Fréttablaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 24
Loksins kom að því hjá Skattinumað þeim hugkvæmdist að það
gæti verið framfaraspor að hætta í
smáfiskadrápinu og snúa sér að há-
karlaveiðum. Skatturinn hefur löng-
um verið haldinn þeirri ámátlegu
þráhyggju sem virðist þjaka ís-
lenska glæpamenn að forsmá banka
og staði þar sem peningar eru
geymdir en ráðast þess í stað inn í
sjoppur og vídeóleigur og pizzustaði
með sokkabuxur á hausnum og
heimta með frekju og ofbeldi pen-
inga þar sem engir eru fyrir.
FYRIR UTAN þá ógæfu að gerast
forfallinn spilafíkill er vísasta leiðin
til að verða gjaldþrota á Íslandi sú
að stunda kvikmyndagerð, og viti
menn, þessa blönku stétt kvik-
myndagerðarmanna hefur Skattur-
inn lagt í einelti og ofsótt af þvílíku
grimmdaræði að manni kemur helst
í hug hinn geðveiki keisari Neró sem
kenndi kristnum friðsemdarmönnum
í Rómaborg um alla skapaða hluti og
krossfesti þá sér til glaðværðar.
EINYRKJAR, lausavinnufólk,
ræstitæknar og allir sem verða að
komast af án þess að geta verið í
verkalýðsfélagi af því að þeir hafa
ekki fasta vinnu og verða að skrá sig
sem verktaka hafa verið sjálfsögð
fórnarlömb Skattsins sem vinnur
samkvæmt ævafornum starfsreglum
Hins heilaga Rannsóknarréttar, þan-
nig að hver sá sem er grunaður er
sekur þar til búið er að brenna hann
á báli og sanna sakleysi hans. Og því
minni peninga sem einhver á þeim
mun grunsamlegri er hann á mæli-
kvarða Skattsins.
ÞAÐ ER ÞVÍ fagnaðarefni að
Skatturinn skuli loksins hafa tekið
þá stefnu að leita að peningum þar
sem peninga er von í stað þess að
ofsækja unglinga, láglaunafólk og
svokallaða verktaka. Ennfremur
væri kannski athugandi að grynn-
ka aðeins á því eyðublaðafargani
og endurskoðunarskyldu sem er
lögboðinn fylgifiskur smárekstrar
á Íslandi, með þeim afleiðingum að
nýsköpun verður sáralítil í fá-
breyttu atvinnulífinu En batnandi
manni er best að lifa. Húrra fyrir
Skattinum - sem héðan í frá hættir
vonandi að ofsækja aumingjana og
læðist eins og höggormur að þeim
sem hafa búið um sig í Skatta-
paradís. ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Höggormur í
Skattaparadís