Morgunblaðið - 05.12.2005, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.12.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 25 MINNINGAR Ég var montin að eiga þig sem systur og oft fannst mér ég þurfa að umvefja þig, þú varst svo lítil og brothætt, samt svo ótrúlega seig og dugleg, það sýndi sig best þegar þú settir á stofn þína eigin snyrtistofu af mikilli natni og samviskusemi. Fallegt umhverfi stofunnar bar þess merki að þú varst mikill fag- urkeri og varst mikið fyrir fallega hluti. Út úr húsi fórst þú aldrei öðruvísi en tilhöfð og vel snyrt enda snyrtisérfræðingur að mennt. Baldur sagði mér að degi fyrir andlát þitt fóruð þið fjölskyldan saman í Smárann, þú varst svo ánægð og stolt í fínu fötunum og nýju flottu skónum og með nýja veskið sem Baldur færði þér þegar hann kom úr síðustu utanlandsferð nokkrum dögum áður, þú vildir alltaf vera flott. Hamingjan brosti við litlu fjölskyldunni, það var verið að hugleiða jólin, það átti að klára ýmislegt heima því það átti jafnvel að breyta um og vera heima í Kópavoginum þessi jól. Nokkrum stundum seinna ertu horfin á braut. Þetta er ótrúlegt, Silla mín, við sem stöndum eftir reynum að halda utan um Baldur og Eddu Karitas. Ég veit þú verður hjá þeim, Silla mín, og leiðir þau áfram. Þið voruð öll svo samstillt og gerðuð allt sam- an. Hamingjusöm fjölskylda. Við systkinin og fjölskyldur biðj- um góðan Guð að styrkja Baldur og Eddu Karitas og alla fjölskylduna á þessari sorgarstundu. Þið eigið góðar minningar að ylja ykkur við. Elsku systir okkar, við biðjum góðan Guð að varðveita þig, ég veit þú verður fallegur engill eins og þú varst í þessu lífi. Fyrir hönd okkar systkina þinna Anna, Hjörleifur, Helgi, Vignir, Helga og fjölskyldur. Hún Sigurlaug frænka var ein af þeim konum sem stóðu upp úr fjöldanum, hvar sem hún var. Sem lítil stúlka með ljóst sítt hár og stór brún augu vakti hún jafnan athygli vegfarenda í heimabæ sínum á Ak- ureyri. Ég man fyrst eftir frænku minni þegar hún er á unglingsaldri. Þá var ég smástelpa sem horfði aðdá- unaraugum á Sigurlaugu klæðast flottu fötunum sínum og hafa sig til fyrir Sjallann. Henni varð stundum heitt í hamsi þegar leið að kvöldi og hún var ekki búin að finna föt sem pössuðu fullkomlega saman. Það lék enginn vafi á að hún hafði næmt auga fyrir fegurð og litasamsetn- ingu og mér fannst að það ætti örugglega enginn jafn fallega frænku og ég. Þessar listrænu gáf- ur áttu eftir að móta starfsval hennar sem snyrtifræðings seinna meir og að fá að njóta sín í sköp- unargleði innan heimilisins. Sigurlaug flutti til Reykjavíkur til að nema snyrtifræði og fann hún sig fullkomlega í þeirri grein. Hún var einstaklega gefandi manneskja og vildi öllum vel. Hennar nánustu nutu góðs af dekri eins og andlits- böðum, nuddi og aldrei gaf Sig- urlaug nema það allra besta. Fyrir nokkrum árum lét hún draum sinn rætast og opnaði sína eigin snyrtistofu í Kópavogi, sem var bæði glæsilega og hlýlega inn- réttuð, og naut hún þess tímabils vel. Stuttu eftir tvítugt kynnist Sig- urlaug lífsförunaut sínum í Baldri, sem var hennar bjargfesti og hvatningarmaður þegar á reyndi. Saman eignuðust þau Eddu Karítas sem var augasteinn móður sinnar og virtust þær stundum sem ein væri. Sigurlaug var ákaflega trygg sínu fólki og lét ekkert tækifæri ónýtt til þess að heimsækja bernskuslóðir í þorpinu á Akureyri. Við sem eftir lifum þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast Sigur- laugu og biðjum Guð að vera með Baldri og Karítas og styrkja þau í sorginni. Drífa Davíðsdóttir. Elsku Silla. Mikið fannst mér sorglegt að heyra að þú værir farin héðan svona fyrirvaralaust og svo allt of ung. Reyndar trúi ég því varla enn. Síðustu daga hafa minn- ingarnar hrannast upp og þær eru óteljandi. Fyrir utan að hafa verið bestu vinkonur í mörg ár þá vorum við líka bekkjarsystur nær öll okk- ar grunnskólaár. Ég man t.d. eftir okkur sem litlum stelpuskjátum að leika okkur með dúkkulísur, úti að renna okkur á snjóþotum, þegar við nokkrum árum síðar urðum fyrst skotnar í strákum (reyndar minnir mig að fyrst höfum við verið skotnar í sama stráknum), Spánarferðinni sem við fórum í, útilegunni skemmtilegu í Vaglaskógi og mörgu fleiru sem tengist gelgjunni svokallaðri með öllu því sem henni fylgir. Já, þá var oft margt brallað og mikið hlegið. Eftir að við fluttum suður varð sambandið alltaf strjálla og strjálla en þó varð mér oft hugsað til þín og vinataugin var sterk eins og ég fann svo greinilega þegar ég hitti þig núna fyrir stuttu. Þú varst þá, eins og þú varst alltaf, svo falleg með ljósa hárið þitt, stóru brúnu augun og þitt einstaklega fallega bros. Mikið fannst mér gott og gaman að sjá þig og það hvarflaði að sjálfsögðu ekki að mér þá að það væri síðasta skiptið sem við hitt- umst. Ég horfi í ljóssins loga sem lýsir í hugskot mitt og sé í björtum boga brosandi andlit þitt. (Snjólaug Guðm.) Með þessum orðum kveð ég þig, elsku Silla mín. Takk fyrir allar þessar góðu og skemmtilegu stund- ir sem við áttum saman í gegnum öll árin. Baldri, Eddu Karitas og öðrum aðstandendum sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Þín æskuvinkona, Helga. Í dag kveð ég kæra vinkonu til 25 ára. Ég upplifi sterkar en nokkru sinni fyrr mikilvægi þess að gefa sér tíma til að rækta vináttu og njóta hverrar stundar. Ég finn fyrir depurð og söknuði en ofarlega í huga mínum er einnig þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa fengið sem 18 ára ung stúlka að kynnast tveim yndislegum manneskjum sem æ síðan hafa verið og munu alltaf verða hluti af lífssögu minni og minningum. Ég kynntist Sillu vinkonu og Eddu móður hennar sumarið 1981 á Skjaldarvík. Þetta sumar mynd- uðust með okkur traust og einlæg vináttutengsl. Silla var einstök manneskja og bar alltaf hag sinna nánustu fyrir brjósti. Ég naut þeirra forréttinda að vera fasta- gestur í Stórholtinu á menntaskóla- árum. Minningarnar eru margar. Við rúntuðum um Akureyrarbæ á „litla bílnum“ hennar Sillu, komum títt við á bensínstöðvum til að kaupa bensín fyrir smáupphæðir og á þvottaplönum svo bíllinn væri nú hreinn og flottur. Við byrjuðum í megrun fyrir hádegi í vinnunni, borðuðum bara soðið hvítkál en slógum svo saman í lakkríspoka seinni partinn. Árin liðu, ég fór að búa og eignaðist dóttur. Silla og Edda komu í heimsókn og færðu dóttur minni sinn fyrsta jólakjól. Í dag er hann vel varðveittur svo dóttir mín geti átt hann sem minn- ingu eða hugsanlega notað hann síðar á lífsleiðinni. Silla flutti suður, lærði snyrti- fræði, kynntist Baldri og fór að búa. Stuttu seinna eignuðust þau dóttur, hana Eddu Karitas. Eftir að við fjölskyldan fluttum suður, áttum við Silla saman marg- ar góðar stundir, oftast með dætr- um okkar. Við nutum þess að hitt- ast og ræða um það sem okkur lá á hjarta hverju sinni. Ekki hvarflaði það að mér að svo fljótt kæmi að ótímabærri kveðju- stund. En minningin um yndislega vinkonu mun lifa að eilífu, að hafa fengið að kynnast henni hefur auðgað líf mitt. Elsku Baldur og Edda Karitas, missir ykkar er mikill. Ég og fjöl- skylda mín vottum ykkur okkar innilegustu samúð og biðjum þess að góður Guð veiti ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Sigrún Broddadóttir. Okkur langar að minnast stutt- lega góðrar vinkonu sem nú hefur kvatt. Hugurinn reikar til baka til okkar krakkanna í Stórholtinu þar sem lífið var svo áhyggjulaust og endalausir leikir og gleði. Það voru ófáar útilegurnar sem við vinkon- urnar fórum í og stelpuferðir til Reykjavíkur þar sem tískubúðirnar voru þræddar. En tíminn líður og hver fer í sína áttina. Við höfum hitt Sillu mis- mikið undanfarin ár en minningin lifir í hjarta okkar. Við þökkum þér, Silla, fyrir allar góðu stund- irnar og vottum Baldri, Eddu Kar- ítas og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Sofðu rótt, kæra vinkona. Stefanía og Heiða Hrönn. Síðasta vetur okkar Gunna á Laugarvatni lékum við báðir í léttu gamanleikriti, hinu fyrsta ,,í fullri lengd“ sem sett var á svið í skól- anum. Það hét Gleiðgosinn og Gunni þótti sjálfkjörinn í titilhlutverkið, glaðbeittan náunga sem sí og æ var að létta gömlum félögum sínum lífið, koma einum þeirra í borgarstjórn, öðrum í hjónaband o.s.frv. Ég lét einhvern tíma þau orð falla að þarna hefði Gunni ekkert þurft að leika, svo eiginlegt var það honum að verða öðrum að liði. Nú finnst mér rétt að bæta því við að sumar að- ferðirnar sem Gleiðgosinn notaði til að koma ætlun sinni fram hefði Gunni reyndar aldrei leikið eftir nema á sviðinu, svo heilsteyptur og vandaður sem hann var. Ég veit ég mæli fyrir munn bekkjarsystkina okkar þegar ég þakka Gunna samverustundirnar og allar þær ljúfu minningar sem hann lætur eftir sig. Ástvinum hans sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Kristinn Kristmundsson. Vinur okkar til margra ára, Gunn- ar Oddur Sigurðsson, er lagður til hinstu hvílu í dag. Vinátta okkar spannaði nær hálfa öld eða allt frá 1959, er hann hóf störf hjá Loftleið- um, í gamla Grumman-flugvélakass- anum á Reykjavíkurflugvelli, sem þá kallaðist afgreiðslusalur farþega í millilandaflugi. Á þeim tíma not- uðu Loftleiðir stórmagnaðar teg- undir flugvéla, DC4 og voru að byrja með DC6B, og þá var að hefj- ast mesta uppgangstímabil Íslend- inga í millilandaflugi. Slagorðið „Fljúgðu hægt og borgaðu vægt“ var í algleymingi. Flug Loftleiða frá Lúxemborg til New York, með milli- lendingu á Íslandi, vann sífellt á og nokkrum árum síðar, þegar Loft- leiðir flugu stærstu vél Atlantshafs- ins með 189 farþega innanborðs á þessari leið, voru þeir oft kallaðir „The Hippie Express“ – Flugfélag blómabarnanna – og toppurinn var 21 flugferð á víku á milli heimsálf- anna. En nú er hún Snorrabúð stekkur. Afdráttarlaus samkeppni ís- lensku flugfélaganna var í algleym- ingi á Evrópuleiðunum, sem endaði, eins og kunnugt er, með lagasetn- ingu, þar sem samkeppnin var bönnuð. Nú er öldin önnur og sam- keppnin aftur leyfileg, meira að segja bannað að banna hana. Gunnar Oddur var rétt rúmt ár í þjónustu Loftleiða á Íslandi og var færður til í starfi til Loftleiða í New York á Idlewild-flugvelli, eins og hann hét þá. Þjálfun flugumsjónar- manna Loftleiða var í burðarliðnum og á þessum tíma sendu Loftleiðir fimm flugumsjónarmenn til náms í New York og þannig atvikaðist að margir þeirra bjuggu hjá Gunnari Oddi í New York meðan á náminu stóð. Þegar svo allir voru komnir aftur heim hélt vinskapurinn áfram og lét aldrei á sjá, þótt sumir okkar hyrfu til annarra starfa; Gunnar Oddur, nú kominn með fjölskyldu, til Bahama-eyja og síðan til Chicago og svo aftur heim, á Keflavíkurflug- völl, í Reykjavík, á Akureyri eða allt þar til að hann lét af störfum hjá Flugleiðum. Skömmu síðar fluttust þau hjónin í þriðja sinn til Banda- ríkjanna. Við hinir veltumst líka um í flug- kerfinu, til Lúx og heim aftur eða hættum af því að við héldum að grasið væri grænna annars staðar. Minnisstæð er tíu daga ferð okkar sex félaganna á tveimur jeppum, annar rauður og hinn grár, um Sprengisand og Norðurland og til baka yfir Kjöl í ágúst 1964. Aðeins þrír okkar eru nú eftir til að rifja upp þessa mögnuðu ferð, þar sem Gunnar Oddur geystist um á sandi með gráan bíl í bandi. Margra samverustunda er að minnast yfir langt tímabil og eru þær allar okkur kærar. Gunnar Oddur og Doddý voru höfðingjar heim að sækja, Gunnar Oddur hrók- ur alls fagnaðar í góðum hópi og eignuðust þau fjölda vina, bæði hér heima og erlendis, sem margir hafa haldið sambandi við þau hjónin þótt bætt hafi í vegalengdirnar og lengra orðið á milli vinafunda. Hann var góður vinur, hans verð- ur sárt saknað. Doddý og hennar góðu fjölskyldu vottum við okkar innilegustu samúð og biðjum þeim Guðs blessunar. Megi Gunnar Oddur, drengur góður, hvíla í friði. Kristinn (Diddi), Einar og Svavar. Góður vinur og samstarfsfélagi er fallinn frá, Gunnar Oddur Sigurðs- son. Hann lést eftir baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Kynni okkar voru löng og góð yfir fjóra áratugi, þótt leiðir skildu oft um tíma. Kynni okkar hófust fyrst hjá Loftleiðum, þar sem við störf- uðum saman, en fljótt lágu leiðir Gunnars til útlanda. Starfaði hann hjá félaginu í New York, á Bahama- eyjum hjá „Air Bahama“ sem var í eigu Loftleiða, síðan í Chicago, það- an lá leiðin aftur heim til Íslands. Þau hjón áttu samt eftir að halda vestur um haf um tíma. Á öllum þessum stöðum stóð hús og heimili þeirra hjóna opið vinum og kunningjum. Þau voru svo sann- arlega höfðingjar heim að sækja. Það voru ófáir sem nutu gestrisni þeirra. Þar fengu allir húsnæði, við- urværi í mat og drykk ásamt akstri frá einum stað til annars, sér að kostnaðarlausu. Það kom aldrei til greina að greiða neitt. Þótt Gunnar dveldi langdvölum erlendis, var hans ættarland alltaf sterkt í hans huga og ekki síst minn- ingar frá Stykkishólmi, en þar dvaldi hann á yngri árum. Gunnar var virtur bæði í starfi og meðal vina, glaðlyndur og gaman- samur maður með góða kímnigáfu. Fróður vel, gefandi, með jákvætt hugarfar og vinamargur. Gunnars Odds verður sárt saknað af vinum og félögum. Mestur er þó missir hans ástríku fjölskyldu, sér- staklega eiginkonu, sem sér á bak elskuðum ævifélaga. Við vottum þeim innilega samúð og biðjum guð að styrkja þau í sorginni. Blessuð sé minning hans. Hafdís, Jón og kaffifélagarnir. Félagar í Lionsklúbbnum Fjölni kveðja í dag virtan og ötulan liðs- mann. Gunnar kom í klúbbinn okkar haustið 1998, þegar hann flutti til Reykjavíkur en hann hafði áður starfað lengi í Lionsklúbbnum Hugin á Akureyri. Hann hafði starfað mikið innan Lionshreyfing- arinnar á landsvísu og m.a. verið umdæmisstjóri í umdæmi 109B og var útnefndur Melvin Jones félagi árið 1992 en það er æðsta viður- kenning innan hreyfingarinnar. Við gleðjumst alltaf þegar nýir menn koma til þess að vinna með okkur, því að verkefnin eru nóg og alltaf þörf á að leggja lið þeim sem í vanda á. Verkefni okkar klúbbs, Fjölnis, var lengi vel meðferðarheimilið að Víðinesi, en eftir að það var lagt nið- ur tókum við upp samvinnu við með- ferðarheimilið í Krísuvík, þar sem verkefni hafa verið og verða lengi ærin. Gunnar Oddur lét ekki mikið yfir sér þegar hann fór að mæta á okkar fundum. Fæstir okkar þekktu manninn af fyrri störfum, og við vissum því lítið við hverju ætti að búast. En það þurfti ekki að velkjast lengi í efa um hvernig Gunnar myndi vinna með okkur þegar að verkefnum kom, hann var ávallt í fremstu röð þeirra sem á verkefnin réðust, og alltaf tilbúinn að veita ráð og leiðbeiningar, og strax sýndi sig að hann tók af miklum reynslusjóði sem okkur hefur orðið mikill happa- fengur. Klúbburinn okkar fagnaði 50 ára afmæli sl. vor og var Gunnar Oddur formaður afmælisnefndar. Á fyrsta fundi síðasta starfsárs kynnti Gunnar fyrir okkur félögunum myndarlegan söfnunarbauk í ljóns- líki, sem hlaut nafnið „Fjölli“. Var hann látinn ganga á milli manna á öllum fundum vetrarins og safnaðist í hann dágóð upphæð sem gerði klúbbnum kleift að gera afmælishá- tíðina sem veglegasta. Við Fjölnismenn vottum eigin- konu Gunnars, Margréti Þ. Þórðar- dóttur, og öllum þeirra nákomnu ættingjum og vinum innilega samúð við fráfall Gunnars, og um leið þökk- um við góð kynni sem við allir hefð- um viljað að yrðu lengri og nánari. Við kveðjum Gunnar með söknuði og fullvissu um að við kynntumst góðum og ósérhlífnum manni sem vildi leggja öllum lið í fullri einlægni og í fullu samræmi við einkunnarorð Lionshreyfingarinnar. F.h. Lionsklúbbsins Fjölnis, Þórhallur M. Einarsson, formaður. Góður drengur er farinn frá okk- ur, en eins og alltaf þá eru minning- arnar um farinn dreng góðar. Ég kynntist Gunnari fyrst í starfi hjá Loftleiðum á uppbyggingarár- um flugfélagsins, hann starfaði á Keflavíkurflugvelli en ég í Reykja- vík. Það sem greindi Gunnar frá öðr- um mönnum var hans einstaka góð- vild í garð annars fólks og þetta fylgdi honum alla hans ævi. Gunnar var dæmigerður maður sem skildi galla og gæði mannskepnunnar, og hann sýndi það ávallt í verki og störfum. Það var mér og öðrum í þessum flugfélagaheimi Íslands gleðiefni þegar Sigurður (eldri) Helgason skipaði Gunnar í starf stöðvarstjóra Air Bahama í Nassau á Bahamaeyj- um. Samvinna okkar starfsmanna Loftleiða á Kennedyflugvelli í New York og Gunnars var einstaklega góð og það verk sem Gunnar vann þarna á Bahamaeyjum gleymist ekki og þakka ég hér með fyrir það. Íslendingar standa í mikilli þakkar- skuld við Gunnar, sem ávallt vann að uppbyggingu ferðamála Bahama- búa og um leið aðgengi Íslendinga að þessari náttúruperlu Karíbahafs- ins. Í gósentíð Loftleiða varð Gunnar stöðvarstjóri Loftleiða í Chicago, Illinois. Þar með varð okkar sam- starf nánara en fyrr, og ég minnist þessarra ára með mikilli gleði, því það var einstakt að vinna með Gunn- ari í öllum þeim verkefnum sem hann tók að sér fyrir félagið og svo auðvitað ferðamanninn, Íslending- inn sem var að ferðast um Chicago. Glæsilegt starf, að öllu leyti, hjá Gunnari. Þegar Flugleiðir litu dagsins ljós skildi leiðir okkar Gunnars, en heimurinn er smár og þegar ég var önnum kafinn að ráða stöðvarstjóra fyrir nýtt flugfélag í Las Vegas, Nevada, þá varð Gunnar Oddur fyr- ir valinu sem stöðvarstjóri félagsins í Texas. Engin spurning! Ég vil, með þessum fátæklegu orðum, minnast þín, Gunnar, og þakka þér fyrir öll þau „smáverk“, sem voru í raun stórverk, sem þú af- kastaðir í þínu starfi og um leið þakka þér fyrir samferðina. „It was quite a ride.“ Hér gekk góður maður. Baldvin Berndsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.