Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 9
FRÉTTIR 50% afsláttur
af allri jólavöru
þessa viku
Silkitré og silkiblóm
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin)
sími 551 2040
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán - fös kl. 11-18, lau 10 - 16
SILBOR
SIGNATURE
EINSTÖK LÍFSGÆÐI
Á BESTU STÖÐUM
THAILANDS -
BURMA
Skógarhlíð 18, sími 595 1000,
fax 595 1001 - www.heimsferdir.is
Í LOKIN BÝÐST VIKUFRAMLENGING Á NÝJASTA
LÚXUSHÓTELI Á PATONG STRÖNDINNI,
VINSÆLUSTU BAÐSTRÖND AUSTURLANDA.
OKKUR TÓKST AÐ FÁ 7 VIÐBÓTARSÆTI
Í BROTTFÖRINA 30. JANÚAR.
TILBOÐSVERÐ SÉ STAÐFEST FYRIR ÁRAMÓT
KR. 149.800 Á MANN M.V. TVÍBÝLI M. ÖLLU.
Eru kostir Thailands enn best falda
leyndarmál íslenskra ferðamanna?
Margir fara í stuttferðir sem kosta meira.
Sparnaður í Thailandsferð er ótrúlegur miðað við gæðin.
SÉRVALÐ AF INGÓLFI GUÐBRANDSSYNI
FERÐAFRÖMUÐI
NOKKRIR HÁPUNKTAR Í NÆSTU FERÐ: Heiðursgestir í nýja
þjóðleikhúsinu í BANGKOK, glæsisýning í einu fullkomnasta leikhúsi
heimsins í dag - Bangkok er margvalin besta hótelborg heims, gist á einu
best rekna hótelinu rétt við nýju miðborgina.
Tveggja daga HOPP yfir til höfuðborgar BURMA, RANGOON
að sjá fegurstu musteri heims, SWEDAGON o.fl.,
ógleymanlegt undur á heimsminjaskrá.
Fagurt, litríkt land, þjóð og saga, þar sem þú færð THAILAND beint í æð
í skemmtilegu bílferðalagi með sérstakri íslenskri fararstjórn, gistingu og
fullu fæði á völdum stöðum á leið norður landið frá Bangkok til RIVER
KWAI, PITSANULOKE, SUKOTHAI, CHIANG MAI og CHIANG RAI
Miðapantanir hjá:
IÐNSKÓLINN í Reykjavík braut-
skráði sl. þriðjudag 107 nemendur af
fjórtán brautum við hátíðlega út-
skriftarathöfn í Hallgrímskirkju.
Alls stunduðu 1.920 nemendur nám
við skólann á haustönn, 1.500 í dag-
skóla, 300 í kvöldskóla og 120 í fjar-
námi.
Í ræðu sinni við útskrift sagði
Baldur Gíslason skólameistari mikla
grósku vera í skólanum um þessar
mundir, en nemendur skólans hefðu
tekið þátt í fjölmörgum uppákomum
og keppnum á önninni. Þar á meðal
hafi nemendur staðið sig afar vel í
keppni í forritun sem Háskólinn í
Reykjavík stendur fyrir og einnig í
stuttmyndakeppninni „Vísindin
snerta þig“ á vegum Rannsókn-
armiðstöðvar Íslands.
Sesselja Jónsdóttir, nemi á bygg-
ingasviði, hlaut þrenn verðlaun fyrir
námsárangur; sviðsverðlaun bygg-
ingasviðs fyrir góðan námsárangur,
verðlaun kennd við Finn Ó. Thorlac-
ius fyrir hæstu einkunn í iðnteikn-
ingu byggingamanna og loks verð-
launin „Þráin I“ fyrir besta
heildarárangur í námi.
Sesselja, sem er þrjátíu og eins
árs, nam húsgagnasmíði á bygg-
ingasviði. Hún hafði áður numið
tækniteiknun og stefnir nú á frekara
nám á sviði hönnunar. „Stefnan er
tekin á Ítalíu, ekki alveg strax en í
nánustu framtíð. Ég hef búið þar,
þannig að það er auðveldast. Svo er
Ítalía nokkurs konar Mekka hús-
gagnahönnunar, svo það ætti ekki að
vera vandamál að finna góðan skóla
þar.“
Kemst í snertingu
við viðfangsefnið
Hinn góða námsárangur skrifar
Sesselja á mikinn áhuga á viðfangs-
efninu. „Ég tel það líka vera góðan
undirbúning fyrir hönnunarnám að
hafa þreifað á efni og smíðað úr því,“
segir Sesselja. „Maður er þá í meiri
snertingu við viðfangsefnið. Maður
hefur meiri tilfinningu fyrir því hvað
er hægt og hvað er ekki hægt. Svo er
líka afskaplega gott að geta gert
hlutina sjálfur þegar maður er að
hanna.“
Byggingasvið hefur hingað til haft
þá ímynd að þar séu karlar í meiri-
hluta, en Sesselja segir konur í mik-
illi sókn á þessu sviði. „Það var svo-
lítið gaman að koma þarna og vera
kvenmaður á byggingasviði, sem
hefur hingað til verið talið nokkurs
konar karlavígi,“ segir Sesselja.
„Það kemur fólki dálítið á óvart að
koma inn og sjá að meirihluti nem-
enda í húsgagnasmíði er konur.
Konur eru alls staðar að sækja
fram.“
Sesselja Jónsdóttir, nemandi á byggingasviði, náði bestum árangri í Iðnskólanum
Stefnir á hönn-
unarnám á Ítalíu
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Sesselja Jónsdóttir hélt jólin hátíðleg austur í Neskaupstað. Með henni á
myndinni er yngri dóttir hennar, Rakel Anna Ólafsdóttir.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
MARKÚS Örn Antonsson afhenti
Michaëlle Jean, landstjóra Kanada,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Ís-
lands í Kanada við athöfn, sem ný-
lega fór fram í bústað landstjóra,
Rideau Hall í Ottawa.
Í viðræðum sendiherra Íslands við
landstjórann kom fram eindreginn
áhugi beggja á auknum samskiptum
Kanada og Íslands, og þá sérstaklega
á sviði lista og menningar. Michaëlle
Jean nefndi í því sambandi samstarf
um gerð heimildarmynda fyrir sjón-
varp, og sérstaka íslenska listvið-
burði, sem haldnir yrðu í landstjóra-
bústaðnum Rideau Hall í Ottawa.
Michaëlle Jean, landstjóri, fór
miklum viðurkenningarorðum um
framlag íslensku landnemanna og af-
komenda þeirra til hins kanadíska
samfélags fyrr og nú og lét í ljós von-
ir um framhald á hinum góðu sam-
skiptum, sem þróast hafa með þess-
um vinaþjóðum í meira en hundrað
ár.
Mikil samskipti þjóðanna
Samskipti Íslands og Kanada mót-
ast mjög af tengslum við afkomendur
íslensku innflytjendanna, sem fluttu
búferlum vestur um haf á árunum
1870–1914. Voru það alls um 20 þús-
und manns eða u.þ.b. 20% íslensku
þjóðarinnar, sem settust að víða í
Kanada og Bandaríkjunum, flestir þó
í Manitoba í miðju Kanada. Giskað er
á að afkomendur Íslendinga í Kan-
ada kunni nú að vera um 200.000 tals-
ins, þar af um 80.000 í Manitoba, en
um 100.000 í Bandaríkjunum. Vest-
ur-Íslendingar hafa ávallt viðhaldið
styrkum tengslum sínum við Ísland
og lagt merkum framfaramálum á Ís-
landi lið eins og við stofnun Eim-
skipafélags Íslands 1914. Samskiptin
við Ísland hafa verið afar fjölbreytt,
einkanlega á sviði mennta og menn-
ingar.
Afhenti landstjóra
Kanada trúnaðarbréf
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Lokað í dag
Opnum
á morgun