Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 14
14 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
ÓLÍKIR HEIMAR MÆTAST
Mohammed Jiham Al Kuwri, framkvæmda-
stjóri ráðstefnunnar „Að byggja brýr“,
stendur hér við hlið Dr. Rowan Williams,
erkibiskupsins af Kantaraborg, á setningar-
athöfninni í Katar. Um 30 kristnir og
íslamskir fræðimenn víðs vegar að úr
heiminum mættu á ráðstefnuna með það
að leiðarljósi að reyna að koma á gagn-
kvæmum skilningi á milli trúarbragðanna
tveggja.
Nýbý laveg i 14 , Kópavog i . S ím i 554 4443 . Fax 554 4102 .
Lausnin á góðum merkingum
ptouch 3600
smávara lager bókasafn
einstök prentgæði • sterkir borðar • borðar í mörgum litum og breiddum
fjölbreytt letur og tákn • prentar strikamerki • 360 dpi prentun
usb tengi • prentflötur allt að 27 mm
13
90
.3
5
Laugavegi 32 561 0075
Niðurskurður Ísraelsstjórnar ógnar þjóðaröryggi:
Njósnarar hóta að hætta
JERÚSALEM, AP Tugir njósnara
Mossad, ísraelsku leyniþjónust-
unnar, hafa hótað því að leggja
niður störf ef ísraelska ríkis-
stjórnin lætur verða af því að
skerða lífeyrisréttindi þeirra.
Samkvæmt niðurskurðartil-
lögum Benyamins Netanyahu,
fjármálaráðherra Ísraels, hækk-
ar eftirlaunaaldur ísraelskra njó-
snara og herforingja úr 45 árum í
55 ár. Þetta geta njósnararnir
engan veginn sætt sig við, að
sögn ísraelska dagblaðsins
Yediot Ahronot. Blaðið segir að
155 njósnarar og háttsettir for-
ingjar í leyniþjónustunni hafi
hótað því að ganga út verði tillög-
urnar að veruleika.
Tíðindin valda áhyggjum með-
al ísraelskra ráðamanna. Leyni-
þjónustan er mikilvægur hluti af
baráttu ísraelskra stjórnvalda
gegn hryðjuverkahópum Palest-
ínumanna. ■
SVEITARSTJÓRNIR Kennarar í Varma-
landsskóla í Stafholtstungum eru
afar ósáttir vegna boðaðrar hækk-
unar á leigu íbúða sem þeir búa í.
Að sögn
k e n n a r a n n a
svarar leigu-
hækkunin til
kjaraskerðingar
upp á að minnsta
kosti ein mánað-
arlaun. „Teljum
við það ósann-
gjarnt og sið-
laust,“ segja
þeir.
Kennararnir
segjast hafa ver-
ið ráðnir til Varmalandsskóla á
ákveðnum kjörum: „Inni í þeim
heildarpakka er húsaleigan þó það
standi ekki beint í ráðningar-
samningum okkar. Að hækka leig-
una á þessum tíma er því í okkar
huga brot á þeim samningi.“
Þá segjast kennararnir telja
það vafasamt að hækka húsaleig-
una þar sem mörgu sé ábótavant
við ástand húsnæðisins. „Má þar
meðal annars nefna að brunavarn-
ir eru ólöglegar þar sem fólk hef-
ur ekki greiða útgönguleið ef til
bruna kæmi,“ segja þeir.
Kennararnir telja réttlátt að
leigan verði ekki hækkuð fyrr en
aðrir taki við húsnæðinu. Sjálfir
munu þeir hafa á bilinu sex til tólf
mánaða uppsagnarfrest.
Bæjarráð Borgarbyggðar hef-
ur ákveðið að láta taka út bruna-
varnir í Varmalandskóla.
Húsaleigumálið er á forræði
skóla- og rekstrarnefndar Varma-
landsskóla, sem rekin er í byggð-
arsamlagi Borgarbyggðar og
Hvítársíðuhrepps. Formaður
nefndarinnar, Helga Halldórs-
dóttir, segir leiguna ekki hafa
hækkað í 20 ár að öðru leyti en því
að hún hafi fylgt hækkun bruna-
bótamats. Það sé rangt hjá kenn-
urunum að hagstæð kjör á húsa-
leigu séu hluti starfskjara þeirra.
Málið sé nú hins vegar í vinnslu
hjá skólanefndinni.
Helga vísar því á bug að íbúðir
kennaranna séu brunagildrur.
„Ástandið var slæmt þegar
slökkviliðsstjóri fór yfir þessi mál
árið 1999. Síðan hafa verið gerðar
miklar úrbætur þó alltaf megi
betur fara. Brunamálastofnun
mun taka skólann í heild út á
næstunni,“ segir Helga.
Páll Brynjólfsson, bæjarstjóri í
Borgarbyggð, segir húsaleiguna
nú á bilinu 10 til 15 þúsund krónur
á mánuði. Leigan eigi að hækka í
20 til 25 þúsund krónur í haust.
„Þetta er töluverð hækkun en
húsaleigan er eftir sem áður mjög
lág á Varmalandi,“ segir Páll.
gar@frettabladid.is
MS-sjúklingar vilja formanninn burt:
Forstöðukona Dagvistar
MS bjartsýn á jafnvægi
DEILUR „Ég er bjartsýn á að jafn-
vægi komist á hér,“ segir María
Ríkharðsdóttir, forstöðukona á Dag-
vist MS-sjúklinga á Sléttuvegi, sem
tók við starfinu í kjölfar þess að
fyrri forstöðukona hætti með látum
eftir að hún taldi að stjórn Dagvist-
ar hefði sakað sig um fjárdrátt.
Mikil óánægja er meðal þeirra
sjúklinga sem sækja dagvistina.
Raddir eru uppi meðal þeirra að Vil-
borg Traustadóttir, formaður MS-
félagsins, eigi sök á því að fyrri for-
stöðumaður hætti og fjórir aðrir
starfsmenn í kjölfar þess. Lárus
Jónsson, einn sjúklinganna, segir að
Vilborg hafi beitt áhrifum sínum til
að skipa Sigríði Hrönn Elíasdóttur,
fyrrverandi sveitarstjóra í Súðavík,
formann stjórnar Dagvistar MS.
Sigríður Hrönn hafi síðan ráðið Vil-
borgu sem framkvæmdastjóra Dag-
vistar MS.
„Við viljum að Vilborg fari og öll
stjórnin hætti,“ segir Lárus, sem
segir að kröfum hans og annarra
sjúklinga um að haldinn verði aðal-
fundur hið bráðasta hafi ekki verið
ansað.
Hann segir það vera til dæmis
um andann í félaginu að Vilborg
hafi verið beðin um að mæta ekki á
árshátíð MS félagsins í byrjun
mars.
Á Dagvist MS er loftið lævi
blandið og sjúklingarnir hafa að
sögn Lárusar lítið við að vera. Mar-
ía forstöðumaður segist vinna að
því að koma rekstrinum í viðunandi
horf. Hún sagði að rólegt hefði ver-
ið þar í gær.
„Starfsfólkið hefur nóg við að
vera. Hér eru fimm stúlkur í hjúkr-
un og þær sinna sjúklingunum mjög
vel. Mér líst vel á þennan vinnu-
stað,“ segir María og kveðst ekki
eiga aðild að þeim deilum sem uppi
eru milli stjórnar og sjúklinga.
María segir að fækkun í Dagvist-
inni vegna deilnanna sé ekki mikil.
„Það hefur fækkað aðeins en
ekki mikið. Það eru veikindi á fólki
eins og gengur og innlagnir á spít-
ala,“ segir hún.
María segir að unnið sé að því að
ráða starfsfólk í stað þeirra sem
hætti um leið og forveri hennar.
„Það fer að vanta í sjúkraþjálf-
un. Við erum að vinna í því og þegar
búið að auglýsa,“ segir María.
Ekki náðist í Vilborgu Trausta-
dóttir, framkvæmdastjóra Dagvist-
ar MS og formann MS-félagsins. ■
PALESTÍNUMENN FLÝJA
ÍSRAELSKAN SKRIÐDREKA
Ísraelska leyniþjónustan hefur aflað upp-
lýsinga um meinta hryðjuverkamenn í röð-
um Palestínumanna og staðið fyrir aðgerð-
um gegn þeim.
HELGA HALLDÓRSDÓTTIR
Formaður skóla- og rekstrarnefndar Varma-
landsskóla segir ekki rétt að hagstæð
húsaleiga sé hluti af starfskjörum kennara
við skólann. Einnig sé rangt að brunavarnir
séu í ólagi þó ástandið hafi verið slæmt
árið 1999. „Síðan hafa verið gerðar miklar
úrbætur þó alltaf megi betur fara.“
„Bruna-
varnir eru
ólöglegar þar
sem fólk hef-
ur ekki greiða
útgönguleið
ef til bruna
kæmi.
Hækkun húsaleigu
sögð vera siðlaus
Kennarar í Varmalandsskóla segjast búa í brunagildrum. Mikil hækkun húsaleigunnar sé siðlaus
og skerði kjör þeirra sem svari til einna mánaðarlauna. Skólanefndin vísar gagnrýninni á bug.
Bæjarstjóri segir leiguna áfram lága þrátt fyrir töluverða hækkun.
DAGVISTIN
Mikil óánægja er meðal þeirra sem sækja Dagvist MS-sjúklinga. Forstöðukona hætti
vegna deilna við stjórn og í kjölfarið fylgdu fjórir starfsmenn. Ný forstöðukona er bjartsýn
á að málin leysist.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T