Fréttablaðið - 15.10.2002, Síða 4
4 15. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 87.23 -0.10%
Sterlingspund 136.26 -0.07%
Dönsk króna 11.6 0.10%
Evra 86.2 0.10%
Gengisvístala krónu 129,62 0,04%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 258
Velta 3.180 m
ICEX-15 1.315 0,05%
Mestu viðskipti
Bakkavör Group hf. 153.364.000
Búnaðarbanki Íslands hf. 82.311.443
Flugleiðir hf. 51.393.198
Mesta hækkun
Íslandssími hf. 9,89%
SÍF hf. 8,89%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 4,00%
Mesta lækkun
Össur hf. -0,99%
Kaupþing banki hf -0,79%
Bakkavör Group hf. -0,49%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7874,3 0,30%
Nsdaq*: 1216,6 0,50%
FTSE: 3931,6 -0,60%
DAX: 2880 -1,70%
Nikkei: 8529,6 1,10%
S&P*: 840,8 0,70%
*Bandarískar vísitölur kl 17.00
HEILBRIGÐISMÁL „Það er ljóst að
kostnaður við kerfi sérfræðinga
hefur aukist það mikið að heil-
brigðisþjónustan stendur ekki
lengur undir því óbreyttu,“ segir
Bolli Héðinsson, formaður trygg-
ingaráðs. Hann
segir að með um-
mælum sínum á
ársfundi Trygg-
ingarstofnunnar
ríkisins hafi hann
verið að opna á að
sérfræðingar geti starfað áfram
með sama hætti og þeir hafi gert.
„Ef við hættum að greina á milli
heimilislækna og sérfræðinga
hvernig ætla læknar þá að koma á
móts við yfirvöld með þann
kostnað sem vaxið hefur svo gríð-
arlega.“
Bolli segir að læknar verði að
átta sig á að þeir verði að skipta
kökunni á milli sín því ótæmandi
fjármagn sé ekki fyrir hendi.
„Tilvísanakerfið vofir alltaf yfir
og ef sérfræðingar vilja losna
endanlega við það hvað er þá
þeirra útspil. Kannski er lausnin
að læknar selji sína þjónustu á
sama verði burt séð frá hvort þeir
eru heimilislæknar, sérfræðingar
eða eitthvað annað,“ segir Bolli.
Sigurður Björnsson formaður
félags sérfræðilækna segir þessa
umræðu mjög gamla. „Ríkið veit-
ir læknum starfsleyfi til að selja
sína þjónustu og mér finnst þurfa
býsna sterk rök til að segjast ætla
kaupa af einum þjónustu en ekki
öðrum. Það á við um alla lækna
sem vilja stunda sjálfstæðan at-
vinnurekstur. Í því felst ekki
jafnræði né frjáls samkeppi. Hins
vegar má spyrja hversu mikla
þjónustu ríkið treysti sér til að
kaupa af læknum og greiða fyrir
úr almannatryggingum.“ Hann
telur umhugsunarefni hvort við
séum að veita meiri læknisþjón-
ustu en við höfum efni á. Varla
vilji menn að hún sé takmörkuð
um of því þá lengist biðlistar eins
og gerst hefur á spítölunum.
Sigurður segir að ef verið sé
að tala um aukinn kostnað verði
að skilgreina ástæðurnar. „Menn
gleyma því að mikið hefur breyst
undanfarin ár. Spítölunum hefur
fækkað og hluti þeirra aðgerða
sem áður fóru þar fram eru nú
unnar af sérfræðingum á stofu.
Sá kostnaður skrifast á þá. Ekki
má gleyma því að með aukinni
tækni hefur aðgerðum fjölgað.
Nú gefst tækifæri til að hjálpa
fjölmörgum sem áður áttu ekki
möguleika á bót meina sinna.“
bergljot@frettabladid.is
HELSINKI, AP Nítján ára Finni, Petri
Gerdt að nafni, er talinn vera mað-
urinn sem sprengdi sjálfan sig í
loft upp með heimatilbúinni
sprengju í verslunarmiðstöð í
Helsinki á föstudaginn. Hann er
talinn hafa aflað sér upplýsinga
um sprengjugerð á spjallþráðum á
Netinu.
Ekkert er vitað um ástæður
þess að hann framdi þetta ódæði.
Ekki er vitað til þess að hann hafi
átt við áfengis- eða fíkniefna-
vandamál að stríða. Ekki er heldur
talið að hann hafi haft öfgaskoðan-
ir í stjórnmálum.
Lögreglan segir að Gerdt hafi
ekki verið á sakaskrá. Talið er að
hann hafi verið einn að verki.
Sex manns létu lífið auk Gerdts.
Áttatíu manns særðust og liggja
þrjátíu þeirra enn á sjúkrahúsi.
Nágrannar og skólasystkini
Gerdts segja að hann hafi verið
hlédrægur og átt fáa vini. Hann
hafi stundað körfubolta og jafnan
verið prúður í framkomu. Þau
sögðust eiga erfitt með að trúa því
að hann hafi skipulagt jafn skelfi-
legt ódæði sem þetta.
Hann er sagður hafa haft mik-
inn áhuga á flugeldum og
sprengiefnum frá því snemma í
bernsku.
Svæðið norðan
Vatnajökuls:
Þjóðgarðs-
nefnd skipuð
STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir, um-
hverfisráðherra, hefur skipað
fimm manna nefnd til að móta til-
lögur um stofnun verndarsvæðis
eða þjóðgarðs á svæðinu fyrir
norðan Vatnajökul. Formaður
nefndarinnar er Magnús Jóhann-
esson, ráðuneytisstjóri í umhverf-
isráðuneytinu. Tveir þingmenn
tilnefndir af stjórnarflokkunum
sitja í nefndinni: Arnbjörg Sveins-
dóttir og Magnús Stefánsson.
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar
eru Steingrímur J. Sigfússon og
Össur Skarphéðinsson.
UPP LISTANN
Fisksölufyrirtækin verma fyrsta og annað
sætið yfir stærstu fyrirtækin á Íslandi.
Baugur er kominn í þriðja sætið, en var í
því fimmta í fyrra.
Stærstu fyrirtæki Íslands:
Fisksalarnir
ennþá stærstir
FYRIRTÆKI Fisksölufyrirtækin SÍF
og SH eru sem fyrr stærstu fyrir-
tæki landsins, ef horft er til veltu.
Tímaritið Frjáls verslun hefur
birt lista yfir 300 stærstu fyrir-
tæki landsins. Tekjur SÍF eru um
60 milljarðar og SH rúmir 55
milljarðar. Lítil breyting hefur
orðið á röð veltumestu fyrirtækj-
anna. Baugur sem var í fimmta
sæti í fyrra er nú í því þriðja.
Velta Baugs var rúmir 42 millj-
arðar á síðasta ári. Tekjur Baugs
uxu um 59% og skýrist sá vöxtur
af útrás fyrirtækisins. Búnaðar-
bankinn stekkur úr 13. sæti á list-
anum upp í það 8.
Þegar litið er til hagnaðar bera
Alcan á Íslandi sem rekur álverið
í Straumsvík, og Íslandsbanki höf-
uð og herðar yfir önnur fyrirtæki.
Hagnaður Alcan var rúmir fjórir
milljarðar og hagnaður Íslands-
banka 3,7 milljarðar. Næst á eftir
þessum fyrirtækjum koma útrás-
arfyrirtækin Pharmaco og Baug-
ur hvort um sig með rúmlega
tveggja milljarða hagnað.
BALTIMORE, AP Launmorðinginn í
Bandaríkjunum tók sér frí um
helgina, líkt og hann gerði helgina
þar áður. Lögreglan segir þetta
gefa sér nokkuð betri mynd af
morðingjanum, sem undanfarnar
tvær vikur hefur myrt átta manns
og sært tvo.
„Meira að segja leyniskyttur
þurfa að vinna,“ segir Jack Fox,
afbrotafræðingur við háskóla í
Boston. „Þeir þurfa að finna sér
tíma til þess að drepa, og hann
hefur greinilega ekki tíma um
helgar.“
Lögreglan hefur verið gagn-
rýnd fyrir hve lítið hún hefur lát-
ið uppskátt um rannsókn morð-
anna við fjölmiðla. Í gær sagði
lögreglan það vera vegna þess að
hún vilji ekki að morðinginn viti
hve mikið hún veit.
„Við viljum ekki senda frá okk-
ur neitt sem getur valdið því að
einhver telji sig liggja undir
grun,“ sagði Mike Bouchard, rann-
sóknarmaður hjá bandaríska skot-
vopnaeftirlitinu. Lögreglan leitar
nú að hvítum sendibíl sem sést
hefur í grennd við morðstaðina.
fordmondeo
Keyrðu ...
og upplifðu
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • brimborg.is
Pantaðu núna.
Nýr Ford Mondeo kostar frá 1.995.000 kr.
Komdu og keyrðu nýjan Ford Mondeo.
Vertu undir það búinn að vilja ekki láta hann frá þér.
HÆTTUSPIL Á BENSÍNSTÖÐ
Monique McNamara lét ódæðisverk launmorðingjans í Bandaríkjunum ekki koma í veg
fyrir að hún tæki bensín. Fjórum sinnum hefur hann myrt fólk sem var að setja bensín á
bílinn sinn í Washington og nágrenni.
Launmorðinginn hefur ekki tíma um helgar:
Lögreglan vill ekki upplýsa fjölmiðla
AP
/E
VA
N
V
U
C
C
I
FINNSKA LÖGREGLAN RÁÐÞROTA
Lögreglan í Finnlandi segist ekki geta
ímyndað sér hvers vegna nítján ára piltur
framdi fjöldamorð í Helsinki á föstudaginn.
Nítján ára fjöldamorðingi í Finnlandi:
Ekkert vitað um ástæðuna
AP
/L
EH
TI
KU
VA
, M
AR
JA
A
IR
IO
Útrás Plastprents:
Gengið frá
kaupum í
Lettlandi
VIÐSKIPTI Plastprent hefur gengið
frá áreiðanleikakönnun vegna
kaupa á lettneska plastfram-
leiðslufyrirtækinu Unifleks.
Samningar um kaupin voru undir-
ritaðir um miðjan september og
hefur hann nú verið staðfestur.
Gengið hefur verið frá fjármögn-
un vegna kaupanna og jafnframt
því endurfjármögnun á Unifleks.
Forsvarsmenn Plastprents
telja að þessi fjárfesting geti
styrkt félagið og skapað mögu-
leika á hagræðingu. Þeir eru með-
vitaðir um að fjárfestingin er
áhættusöm.
SJÚKRAHÚSUM HEFUR FÆKKAÐ
Fleiri og fleiri aðgerðir eru gerðar af sérfræðingum á stofu. Kostnaðurinn skrifast nú á þá í
stað þess að vera inni í rekstri spítalans.
Tilvísanakerfið vofir
yfir sérfræðingum
Bolli Héðinsson segir að ótæmandi fjármagn sé ekki til. Ef læknar vilji
losna endanlega við umræðuna um tilvísunarkerfið verði þeir að koma
sér saman um hvernig þeir skipti með sér kökunni.
Menn gleyma
því að mikið
hefur breyst
undanfarin ár.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
54%
Ætlar þú að kjósa í prófkjöri
hjá einhverjum þeirra stjórn-
málaflokka sem viðhafa þau?
Spurning dagsins í dag:
Hefjum við hvalveiðar í vísindaskyni á
næsta ári?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Veit ekki
14%
32%Já
ÞRIÐJUNGUR VILL VELJA
FRAMBJÓÐENDUR
Þriðjungur segist ætla að
kjósa í prófkjöri. Það þýðir
að tugir þúsunda leggi leið
sína í prófkjör til að velja
frambjóðendur.
Nei