Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 6
6 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ Evrópa GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 78.65 -0,58% Sterlingspund 122.08 -0,49% Dönsk króna 11.31 0,53% Evra 84.01 0,30% Gengisvístala krónu 121,53 -0,02% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 394 Velta 12.683 milljónir ICEX-15 1.424 0,56% Mestu viðskipti Tryggingamiðstöðin hf. 1.153.217.869 Kaldbakur fjárf.félag hf. 1.128.769.515 Sölumiðstöð Hraðfr. hf. 872.231.454 Mesta hækkun Plastprent hf. 11,11% Tryggingamiðstöðin hf. 7,14% Vinnslustöðin hf. 4,88% Mesta lækkun Sláturfélag Suðurlands svf. -9,09% Kaldbakur fjárfestingarfélag hf. -4,00% Íslenski hugbúnaðarsj. hf. -3,75% Erlendar vísitölur DJ*: 8290,5 -0,1% Nasdaq*: 1383,1 -0,5% FTSE: 3868, -1,7% DAX: 2755,5 -1,9% NIKKEI: 8131 -1,4% S&P*: 877,4 -0,3% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslandsóttast ekki að verðbólgan fari í tveggja stafa tölu vegna stóriðjuframkvæmda. Hvað heitir hagfræðingurinn? 2Hinn skæði öndunarfærasjúkdómursem berst nú um heiminn kallast í daglegu tali SARS, sem á íslensku útleggst HABL. Fyrir hvað stendur HABL? 3Hvað heitir hljómsveitin sem vannhljómsveitakeppni tónlistarblaðsins Sánd? Svörin eru á bls. 30 Fyrri umsóknarfrestur er til 15. apríl ÍS LE N S K A A U G LÝ S IN G A S TO FA N /S IA .I S H IR 2 05 75 03 /2 00 3 www.ru.is Lagadeild • Viðskiptadeild • Tölvunarfræðideild Þeir sem sækja um nám við Háskólann í Reykjavík fyrir 15. apríl fá svar innan þriggja vikna Kvótinn komi til baka á 20 árum Vinstri grænir kynntu stefnu sína í sjávarútvegsmálum á fundi með hagsmunaaðilum og fjölmiðlum í gær. Flokkurinn vill innkalla allar veiðiheimildir á 20 árum og endurúthluta til byggða, útgerða og opins markaðar. SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ég tel að hug- myndir okkar séu mun raunhæfari og álitlegri en þær hugmyndir sem settar hafa verið fram um að inn- kalla allar veiðiheimildir og setja þær á markað á 10 árum,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, á fundi með fréttamönnum og hagsmunaðilum í sjávarútvegi í gær. Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð kynnti þar kosningastefnu sína í sjávarútvegs- málum. Hreyfingin vill innkalla all- ar veiðiheimildir á 20 árum, 5% á ári, og endurúthluta þeim sam- kvæmt ákveðinni forskrift. Hug- myndir flokksins gera ráð fyrir að einn þriðji heimildanna bjóðist nú- verandi kvótaeigendum áfram til afnota í 6 ár í senn. Annar þriðjung- ur skal settur á opinn markað og boðinn upp til afnota í sex ár. Þriðj- ungur að auki skal síðan dreifast til sveitarfélaga í landinu, samkvæmt reiknireglum sem m.a. eiga að byggja á byggðaþróun síðustu 20 ára. Það vekur athygli að tillögur Vinstri grænna gera ráð fyrir að skipting aflaheimilda til sveitarfé- laga, sem ákveðin yrði samkvæmt reiknireglunni, verði varanleg, óbreytanleg og jafnframt ófram- seljanleg úr sveitarfélaginu. „Öryggisleysið sem ríkir í sveit- arfélögunum mun þá hverfa,“ sagði Steingrímur. „Núna hangir óvissan eins og sverð í loftinu yfir byggðunum og sviptingar í eignar- haldi fyrirtækjanna geta þýtt að allar heimildir hverfa úr byggðar- laginu í einni svipan.“ Tillögur Vinstri grænna miða að því „að tryggja í verki sameign þjóðarinnar á fiskistofnunum og réttláta skiptingu afrakstursins,“ eins og segir í stefnuplagginu. Hreyfingin vill koma í veg fyrir að 5 eða 6 stórfyrirtæki í sjávarút- vegi, eins og Steingrímur orðaði það á fundinum, eignist allar fisk- veiðiheimildir, eins og þróunin er að hans mati. Nýbreytnin í tillögum Vinstri grænna felst í því hvernig aflaheimildunum skal endurúthlut- að, í þriðjungum til mismunandi aðila, eins og áður er útlistað, eftir að þær hafa verið innkallaðar. Stefnan ber yfirskriftina „Sjálfbær nýting – sanngjörn skipti.“ Í henni er jafnframt gert ráð fyrir að áhersla á vistvæn veiðarfæri verði aukin með kerf- isbreytingum sem stuðla að auk- inni notkun þeirra. gs@frettabladid.is Kosningastjórar sammælast um að koma í veg fyrir pínlegar fjölmiðlauppákomur í kosningabaráttunni: Frambjóðendur verði ekki hafðir að fíflum KOSNINGABARÁTTAN „Það var talað um það að við reyndum að halda pólitíkinni á ákveðnu plani í kosn- ingabaráttunni, og að við myndum tala okkur saman til þess að reyna að halda því þannig,“ segir Stein- þór Heiðarsson, kosningastjóri Vinstri grænna, um óformlegt samkomulag sem fulltrúar flokk- anna hafa gert sín á milli um að koma í veg fyrir að frambjóðend- ur verði settir í pínlega aðstöðu í fjölmiðlum í komandi kosninga- baráttu. Málið var rætt á fundi fulltrúa flokkanna sem átti sér stað fyrir helgi og Fréttablaðið greindi frá í gær. Dæmið sem notað var á fundinum til vitnis um það, sam- kvæmt heimildum blaðsins, að frambjóðendir geti endað í að- stöðu sem þeir vilja ekki lenda í, er úr borgarstjórnarkosningunum fyrir ári síðan. Þá voru frambjóð- endur Reykjavíkurlista og Sjálf- stæðisflokks látnir rökræða í beinni útsendingu um borgarmál í sundfötum í morgunsárið í heitum potti í Kringlunni. Sú uppákoma mun ekki hafa verið öllum fram- bjóðendum að skapi, en vegna þess að ekkert samkomulag hafði verið gert áður á milli flokkanna um uppákomur af því tagi sá eng- inn þeirra sér fært að hafna þátt- töku. ■ Vísindamenn í sviðsljósinu: Eltir á röndum KÍNA, AP Vísindamennirnir fjórir sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sendi til Guangdong-héraðs í Kína til þess að rannsaka uppruna hinn- ar dularfullu lungnabólgu eru elt- ir á röndum af fjölmiðlum og for- vitnum borgurum. Yfir 50 frétta- menn víðs vegar að úr heiminum fylgja þeim eftir hvert spor til þess að ná myndum og fá frá þeim upplýsingar um framgang rann- sóknarinnar. Sendinefndin er að störfum fjórtán stundir á sólahring. Fund- að er með kínverskum heilbrigð- isyfirvöldum, farið yfir heilbrigð- isskýrslur og sjúkrahús heimsótt auk þess sem haldnir eru blaða- mannafundir til þess að reyna að svala þorsta eftirvæntingarfulls fjölmiðlafólks. ■ STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Vinstri grænir vilja innkalla allar veiðiheimildir og endurúthluta þeim á 20 árum. Þriðjungi verði úthlutað til sjávarbyggða samkvæmt varanlegri forskrift. Með því vill hreyfingin stuðla að auknu atvinnuöryggi í byggðunum, segir formaðurinn. ■ Öryggisleysið sem ríkir í sveitarfélögun- um mun þá hverfa. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ALÞINGISHÚSIÐ Hingað til hafa frambjóðendur mátt gera ýmislegt til að tryggja sér sæti á Alþingi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FJÖLMIÐLAFÁR Sendimenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar í Kína eiga fullt í fangi með að verj- ast ágangi fjölmiðlafólks sem bíður í of- væni eftir fregnum af framgangi mála. Skoðanakönnun IBM: D-listi stærstur KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests stuðnings allra flokka samkvæmt nýrri skoðana- könnun IBM fyrir Stöð 2. Sam- kvæmt henni myndu 41,7% kjósa flokkinn ef gengið væri til kosn- inga nú. Samfylkingin fengi 30% at- kvæða samkvæmt könnuninni, en Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð nýtur stuðnings 10,5% kjós- enda. 8,2% þeirra sem taka af- stöðu segjast myndu kjósa Fram- sóknarflokkinn og sjö prósent lýsa stuðningi við Frjálslynda flokkinn. 2,6% segjast myndu kjósa aðra lista. ■ Blaðberi mánaðarins: Hefur aldrei fengið kvörtun VERÐLAUN Sölvi Rúnar Vignisson hefur verið valinn blaðberi mán- aðarins hjá Fréttablaðinu. Sölvi Rúnar er þrettán ára og á heima á Akureyri. Hann byrjaði að bera út í desember á síðasta ári og hefur staðið sig mjög vel í sínu starfi og aldrei fengið kvörtun. Sölvi Rúnar getur glaðst vel þar sem hann fær að launum staf- ræna myndavél sem fæst í Expert raftækjaverslun. Enda var hann alsæll með nýju myndavélina og sagði hana koma að góðum notum þar sem hann er nýbúinn að eign- ast tölvu. Það hafa margir blaðberar staðið sig vel og erfitt er að velja á milli þeirra mörgu sem koma til greina. Sem fyrr segir varð Sölvi Rúnar Vignisson fyrir valinu að þessu sinni. ■ ÚT AÐ REYKJA Það styttist í það að viðskiptavinir veitingahúsa í Noregi verði að ganga út til að fá sér að reykja. Norska þingið samþykkti bann við reykingum á slíkum stöðum frá og með næsta vori. Noregur verður fyrsta land- ið til að banna reykingar á stöð- um sem almenningur sækir. SÖLVI RÚNAR VIGNISSON Sölvi Rúnar er búin að bera út Fréttablaðið á Akureyri síðan í desember.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.