Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 35
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í
dag kl. 10–11.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Mið-
vikudagur: Göngu-Hrólfar ganga frá
Hlemmi kl. 10. Skrifstofa Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni
verður lokuð milli jóla og nýárs. Opn-
um aftur mánudaginn 2. janúar kl. 10.
Félagið óskar félögum sínum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, hárgreiðsla. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 12.15 ferð í Bónus. Kl. 15
kaffi.
Norðurbrún 1 | Opin vinnustofa kl. 9–
16.30, smíði kl. 9, myndlist kl. 9–12,
boccia kl. 10, postulínsmálun kl. 13–
16.30 og leikfimi kl. 14.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl.
11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13–16
postulínsmálun. Kl. 13–16 bútasaum-
ur. Kl. 13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45
kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Digraneskirkja | Hin árlega jólagleði
aldraðra verður í Digraneskirkju
fimmtudaginn 29. desember kl. 14.
Söngvinir, kór aldraðra í Kópavogi,
syngur undir stjórn Kjartans Sig-
urjónssonar. Þuríður Helga Ingadóttir
leikur á píanó. Kaffiveitingar í safn-
aðarsal. Allir velkomnir.
Fríkirkjan Kefas | Bænastundir eru á
þriðjudagskvöldum kl. 20.30.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrð-
arstundir eru hvern þriðjudag í Hjalla-
kirkju kl. 18.
Spegilskipting.
Norður
♠ÁG
♥ÁD983
♦DG5
♣KG6
Suður
♠K7
♥G10742
♦Á98
♣Á103
Suður verður sagnhafi í sex hjört-
um og fær hagstætt útspil, tígultvist –
drottning úr borði og austur lætur
kónginn. Hvernig er best að spila?
Þrjár svíningar standa til boða: fyr-
ir hjartakóng, tígultíu og laufdrottn-
ingu. Ef sagnhafi tekur þær allar
verða tvær að heppnast …
Norður
♠ÁG
♥ÁD983
♦DG5
♣KG6
Vestur Austur
♠D983 ♠106542
♥6 ♥K5
♦10742 ♦K63
♣D954 ♣872
Suður
♠K7
♥G10742
♦Á98
♣Á103
… og þá mun slemman velta á
hittni hans í laufinu eins og legan er
hér.
En með vandaðri spilamennsku má
komast af með eina vel heppnaða
svíningu – í tígli. Best er að spila tíg-
ulníu í öðrum slag og svína fyrir tíuna
(enda stunguhætta hverfandi eftir tíg-
ultvistinn út).
Þegar sú svíning heppnast er
hjartaás tekinn, tveir efstu í spaða og
þriðji slagurinn á tígul. Síðan er
trompi spilað. Þá er slemman unnin ef
hjartað er 2-1 (78%). Hér er það aust-
ur sem lendir inni á hjartakóng og
hann verður að spila spaða í tvöfalda
eyðu eða finna laufdrottningu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. g3
dxc4 5. Bg2 Rc6 6. 0-0 Hb8 7. Rc3
b5 8. Re5 Rxe5 9. dxe5 Rd7 10. Dd4
c5 11. Df4 Dc7 12. a4 a6 13. axb5
axb5 14. Hd1 Be7 15. Dg4 Kf8 16.
Bg5 Rxe5 17. Bxe7+ Dxe7 18. De4
Dc7 19. f4 Rg4 20. Ha8 f5 21. Df3
Kf7 22. Hda1 Kg6 23. Hxb8 Dxb8
24. Dc6 b4 25. Rd5 c3 26. Re7+ Kf7
27. Dxc5 Bd7 28. bxc3 bxc3 29. Ha7
c2 30. Hxd7 Db1+ 31. Bf1 c1=D 32.
Rxf5+ Kf6
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Búdapest í
Ungverjalandi. Ísraelski alþjóðlegi
meistarinn Shi Porat (2.444) hafði
hvítt gegn íslenska kollega sínum
Héðni Steingrímssyni (2.435). 33.
Hf7+! Kg6 svartur hefði einnig orðið
mát eftir 33. … Kxf7 34. De7+ Kg6
35. Dg5+ Kf7 36. Dxg7+ Ke8 37.
De7#. 34. Hxg7+ Kf6 35. Dd4+! e5
36. Dd6+ Kxf5 37. Hg5+ Ke4 38.
Hxe5+! og svartur gafst upp enda
verður hann mát eftir 38. … Rxe5
39. Dxe5#. Lokastaða mótsins varð
þessi: 1. Viktor Erdos (2.522) 6½
vinning af 10 mögulegum. 2.–5. Max-
im Turov (2.546), Denes Boros
(2.460), Ivan Farago (2.512) og Hoan
Thanh Trang (2.471) 5½ v. 6.–7.
Tamas Banusz (2.460) og Laszlo
Gonda (2.448) 5 v. 8.–10. Héðinn
Steingrímsson (2.435), Zoltan Varga
(2.525) og Shi Porat (2.444) 4½ v. 11.
David Berczes (2.475) 2 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
ÞAÐ er haft fyrir satt að geð-
læknir nokkur í Parísarborg bendi
sjúklingum sínum á að lesa bækur
Freds Vargas í stað þess að ávísa
þunglyndislyfjum. Og ef þær eru
allar eins og Kallarinn er auðvelt
að skilja hvers vegna. Ekki vegna
þess að þetta sé einhver skemmti-
saga, langt því frá, heldur vegna
þess að hér er á ferðinni óður til
lífsins og manneskjunnar þrátt
fyrir óhugnanlegan söguþráð. For-
tíð og nútíð blandast saman á ein-
staklega eðlilegan hátt og spurn-
ingin margfræga „höfum við
gengið til góðs“ skýtur óhjá-
kvæmilega upp kollinum. Hefur
manneskjan í raun tekið ein-
hverjum breytingum síðan á
fimmtándu öldinni?
Og hafa tækniframfarir og
breytingar á umhverfi einhverja
þýðingu þegar óttinn nær yf-
irhöndinni í samfélaginu?
Við fyrstu sýn virðist söguþráð-
urinn ansi langsóttur og erfitt að
skilja hvernig þetta sögusvið geti
verið sannfærandi; fjöldamorðingi
sem hótar endurkomu svarta
dauða í París dagsins í dag og not-
ar kallara, sem stendur á kassa á
götuhorni, til að koma skilaboð-
unum áleiðis. En Vargas leysir
það snilldarlega. Það verður eng-
inn árekstur milli nútíðar og alda-
gamallar fortíðarinnar. Kallarinn
sem stendur á kassa og les fréttir
og tilkynningar úr hverfinu virkar
sem algjörlega eðlilegt fyrirbæri í
París samtímans og skelfingin
sem tilkynning um væntanlega
endurkomu svarta dauða vekur
virðist fullkomlega skiljanleg á
fyrsta áratug nýs árþúsunds. Og
maður veltir fyrir sér hvað myndi
í raun gerast ef lík með einkenni
plágunnar miklu færu að finnast á
strætum stórborga samtímans.
Persónurnar eru hver annarri
betur dregnar og hversdagsleikinn
í litla hverfinu lifnar fyrir augum
lesandans á sérlega sannfærandi
hátt. Löggan Adamsberg er sér-
lundaður furðufugl, eins og margir
kollegar hans í glæpasagnaheim-
inum, en einstaklega viðkunn-
anlegur furðufugl, þrátt fyrir
óheiðarleika í ástamálunum og til-
finningalega bæklun.
Lausn gátunnar er að vísu frek-
ar klén, en þar sem áherslan er
fyrst og fremst á að skoða hvað
kemur fólki til að myrða og hvern-
ig samfélagið bregst við fjölda-
morðum, kemur það ekki svo mik-
ið að sök. Nafna mín (já, Fred er
stytting úr Frédérique) kann þá
list að segja sögu upp á gamla
mátann og skapa heim sem les-
andinn getur samsamað sig en er
um leið framandi og nýstárlegur.
Engin furða að Frakkar skuli hafa
hana í hávegum og verðlauna
bækur hennar. Kallarinn er sann-
kallaður hvalreki á fjörur krimma-
unnenda og enn ein sönnun þess
að gömlu formúlurnar eru hættar
að virka.
Þýðing Guðlaugs Bergmunds-
sonar er vel unnin og rennur eins
og rjómi, kjarnmikil íslenska án
nokkurs þýðingarkeims. Óskandi
að hann haldi áfram að færa okk-
ur franska eðalkrimma í íslensk-
um sparifötum. Glæsilegt framtak.
Svartur dauði – hvítur húmor
BÆKUR
Skáldsaga
Fred Vargas, þýð.: Guðlaugur Berg-
mundsson, 343 bls. Grámann bókaút-
gáfa, 2005.
Kallarinn
Friðrika Benónýs
Hvers konar samfélagi
búum við í?
ÉG las um það í Fréttablaðinu 21.
desember sl. að laun hæstu embætt-
ismanna hækka um 8,15% frá næstu
áramótum, hafa þau þá hækkað um
90% frá 1999. Það er 40% hærra en
það sem hinn almenni launþegi hef-
ur fengið. Þegar ég hætti að lesa
Fréttablaðið þennan morgun og
opnaði útvarpið þá var þar viðtal á
Útvarpi Sögu við son konu sem er
öryrki og er í hungurverkfalli vegna
sinna aumu kjara. Hún krefst þess
að ríkisstjórnin hækki laun eldri
borgara, öryrkja og annars lág-
launafólks í 150 þús. á mánuði.
Þetta er skelfilegt og hvers konar
samfélagi býr maður í þegar svona
illa er búið að þeim sem minna mega
sín, á meðan laun ráðamanna hækka
sífellt umfram laun annarra, þar
sem láglaunahópar hafa vart ofan í
sig né á, hvað þá að þeir geti veitt
sér nokkurn tíma nokkurn skapaðan
hlut? Fólk þarf að standa í biðröðum
við hjálparstofnanir allan ársins
hring til að reyna að fá mat og aðrar
nauðsynjavörur. Er það svona sam-
félag sem við viljum sjá hér? Ég segi
nei. Ég vil sjá mannúð og mildi hér í
þessu samfélagi. Ef ríkisstjórnin
getur ekki staðið sig betur en þetta
ætti hún bara að fara frá.
Sigrún Reynisdóttir.
Aðeins dýrari
MÉR datt í hug að „Ríkið“ gæti tek-
ið sér til fyrirmyndar Rúmfatalager-
inn sem er aðeins ódýrari og orðað
sína auglýsingu eitthvað á þessa
leið: Áfengisverslun ríkisins, aðeins
dýrari. Fjármálaráðuneytið.
Halldór Þorsteinsson,
skólastjóri Málaskóla
Halldórs.
Svartur köttur í óskilum
ÞESSI svarti köttur hefur verið í
Þingholtunum. Hann er með falleg
stór augu, ógeltur og ómerktur með
smá hvít hár á bringu. Mjög blíður.
Hann var tekinn í hús því hann var
kvefaður. Þeir sem kannast við kisa
hafi samband í síma 691 0539 eða
551 0539.
Sunna er týnd
KISAN okkar hún Sunna týndist 15.
des. frá Laugavegi 63. Hún er sjö
mánaða, hvít og bröndótt kisustelpa.
Hún er mjög blíð og gæf. Hennar er
sárt saknað. Ef einhver hefur orðið
var við hana eða séð hana endilega
hringið í síma 861 9202 eða 869 7363.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
LJÓSMYNDASÝNINGIN Eftir
tsunami verður opnuð í Smáralind í
dag kl. 15.00 þegar eitt ár er liðið
frá flóðbylgjunni við Indlandshaf. Á
sýningunni eru myndir frá Indónes-
íu og Sri Lanka sem teknar voru
níu mánuðum eftir að flóðbylgjan
skall á. Þorkell Þorkelsson ljós-
myndari tók myndirnar en hann
var í Aceh-héraði í Indónesíu og á
Sri Lanka í september. Höfundur
texta er Ómar Valdimarsson sendi-
fulltrúi sem starfaði að uppbygg-
ingu Rauða hálfmánans í Indónesíu.
Úlfar Hauksson, formaður Rauða
kross Íslands, opnar sýninguna
formlega og flytur ávarp.
Nálægt 200 þúsund manns týndu
lífi í flóðbylgjunni sem skall á lönd-
unum við Indlandshaf annan dag
jóla 2004. Eyðilegging lands og
byggða var meiri en áður hefur
þekkst og í kjölfarið hófst umfangs-
mesta hjálparaðgerð Rauða kross-
ins frá upphafi. Íslendingar brugð-
ust vel við neyðarkalli Rauða
krossins og alls söfnuðust 110 millj-
ónir króna til hjálparstarfsins.
Sýningin í Smáralind stendur til
11. janúar 2006 og verður síðan sett
upp í verslunarmiðstöðinni Gler-
ártorgi á Akureyri 16. janúar. Það
var Dikta sem sá um útprentun
myndanna, upplímingu og frágang.
Morgunblaðið/Þorkell
Ein mynda Þorkels Þorkelssonar á sýningunni í Smáralindinni.
Eftir tsunami í Smáralind
LISTASÝNING stendur nú yfir á
Phuket-strönd í Taílandi í tilefni
af því að ár er nú liðið síðan flóð-
bylgjan mikla gekk yfir staðinn. Á
sýningunni, sem helguð er minn-
ingu þeirra sem fórust, kennir
margra grasa og hér tekur banda-
rískur ferðamaður mynd af fram-
lagi heimamannsins Paitoon Jong-
tong.
Reuters
Fórnarlamba minnst