Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 28
28 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR í upphafi skapaði Guð heiminn oghvíldist. Þá skapaði Guð manninn og hvíldist. Þá skapaði Guð konuna. Síðan þá hefur hvorki Guð eða mað- urinn getað hvílst. Pondus eftir Frode Øverli Með súrmjólkinni 54 ÁRA „Ég er frár á fæti og léttur til göngu og sunds,“ segir afmæl- isbarn dagsins, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, sem er orð- inn 54 ára. „Mér finnst ég ungur, hef lifað marga gleðiríka daga og finn ekki mikinn mun á mér nú og þegar ég var 24 ára,“ segir afmæl- isbarnið. Þegar Guðni var yngri að alast upp á Brúnastöðum í Flóa var ekki til siðs að halda afmælisveislur eins og nú tíðkast víðast hvar: „Móðir mín hitaði kannski kakó og gaf mér brúna tertu. En það var alltaf mikið fjör enda við systkin- in sextán talsins,“ segir Guðni, sem ætlar að eyða afmælisdegin- um meðal nýrra kjósenda á Suður- nesjum. Kosningabaráttan tekur ekki mið af afmælisdögum fram- bjóðenda: „Suðurnesjamenn eru skemmtilegt og kraftmikið fólk sem liggur ekki á skoðunum sín- um. Það hefur tekið mér vel,“ seg- ir Guðni, sem vafalítið á eftir að snerta einhverja strengi í brjóst- um Suðurnesjamanna sem eru ekki vanir að geta kosið mann eins og Guðna. Og kvöldið er frátekið: „Okkur hjónunum er boðið að sitja veislu með danska forsætis- ráðherranum í Perlunni í kvöld. Það verður góð veisla þó ekki sé það afmælisveislan mín.“ Guðni segist líta á lífið sem röð tímabila; fyrst æskan, svo þroskaárin, húsbyggingar, skuldir og ekki síst að komast frá þessu öllu heill og til ein- hvers þroska: „Og nú er runnið upp nýtt tímabil, ákaflega ánægjulegt. Ég er orðinn afi,“ segir ráðherrann, sem á mörgu ólokið og enn hafa ekki allir draumar hans ræst. Þeir eru margir og einn snýst um ævi- kvöldið: „Ég vil njóta þess að ná háum aldri og skilja við pólitíkina sátt- ur við allt og alla. Þá væri gam- an að eiga góða gæðinga og ríða til fjalla. Svo ekki sé minnst á nokkrar fallegar ær og íslenskan hund. Ég ætla að treina mér ævi- kvöldið og eiga þá ánægjulegar stundir,“ segir Guðni Ágústsson. eir@frettabladid.is Draumur um gæðinga, ær og íslenskan hund Elísabet Magnúsdóttir, áður á Hrísateig 6, lést 6. apríl. Guðlaug Huld Nielsen, Hátúni 12, Reykjavík, lést 6. apríl. Kristbjörg Jónsdóttir, Ysta-Felli, lést 6. apríl. Þóra Böðvarsdóttir, Leifsgötu 6, lést 5. apríl. Herdís Guðmundsdóttir frá Sæbóli, Að- alvík, lést 4. apríl. Davíð BR. Guðnason, fyrrverandi vatna- mælingamaður, lést 30. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Karl Einarsson, Fannarfelli 12, Reykja- vík, lést 26. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Gróa Eggertsdóttir, Stigahlíð 26, er lát- in. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Margaret E. Kentta lést í Edinborg 31. mars. Umskipti: Vatn í staðinn fyrir mjólk BRUNAVARNIR Bæjarstjórinn í Hveragerði hefur að undanförnu staðið í samningaviðræðum við Norðurmjólk um kaup á mjólk- urbíl sem hann vill breyta í vatnsbíl. Fyrirhugað er að nota mjólkurbílinn sem brunabíl þeg- ar búið er að breyta honum í vatnsbíl. Bæjarstjórinn kynnti málið fyrir bæjarstjórninni í Hvera- gerði á dögunum og tók hún vel í. Fól hún bæjarstjóra að ganga frá samningum um kaup á mjólkurbílnum og leita jafn- framt samstarfs við Sveitarfé- lagið Ölfus um viðskiptin enda mun bíllinn gagnast íbúum þar þegar og ef eldur verður laus. ■ Nei, það er bannað að teikna á augað á hundinum! Afmæli GUÐNI ÁGÚSTSSON ■ Guðni Ágústsson er 54 ára í dag. Frískur og fínn. Frár á fæti og á sér enn drauma sem vonandi eiga eftir að rætast. AFMÆLISBARNIÐ Situr veislu með danska forsætisráðherranum í Perlunni í kvöld. Væntanlega góð veisla þó ekki sé það afmælisveislan hans. 10.30. Elín Jónatansdóttir, áður á Sól- vallagötu 45, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 13.30 Blængur Gímsson, Holtagerði 39, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju. 13.30 Jóhannes Sigurðsson, Lækjar- götu 34d, Hafnarfirði, verður jarð- sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju. 15.00 Lóa Ágústsdóttir, Holtsgötu 13, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni. ■ Jarðarfarir ■ Andlát Ertu að borða kaffikorg og eggjaskurn? Það er burkni í klósettinu! Ældirðu INN ÍDVD-spilarann? Sumar setningar eru fráteknar fyrir foreldra smábarna!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.