Morgunblaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 9 FRÉTTIR Mánudagur 5. des. Spínat-lasagne Þriðjudagur 6. des. Ofnbakað eðalbuff m/sætri kartöflu Miðvikudagur 7. des. Orkuhleifur m/rótargrænmetismús & heitri sósu fimmtudagur 8. des. Marokkóskur pottur & buff Föstudagur 9. des. Hnetusteik m/Waldorfsalati Helgin 10.-11. des. Sítrónukarrý & spínatbuff Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Glæsilegir samkvæmiskjólar Pelsfóðurjakkar Pelsfóðurkápur Síðumúla 13 108 Reykjavík sími 568 2870 Opið 10:00 – 19:00 ÚTSALA – ÚTSALA Dæmi um verð: Áður: Nú: 40-60% afsláttur Opið í dag 10-18 Rúllukragapeysa 6.000.- 2.900.- Loðin jakkapeysa 6.900.- 4.200.- Marglit peysa 7.200.- 2.900.- Peysa m/tölum 6.200.- 3.800.- Jakkapeysa flís 5.300.- 2.900.- Bolur m/pallíettum 4.300.- 2.600.- Bolur m/nælu 4.000.- 2.400.- Blúndutoppur m/rós 4.000.- 2.400.- Dömuskyrta 4.900.- 2.600.- Úpa m/hettuog skinni 5.800.- 3.500.- Mokkajakki 10.800.- 5.900.- Pelsjakki 7.900.- 4.800.- Kápa m/pels 7.800.- 4.700. Kjóll m/perlum 7.300.- 3.900.- Sítt pils hneppt 5.000.- 2.900.- Svartar buxur 4.400.- 2.700.- Kvartbuxur 5.400.- 2.900.- Gallabuxur 6.400.- 3.900.- Leðurstígvél 15.200.- 5.900.- Svartir dömuskór 4.500.- 2.700.- Silfur skór 5.400.- 2.900.- KRISTALSKRÓNUR - mikið úrval 24 karata gylling eða silfur satín. ERUM FLUTT ÚR FAXAFENI Í KRINGLUNA KRINGLUNNI FALLEG www.tk.is JÓLAGJÖF Verð frá kr. 65.500.- JÓLASKRAUT 12 teg. Verð aðeins kr. 1.250.- stk ERUM FLUTT ÚR FAXAFENI Í KRINGLUNA KRINGLUNNI FALLEG www.tk.is JÓLAGJÖF Sveinn Rúnar Hauksson,læknir og formaður félags-ins Ísland – Palestína, ernýkominn heim úr þriggja vikna dvöl í Palestínu. Ferðaðist hann um Vesturbakkann, Gaza, Hebron, Betlehem, Austur- Jerúsalem, Ramallah og Nablus og einnig palestínskar byggðir í Ísrael sem voru hernumdar árið 1948. Lagði hann áherslu á að skoða heil- brigðisþjónustu og sérstaklega heilsugæslu í flóttamannabúðum Palestínumanna. Sveinn Rúnar sagði í samtali við Morgunblaðið að það sem stæði upp úr eftir ferðina væri hversu mikil áhrif aðskiln- aðarstefna Ísraela hefði á líf og störf Palestínumanna. Ísraelar hófu að reisa aðskilnaðarmúr árið 2003 og að sögn Sveins Rúnars var byggingu múrsins hraðað þegar brottflutn- ingur Ísraela frá Gaza hófst hinn 17. ágúst síðastliðinn. Segir hann að meðan fréttum af brottflutningi Ísraela var fagnað víða um heim hafi farið ansi hljóðlega þessi hraða upp- bygging múrsins. Eins hafi fjölgað verulega í landtökubyggðum. Þá hafi Ísraelar lagt hraðbrautir á fjölmörg- um stöðum og reist girðingar víða. Að sögn Sveins Rúnars hafa allir þessir þættir áhrif á líf fólks í Palest- ínu. „Börn komast ekki í skóla vegna lokana og hindrana og þessi aðskiln- aðarmúr er gjörsamlega að eyði- leggja líf fólks. Ég ók þarna eftir hraðbrautum og þær skera á mörg- um stöðum í sundur vegina sem liggja á milli þorpa og þær skera líka þorpin í sundur. Á einum stað var það þannig að meginkjarni þorpsins var einum megin við hraðbrautina og hinum megin við hraðbrautina var svo skólinn sem ekki var lengur hægt að nota og Palestínumenn hafa engan aðgang að. Ísraelar loka að- ganginum með þessum hrað- brautum. Stundum eru það akrarnir og aldingarðarnir sem hafa verið skornir af og fólkið kemst ekki leng- ur til. Fólk getur því oft og tíðum ekki sótt sína vinnu.“ Sveinn Rúnar segir að verið sé að byggja land- tökubyggðir á Vesturbakkanum hratt upp. „Þetta eru í raun land- tökublokkir, ekki ein há húsbygging heldur samstæður af landtöku- byggðum eða nýlendum sem verið er að reisa núna fyrir austan Jerúsal- em. Þar er komin ein 140.000 manna byggð. Þarna er að myndast sam- felld landtökubyggð frá Jerúsalem alveg að Dauðahafinu og mun hún skera Vesturbakkann í sundur. Þannig að samgöngur í Palestínu milli norðurs og suðurs, milli Ramal- lah og Betlehem, eða Nabuls og Hebron, verða fyrir bí nema með sérstökum leyfum ef hernáms- yfirvöldum þóknast að hleypa fólki í gegn,“ segir Sveinn Rúnar. Vegna þessara lokana og hindrana versna möguleikar fólks á að sækja sér heil- brigðisþjónustu. Hreyfanlegar heilsugæslustöðvar fara á milli og búast má við að þær komi í þorpin ekki sjaldnar en einu sinni í viku en til að sækja alla sérfræðiþjónustu og til að komast á sjúkrahús eða á fæð- ingardeild þarf leyfi hernáms- yfirvalda til að ferðast á milli svæða. Eiga að fjarlægja múrinn Ísraelsmönnum var gert að fjar- lægja múrinn hinn 9. júlí 2004 þegar Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurð- aði að Ísraelsmönnum bæri að fjar- lægja múrinn og greiða fólkinu bæt- ur fyrir þann skaða sem hann hefur valdið því, segir Sveinn Rúnar. „Nú eru komnir 17 mánuðir síðan úr- skurðurinn tók gildi og enn bólar ekkert á því að Ísraelsmenn hlíti úr- skurði Alþjóðadómstólsins. Maður sér heldur ekki að ríkisstjórnir heimsins, þar á meðal ríkisstjórn Ís- lands, séu að gera ýkja mikið til þess að þrýsta á Ísraelsmenn að fara að alþjóðalögum og fjarlægja þennan múr,“ bætir hann við. Þjóðernishreinsun „Þessi múr, girðingar, byggingar og vegagerðir Ísraela á Vesturbakk- anum útiloka algerlega ríki Palest- ínumanna í framtíðinni, það er hverj- um manni ljóst sem þarna kemur. Það sem kemur til greina í framtíð- inni væru þá 5–6 svæði sem Palest- ínumenn fengju að vera á og réðu yf- ir, eins og verndarsvæði indíána í Bandaríkjunum til dæmis, þeir hefðu þá ekki landamæri að neinu ríki nema hernámsríkinu Ísrael og væru alls staðar hindraðir af því í ferðum. Í fyrsta lagi verður aldrei sjálfstætt ríki Palestínu með þessu móti og í öðru lagi verður fólkinu gert ókleift að vera og búa þarna. Þetta gerist hægt og hljótt en þarna á sér stað þjóðernishreinsun þegar fólki eru skapaðar þannig aðstæður að það er eins og það búi í stóru fangelsi og er allar bjargir bannaðar. Þá hlýtur það fyrr eða síðar að gefast upp og þetta er maður farinn að sjá nú þegar unga fólkið er hreinlega farið að flytjast í burt,“ segir Sveinn Rúnar. Sveinn Rúnar Hauksson læknir er nýkominn heim úr heimsókn til Palestínu Aðskilnaðarmúr Ísraela hefur mikil áhrif á líf Palestínumanna Baráttulist blómstrar í veggjakroti á aðskilnaðarmúrnum. Sveinn Rúnar ásamt palestínskum hermanni. Landtökulið gyðinga eftirlét Palestínumönnum synagóguna í Neve Dkalim en eyðilagði öll önnur hús. Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.