Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 9. apríl 2003 Tónlist 19 Leikhús 19 Myndlist 19 Bíó 22 Íþróttir 20 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD AFMÆLI Draumur um gæðinga FÓTBOLTI Juventus og Barcelona 84. tölublað – 3. árgangur bls. 18 SÝNING Typpalingar á leið í Austurbæ bls. 28 FUNDUR Óþekkt á vinnustað er það sem starfsmenn gera í vinnutíma sem ekki er ætlast til að þeir geri. Á hádegisverðarfundi Félags við- skipta- og hagfræðinga á Grand Hótel í dag klukkan 12 verður fjall- að um birtingarform óþekktar, ástæður óþekktar og leiðir til að bregðast við henni. Framsögu flytja Árelía Eydís Guðmundsdótt- ir, dósent við Háskólann í Reykja- vík, og Hjalti Sölvason, starfsþró- unarstjóri Nýherja. Óþekkt á vinnustað FYRIRLESTUR Í dag mun Nigel Dower, kennari við Aberdeen- háskóla í Skotlandi, flytja opinber- an fyrirlestur á vegum Heimspeki- deildar Háskóla Íslands. Fyrirlest- urinn nefnist „Security in a Global Context“. Nigel Dower heldur því fram að stríðið sem nú er háð gegn hryðjuverkum og deilan í Írak snú- ist í raun upp í andstæðu sína og auki því ekki á öryggi nútíma- mannsins. Fyrirlesturinn fer fram í stofu 102 í Lögbergi klukkan 17:15 og er öllum opinn. Snýst í andhverfu PÍANÓLEIKARAR Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigurðsson halda tónleika fyrir tvö píanó í Salnum í Kópavogi klukkan 20:00. Þar leika þau þekkt verk eft- ir Brahms, Debussy, Milhaud, Fauré og Sjostakovitsj. Tónleikarn- ir eru tileinkaðir minningu Árna Kristjánssonar, píanóleikara og fyrrverandi tónlistarstjóra Ríkisút- varpsins, sem er nýlátinn. Tvö píanó í Salnum bls. 22 SJÁVARÚTVEGUR „Það hefur einfald- lega ekkert gerst í töluverðan tíma,“ segir Kolbeinn Árnason, skrifstofustjóri í sjávarútvegs- ráðuneytinu, sem sæti á í sendi- nefnd Íslands sem annast samn- ingagerð vegna skiptingar á norsk- íslensku síldinni. Fyrst var samið um síldina árið 1996 en þá fengu Norðmenn 57 prósenta hlut en Íslendingar 15,54 prósent. Rússland er með 13,62 prósent, Evrópusamband- ið með 8,38 pró- sent og Færey- ingar mega veiða 5,46 prósent úr heildarkvótanum. Samningurinn hefur síðan verið framlengdur árlega óbreyttur. Síð- asta haust höfnuðu Norðmenn því að semja á þessum nótum en kröfð- ust þess að þeirra hlutdeild yrði 70 prósent af heildarkvóta. Þessu höfnuðu Íslendingar alfarið. „Mönnum þótti þetta dálítið vel bratt,“ segir Kolbeinn. Síðasti fundur var í byrjun febr- úar í Kaupmannahöfn en þar hreyfðist ekkert í samkomulags- átt. Norðmenn hafa gert tvíhliða samkomulag við Færeyinga og Evrópusambandið sem vekur nokkra undrun íslenskra stjórn- valda. Evrópusambandið hefur að sögn Kolbeins túlkað þann samn- ing þannig að með því að gefa eftir hluta kvótans til Norðmanna fái ESB aðgang að norskri lögsögu. En túlkun Norðmanna er sú að samið hafi verið um breytta skiptingu en ESB „fái“ aðgang að norsku lög- sögunni. Tíminn til að semja um skipt- inguna er orðinn naumur því veið- ar Íslendinga í úthafinu hefjast að vanda í byrjun maí. Kolbeinn segir að ef ekki komi símtal frá Noregi um að flötur sé á því að hefja við- ræður um nýjan samning muni Ís- lendingar gefa út einhliða síldar- kvóta. „Þá verðum við óbundnir af samningum og þurfum að taka ein- hliða ákvörðun um hvort við setj- um kvóta og þá hvaða kvóta. Sú ákvörðun verður tekin þegar menn hafa gefið það upp á bátinn að samningar náist,“ segir Kolbeinn. rt@frettabladid.is Ráðuneytið bíður símtals frá Noregi Norðmenn hafa ekki slakað á kröfu um aukna hlutdeild í norsk-íslenska síldarstofninum. Síldveiðar íslenskra skipa hefjast í maí. Skrifstofustjóri sjávarútvegsráðuneytisins segir að ef ekkert gerist verði gefinn út einhliða kvóti Íslendinga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M MIÐVIKUDAGUR VETUR VERÐUR SUMAR Vetrarævintýri Shakespeares hlýtur nafnið Sumarævintýri í meðförum leikara Borgarleikhússins. Leikararnir leggja nú lokahönd á sýningu verksins, sem verður frumsýnt annað kvöld. Að þeirra sögn er breyting nafnsins að ósk höfundarins sjálfs. Verkið er átakanleg saga um afbrýði, svik og dauða, um sundrungu fjölskyldu, en um leið hugljúf og gamansöm saga um ást, undur og hamingju og sameiningu fjölskyldu eftir erfiðleikatíma. AFHENDING Þegar Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, afhendir Davíð Odds- syni forsætisráðherra stjórnar- skrána frá 1874 verður það í ann- að skipti sem dönsk stjórnvöld af- henda Íslendingum hana til vörslu. Stjórnarskráin og önnur skjöl íslenska stjórnarráðsins voru flutt hingað til lands þegar Ísland fékk heimastjórn 1904. Hér voru skjölin geymd til 1928 þegar þau voru flutt aftur til Danmerkur. Dönsku nefndarmennirnir sem sömdu um sambandsslitin þegar Ísland fékk fullveldi gerðu kröfu um að konungsskjöl yrðu flutt til Danmerkur og var orðið við því. Um tíu ár eru liðin síðan farið var að vinna í því að fá stjórnar- skrána og önnur konungsskjöl um Ísland hingað til lands, segir Ólaf- ur Ásgeirsson þjóðskjalavörður. Um það leyti voru Danir að af- henda Norðmönnum skjöl sem geymd höfðu verið í Danmörku. Því þótti eðlilegt að leita eftir því að fá skjöl um Ísland afhent. „Það hefði verið eðlilegt að skila þessu við lýðveldisstofnun,“ segir Ólafur og bætir við að það mætti líta svo á að verið væri að ljúka lýðveldisstofnuninni með af- hendingu skjalanna. Meðal þeirra eru mikilsverðar lagabreytingar um verslun og siglingar hingað til lands og skólamál. Sjá meira á bls. 17 Stjórnarskráin frá 1874 kom fyrst hingað þegar Ísland fékk heimastjórn: Stjórnarskráin aftur til Íslands Reykjavík Collection: Tísku- fyrirtæki gefst upp TÍSKA Hönnunar- og tískufyrirtæk- ið Reykjavík Collection er komið að fótum fram og verður starf- seminni hætt innan skamms. Berjast eigendur nú við að minnka fjárhagsskaðann með inn- heimtu útistandandi skulda og lagersölu. Fyrirtækið var um tíma með skrifstofu í Kaupmannahöfn og hélt þar miklar tískusýningar. Um tíma voru vörur þess til sölu í 150 verslunum í Evrópu. Sjá nánar á bls. 31. VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 10-15 Rigning 5 Akureyri 10-18 Skýjað 9 Egilsstaðir 15-20 Skýjað 9 Vestmannaeyjar 10-15 Skúrir 6 REYKJAVÍK Sunnan 10-15 m/s og rigning eða skúrir. Sunnan 5-10 á morgun. Hiti 3 til 8 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + + + ➜ ➜ ➜ ➜ NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá febrúar 2003 14% D V 90.000 eintök 73% fólks lesa blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á miðviku- dögum? 61% 77% TÍMAHRAK Innan örfárra vikna hefjast veiðar íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum. Það er á valdi Norðmanna hvort semst eða ekki. „Þá verðum við óbundnir af samning- um og þurf- um að taka einhliða ákvörðun um hvort við setjum kvóta. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.