Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Meðlagsgreiðendur!
Meðlagsgreiðendur, vinsamlega
gerið skil hið fyrsta og forðist
vexti og kostnað.
INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA
Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is
Banki 0111-26-504700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101
FRÉTTIR
HREINAR erlendar skuldir þjóðar-
búsins nema nú tæplega 140% af
áætlaðri vergri landsframleiðslu
(VLF) ársins. Í Morgunkorni Grein-
ingar Íslandsbanka segir að þetta
hlutfall hafi hækkað hratt á umliðn-
um misserum þrátt fyrir myndarleg-
an hagvöxt, en miklum viðskipta-
halla, eins og verið hafi undanfarið
hérlendis, fylgi hröð söfnun erlendra
skulda. Þá segir að skuldir þjóðar-
búsins sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu séu háar í alþjóðlegu
jafnt sem sögulegu samhengi og því
sé ástæða til að spyrja hvort í óefni
stefni með erlenda skuldastöðu hag-
kerfisins.
„Erlendis er gjarnan miðað við
þumalfingursreglur á borð við að er-
lendar skuldir skuli ekki vera meiri
en 40% af VLF eða tvöfaldar árlegar
útflutningstekjur svo ekki skapist
hætta á gjaldeyrisáfalli. Þessi hlutföll
eru hærri hér á landi, jafnvel þótt
áhættufjármagn sé tekið með í reikn-
inginn. Að því meðtöldu er hrein
staða við útlönd neikvæð um tæp 90%
af VLF og u.þ.b. 260% af áætluðum
útflutningstekjum ársins.“
Samsetning skulda
skiptir máli
Segir í Morgunkorninu að sam-
setning erlendra skuldbindinga
skipti þó miklu máli þegar meta skuli
áhættu af þeirra völdum fyrir geng-
isþróun krónunnar. Í grófum drátt-
um megi segja að bein erlend fjár-
festing sé áhættuminnst,
langtímalán, erlend kaup á innlend-
um verðbréfum og viðskiptalán komi
þar á eftir en mest sé hættan af er-
lendum skammtímaskuldum því
breytingar á erlendum fjármála-
mörkuðum geti haft snögg og mikil
áhrif á flæði þeirra.
„Bein erlend fjárfesting hérlendis
nemur nú um 16% af VLF og hefur
aukist hratt síðustu ár. Raunar er
bein fjárfesting Íslendinga erlendis
mun meiri, eða um 38% af VLF. Um
80% erlendra skulda eru langtíma-
skuldir og hefur það hlutfall lítið
breyst undanfarin ár. Þau 20% sem
eftir eru mynda skammtímaskuld-
bindingar og nema rúmum 40% af
VLF. Það er fyrst og fremst þessi
hluti erlendra skulda sem gefa þarf
gætur hvað varðar hættu á gjaldeyr-
isáfalli og getur valdið erfiðleikum í
kjölfar gengisaðlögunnar. Rétt er að
hafa í huga að á móti standa erlendar
eignir, sem einnig hafa aukist hratt
undanfarið,“ segir í Morgunkorni
Greiningar Íslandsbanka.
Erlendar skuldir
aukast hratt
Morgunblaðið/Golli
NETAFX er íslenskt netsímafyrir-
tæki sem farið er að bjóða Íslend-
ingum aðgang að ódýrum milli-
landasímtölum yfir netið með svo-
kallaðri VoIP-tækni (voice over IP).
Jón Elíasson, framkvæmdastjóri
NetAFX, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að undanfarið eitt og hálft
ár hefði fyrirtækið selt þjónustu
sína í Asíu og að þar hefði hún verið
þróuð og fínstillt.
„Nú er svo komið að við viljum
bjóða þjónustuna hér á Íslandi sem
og í fleiri löndum og teljum við okk-
ur fyllilega geta keppt við stóru
símafyrirtækin tvö,“ segir Jón. Net-
AFX er með skrifstofur í Bangkok,
Reykjavík og á Ísafirði og eru
starfsmenn fyrirtækisins hér á landi
þrír talsins, en Jón segir að rekstur
netsímafyrirtækis sé ekki mann-
frekur.
Á heimasíðu fyrirtækisins,
www.netafx.is, er hægt að hlaða nið-
ur netsímaviðmóti og kaupa inneign
sem hægt er að hringja fyrir. Segir
Jón að verðið sem notendur greiði
fyrir millilandasímtöl sé allt að 80%
lægra en gengur og gerist hjá stóru
símafyrirtækjunum tveimur.
NetAFX býður
Íslendingum netsíma
TVEIR stórir vogunarsjóðir sem
eiga samanlagt yfir 5% hlut í
sænska tryggingafélaginu Skandia
ætla að draga til baka samþykki
sitt fyrir yfirtökutilboði suður-
afríska tryggingafélagsins Old
Mutual. Frá þessu er greint í frétt á
vefmiðli sænska blaðsins Dagens
Industri.
Nýlega var greint frá því að hlut-
hafar, sem fara með alls um 62,5%
hlutafjár í Skandia, hefðu sam-
þykkt yfirtökutilboð Old Mutual.
Samþykkið nær því nú samkvæmt
frétt DI ekki nema til innan við 60%
hlutafjárins. Straumur-Burðarás
Fjárfestingarbanki er einn af
stærstu hluthöfum í Skandia og var
félagið meðal þeirra fyrstu sem
samþykktu tilboð Old Mutual.
Sjóðir hætta við
samþykki fyrir
yfirtöku á Skandia
ÓVEÐUR gekk yfir vestanvert
landið á jólanótt. Voru björgunar-
sveitir Landsbjargar á Hellissandi
og í Ólafsvík kallaðar út kl. þrjú um
nóttina vegna mikils hvassviðris.
Þakplötur losnuðu og annað lauslegt
fór að fjúka.
Vindstyrkur mældist allt að 30
metrar í vindhviðum. Á jóladag til-
kynnti Vegagerðin um óveður á milli
Grundarfjarðar og Hellissands og á
Fróðárheiði. Síðar um morguninn
fauk þak af fjárhúsi í Minnihlíð í
Tungudal fyrir ofan Bolungarvík.
Þar voru um 160 fjár inni. Sterk
hviða tók hluta af þaki Stúkuhússins
í Bolungarvík, og fauk brak á fjögur
önnur hús, braut rúður, dyrakarma
og skemmdi klæðningu. Vindstyrkur
fór í rúma 36 metra á sekúndu. Vega-
gerðin beindi þeim tilmælum til veg-
farenda að aka með gát um Óshlíð-
arveg og Súðavíkurhlíð vegna
grjóthruns.
Rafmagn fór af í Kjós um kl. 6.30 á
jóladagsmorgun. Var talið að um
samslátt á línum væri að ræða vegna
veðurs. Rafmagn komst á síðar um
morguninn. Þá var lögreglan í Kópa-
vogi kölluð út ellefu sinnum vegna
foks. Tvö stór jólatré lögðust m.a. á
hliðina og þakplötur losnuðu af íbúð-
arhúsi við Kársnesbraut.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Hluti af þaki gamla stúkuhússins í Bolungarvík fauk af í aftakaveðri að morgni jóladags. Rúður brotnuði í þremur
nærliggjandi húsum og skemmdir urðu á klæðningu þess fjórða. Til stóð að gera húsið upp í upprunalegt horf en
húsið var samkomuhús Bolvíkinga fram til 1952 að félagsheimili Bolungarvíkur var tekið í notkun.
Víða var óveður á jóladag
Djúpivogur | Þegar starfsfólk Vísis
hf. á Djúpavogi mætti til vinnu
sinnar fyrir skemmstu, gekk það
fram á Smyril sem sat í mestu mak-
indum á bryggjunni framan við fyr-
irtækið. Smyrillinn lét sér hvergi
bregða í fyrstu þrátt fyrir umferð
um bryggjuna, enda var hann í
miðjum málsverði, þ.e. með ný-
veidda dúfu undir sterklegum klón-
um. Svo upptekinn var þessi annars
tignarlegi ránfugl af bráð sinni í
regnúðanum að hann lét það ekki
einu sinni trufla sig þótt fréttaritari
tæki af honum nokkrar myndir með
flassi í aðeins 2 m fjarlægð þarna í
morgunhúminu. Það var ekki fyrr
en að ljósmyndari hafði gerst enn
nærgöngulli að hann sleppti bráð
sinni og flaug á brott.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Setið að snæðingi
ÞÓRIR Karl Jónasson, fyrrverandi
formaður Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu, gefur kost á sér í
fjórða til fimmta
sætið á fram-
boðslista Sam-
fylkingarinnar
fyrir komandi
borgarstjórnar-
kosningar. Próf-
kjörið fer fram
dagana 11. og 12.
febrúar nk.
Þórir kveðst
styðja framboð
Steinunnar V.
Óskarsdóttur borgarstjóra í fyrsta
sæti listans, en hann muni þó
fylkja sér á bakvið þá Dag B. Egg-
ertsson eða Stefán J. Hafstein nái
þeir því sæti.
Þórir segist m.a. styðja þá
ákvörðun borgarstjóra að hækka
lægstu laun. Hann segist vilja eyða
launamun kynjanna og tekur
sömuleiðis fram að hann vilji að
konur verði sýnilegar í valdastöð-
um borgarinnar.
Hann vill einnig bæta aðstöðu
fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu og
segir m.a. að hækka eigi sektir
vegna þeirra sem leggja ólöglega í
bílastæði fatlaðra.
Þá vill hann að borgin greiði
götu þeirra fyrirtækja sem vilja
byggja leiguíbúðir fyrir fólk, til að
mynda með sanngjörnu lóðaverði
gegn því að húsaleigan verði sann-
gjörn.Hann segir að sanngjarnt
leiguverð geti verið á bilinu fjögur
hundruð til sjö hundruð krónur á
hvern fermetra.
Þá vill Þórir bæta almennings-
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Stefnir á
fjórða til
fimmta
sætið
Þórir Karl
Jónasson
ANNIR lögreglunnar í Reykjavík
voru ekki meiri en við mátti búast
um jólahelgina, að sögn aðalvarð-
stjóra í gær. Þó komu nokkur mál
til kasta lögreglunnar.
Farþegi ógnaði leigubílstjóra í
Reykjavík með loftbyssu um hálf-
þrjúleytið á jólanótt. Farþeginn
hvarf af vettvangi en sneri aftur til
að útskýra fyrir bílstjóranum að sér
hafi ekki verið alvara. Í millitíðinni
hafði bílstjórinn kallað til lögreglu,
sem handtók byssumanninn og
flutti til yfirheyrslu. Hann var ölv-
aður og gisti í fangageymslum.
Lögreglan lagði hald á byssuna og
yfirheyrði farþegann áður en hon-
um var sleppt.
Þá var rúða brotin á veitingastað
við Laugaveg í Reykjavík á jólanótt
og þaðan stolið þremur eða fjórum
kössum af bjór. Einnig var brotist
inn í geymslugám í Höfðahverfinu.
Meiri annir voru hjá lögreglunni í
Reykjavík aðfaranótt aðfangadags.
Tilkynnt var um þrjú innbrot,
slagsmál og mann, sem talið var að
hefði verið skorinn á háls. Reyndist
hann vera með sár á hendi en hafði
atað blóði á hálsinn á sér. Þá var
tilkynnt um innbrot í Brúarskóla í
Vesturhlíð og innbrot í leikskóla.
Innbrotskerfi fór í gang og er talið
að það hafi fælt tómhentan þjófinn
á brott. Einnig var brotist inn í
leikskóla í Efra-Breiðholti og var
stolið þaðan tölvuflatskjá, sjónvarpi
og DVD-spilara.
Leigubílstjóra ógnað
með byssu á jólanótt
INNLEND velta VISA-kred-
itkorthafa jókst um rúmlega 12% á
tímabilinu 1.–20. desember sl. mið-
að við sama tímabil í fyrra.
Veltan á þessu tímabili í ár nam
alls um 9,7 milljörðum króna en var
um 8,7 milljarðar í fyrra.
Velta VISA jókst
um rúm 12%
♦♦♦