Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 11
SOFNAÐI UNDIR HJÓNARÚMI Björgunarsveitir af höfuðborgar- svæðinu voru í fyrrakvöld kallað- ir út til að leita sex ára drengs sem horfið hafði af heimili sínu í Hafnarfirði. Í þann mund sem björgunarsveitarmenn lögðu af stað barst tilkynning um að drengurinn væri fundinn. Hafði hann skriðið undir hjónarúm for- eldra sinna og sofnað þar. DANSMEYJAR Í ÁTÖKUM Tvær er- lendar dansmeyjar lentu í blóð- ugum slagsmálum á veitingahús- inu Strikinu í Keflavík á sunnu- dag. Átökin enduðu með því að önnur sló hina í andlitið með glasi. Hlaut sú skurð á hægri augabrún og á kinn. Konan var flutt á Heilbrigðisstofnun þar sem læknir skoðaði hana en ekki þurfti að sauma. Hin kvartaði undan eymsli í andliti og mjöðm. STÁLU BÍL OG SKEMMDU Fjórir ungir menn voru handteknir á Húsavík á sunnudag eftir að hafa stolið bíl og ekið um götu mið- bæjarins og valdið skemmdum. Óku þeir yfir tún vestan við Borgarhólsskóla þannig að djúp hjólför mynduðust. Þá skemmdu þeir gróður í Skálamelnum. ■ Lögreglufréttir 11MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2003 Er allt í góðu hjá þér, ennþá? Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Þjónustuver 560 5000 www.vis.is Þegar allt gengur vel og allir eru frískir og heilbrigðir er sjálfsagt að huga að því að tryggja fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar. Slys eða veikindi gera aldrei boð á undan sér. Hafðu fjárhagslegt öryggi þitt og fjölskyldunnar tryggt. Þú færð Lífís líf- og sjúkdómatryggingar hjá VÍS og Landsbankanum. F í t o n / S Í A F I 0 0 6 5 5 6 FRÁ DRAUMAHÆÐ Í GARÐABÆ Sprengingin olli miklum skemmdum. Mikil mildi þykir að ungmennin slösuðust ekki meira en raun ber vitni. Gassprenging í Garðabæ: Fóru eftir reglugerð- um SPRENGING Sprengingin sem varð í raðhúsi í Garðabæ á sunnudags- kvöld var mjög öflug og olli mikl- um skemmdum bæði á húsi og bíl- skúr. Talið er víst að ungmennin fjögur sem voru í bílskúrnum þegar sprengingin varð hafi verið að sniffa gas. Skrúfað var frá tveimur níu kílóa gaskútum. Tveir drengir og ein stúlka voru flutt á brunadeild Landspítalans og er líðan þeirra sögð góð eftir atvikum og talið að þau nái sér að fullu. Ungmennin hlutu 1. og 2. stigs brunasár á hendur og andlit. Björn Karlsson brunamála- stjóri segir reglugerðir heimila tvo 11 kílóa gaskúta með svoköll- uðu F-gasi í bílskúrum, sumarhús- um og húsbílum. F-gas er algeng tegund í kútum sem notaðir eru til dæmis við útigrill. Þrátt fyrir það verður að gæta þess að næg loft- ræsting sé til staðar. Að athuguðu máli hafi húsráðendur farið eftir reglugerðum í raðhúsinu í Garða- bæ. „Síðan er alltaf spurning hversu langt ríkisvaldið á að ganga til að vernda þegna gegn mögulegum mannlegum mistök- um.“ ■ Einn í heiminum: Ók 25 km á móti umferð TÓKÍÓ, AP Japanskur karlmaður á áttræðisaldri ók pallbílnum sínum yfir 25 kílómetra á móti umferð á hraðbraut norður af Tókíó. Maður- inn, sem ók á 80 kílómetra hraða, gaf lögreglubílum sem eltu hann engan gaum. Hann hunsaði auk þess lögreglumenn á vélhjólum sem renndu upp að hlið bílsins til að gefa honum merki um að aka út í kant. Að lokum ók maðurinn utan í hlið bíls sem var að koma úr gagnstæðri átt. Við yfirheyrslu sagði maðurinn að þetta hefði verið í fyrsta sinn sem hann hefði ekið eftir hraðbraut og hann hefði ekki tekið eftir lög- reglubílunum sem eltu hann. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.