Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 15
■ Bandaríkin
15MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2003
E
kk
e
rt
e
ld
h
ú
s
á
n
E
L
B
A
..
.
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
INNBYGGINGAOFNAR
hvítir-svartir-spegil-stál
11-624: 4ra kerfa hvítur 27.800,-
21-623: 4ra kerfa stál 37.100,-
21-820: 7-kerfa stál 49.900,-
41-820: 8-kerfa, 3 litir 48.400,-
DC-70: 2ja hólfa stál 39.900,-
Breiðir ofnar, 70 og 90 cm:
700-80: 8-kerfa stál, nýr 69.900,-
101-80: 8-kerfa stál 89.900,-
HELLUBORÐ, RAF- OG GAS
4ra h. steypt, hv. eða stál Frá 14.900,-
4ra h. keramik, hv. eða stál - 29.900,-
4ra h. -m/snertirofum, stál - 49.900,-
2ja h. gas, hv. eða stál - 13.900,-
4ra h. gas, hv./sp./stál - 24.900,-
5 hellu gas, stál kr. 42.000,-
Raðeiningar í miklu úrvali, m.a.
„Barbecuegrill“ á aðeins 19.900,-
Veggvifta hvít eða svört 5.900,-
Veggháfur 60 cm stál kantaður 19.900,-
Veggháfur 90 cm stál kantaður 26.900,-
Veggháfur 60 cm stál rúnnaður 26.900,-
Veggháfur 90 cm stál rúnnaður 31.900,-
Eyjuháfur 65x90 cm stál 59.900,-
Ath. Kolsíur fylga (innifaldar í verðinu)
ELDAVÉLAR
60x60x85 cm
kerimikborð m/4
hraðhellum.
Fjölvirkur 7-kerfa ofn.
Stáleldavél
Kr. 74.000,-
Fæst einnig með
gashelluborði.
2ja ára ábyrgð. Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
PAKKATILBOÐ: Við kaup á 2 ELBA tækjum samtímis veitum við
3% aukaafslátt og 5% við kaup á 3 eða fleiri tækjum.
ELDHEITT PÁSKATILBOÐ
Falleg, fullkomin og vönduð ítölsk raftæki á eldheitu páskaverði í aprí l (meðan birgðir endast)
Fæst á næsta blaðsölustað
Áskriftarsími 586 8005 • www.rit.is
RÚTU EKIÐ Á TRÉ Sjö manns létu
lífið og fjórir slösuðust þegar lítil
rúta fór út af vegi í Pennsylvan-
íu. Um borð voru ellefu kennarar
og stjórnendur úr kínverskum
háskólum. Snjór var á veginum
þegar óhappið átti sér stað. Tókst
rútan á loft og lenti á tré yfir
þrjá metra frá jörðu.
UMKRINGDUR HERSHÖFÐINGJUM
Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, kom
fram opinberlega á fimmtudag í síðustu
viku, í fyrsta skipti í sjö vikur.
Norður-Kóreumenn:
Öryggisráð-
ið gerir illt
verra
PYONGYANG, AP Stjórnvöld í Norður-
Kóreu hafa varað við því að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
muni gera illt vera ef það reynir
að grípa til aðgerða vegna kjarn-
orkuvopnaáætlunar Norður-
Kóreu. Öryggisráðið kemur sam-
an í dag til að ræða brot Norður-
Kóreumanna gegn alþjóðlegum
sáttmálum.
Kínversk stjórnvöld, helstu
bandamenn Norður-Kóreu, sögðu
öryggisráðið ekkert hafa upp úr
því að ræða málið. Það kæmi því
ekki við og myndi aðeins verða til
að flækja stöðuna. ■
MYRTI BÖRN SÍN Í BRÆÐISKASTI
Tæplega þrítugur karlmaður hefur
verið fundinn sekur um að skera
tvö börn sín á háls þegar hann kom
ofurölvi heim frá dansleik. Maður-
inn var dæmdur fyrir morð af yfir-
lögðu ráði á þeim forsendum að
hann hefði framið verknaðinn í
bræðiskasti en ekki í ölæði eins og
lögfræðingur hans hélt fram.
SKOTHRÍÐ Í SKÓLASTOFU Karl-
maður hóf skothríð í kennslustofu í
verslunarskóla í Lousiana, skaut til
bana einn nemanda og særði ann-
an. Árásarmaðurinn var handtek-
inn skömmu síðar og á nú yfir
höfði sér ákæru fyrir morð af yfir-
lögðu ráði, morðtilraun og ólög-
legan vopnaburð. Hann hafði áður
hlotið dóm fyrir tilraun til mann-
dráps en var á reynslulausn.
■ Bandaríkin
Neyðarástand á
sjúkrahúsum
Fjöldi óbreyttra borgara hefur særst í átökum síðustu daga í Bagdad.
Sjúkrahús borgarinnar geta ekki annað þessum mikla fjölda sjúklinga
og þegar er mikill skortur á sjúkragögnum.
GENF, AP Talsmenn Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar hafa lýst
yfir þungum áhyggjum vegna
þess neyðarástands sem sé yfir-
vofandi á sjúkrahúsum í Bagdad.
Mikill fjöldi óbreyttra borgara
hefur þurft að leita sér læknis-
hjálpar á spítölunum í kjölfar
átaka undanfarinna daga og
standa sjúkrahúsin nú frammi
fyrir því að verða uppiskroppa
með sjúkragögn áður en langt um
líður.
„Áður en stríðið hófst áttu
sjúkrahúsin til nægar birgðir til
þess að starfa við venjulegar að-
stæður. En þetta eru svo sannar-
lega ekki venjulegar aðstæður,“
sagði Ian Simpson, talsmaður
stofnunarinnar. Að sögn Simpson
er þegar orðinn verulegur skortur
á útbúnaði til þess að gera að
brunasárum og sárum af völdum
sprengjubrota. Í Jórdaníu er Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin með
birgðir af sjúkragögnum tilbúnar
til flutnings en af öryggisástæð-
um hefur ekki reynst unnt að
senda starfsmenn stofnunarinnar
með þær til Bagdad.
Að sögn starfsmanns Alþjóða
Rauða krossins eru sjúkrahúsin í
Bagdad þegar komin langt yfir
þann fjölda sjúklinga sem þeim er
ætlað að ráða við. Læknar og
hjúkrunarfólk vinna myrkranna á
milli til þess að bregðast við
ástandinu. Starfsmaðurinn lýsti
enn fremur yfir miklum áhyggj-
um vegna skorts á rafmagni og
hreinu vatni á sjúkrahúsunum.
Á þessari stundu liggur ekki
fyrir hversu margir óbreyttir
borgarar hafa særst eða látist í
Bagdad síðan innrásin í Írak hófst.
„Enginn er að telja en það er á
hreinu að talan er há,“ sagði Simp-
son aðspurður um það hversu
margir hefðu látist eða særst í
loftárásum Breta og Bandaríkja-
manna á Bagdad og átökum inn-
rásarhersins við íraskar hersveit-
ir. Starfsmenn Alþjóða Rauða
krossins á svæðinu hafa reynt að
hafa yfirsýn yfir fórnarlömb
stríðsátakanna en eftir blóðuga
bardaga síðustu daga hefur þeim
reynst þeim ógerlegt að halda
utan um þennan mikla fjölda. ■
ÖRVÆNTING
Þessi íraska stúlka betlaði mat í gær. Mikil
neyð er í Írak eftir árásirnar.
Edda útgáfa og Penninn í viðræðum:
Bóksölurisi í fæðingu
VERSLUN Viðræður eru hafnar um
að Edda útgáfa hf. selji Pennan-
um fjórar bókaverslanir Máls og
menningar í Reykjavík. Gunnar
B. Dungal, forstjóri Pennans, og
Páll Bragi Kristjónsson, fram-
kvæmdastjóri Eddu útgáfu,
sendu frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem þetta var staðfest.
Verði af þessum kaupum mun
Penninn, sem rekinn hefur verið
síðan árið 1932, verða
langstærsti bóksali landsins,
sannkallaður bóksölurisi, með
tíu bókaverslanir í sinni eigu,
þar af níu á höfuðborgarsvæð-
inu. Að auki eru bókaverslanir á
Akranesi, Ísafirði, Keflavík og í
Vestmannaeyjum tengdar Penn-
anum sem svokallaðir Pennavin-
ir. Verslanirnar sem rætt er um
að fari undir Pennann eru Bóka-
verslanir Máls og menningar við
Bankastræti, Síðumúla, Mjódd
og Laugaveg.
Væntanlegan kaupsamning
verður að bera undir samkeppn-
isyfirvöld. ■
MÁL OG MENNING
Penninn er í viðræðum um að kaupa
bókaverslanir af Eddu útgáfu. Meðal bóka-
búðanna er flaggskip M&M á Laugavegi
18.