Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 41 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 4741-5200-0012-5404 4507-4500-0029-0459 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. ANGURVÆRT, lágstemmt, ein- lægt, melódískt – orð sem virðast hafa verið sérsniðin til lýsingar á tónlist Sigga Ármann. Þau halda líka vel hvað varðar þessa aðra hljóðversplötu hans sem er bæði vandað og fallegt verk – nánast að forminu til. Þú þarft að vera ansi kaldur til að nema ekki áreynslu- lausa fegurðina sem býr í þeim lögum sem hér hljóma. Fyrsta plata Sigga, Mindscape, kom út fyrir fjórum árum og þá sáu þeir Jóhann Jóhannsson og Sigtryggur Baldursson einnig um upptökur. Lítið bar á plötunni lengi vel eða þar til meðlimir Sigur Rósar tóku að hampa henni í gríð og erg. Ekki nóg með það, heldur tóku þeir Sigga með sér í tónleikaferð og síðastliðin tvö ár hafa þeir ver- ið Sigga innan handar við gerð þessarar plötu ásamt fleiru góðu fólki. Þá gengust fulltrúar list- miðstöðvarinnar T Í M I fyrir því að fyrir réttu ári kom út tónleika- plata með Sigga, titluð Siggi Ár- mann í Listasafni Reykjavíkur. Þar má heyra hrárri útgáfur af þeim lögum sem hér er að finna, eina lagið sem er nýtt hér er „Dinosores“ en einnig eru bæði ósungið inngangs- og útgangsstef á plötunni. Tónlist Sigga er eins- lags trúbadúratónlist og á tón- leikaplötunni var hann mestanpart einn með gítarinn. Tónlistin því allsnakin og á tímum óbærilega einlæg. Á þessari plötu nýtur Siggi hins vegar aðstoðar hinna og þessara tónlistarmanna sem í öll- um tilfellum lyfta lögunum smekk- lega upp. Í engu er ofgert; streng- ir, píanó og slagverk liggja snoturlega á bak við rödd og gít- arleik Sigga sem hefur gott lag á því að semja grípandi gítarlínur, bæði fallegar og melankólískar. Yfir þeim eru svo sungnir textar þar sem allt er lagt á borð. Sárs- aukinn jafnan rétt undir niðri og oft og tíðum gapir hann við manni. Rödd Sigga fellur ekki í flokk hinna hefðbundnu, ljúfþýðu raddar söngvaskáldsins. Hún er hvíslandi og blíð en fer sínar eigin leiðir er hentar. Gítarleikurinn er þá ekki heldur alltaf kórréttur en ef svo væri er ég hræddur um að sjarmi plötunnar færi forgörðum. Það eru einmitt þessir eiginleikar sem gera Sigga Ármann eftirtekt- arverðan og hífir hann upp úr meðalmennskunni. Siggi virðist vera að glíma við erfiða hluti í tónlist sinni. Þetta er m.a. undir- strikað í bæklingi þar sem platan er tileinkuð minningu bróður hans og fallnir vinir fá auk þess kveðju. Þetta verður svo augljóst í einu áhrifamesta lagi plötunnar, „Big boys cry“. Þar segir: „Even big boys cry/when their friends die/ when their brothers die …“. Hér er komið beint að efninu, eitthvað sem gerir texta plötunnar sterkari en ella. Tónninn er strax sleginn í upphafslínum fyrsta lagsins, „Elephant Man“ en þar segir „Sorrow is the name/for my emo- tions“. Lögin búa þannig yfir hreinskiptum, einkar tregafullum línum en við og við sprettur þó vonin upp. „We’ll conquer the the world/We make it easy/We’ll make it …“ segir í „I dive into you“. Við finnum einatt fyrir glatað fólk og Siggi reynir hvað hann getur til að tosa það upp. En síðan segir hann í „My own Messiah“: „Would you like to be my own Mes- siah … hold your arms around me/ Make your warmth surround me/ You’re wanted/To love me/To free me“. Í raun er ekkert út á þessa plötu að setja. Sigga og hans fólki tekst svo gott sem fullkomlega að ná fram því sem auðheyranlega var lagt upp með – að búa til plötu sem er laus við allt pjatt og pját- ur. Það er vissulega drungi yfir plötunni en um leið skín í vilja og von. Þessi togstreita gefur verkinu mikla vigt. Fyrst og fremst er það þó tónlistin ein, hrein og tær, sem öllu skiptir á Music for the Addic- ted. Túlkun hennar er það sönn og innileg að það er ómögulegt annað en að hrífast að fullu með. Ljúfsvört fegurð TÓNLIST Íslenskar plötur Siggi Ármann syngur og leikur á gítar. Honum til aðstoðar eru Jóhann Jóhanns- son (píanó, Casio, stofuorgel, klukku- spil), Örnólfur Kristjánsson (selló), Sig- tryggur Baldursson (trommur, slagverk), Davíð Þór Jónsson (bassi, píanó), Kjart- an Sveinsson (píanó), Orri Páll Dýrason (trommur), Steingrímur Guðmundsson (tabla) og Amina (strengir). Jóhann Jó- hannsson og Sigtryggur Baldursson hljóðrituðu og -blönduðu. Orri Páll Dýra- son og Kjartan Sveinsson tóku þá upp parta í Sundlauginni. Platan var hljóm- jöfnuð af Birgi Sundlaugarverði en einnig fór hljómjöfnun fram í Klink og Bank. Um hana sá Einar Hákonarson. Smekkleysa gefur út. Siggi Ármann – Music for the Addicted  „Sigga og hans fólki tekst svo gott sem fullkomlega að ná fram því sem auðheyranlega var lagt upp með – að búa til plötu sem er laus við allt pjatt og pjátur,“ segir m.a. í dómi. Arnar Eggert Thoroddsen Miðasala á tónleika LisuEkdahl sem fara fram í Háskólabíói föstudaginn 24. mars nk. hefst í dag kl. 10 á vef- síðunni midi.is og í verslunum Skífunnar og BT um allt land. Lisa Ekdahl kom hingað til lands og hélt tvenna tónleika fyrir troðfullu húsi í Austurbæ fyrir einu og hálfu ári síðan. Miðar á þá tónleika seldust upp á tveimur klukkutímum og er því ljóst að Lisa á marga aðdá- endur á Íslandi. Fólk folk@mbl.is 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 11 MILLI JÓLA OG NÝÁRS Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI MORGUNBÍÓ Stattu á þínu og láttu það vaða. Mark RuffaloReese Witherspoon Ástin lífgar þig við. SAMBÍÓ KRINGLUNNI CHRONICLES OF NARNIA kl. 3 - 6 - 9 KING KONG kl. 5.30 - 9 B.i. 12 ára. HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 2.45 B.i. 14 ára. SAMBÍÓ KEFLAVÍK SAMBÍÓ AKUREYRI CHRONICLES OF NARNIA kl. 2 - 5 - 8 - 10.30 KING KONG kl. 5 - 9 B.i. 12 ára HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 2 B.i. 10 ára CHRONICLES OF NARNIA kl. 11 - 2 - 5 - 8 KING KONG kl. 2 - 5.40 - 9 - 11 B.i. 12 ára JUST LIKE HEAVEN kl. 8 - 10.30 HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 11 - 2 - 5 - 8 B.i. 10 ára Litli Kjúllin m/Ísl. tali kl. 11 - 12.30 Sýningartímar gilda 26.des. - 29.des. 2005 UPPLIFÐU STÓRFENGLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. BYGGÐ Á SÍGILDUM ÆVINTÝRABÓKUM C.S. LEWIS SEM HAFA KOMIÐ ÚT Á ÍSLENSKU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.