Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 31
Húsnæði óskast
Tilboð/Útboð
ÚU T B O Ð
* Nýtt í auglýsingu.
Eftirfarandi útboð eru til sýnis og sölu á skrif-
stofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík:
13950 Skógarplöntur fyrir Suðurlands-
skóga. Opnun 17. janúar 2006 kl.
11.00. Verð útboðsgagna kr. 3.500.
*13988 Ríkiskaup fyrir hönd Trygginga-
stofnunar ríkisins, óska eftir tilboð-
um í sjúkrarúm, fólkslyftara og fylgi-
hluti. Opnun 9. febrúar 2006 kl. 11.00.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu
á kr. 3.500 frá og með föstudeginum
30. desember.
Raðauglýsingar
42 NEMENDUR voru braut-
skráðir frá Flensborgarskólanum í
Hafnarfirði á haustönn 2005. At-
höfnin fór fram í Víðistaðakirkju.
Í allt voru 39 stúdentar útskrifaðir
en þrír nemendur með fjölmiðla-
tækni af upplýsinga- og fjölmiðla-
braut.
Bestum árangri náði Agla Frið-
jónsdóttir en hún útskrifaðist af
náttúrufræðibraut með fyrstu
ágætiseinkunn. Haukur Týr Guð-
mundsson lauk flestum einingum
og bæði ljúka þau námi sínu á
þremur og hálfu ári eins og raun-
ar hátt í helmingur hópsins.
Skólameistari gat þess að marg-
ir í hópnum hefðu getað lokið í vor
sem leið en kusu að vera lengur.
Þá voru fjórir íþróttamenn
heiðraðir úr röðum nemenda, til
að minna á að í hópnum er hæfi-
leikaríkt íþróttafólk. Þetta voru,
Erna Þráinsdóttir handknatt-
leikskona, Helena Sverrisdóttir
körfuknattleikskona og Hilmar
Rafn Emilsson knattspyrnumaður
– öll úr Haukum – og Hjalti
Brynjarsson, knattspyrnumaður
úr FH.
Brautskráning frá Flensborgarskóla
Ljósmynd/Lárus Karl
Á FUNDI fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Hafnarfirði 15. desem-
ber sl. var samþykktur framboðslisti
flokksins til bæjarstjórnar 2006.
Listann skipa: Haraldur Þór Óla-
son, framkvæmdastjóri og bæj-
arfulltrúi, Rósa Guðbjartsdóttir
framkvæmdastjóri, Almar Gríms-
son, lyfjafræðingur og varabæj-
arfulltrúi, María Kristín Gylfadóttir,
M.A. stjórnmálafræðingur, Bergur
Ólafsson forstöðumaður, Skarphéð-
inn Orri Björnsson sérfræðingur,
Helga Ragnheiður Stefánsdóttir,
húsfreyja og varabæjarfulltrúi, Guð-
rún Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur,
Geir Jónsson mjólkurfræðingur,
Hallur Helgason kvikmyndagerð-
armaður, Halldóra Björk Jónsdóttir,
húsmóðir og ráðgjafi, Magnús Sig-
urðsson verktaki, Sólveig Kristjáns-
dóttir stjórnmálafræðingur, Árni
Þór Helgason arkitekt, Sigurlaug
Kristjánsdóttir, markaðs- og bók-
haldsfulltrúi, Edda Rut Björnsdóttir
háskólanemi, Hrönn Ingólfsdóttir
verkefnastjóri, Davíð Arnar Þórsson
tölvunarfræðingur, Kristín Ein-
arsdóttir iðjuþjálfi, Árni Sverrisson
framkvæmdastjóri, Áslaug Sigurð-
ardóttir, snyrtifræðingur og ellilíf-
eyrisþegi, og Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi.
Listi sjálf-
stæðismanna
samþykktur
byrjun þessa árs setti mennta-
málaráðherra á fót sérstaka heims-
minjanefnd sem hefur það hlutverk
að vera vettvangur samráðs um
framfylgd samnings UNESCO frá
1972 um menningar- og náttúru-
arfleifð heimsins hér á landi og und-
irbúa tilnefningu íslenskra staða á
heimsminjaskrá. Nefndin vinnur nú
að endurskoðun á yfirlitsskrá Ís-
lands í ljósi fenginnar reynslu við til-
nefningaferli Þingvalla. Á grund-
velli þeirrar vinnu og til þess að láta
ekki of langt líða á milli tilnefninga
Íslands á heimsminjaskrá UNESCO
og þar sem enn er talsvert í land
með að vinna við tilnefningu Skafta-
fells geti hafist, hefur nefndin lagt til
við menntamálaráðherra og um-
hverfisráðherra að næsti staður sem
Ísland tilnefnir verði Surtsey.
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
að tilnefna Surtsey á heims-
minjaskrá UNESCO í febrúar á
næsta ári. Allar nauðsynlegar upp-
lýsingar um jarðfræði, lífríki og þró-
un Surtseyjar frá lokum gossins
fram á þennan dag liggja fyrir og
þess vegna er mögulegt að ganga
frá umsókn fyrir 1. febrúar á næsta
ári til nefndar um arfleifð þjóðanna
um að Surtsey verði bætt á heims-
minjaskrána.
Fyrir fjórum árum samþykkti rík-
isstjórnin tillögu menntamálaráð-
herra og umhverfisráðherra um að
tilnefna Þingvelli og Skaftafell á
heimsminjaskrá UNESCO en frá
þeim tíma hafa ýmsar forsendur
breyst og því þarf mun lengri tíma
til að undirbúa tilnefningu Skafta-
fells en upphaflega var ætlað. Gert
var ráð fyrir að staðirnir færu inn á
skrána bæði sem náttúru- og menn-
ingarminjar, þ.e sem blandaðir stað-
ir, og samþykkti nefnd um arfleifð
þjóðanna 2. júlí 2004 að Þingvellir
skyldu settir á listann sem menning-
arlandslag. Unnið er að undirbún-
ingi þess að ljúka tilnefningu Þing-
valla sem náttúruminjastaðar. Í
Ljósmynd/Sturla Friðriksson
Ákveðið hefur verið að tilnefna
Surtsey á heimsminjaskrá
UNESCO í febrúar á næsta ári.
Surtsey tilnefnd á
heimsminjaskrá
EIGENDUR Fasteignasölunnar
Bakka, þeir Árni Valdimarsson
og Sverrir Sigurjónsson, sem
stýrir umboðinu í Þorlákshöfn,
afhentu nýlega Líknarsjóði Þor-
lákskirkju peningagjöf, 250 þús-
und kr.
Með því vilja þeir leggja lið því
góða og óeigingjarna starfi og
hjálp sem sjóðurinn veitir.
Séra Baldur Kristjánsson og
Halla Kjartansdóttir kirkjuvörður
tóku við gjöfinni fyrir hönd Þor-
lákskirkju og þökkuðu f.h. kirkj-
unnar.
Á aðventunni er útdeilt úr
Líknarsjóði Þorlákskirkju.
Gjöf til
Líknarsjóðs
Þorlákskirkju
FIMM ára börn á leikskólanum
Núpi komu nýlega færandi hendi
í sjálfboðamiðstöð Kópavogs-
deildar. Börnin höfðu safnað
fatnaði til styrktar Rauða kross-
inum í tengslum við fræðsluefnið
„Hjálpfús heimsækir leikskólann“
sem notað er á Núpi en markmið
námsefnisins er að kenna nem-
endum hversu mikilvægt það er
að rétta fólki hjálparhönd þegar
eitthvað bjátar á.
Börnin á Núpi söfnuðu fötum
undir yfirskriftinni „Að gleðja
um jól“. Í heimsókninni í sjálf-
boðamiðstöðina fengu börnin af-
hent eintak af geisladisknum „Úr
vísnabók heimsins“ sem hefur
verið sendur til allra leikskóla á
landinu. Geisladiskinn er hægt að
nota í tengslum við námsefnið um
Hjálpfús, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á myndinni eru börnin af Núpi
með pokana af fötum sem þau
söfnuðu.
Börnin á Núpi hjálpa
SIGÞÓR Samúelsson, fram-
kvæmdastjóri Teymis, afhenti ný-
lega Margréti M. Ragnarsdóttur,
formanni Neistans, jólakortastyrk.
Fjárhæðin jafngildir þeim kostnaði
sem Teymi hefði annars haft af að
senda viðskiptavinum sínum og vel-
unnurum jólakveðju. Með þessu vill
Teymi styrkja starfsemi Neistann í
að hlúa að hjartveikum börnum og
aðstandendum þeirra.
Neistinn, styrktarfélag hjart-
veikra barna, var stofnað 9. maí
1995. Á vef Neistans, www.neist-
inn.is, er að finna frekari upplýs-
ingar um félagið og starfsemi þess.
Á myndinni eru Sigþór Sam-
úelsson, framkvæmdastjóri Teymis;
Margrét Ragnarsdóttir, formaður
Neistans; Sandra Franks, Neist-
anum og Ólafur Tryggvason, þjón-
ustustjóri Teymis.
Teymi styrkir Neistann