. Enginn vildi endurtaka mistökin, sem einkenndu belgíska málið, en það tók mörg ár að klófesta afbrotamennina vegna getuleysis lög- reglunnar. Nokkrar stúlkur létu lífið en þeim hefði mátt bjarga, hefði Dutroux verið handtekinn fyrr. Barnaklámhringur? Börnin og sakborningarnir í Ou- treau-málinu nefndu aðra einstak- linga til sögunnar, sem áttu að hafa AP Þrír sakborninganna, Daniel Legrand, Franck Lavier og Sandrine kona hans, eftir sýknudóminn. Óttinn við mistök hafði skelfilegar afleiðingar Eftir mikla rannsókn er niðurstaðan í kunnasta barnaníðingsmáli Frakklands sú að 13 sakborningar af 17 hafi verið ranglega ákærðir að því er segir í grein Söru Kolka. Nú er það franska réttarkerfið sem er á sakamannabekknum. sara@mbl.is ANNE Brit Sandø, vísindamaður við Nansen-umhverf- isrannsóknastöðina í Björgvin í Noregi, vísar á bug þeim niðurstöðum breskra vísindamanna, að Golf- straumurinn sé að veikjast með þeim afleiðingum, að búast megi við kaldari tíð í Norður-Evrópu. „Það er ekkert, sem bendir til, að dregið hafi úr styrk Golfstraumsins. Það er vitleysa,“ sagði Sandø í viðtali við Aftenposten en vísindamenn við Hafrann- sóknastofnunina í Southampton á Englandi segja í grein, sem birtist fyrir nokkrum dögum í tímaritinu Nature, að þær breytingar hafi átt sér stað á Golf- straumnum, að streymið hafi snúist við að hluta og fari nú í suðurátt. Það muni aftur leiða til kaldara veðurfars í N-Evrópu. „Við höfum ekki fundið merki um neinar breytingar á yfirborðsstraumnum milli Íslands og Skotlands. Það er hann, sem færir okkur ylinn úr suðri og á honum hafa ekki orðið neina breytingar í 50 ár,“ sagði Sandø. Bresku vísindamennirnir segja, að Golfstraumurinn hafi veikst um 30% frá 1957 en Sandø segir, að sé eitt- hvað til í því, þá muni hækkandi hitastig almennt vinna gegn kólnandi tíð. Kólnar ekki á næstunni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.