Morgunblaðið - 05.12.2005, Qupperneq 16
„VIÐ byrjum að taka þorpið fram
um miðjan nóvember,“ segir Bryn-
dís Rut Jónsdóttir. „Það tekur tíma
að hagræða og ákveða hvar húsin
eiga að standa og
svo er það kirkjan,
tjörnin, dansandi
fólk og aðrir íbúar
að ógleymdri
hestakerrunni en
hún er í uppáhaldi
á heimilinu.“
Þau hjónin
Bryndís og Jón
Brynjar Birg-
isson fengu
fyrsta húsið
fyrir um þrem-
ur árum og
hafa síðan verið
að bæta við
nýjum húsum,
fólki og trjám.
Fyrstu húsin voru keypt á netinu
en nú fást þau í verslunum hér á
landi.
„Okkur finnst jólin vera að koma
þegar við erum að dunda við að
setja þorpið upp,“ segir Jón Brynj-
ar. „Og það er ekki kastað til þess
hendinni. Við grípum í þetta stund
og stund í hvert sinn.“
Kirkjan og sum húsanna eru upp-
lýst og gefa þorpinu skemmtilegan
svip. „Við byrjum á landslaginu og
ákveðum hvar húsin eiga að
standa,“ segir Bryndís. „Elstu hús-
in og jafnframt þau fyrstu sem við
eignuðumst eru uppi í hæð og þessi
nýrri og stærri eru fyrir neðan.
Landslagið höfum við mótað úr
steinum og lyngið er úr móunum
hér fyrir utan.“
Jóla-
þorp í
stofunni
SKRAUT
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hestvagninn er í miklu
uppáhaldi í jólaþorpinu.
Jón Brynjar Birgisson, Árni Jökull Jónsson og Bryndís Rut Jónsdóttir, með jólaþorpið sem stækkar á hverju ári.
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Árangur fer eftir gæðum
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
www.celsus.is
29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
· GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Súrefnistæmdar umbúðir
vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaðir
og hreinir, ræktaðir í ferskvatni eftir
ströngum gæðastaðli.
ISO9001 · ISO14001
V
o
ttað
100% lífræ
nt
Fæst í öllum apótekum.
Greinilegur árangur eftir
nokkra daga inntöku
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Yggdrasill
daglegtlíf
ídesember
EKKI
SVÆFT
NÝUNG
Í ÓFRJÓ-
SEMIS-
AÐGERÐ-
UM
JÓLIN ERU
AÐ KOMA
ALGENG þunglyndislyf geta
haft varanleg neikvæð áhrif á
beinagrindina að því er norsk
rannsókn gefur til kynna.
Rannsóknin tók til lyfsins Pro-
zac en fleiri þunglyndislyf virka
eins og Prozac og hægt að
draga þær ályktanir að áhrif
þeirra á beinagrindina séu þau
sömu, að því er fram kemur á
vefnum forskning.no. Þegar
fólk notar þunglyndislyf af
þessu tagi eykst magn serótón-
íns í heilanum en það er mik-
ilvægt efni í boðskiptum heil-
ans. Aukið magn þess hefur
jákvæð áhrif á þunglyndi og
andlega vanlíðan en lyfin hafa
einnig áhrif á serótónínmagn
annars staðar í líkamanum.
Þunglyndislyfin virðast trufla
jafnvægi á milli uppbyggjandi
og niðurbrjótandi efna í bein-
um mannslíkamans og er talið
að beinin verði viðkvæmari fyr-
ir vikið. Og líkurnar á bein-
þynningu aukast.
Frekari rannsóknir á þessu
fara nú fram bæði í Hollandi og
Bandaríkjunum en norska
rannsóknin, sem er dokt-
orsrannsókn læknisins Björns
I. Gustafssons við NTNU-
háskólann, leiddi einnig í ljós
að samhengi er á milli serótón-
íns í blóðinu og skemmda í
hjartalokum, svokallað carc-
inoide-einkenni. Ef það er ekki
meðhöndlað getur það verið
lífshættulegt, að því er fram
kemur á forskning.no.
Bein-
þynning
og þung-
lyndislyf
HEILSA
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111