Fréttablaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 16
16 15. október 2002 ÞRIÐJUDAGURHVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
UPPÁKOMUR
14.00 Blindrafélagið býður landsmönn-
um í heimsókn í Hamrahlíð 17.
Starf félagsins og Blindravinnu-
stofunnar verður kynnt og fólki
boðið upp á hressingu. Opna
húsinu lýkur kl. 17.
20.00 Prjónablaðið Ýr heldur tískusýn-
ingu í Súlnasal Hótels Sögu í til-
efni þess að haustblaðið er kom-
ið út. Aðgangur er ókeypis.
NÁMSKEIÐ
16.00 Meditations for a happy mind
heitir námskeið búddameistarans
Ven. Kelsang Lodrö. Kennt er
milli kl. 16 og 17 í dag, á morgun
og á fimmtudag. Gjald er 600 kr.
fyrir skiptið eða kr. 1.500 fyrir öll
þrjú skiptin (400 / 1.000 kr. fyrir
nema, atvinnulausa og öryrkja).
Kennt er í Bankastræti 6, 4. hæð.
20.00 Buddhism for busy people er
námskeið búddameistarans Ven.
Kelsang Lodrö. Námskeiði stend-
ur milli 20 og 21.30 í kvöld og
annað kvöld. Gjald kr. 800 fyrir
hvort skipti eða kr. 500 fyrir
nema, atvinnulausa. Kennt er í
Bankastræti 6, 4. hæð.
FUNDIR
16.30 Prófastsdæmin í Reykjavík halda
málþingið Umburðarlyndi og
ólíkar lífsskoðanir í skólastarfi.
Framsögumenn eru sr. Sigurður
Pálsson og Hanna Ragnarsdóttir,
lektor. Málþingið er haldið í
Kennaraháskóla Íslands, stofu
M-391 og lýkur kl. 19.
17.15 Sverrir Guðmundsson, sérfræð-
ingur á Raunvísindastofnun, flytur
fyrirlestur sem nefnist: Myndir af
þrívíðum yfirborðshreyfingum
jarðar út frá samtúlkun á SAR
bylgjuvíxl- og GPS mælingum.
Fyrirlesturinn er á vegum IEEE í
Odda, stofu 101.
LEIKHÚS
21.00 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
er sýnt í Hafnarfjarðarleikhús-
inu. Uppselt.
TÓNLEIKAR
21.00 Tónleikar Hrólfs Vagnssonar
harmónikkuleikara og Bluez
Brasil á Kringlukránni.
21.30 Hljómsveitirnar Panik, Suð og Ör-
kuml spila á Vídalín við Ingólfs-
torg. Aðgangseyrir er 300 kr.
SÝNINGAR
Sýning á verkum fjögurra eistneskra lista-
manna stendur í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar. Þeir eru Jüri
Ojaver, Paul Rodgers, Jaan Toomik og
Jaan Paavle.
Tróndur Patursson, frá Færeyjum, sýnir
málverk í aðalsal Hafnarborgar
Flökt- Amublatory- Wandelgang er sam-
sýning Magnúsar Pálssonar, Erics And-
ersens og Wolfgangs Müllers í Nýlista-
safninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Svava Björnsdóttir sýnir verk á mynd-
vegg Maríellu að Skólavörðustíg 12. Sýn-
ingin stendur til 9. nóvember.
Sýning á myndskreytingum úr nýútgefnu
ritsafni Snorra Sturlusonar stendur yfir í
Skála við Alþingishúsið. Sýningin er opin
frá klukkan 10 til 12 og 13 til 16 alla virka
daga og stendur til 18. október.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá
klukkan 11 til 17.
Félag trérennismiða á Íslandi stendur
fyrir sýningunni Skáldað í tré - skógar-
spuni í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýndir eru
renndir listmunir úr innlendum og inn-
fluttum viði. Sýningin stendur til 20. októ-
ber og er opið alla daga frá 12 til 18.
Þorri Hringsson sýnir olíu- og vatnslita-
myndir í Listasafni Borganess. Sýningin er
opin frá 13 til 18 alla virka daga og til
klukkan 20 á þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldum. Sýningin stendur til 30. októ-
ber.
Tvær sýningar, Gallerí Hlemmur og Unn-
ar og Egill/Ný verk, standa yfir í Gerða-
safni, Kópavogi. Sýningarnar standa til
21. október og er opið frá 11 til 17.
Óli G. Jóhansson sýnir í galleríi Sævars
Karls.
Harpa Karls sýnir á Kaffi Sólon. Sýningin
stendur til 18. október.
Annu Wilenius, Karla Dögg Karlsdóttir
og Sólrún Trausta Auðunsdóttir sýna í
listasafni ASÍ við Freyjugötu 41. Yfirskrift
sýningarinnar er, Hugmyndir um Frelsi /
Theories of Freedom. Sýningin stendur
yfir til 20. október. Listasafn ASÍ er opið
alla daga nema mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
ÞRIÐJUDAGURINN
15. OKTÓBER
TÓNLIST Hrólfur Vagnsson harm-
onikkuleikarinn góðkunni frá
Bolungarvík, sem hefur verið
búsettur í Þýskalandi undanfar-
in 20 ár, hefur verið drjúgur við
að halda tónleika hér heima,
ýmist einn eða með tónlistar-
mönnum frá ýmsum þjóðlönd-
um. Hrólfur er enn kominn til
landsins og ætlar að spila í
Reykjavík og á landsbyggðinni í
dag og næstu daga með
hjómsveitinni Blue Brazil.
„Þetta er fjölþjóðahljómsveit,
en meðlimirnir búa allir í
Þýskalandi,“ segir Hrólfur.
Hann segir tónlist sveitarinnar
aðallega brasilíska, mest lög
eftir Carlos Antonio Jobim, og
allt prógrammið bera keim af
suður-amerískri sveiflu. „Þetta
er í fyrsta skipti sem ég tek þátt
í að spila svona létta tónlist,“
segir hann. „Ég hef fram til
þessa komið til landsins með nú-
tímatónlist eða klassík í hinum
og þessum
framsetn-
ingum.“
Aðspurður hvernig samstarf
Hrólfs og hljómsveitarinnar
hafi komið til segir Hrólfur: „Ég
rek hljóðver í Hamborg og Blue
Brazil komu til mín í stúdíóið
fyrir tveimur árum til að taka
upp. Við spjölluðum um heima
og geima, meðal annars um
hljómasamsetningu, sem endaði
svo með að ég fór á æfingu til
þeirra og spilaði með. Okkur
þótti þetta svo gaman að við
ákváðum að taka upp disk og
halda áfram saman.“ Hrólfur
segir hljómsveitarmeðlimi
ákaflega ánægða með að vera
komna til Íslands. „Mér finnst
auðvitað sjálfum alltaf mjög
gaman að koma heim, nema
hvað ég er hálfdeprímeraður að
sjá hvað mikið er um að vera í
svona lítilli borg eins og
Reykjavík. Deprímeraður í
þeim skilningi að í Hamborg,
sem er tuttugu milljóna manna
borg, gera menn listalífinu skil
á einni síðu í dagblöðunum. Hér
er ég að fletta að minns-
ta kosti
tutt-
ugu síðum á dag um menningar-
lífið. Eiginlega ætti maður bara
að drífa sig heim og taka þátt í
gamninu. En kannski ég ætti
frekar að vinna að því að flytja
íslenska bjartsýni með mér aft-
ur til Þýskalands,“ segir hann
hlæjandi.
Hrólfur og félagar verða á
Kringlukránni í kvöld og hefjast
tónleikarnir klukkan 21. Á mið-
vikudagskvöld verða þeir í Ing-
hól á Selfossi klukkan 21 og á
fimmtudagskvöldið í fæðingar-
bæ Hrólfs, Bolungarvík, í Vík-
urbæ klukkan 21.
edda@frettabladid.is
Suðræn sveifla
í skammdeginu
Hrólfur Vagnsson harmonikkuleikari er kominn til landsins ásamt
hljómsveitinni Blue Brazil. Meginmarkmiðið með Íslandsreisunni er
að fylgja eftir nýútkomnum geisladiski, en þeir félagar ætla að lífga
upp á skammdegið með suðrænni sveiflu.
HRÓLFUR VAGNSSON
OG BLUE BRAZIL
Iris Kramer, sem er þýsk, spilar á trompet,
Marc André Krikula er þýskur og spilar á
gítar, Cesar Ferreira er frá Brasilíu og leik-
ur á slagverk, Gros Ngolle Pokossi er frá
Kamerún og spilar á bassa, og Guido
Schmidt, sem er þýskur, leikur á slagverk.
Ópera Rossinis um rakarannráðagóða er léttleikandi og
skemmtileg í uppfærslu Ís-
lensku óperunnar. Það er óhugs-
andi annað en að koma út í góðu
skapi. Og svo er maður líka ríg-
montinn eftir sýninguna yfir því
hvað litla Ísland státar af frá-
bærum listamönnum. Þrátt fyr-
ir aðstöðuleysið rennur sýningin
hnökralaust áfram og það er al-
veg hægt að gleyma því hvað
húsið er lítið og ófullkomið.
Ólafur Kjartan gerði Fígaró,
sem er afar frjáls í andanum frá
hendi höfundar, að ómótstæði-
legum „sjarmör“ með frábær-
um leik og söng. Aðrir söngvar-
ar í sýningunni voru að sama
skapi góðir. Það er algengt í óp-
erum að aðalsöguhetjurnar deyi
í kvöl í lok sýningarinnar og
elskendur séu dæmdir til að
vera aðskildir um eilífð, nema
auðvitað þeir nái saman á
himnalendunum. Í Rakaranum
frá Sevilla er gamanið í al-
gleymingi og ekkert sem blasir
við ástfangna parinu í lokin ann-
að en hamingjan ein. Og allir eru
sáttir við málalokin . Meðal ann-
ars þess vegna er maður svona
glaður í hjartanu eftir sýninguna
og marga daga á eftir.
Edda Jóhannsdóttir
Ómótstæðilegur
og ráðagóður rakari
ÓPERA
RAKARINN FRÁ SEVILLA
Aðalhlutverk: Gunnar Guðbjörnsson, Sess-
elja Kristjánsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðar-
son, Davíð Ólafsson, Stanisav Shvets, Signý
Sæmundsdóttir, Hrólfur Sæmundsson, Jón
Leifsson og Sigurjón Guðmundsson.
Hljómsveitarstjóri: Helge Dorsch.
Sigríður Arnardóttir
dagskrárgerðarmaður
Ég mæli með BBC á FM 90,9 og að menn fái
sér lítið útvarpstæki í eyrað, fari í göngutúr og
hlusti á þetta frábærlega skemmtilega útvarp.
Svo mæli ég líka með nýja diskinum hans
Bubba, Sól að morgni.
Grettissaga
–saga Grettis
Hafnarfjarðarleikhúsið frum-sýndi leikritið Grettissaga -
saga Grettis, síðastliðið laugar-
dagskvöld. Hilmar Jónsson leik-
stýrir verkinu, en leikarar sem
koma að sýningunni eru meðal
annarra Gunnar Helgason, Björk
Jakobsdóttir, Erling Jóhannesson,
Jón Páll Eyjólfsson, Vigdís
Hrefna Pálsdóttir og Gísli Pétur
Hinriksson.
Vísurnar
fóru fram
hjá mörgum
Mér fannst efnisval úr bókinni
gott og leikararnir skila sínu vel.
Helsti gallinn var of mikill flutn-
ingur á drótt-
kvæðum án þess
þær væru skýrð-
ar. Það hefði kom-
ist betur til skila
fyrir þá sem
þekkja lítið sög-
una ef til dæmis
efnið hefði verið
á skiljanlegra
máli og sönglað,
þannig að menn hefðu vitað að
þetta væru vísur. Þessar vísur
fóru fram hjá mjög mörgum. En í
heildina tekið fannst mér vel að
verki staðið.
Frábær
sýning
Mér fannst mjög
gaman. Þetta er
frábær sýning og
furðulegt að þetta
skuli ekki hafa
verið gert fyrr.
Þetta er okkar
Shakespeare.
Nýr
Shake-
speare
Mér fannst sýn-
ingin mjög
skemmtileg og
finnst eiginlega að
við höfum eignast
nýjan Shakespe-
are.
JÓN
BÖÐVARSSON
GUÐMUNDUR
ANDRI THORS-
SON, RITHÖF-
UNDUR
LINDA
VILHJÁLMS-
DÓTTIR, RIT-
HÖFUNDUR
HVERNIG FANNST ÞÉR?
FRÉTTABLAÐIÐ/BILLI
TÓNLIST Hádegistónleikaröð Ís-
lensku óperunnar á haustmisseri
2002 hefur göngu sína í dag og
munu tónlistarunnendur geta
gengið að hádegistónleikum vís-
um annan hvern þriðjudag í októ-
ber og nóvember. Umsjón með há-
degistónleikaröð haustsins hefur
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
tenór. Tónleikarnir í dag bera yf-
irskriftina La Traviata – á hálf-
tíma. „Þetta er í raun annað og
meira en tónleikar,“ segir Jóhann
Friðgeir. „Við ákváðum að hafa
þetta bara flott og tökum allar
flottustu aríurnar og dúettana úr
óperunni fyrir sópran og tenór.
Kári Halldór leiklistarstjóri sér
um að leikstýra og Clive Pollard
er á píanóinu allan tímann, frábær
píanisti. Það er óhætt að segja að
um hálftíma sviðsetningu á verk-
inu sé að ræða.“
Hlutverk Violettu syngur Alda
Ingibergsdóttir sópran og Jóhann
Friðgeir fer með hlutverk Al-
fredos. „Við biðjum fólk að koma
tímanlega svo við getum byrjað á
réttum tíma og svo að enginn
verði of seinn í vinnuna eftir
flutninginn,“ segir Jóhann, og lof-
ar dýrðlegri hádegisstund sem
enginn verður svikinn af.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.15
og standa í um 40 mínútur. Að-
gangseyrir er 1.000 kr.
ÞAÐ BESTA ÚR LA TRAVIATA
Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Alda Ingibergsdóttir, Clive Pollard og Kári Halldór bjóða til
tónlistarveislu í Íslensku óperunni í hádeginu í dag.
Íslenska óperan:
La Traviata
– á hálftíma
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI