Morgunblaðið - 27.12.2005, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EITT ÁR LIÐIÐ
Þess var minnst í gær að eitt ár var
liðið frá því að flóðbylgja, tsunami,
reið yfir strendur landa sem liggja að
Indlandshafi og kostaði a.m.k.
216.000 manns lífið. Mest var mann-
fall í Indónesíu en um 168.000 týndu
lífi í Aceh-héraði á eyjunni Súmötru.
Fjöldi manna tók þátt í minning-
arathöfnum sem haldnar voru víðs
vegar um heim; í Indónesíu, Taílandi,
Sri Lanka, Sómalíu og í Svíþjóð.
Mannfall í Írak
Tugir manna hafa týnt lífi í hryðju-
verkaárásum í Írak yfir jólin. Átján
manns féllu á jóladag og í gær biðu
a.m.k. nítján bana í nokkrum árásum
í höfuðborginni Bagdad og nágrenni
hennar.
Engu nær eftir lesturinn
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segist litlu nær
eftir lestur greinargerðar Garðars
Garðarssonar, formanns Kjaradóms,
til forsætisráðherra frá því á Þorláks-
messu. Segir hann að í svari Garðars
sé ekki útskýrt það sem máli skipti,
þ.e. þær launahækkanir og tilfærslur
milli launaflokka sem kjaranefnd hafi
ákveðið og Kjaradómur elti með úr-
skurði sínum.
Fylgdist með Gunnari
Gunnar Egilsson pólfari varð fyrst-
ur manna til að fara einbíla og
óstuddur á Suðurpólinn og aftur til
baka í Icechallenger-leiðangrinum
sem nú er lokið. Meðal þeirra sem
fylgdust náið með ferðum Gunnars
voru sir Edmund Hillary, sem tók
þátt í leiðangri breska heimsveldisins
yfir Suðurskautslandið 1957-8, og
sonur hans Peter Hillary.
Nýtt framleiðslumet
Allt bendir til að nýtt fram-
leiðslumet verði sett í álveri Alcan á
Íslandi á þessu ári. Gera má ráð fyrir
að framleidd verði 179.400 tonn í ál-
verksmiðjunni á árinu, en það er um
1.000 tonna aukning frá síðasta ári.
Útsölurnar hefjast í dag
Fyrstu útsölurnar eftir jól hefjast í
dag og er það Dressmann sem ríður á
vaðið.
Aukin sala heima fyrir
Útflutningur á lambakjöti hefur
dregist verulega saman á árinu sam-
anborið við síðustu ár. Skýrist sam-
drátturinn af stóraukinni sölu á inn-
anlandsmarkaði sem er hið besta mál
að mati bænda.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Bréf 24
Viðskipti 11 Minningar 25/29
Erlent 13 Dagbók 32
Landið 12 Víkverji 32
Daglegt líf 14/16 Staður og stund 33
Menning 17 Menning 36
Umræðan 18/25 Ljósvakamiðlar 42
Forystugrein 22 Veður 43
Bréf 24 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
IVAR Eskeland, fyrr-
verandi forstjóri Nor-
ræna hússins í Reykja-
vík, lést á sjúkrahúsi í
Ósló á Þorláksmessu, 78
ára að aldri.
Ivar Eskeland var
fæddur 30. nóvember
1927 í Stord. Hann var
bókmenntafræðingur
og bókmenntagagnrýn-
andi auk þess að vera
vinsæll útvarpsmaður í
Noregi, en hann þótti
sérlega góður sam-
félagsrýnandi í útvarps-
þáttum sínum auk þess
sem hann þótti hafa góða kímnigáfu.
Ivar Eskeland var mikilvirkur þýð-
andi og rithöfundur, en hann þýddi
yfir 120 bækur úr ýmist íslensku,
færeysku, ensku, frönsku eða þýsku
á norsku. Af íslenskum höfundur
þýddi Ivar Eskeland aðallega verk
Halldórs Kiljans Laxness, en einnig
fleiri nútímahöfunda, svo sem Svövu
Jakobsdóttur.
Ivar Eskeland var aðalritari
Norska málafélagsins 1955–1956 og
formaður sama félags 1960–1963.
Hann var leiklistarráðunautur við
Norska leikhúsið 1960–1965. Hann
varð fyrsti forstjóri Norræna hússins
árið 1968 og gegndi því starfi til 1972
og mótaði á þeim tíma starfsemi þess.
Þá var hann fram-
kvæmdastjóri fyrstu
Listahátíðarinnar í
Reykjavík árið 1970,
en hann stóð að stofn-
un hátíðarinnar ásamt
Vladimir Ashkenazy.
Ivar Eskeland var
framkvæmdastjóri
fyrir menningarskrif-
stofu Norðurlanda í
Kaupmannahöfn 1972–
1974 og útgáfustjóri
hjá bókaforlaginu
Atheneum 1985–1986.
Hann var alla tíð mik-
ilvirkur í félagsstarfi
og sat t.d. í stjórn Norska þýðenda-
félagsins á árunum 1965–1968 og var
formaður Norska gagnrýnenda-
félagsins 1975–1981.
Árið 1970 var Ivar Eskeland gerð-
ur að heiðurslistamanni norska rík-
isins. Hann var sæmdur stórriddara-
krossi Hinnar íslensku fálkaorðu
með stjörnu árið 1997. En hann lagði
ávallt sérstaka áherslu á að miðla ís-
lenskri menningu og sögu. Þannig
kom t.a.m. út bók eftir hann um
Snorra Sturluson árið 1992.
Eftirlifandi eiginkona hans er Åse
Eskeland, en sonur þeirra Bård
fæddist hér á landi meðan Ivar
Eskeland gengdi stöðu forstjóra
Norræna hússins.
Andlát
IVAR
ESKELAND
ERLENDUM ferðamönnum
fjölgaði um 1,2% milli ára ef lit-
ið er til fyrstu 11 mánaða þessa
árs borið saman við sama tíma-
bil í fyrra. Voru erlendir ferða-
menn orðnir tæplega 341 þús-
und við lok nóvembermánaðar,
eða um 4 þúsundum fleiri en á
sama tíma í fyrra. Þó fækkaði
erlendum ferðamönnum í nóv-
ember um 2,9% samanborið við
nóvember í fyrra.
Þorleifur Þór Jónsson, hag-
fræðingur Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir að um raunsam-
drátt sé að ræða því
ferðaþjónustan í Evrópu hafi
vaxið um 3–4% milli ára á þessu
sama tímabili. „Með 1,2% aukn-
ingu erum við með umtalsvert
verri afkomu en aðrar þjóðir
vegna þess að ferðaþjónustan í
heiminum er í mjög góðum
vexti,“ segir Þorleifur. „Meðal-
aukningin hingað til hvað hót-
elnýtingu varðar er um 0,5%
milli ára fyrstu 11 mánuði árs-
ins hérlendis en hún er 4,6% á
Norðurlöndunum. Þessi vöxtur í
ferðaþjónustunni er því ekki að
skila sér hérlendis.“
Þorleifur segir að háu gengi
krónunnar sé um að kenna því
Ísland sé mjög dýr áfangastaður
eins og staðan er í dag. „Flug-
farið hefur lækkað, almennt er
hægt að ferðast á ódýrari far-
gjöldum en áður var og þá getur
fólk freistast til að koma hingað.
En svo halda flestir að sér
höndunum í eyðslu þegar hingað
er komið,“ segir Þorleifur.
Hvað þjóðerni erlendra ferða-
manna varðar vekur athygli að
mest aukning er í hópnum önn-
ur þjóðerni, eða um 16,8% milli
ára á þessu tímabili. Þorleifur
segir að taka verði tillit til þess
hvernig þessar tölur séu fengn-
ar. Talið er í vegabréfsskoðun í
Keflavík við brottför þegar er-
lendu vegabréfi er framvísað og
ekki er hægt að aðgreina ferða-
menn úr hópi erlendra farþega.
Því telji allir þeir aðilar sem séu
að starfa við virkjanafram-
kvæmdir og þaðan sé þessi
aukning líklega til komin.
Telja að raunveru-
lega sé um sam-
drátt að ræða
Ferðamönnum fjölgar um 1,2%
HARÐUR árekstur tveggja fólksbíla
varð á gatnamótum Kringlumýrar-
brautar, Laugavegar og Suðurlands-
brautar um kl. 20.15 í gærkvöldi.
Óskað var aðstoðar tækjabíls til að
klippa annað bílflakið svo hægt væri
að ná ökumanninum út. Hann var
fluttur á slysadeild til skoðunar. Báðir
bílarnir voru fluttir óökufærir af slys-
stað. Loka þurfti gatnamótunum um
stund á meðan unnið var að því að ná
ökumanninum út úr bílnum.
Morgunblaðið/Júlíus
Ökumanni náð úr bílflaki með klippum
LÍKT og greint var frá nýverið eru allar líkur á
því að Íslendingar nái að verða 300 þúsund tals-
ins snemma á næsta ári. Að sögn Ólafar Garð-
arsdóttur, deildarstjóra mannfjöldadeildar hjá
Hagstofu Íslands, er þó enn of snemmt að spá
fyrir um það hvenær nákvæmlega stóru tölunni
verði náð.
Í nýjum mannfjöldatölum frá Hagstofu Íslands
kom fram að íbúar hér á landi voru 299.404 þann
1. desember sl. Á vef Hagstofunnar, www.hag-
stofa.is, hefur verið sett upp mannfjöldaklukka
þar sem hægt er að fylgjast með áætluðum
mannfjölda frá degi til dags. Um kvöldmat-
arleytið í gærkvöldi voru Íslendingar, sam-
kvæmt mannfjöldaklukkunni, samtals orðnir
299.800 og vantaði því aðeins 200 einstaklinga
upp á að stóru tölunni yrði náð. Þess má geta að
að meðaltali fæðist eitt barn aðra hverja klukku-
stund hérlendis, en að sama skapi deyja að með-
altali fimm einstaklingar á dag.
Óvissa með útlendinga
„Aðalóvissuþátturinn snýr að skráningu út-
lendinga til og frá landinu. Við getum sagt til um
það upp á haus hvað fæðast margir hérlendis og
deyja í viku hverri. En meiri óvissa er vegna
skráningar útlendinga hér á landi. Þannig getur
dregist að skrá þá sem koma og að fella út þá
sem flytjast af landi brott,“ segir Ólöf og bætir
við að allt eins líklegt sé að 300 þúsundasti Ís-
lendingurinn verði nýlega aðfluttur ein-
staklingur fremur en nýfætt barn hérlendis.
Bendir hún á að eftir sé að skrá einhvern fjölda
fólks sem þegar er fluttur búferlaflutningum úr
landi. Aðspurð um hvort svo geti farið að Íslend-
ingar verði 300 þúsund í janúar og fækki síðan
aftur niður fyrir þá tölu þegar tekið hefur verið
tillit til brottfluttra Íslendinga segir Ólöf það
ekki útilokað, en tekur þó fram að það sé frekar
ólíklegt.
Aðspurð segir Ólöf stefnt að því hjá Hagstof-
unni að hafa uppi á þeim einstaklingi sem talist
getur 300 þúsundasti íbúi landsins, en ekki sé
enn búið að ákveða hvort einhver viðbúnaður
eða veisluhöld verði í tengslum við það.
Aðeins vantar 200 einstaklinga upp á
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins var kallað út um kl. 20.30 í
gærkvöldi vegna þess sem talið
var vera eldsvoði í íbúð í Mos-
fellsbæ.
Þegar slökkviliðsmenn komu á
staðinn kom í ljós að um var að
ræða gufu frá heitu vatni sem
streymdi þar út. Slökkviliðsmenn
þurrkuðu vatnið upp, en heita
vatnið olli talsverðum skemmdum
á íbúðinni.
Heitt vatn
olli tjóni
ERILSAMT var hjá lögreglunni á
Hornafirði í kjölfar jóladansleiks
aðfaranótt annars í jólum, en þar
var mikið áfengi haft um hönd.
Kom þar m.a. til átaka milli
tveggja manna, sem lyktaði svo að
annar veitti hinum hnefahögg í
andlitið sem leiddi til þess að nef
hans brotnaði. Þá vildi það til, sem
óvenjulegt má telja, að hönd árás-
armannsins brotnaði við höggið.
Voru báðir fluttir á heilsugæslustöð
og hlutu þar viðeigandi aðhlynn-
ingu.
Aðrir Hornfirðingar hegðuðu sér
þó sómasamlega og fóru jólin vel
fram að öðru leyti.
Braut hönd
á nefi annars
manns