Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
EKKI REYNA AÐ SEGJA MÉR AÐ
ÞETTA SÉ EKKI GAMAN
AMMA
SEGIR AÐ ÞÚ
SÉRT EINA
BARNIÐ
MEÐ TEPPI
SEGÐU ÖMMU AÐ ÉG
SAMGLEÐJIST HENNI OG BERI
MIKLA VIRÐINGU FYRIR
ÖLLUM HINUM BÖRNUNUM OG
SAMGLEÐJIST ÞEIM INNILEGA
MÉR DETTUR EKKI
Í HUG AÐ SEGJA
HENNI ÞETTA
FRÁBÆRT.
VIÐ ÞURFUM
AÐ FINNA
HENTUGT
FÓRNARLAMB
JÁ! Æ, Æ!HVERNIG VÆRI
AÐ BINDA SAMAN
REIMARNAR Á
SKÓNUM HJÁ EIN-
HVERJUM?
MAÐUR ÞRÆLAR
ALLT SITT LÍF...!!!
... OG
HVAÐ FÆR
MAÐUR
SVO AÐ
LAUNUM!?!
UPPHAND-
LEGGSVÖÐVA?
SJÁÐU ATILA, ÉG
HEF VERIÐ BITINN
KANNSKI VAR ÉG
BITINN AF
KÖNGULÓ. KANNSKI
BREYTIST ÉG Í
OFURHETJU!
HMMM... „KLÓSETT-
KAFARINN ÓGURLEGI“
ÞAÐ Á VÍST
AÐ HLÝNA
JÁ, ÞEIR SPÁ
HITABYLGJU
NÆSTU DAGA
VILTU EKKI FARA
ÚT OG ATHUGA
VEÐRIÐ?
VÁ, ÞAÐ
VIRÐIST HAFA
HLÝNAÐ
MIKIÐ ER ÉG
ÞAKKLÁTUR FYRIR AÐ
HAFA LOFTKÆLINGU
EF ÞÚ NÆRÐ MYND AF
TARANTÚLUNNI AÐ HAND-
SAMA KÓNGULÓARMANNINN
ÞÁ BORGA ÉG TVÖFALT
ÞREFALT!
TVÖFALT!
ÞÚ ERT
LJÚFMENNI
JÁ, ÞÚ ERT
SVO ÓTRÚLEGA
GJAFMILDUR
ÞETTA ER
ÁSTÆÐAN FYRIR
ÞVÍ AÐ ÉG VERÐ
ALDREI RÍKUR
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 27. desember, 361. dagur ársins 2005
Víkverji las ágætargreinar á vefrit-
unu Múrnum, eftir
Finn Dellsén og
Sverri Jakobsson, um
almennings-
samgöngur. Það sem
Víkverja þótti sér-
staklega áhugavert
við greinarnar var þar
sem bent er á þá stað-
reynd að almennings-
samgöngur eru í raun
ódýrari valkostur fyr-
ir ríki og sveitarfélög
en fjölgun einkabíla.
Það er enda svo, að
sögn Finns og Sverris,
að fleiri bílar kalla á meiri umferð-
armannvirki enda íslenskir bíleig-
endur yfirleitt óhuggandi ef þeir
geta ekki ekið í einu striki á áfanga-
stað. Þannig kostar fyrsti áfangi
nýrrar Sundabrautar álíka og kostar
að reka almenningssamgöngur á öllu
höfuðborgarsvæðinu í fjögur ár.
Mikið þætti Víkverja gaman að
sjá hvað myndi gerast ef í stað mis-
lægra gatnamóta og hraðbauta
þvers og kruss um borgina yrði
strætisvagnakerfið tvíeflt og far-
gjöld lögð af eða lækkuð allverulega.
Getur verið að hægt yrði að spara
fúlgur fjár?
Víkverji notar strætó og þykir það
reyndar ekki mjög
skemmtilegt því biðin
eftir vagninum er löng
þegar íslenska vetr-
arveðrið mæðir á. Svo
fer alltaf einhver tími
til spillis þegar skipt
er milli vagna, og öðr-
um farþegum hleypt
út á stoppistöðvum.
Sjaldan aka vagnarnir
heldur beinustu og
stystu leið þangað sem
Víkverji þarf að kom-
ast.
En strætó er hag-
kvæmur kostur, og
það kann Víkverji að
meta. Þótt Víkverji sé örlítið lengur
að fara milli staða, og þurfi að klæða
sig vel áður en arkað er út á stoppi-
stöð, þá eru óþægindin ekki svo mik-
il að Víkverji sjái ástæðu til að verja
drjúgum hluta af mánaðarlaunum
sínum í að reka bíl. Víkverji hefur
reiknað dæmið í bak og fyrir og virð-
ist sem rekstur á einum bíl geti aldr-
ei kostað minna en 50.000 krónur
mánaðarlega, þegar allt er talið. Það
er þriðjungur af útborguðum laun-
um venjulegs launþega.
Víkverja þykir ekki svo slæmt að
taka strætó að hann sé reiðubúinn
að vinna þriðja hvern dag til þess
eins að borga af bílnum.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Myndlist | Þennan risavaxna snjóskúlptúr getur nú að líta í almenningsgarði
nokkrum í borginni Changchun í Jilin-héraði í Kína. Hann er hvorki meira né
minna en átta metra hár og hundrað metra breiður. Listamaðurinn sést hér
leggja lokahönd á verkið.
Reuters
Risavaxinn snjóskúlptúr
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Jesús sagði við þá: „Þið vitið ekki hvers þið biðjið. Getið
þið drukkið þann kaleik, sem ég drekk, eða skírst þeirri skírn, sem ég
skírist?“ (Mark. 10, 38).